1379/2026. Úrskurður frá 20. ágúst 2026
Hinn 20. ágúst 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1379/2026 í máli ÚNU 26050022.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 28. maí 2026, kærði […] til úrskurðarnefndar um upplýsingamál ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja beiðni hans um aðgang að gögnum.
Hinn 22. mars 2026 óskaði kærandi eftir gögnum sem „[sneru] að svokallaðri „lokun mála“ að frumkvæði Útlendingastofnunar í kjölfar tilkynningar þess efnis að umsækjendur [hefðu] horfið“ Nánar tiltekið fól upplýsingabeiðni kæranda í sér að hann krafðist yfirlits úr málaskrá stofnunarinnar þar sem tilgreind væru málsnúmer allra þeirra mála sem stofnuð hefðu verið vegna umsókna til Útlendingastofnunar á árunum 2023, 2024 og 2025 á grundvelli 36. og 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 sem lokað hefði verið með framangreindum hætti.
Útlendingastofnun svaraði erindinu 4. maí 2026. Í svarinu kom fram að upplýsingarnar um málsnúmer umsækjenda yrðu ekki afhentar þar sem stofnunin teldi að um væri að ræða persónugreinanleg gögn, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
Í fyrirliggjandi kæru byggir kærandi á því að málsnúmer teljist ekki til persónuupplýsinga samkvæmt 2. tölul. 1. mgr. 3. gr. persónuverndarlaga. Vísar kærandi til þess að við mat á því hvort upplýsingar teljist persónugreinanlegar skuli tekið mið af öllum þeim aðferðum sem eðlilegt sé að hugsa sér að ábyrgðaraðili eða annar aðili beiti til að bera kennsl á viðkomandi einstakling. Upplýsingar um málsnúmer séu ekki persónurekjanlegar með neinum hætti. Kærandi bendir jafnframt á að Útlendingastofnun hafi ekki reifað hvernig framangreint eigi að leiða til synjunar á beiðninni né hafi stofnunin lagt til neina afmörkun á beiðninni í samræmi við leiðbeiningarskyldu sína, sbr. 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Í kæru kemur einnig fram að ekki geti verið um mikinn málafjölda að ræða, enda heyri heimild stjórnvalda til að loka málum með þessum hætti til undantekninga.
Málsmeðferð
Kæran var kynnt Útlendingastofnun með erindi, dags. 2. júní 2026, og stofnuninni gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um hana. Þá var þess óskað að Útlendingastofnun afhenti úrskurðarnefnd um upplýsingamál þau gögn sem kæran varðar.
Umsögn Útlendingastofnunar barst úrskurðarnefndinni þann 19. júní 2026. Umsögninni fylgdi afrit af yfirliti úr málaskrá stofnunarinnar með yfirliti mála sem munu hafa verið stofnuð í málaskrá hennar vegna umsókna á grundvelli 36. og 37. gr. laga um útlendinga árin 2023, 2024 og 2025 og stofnunin lauk meðferð á með vísan til þess að umsækjandi væri horfinn eða farinn.
Í umsögninni kemur fram að réttur til upplýsinga samkvæmt 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga takmarkist m.a. af 9. gr. laganna. Samkvæmt 2. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 90/2018 teljast persónuupplýsingar hvers kyns upplýsingar sem tengjast tilteknum einstaklingum, í þessu tilviki umsækjendum um alþjóðlega vernd, enda geti þær, einar og sér eða í samspili við aðrar upplýsingar, borið kennsl á viðkomandi einstaklinga. Þrátt fyrir að erfitt geti reynst fyrir almenna borgara að finna út aðrar persónuupplýsingar út frá málsnúmerinu, verði hér sérstaklega að líta til þess að um viðkvæman hóp sé að ræða og að afhending upplýsinganna geti falið í sér raunhæfa hættu á persónugreiningu. Að mati stofnunarinnar teljast málsnúmer því til persónuupplýsinga í skilningi 2. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga um persónuvernd nr. 90/2018. Yfirlit úr málaskrá stofnunarinnar með þessum númerum geymi því upplýsingar um einkahagsmuni einstaklinga sem sanngjarnt sé og eðlilegt að leynt fari, sbr. 1. mgr. 9. gr. upplýsingalaga. Til stuðnings vísar stofnunin jafnframt til úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1065/2022. Að mati stofnunarinnar sé um að ræða þannig tilvik að hægt sé að veita tölfræðiupplýsingar sem byggðar séu á upplýsingum um einkahagsmuni en ekki verði veittur aðgangur að persónuupplýsingunum sjálfum.
Í umsögn Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi á því að stofnunin hefði getað afhent hluta upplýsinganna, svo sem upplýsingar um fjölda mála. Útlendingastofnun bendir á að beiðni kæranda lúti sérstaklega að afhendingu málsnúmera einstakra mála. Beiðnin taki þannig ekki til almennrar samantektar eða tölulegra upplýsinga. Verði óskað eftir því að fá nákvæman fjölda þeirra sem lutu sömu niðurstöðu, án persónugreinanlegra málsnúmera, verði orðið við þeirri beiðni, beiðnin þurfi hins vegar að koma fram, sbr. 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga. Þá telji stofnunin að afhending hluta málsnúmera hefði ekki komið í veg fyrir þá hættu á persónugreiningu sem að framan sé rakin.
Umsögn Útlendingastofnunar var kynnt kæranda með erindi, dags. 19. júní 2026, og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.
Niðurstaða
1.
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja beiðni kæranda um afhendingu gagna byggist 9. gr. upplýsingalaga, nánar tiltekið á því að umbeðið yfirlit yfir málsnúmer feli í sér persónugreinanlegar viðkvæmar upplýsingar sem leynt eigi að fara.
Í 9. gr. upplýsingalaga er að finna takmörkun á upplýsingarétti almennings vegna einkahagsmuna. Í 1. málsl. 9. gr. upplýsingalaga segir orðrétt:
Óheimilt er að veita almenningi aðgang að gögnum um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, nema sá samþykki sem í hlut á.
Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til upplýsingalaga segir að í greininni megi finna nokkurs konar vísireglu um það hvenær sé rétt að halda leyndum upplýsingum um einkahagsmuni. Þá segir eftirfarandi:
Stjórnvaldi, eða öðrum aðila sem ákvörðun tekur á grundvelli laganna, er með öðrum orðum ætlað að vega og meta umbeðin gögn með tilliti til þess hvort upplýsingar sem þau hafa að geyma séu þess eðlis að rétt sé að undanþiggja þær aðgangi almennings. Við það mat verður að taka mið af því hvort upplýsingarnar séu samkvæmt almennum sjónarmiðum svo viðkvæmar að þær eigi ekkert erindi við allan þorra manna
Að því er varðar takmörkun á aðgangi að upplýsingum um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga, sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, segir í athugasemdunum:
Erfitt er að tilgreina nákvæmlega þau sjónarmið sem stjórnvaldi er rétt að leggja til grundvallar við mat á því hvaða einkamálefni einstaklinga eru þannig vaxin að þau réttlæti undanþágu frá upplýsingarétti í hverju tilviki. Oft koma sérstakar reglur um þagnarskyldu í veg fyrir að aðgang megi veita að upplýsingum. Þegar þeim reglum sleppir má hafa í huga ýmis lagaákvæði sem sett hafa verið í sama augnamiði. Þannig er engum vafa undirorpið að viðkvæmar persónuupplýsingar samkvæmt lögum um persónuvernd eru allar undanþegnar aðgangi almennings skv. 9. gr. Þar má t.d. nefna upplýsingar um litarhátt, kynþátt, stjórnmálaskoðanir og trúarbrögð, upplýsingar um hvort maður hafi verið grunaður, ákærður eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað, upplýsingar um kynlíf manna og heilsuhagi, lyfja-, áfengis- og vímuefnanotkun, svo og upplýsingar um félagsleg vandamál. Aðrar upplýsingar sem geta talist viðkvæmar samkvæmt almennum viðmiðum í íslenskum rétti kunna einnig að falla undir ákvæðið þó þær teljist ekki viðkvæmar persónuupplýsingar samkvæmt persónuverndarlögum. Hér undir geta til að mynda fallið upplýsingar um fjármál einstaklinga og upplýsingar sem lúta beinlínis að öryggi þeirra.
Þá segir í athugasemdum um 9. gr.:
Undir 9. gr. geta fallið upplýsingar um hvort tiltekið mál er snertir ákveðinn einstakling sé eða hafi verið til meðferðar. Dæmi um slík tilvik væru t.d. upplýsingar um hvort tiltekinn einstaklingur hafi lagt fram umsókn um leyfi til að ættleiða barn, umsókn um fjárhagsaðstoð frá félagsmálastofnun eða umsókn um fóstureyðingu.
Af framangreindu virtu er ljóst að upplýsingar um félagslega stöðu einstaklinga, svo sem um að þeir njóti stöðu umsækjanda um alþjóðlega vernd og upplýsingar sem teljast hluti af slíkri umsókn, falla undir takmörkunarákvæði 9. gr. upplýsingalaga.
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur kynnt sér það gagn sem Útlendingastofnun afhenti nefndinni undir meðferð málsins. Um er að ræða skjal með þremur dálkum. Fyrsti dálkurinn ber yfirskriftina „Útl. nr“ og hefur að geyma yfirlit yfir þau málsnúmer sem um er deilt. Í öðrum dálknum er að finna yfirskriftina „lok máls“ og er þar ýmist um að ræða málalokin horfinn eða farinn. Í þriðja dálknum er að finna dagsetningu loka máls. Umrætt gagn, sem telst fyrirliggjandi í skilningi 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, geymir samkvæmt framangreindu þær upplýsingar sem kærandi hefur óskað aðgangs að.
Málsnúmerin sem fram koma í umræddu gagni eru 80 talsins. Ómögulegt er að mati nefndarinnar að ráða af málsnúmerum í skjalinu hvaða einstaklinga um ræðir. Þær upplýsingar falla þar með ekki undir 9. gr. upplýsingalaga, að minnsta kosti ekki eins og þær koma fram í fyrirliggjandi gagni. Sama er að segja um tilgreiningu í dálki 2 í skjalinu, þar sem fram kemur hvort viðkomandi máli var lokað á þeim grundvelli að umsækjandi væri horfinn eða farinn.
Í dálki 3 í skjalinu koma fram upplýsingar um það hvaða dag málinu var lokað af hálfu Útlendingastofnunar. Ekki verður með öllu útilokað að þær tilteknu upplýsingar megi tengja einstaklingum með þeim hætti sem Útlendingastofnun hefur haldið fram í málinu. Um þessar upplýsingar hefur kærandi ekki beðið og er því ekki ástæða til að leysa með endanlegum hætti úr því álitaefni í þessum úrskurði. Í úrskurðinum verður því heldur ekki lögð skylda á Útlendingastofnunar til að afhenda þann hluta af skjalinu.
Með vísan til framangreinds er, með vísan til 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, fallist á rétt kæranda til aðgangs að fyrirliggjandi gagni með yfirliti yfir þau málsnúmer sem kærandi hefur óskað aðgangs að, að undanskildum þeim upplýsingum um dagsetningu á lyktum máls sem fram koma í dálki 3 í skjalinu.
Úrskurðarorð
Útlendingastofnun skal veita kæranda, […], aðgang að því gagni sem stofnunin afhenti úrskurðarnefnd um upplýsingmál undir meðferð á fyrirliggjandi kæru […], að undanskildum upplýsingum í dálki 3 í skjalinu. Nánar tiltekið skal stofnunin afhenda […] fyrirliggjandi skjal með yfirliti úr málaskrá Útlendingastofnunar þar sem tilgreind eru málsnúmer þeirra mála sem stofnuð voru í málaskrá stofnunarinnar vegna umsókna til Útlendingastofnunar á árunum 2023, 2024 og 2025 á grundvelli 36. og 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og lokað var af hálfu stofnunarinnar á þeim grundvelli að umsækjandi hefði horfið eða farið. Skylda til afhendingar samkvæmt úrskurði þessum nær ekki til dálks 3 í skjalinu þar sem fram kemur hvaða dag hverju máli var lokað af hálfu stofnunarinnar.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir