1398/2026. Úrskurður frá 3. nóvember 2026

Hinn 3. nóvember 2026 kvað úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóð­andi úrskurð nr. 1398/2026 í máli ÚNU 26090001.

Kæra, máls­atvik og máls­með­ferð

Með bréfi, dags. 27. ágúst 2026, kærði […] til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál tafir á afgreiðslu embættis landlæknis á beiðni hans um gögn.

Hinn 27. júlí 2026 óskaði kærandi eftir úttekt embættis landlæknis á hjúkrunar- og dval­ar­heim­il­inu Hraunbúðum í Vest­manna­eyjum. Í beiðninni komu fram upp­lýs­ingar um nafn og heim­il­is­fang kæranda. Þar sem beiðnin hafði ekki verið afgreidd beindi kærandi erindi til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar, sbr. fram­an­greint.

Kæran var kynnt embætti landlæknis með erindi, dags. 7. september 2026.

Umsögn embættisins barst úrskurð­ar­nefnd­inni 21. september 2026. Í henni kemur fram að upphaflegri beiðni kæranda til embættisins hafi ekki fylgt símanúmer, netfang eða kennitala kæranda. Þá sé enginn með skráð lögheimili samkvæmt þjóðskrá á því heim­il­is­fangi sem kærandi hafi látið fylgja beiðni sinni. Svar til kæranda hafi því verið vandkvæðum bundið þar sem engar upp­lýs­ingar komi fram í erindinu sem staðfesta mættu hver hann væri. Umbeðin gögn væru hins vegar aðgengileg opin­ber­lega, og þá er tengill á vefsíðu embættisins þar sem gögnin er að finna felldur inn í umsögnina. Í umsögninni kemur enn fremur fram að embættið hafi lokað málinu þar sem upp­lýs­ing­arnar séu aðgengi­legar opin­ber­lega og engar upp­lýs­ingar séu til um það hvernig hægt sé að hafa samband við kæranda.

Umsögn embættis landlæknis var send kæranda með bréfpósti hinn 1. október 2026 og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athuga­semdum. Í skriflegum athuga­semdum kæranda, dags. 8. október 2026, kemur fram að búseta kæranda sé á því heim­il­is­fangi sem komi fram í upphaflegri beiðni hans til embættisins en lögheimili hans sé annað. Þá kemur fram kennitala kæranda, símanúmer hans og netfang. Kærandi óskaði eftir því að úrskurð­ar­nefndin framsendi upp­lýs­ing­arnar til embættis landlæknis.

Athuga­semdir kæranda voru kynntar embætti landlæknis 14. október 2026. Hinn 23. október 2026 brást embættið við og sagði kæranda hafa verið svarað með full­nægj­andi hætti og embættið sæi ekki ástæðu til að skila inn frekari athuga­semdum til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar. Í kjölfarið óskaði úrskurð­ar­nefndin eftir afriti af svari embættisins til kæranda til þess að geta fellt málið niður þar sem kæran laut að afgreiðslu­töfum. Embættið svaraði sama dag og sagði að í umsögn embættisins, dags. 21. september 2026, sem kynnt hefði verið kæranda af hálfu úrskurð­ar­nefnd­ar­innar, kæmu fram allar upp­lýs­ingar sem kærandi teldi sig þurfa þrátt fyrir opin­bera birtingu upp­lýs­ing­anna. Embætti landlæknis teldi því ljóst að kæranda hefði verið svarað með full­nægj­andi hætti.

Niður­staða

Í máli þessu kemur til úrskurðar hvort embætti landlæknis hafi afgreitt beiðni kæranda um aðgang að gögnum í samræmi við lög.

Embætti landlæknis hefur vísað til þess að embættinu hafi verið ókleift að afgreiða beiðni kæranda þar sem uppgefið heim­il­is­fang hans hafi ekki verið lögheimili hans.

Af þessu tilefni tekur úrskurð­ar­nefndin fram að í upphaflegri beiðni kæranda kom fram nafn hans og heim­il­is­fang. Þrátt fyrir að kærandi hefði ekki skráð lögheimili á heim­il­is­fang­inu sem hann gaf upp gat óvissa um hvernig ná mætti sambandi við kæranda því ekki staðið frekari meðferð málsins í vegi.

Þá tekur úrskurð­ar­nefndin einnig fram að hinn 14. október 2026 voru embættinu kynntar athuga­semdir kæranda þar sem fram komu frekari upp­lýs­ingar um hvernig mætti hafa samband við hann. Embættið afgreiddi beiðnina þó ekki með ákvörðun í máli kæranda, né leitaði það nánari skýringa eða upp­lýs­inga, heldur tilkynnti úrskurð­ar­nefnd­inni að það hefði lokað málinu.

Fram­an­greind máls­með­ferð embættis landlæknis telst ekki í samræmi við lög. Embættinu bar að taka beiðni kæranda til meðferðar og afgreiða hana svo fljótt sem verða mætti, sbr. 1. mgr. 17. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012. Þá bar embættinu að tilkynna kæranda um ákvörðun sína, sbr. 1. mgr. 20. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993, sbr. 4. mgr. 19. gr. upp­lýs­inga­laga.

Fyrir liggur að gögnin sem kærandi óskar eftir eru aðgengileg á vef embættis landlæknis. Embættið hefur ekki borið því við að umrædd gögn séu viðkvæm eða að nánari rannsókn málsins þurfi að fara fram. Embættið byggir í reynd á því að beiðni kæranda hafi verið afgreidd með full­nægj­andi hætti það er að úrskurð­ar­nefndin hafi sent kæranda umsögn frá embættinu, dags. 21. september 2026, þar sem fram komi að umbeðin úttekt sé aðgengileg opin­ber­lega og að hlekkur á hana hafi komið fram í texta umsagn­ar­innar.

Úrskurð­ar­nefndin telur af þessu tilefni rétt að árétta að það telst á ábyrgð þess stjórnvalds sem hefur beiðni um upp­lýs­ingar til meðferðar að afgreiða beiðnina og koma afgreiðslu hennar á framfæri við þann sem óskar upp­lýs­ing­anna, eins og áður er komið fram. Kynning úrskurð­ar­nefnd­ar­innar á umsögn embættisins fyrir kæranda var liður í meðferð kærumáls þessa og fól ekki í sér að nefndin tæki að sér afgreiðslu beiðninnar fyrir hönd embættisins.

Þá er einnig rétt að taka fram að umsögn embættisins var kynnt kæranda með bréfpósti. Vefslóðin (tengillinn) sem fram kemur í umsögninni er ekki virk þegar hún er send bréflega og full vefslóð, sem t.d. væri hægt fyrir móttakanda að slá sjálfur inn í vafra og nálgast gögn með þeim hætti, er ekki sýnileg í umsögninni. Kæranda var af þessum sökum ekki unnt að nota umsögnina eða tengil í henni til þess að nálgast umbeðin gögn og var því ekki hægt að líta svo á að kærandi hefði með afhendingu hennar fengið full­nægj­andi upp­lýs­ingar um hvar og með hvaða hætti úttektin væri aðgengileg almenningi, sbr. 2. mgr. 19. gr. upp­lýs­inga­laga og til hliðsjónar úrskurð úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál frá 20. maí 2026 nr. 1358/2026.

Samkvæmt fram­an­greindu verður ekki fallist á með embætti landlæknis að embættið hefði afgreitt beiðni kæranda með full­nægj­andi hætti. Verður því að vísa beiðni kæranda með úrskurði þessum til réttrar og lögmætrar afgreiðslu af hálfu embættis landlæknis og leggja fyrir embættið að taka málið til afgreiðslu sem fyrst.

Úrskurð­ar­orð

Lagt er fyrir embætti landlæknis að afgreiða beiðni kæranda, […], dags. 27. júlí 2026, um aðgang að úttekt embættis landlæknis á hjúkrunar- og dval­ar­heim­il­inu Hraunbúðum.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir

Var efnið hjálplegt?