1392/2026. Úrskurður frá 29. september 2026

Hinn 29. september 2026 kvað úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóð­andi úrskurð nr. 1392/2026 í máli ÚNU 26090012.

Kæra og máls­atvik

Með erindi, dags. 14. september 2026, kærði […] til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál ákvörðun Vega­gerð­ar­innar að synja beiðni hans um upp­lýs­ingar.

Með erindi til Vega­gerð­ar­innar, dags. 7. september 2026, óskaði kærandi eftir nöfnum, starfsheiti og heim­il­is­fangi allra umsækjenda um stöðu starfs­manns á véla­verk­stæði Vega­gerð­ar­innar […]. Kærandi var meðal umsækjenda um starfið. Beiðninni var hafnað hinn 14. september 2026 á grundvelli 17. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993.

Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins, sbr. 31. gr. stjórn­sýslu­laga. Úrskurð­ar­nefndin hefur tekið mið af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

Niður­staða

Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993, gilda stjórn­sýslu­lögin þegar stjórn­völd taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna. Í athuga­semdum við þetta ákvæði sem fylgdu frumvarpinu sem varð að stjórn­sýslu­lögum kemur fram að hér undir falli m.a. ákvarðanir um skipun, setningu og ráðningu opin­berra starfs­manna, svo og lausn þeirra frá störfum.

Fyrir liggur að kærandi sótti um starf hjá Vega­gerð­inni, sem telst til stjórnvalda í fram­an­greindum skilningi. Ákvörðun Vega­gerð­ar­innar um ráðningu í það starf sem kærandi sótti um telst jafnframt ákvörðun um rétt eða skyldu í skilningi stjórn­sýslu­lag­anna. Um ráðninguna og ráðn­ing­ar­málið giltu því ákvæði stjórn­sýslu­lag­anna.

Samkvæmt fyrri málslið 2. mgr. 4. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012, gilda þau lög ekki um aðgang að upp­lýs­ingum samkvæmt stjórn­sýslu­lögum. Í 15. gr. stjórn­sýslu­lag­anna er að finna laga­ákvæði sem fjallar um upp­lýs­inga­rétt aðila stjórn­sýslu­máls. Í 1. málsl. 1. mgr. þess ákvæðis segir: „Aðili máls á rétt á aðgangi að skjölum og öðrum gögnum er mál varða.“ Þessi upp­lýs­inga­réttur sætir svo vissum takmörkunum, sem lýst er í 16. og 17. gr. laganna.

Kærandi telst, vegna umsóknar sinnar um fram­an­greinda stöðu hjá Vega­gerð­inni, vera aðili að ráðn­ing­ar­mál­inu í skilningi stjórn­sýslu­lag­anna ásamt öðrum umsækjendum um stöðuna. Réttur hans til aðgangs að gögnum ráðn­ing­ar­máls­ins ræðst þar með af ákvæðum stjórn­sýslu­lag­anna en ekki af ákvæðum upp­lýs­inga­laga. Úrlausn um beitingu stjórn­sýslu­laga að þessu leyti á ekki undir úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­ing­mála, sbr. 1. mgr. 20. gr. upp­lýs­inga­laga. Ber því að vísa kærunni frá úrskurð­ar­nefnd­inni.

Úrskurð­ar­orð

Kæru […], dags. 14. september 2026, vegna synjunar Vega­gerð­ar­innar á beiðni hans um aðgang að gögnum, er vísað frá úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir