1396/2026. Úrskurður frá 29. október 2026

Hinn 29. október 2026 kvað úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóð­andi úrskurð nr. 1396/2026 í máli ÚNU 26090008.

Kæra, máls­atvik og máls­með­ferð

Með erindi, dags. 9. september 2026, kærði […] til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál afgreiðslu Vest­manna­eyja­ferj­unnar Herjólfs ohf. (hér eftir Herjólfur) á beiðni um aðgang að gögnum.

Með erindi til Herjólfs óskaði kærandi eftir fundargerð stjórnar Herjólfs í ágústmánuði. Í svari Herjólfs, dags. 3. september 2026, kom fram að til einföldunar myndu fund­ar­gerðir ekki verða sendar kæranda þar sem þær væru birtar á vefnum og var gefin upp vefslóð þar sem finna mætti allar fund­ar­gerðir Herjólfs.

Í kæru er þess krafist að Herjólfur verði úrskurðaður til að afhenda fund­ar­gerðir á pappír eða láti í té aðstöðu fyrir kæranda til að prenta þær.

Kæran var kynnt Herjólfi með erindi, dags. 14. september 2026, og kærða gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Herjólfur brást við erindi úrskurð­ar­nefnd­ar­innar samdægurs og kvaðst hafa verið í þeirri trú að nægilegt væri að vísa á viðeigandi vefslóð væru upp­lýs­ingar aðgengi­legar á netinu.

Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins, sbr. 31. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993. Úrskurð­ar­nefndin hefur tekið mið af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

Niður­staða

Í máli þessu er deilt um afgreiðslu Herjólfs á beiðni kæranda um aðgang að fundargerð Herjólfs vegna stjórn­ar­fundar félagsins í ágústmánuði.

Í 2. mgr. 19. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012, segir að þegar beiðni um aðgang að gögnum sé afgreidd með vísan til þess að umbeðnar upp­lýs­ingar séu þegar aðgengi­legar almenningi, og án þess að umbeðin gögn séu afhent, skuli tilgreina nákvæmlega hvar og með hvaða hætti upp­lýs­ing­arnar séu aðgengi­legar.

Samkvæmt 1. mgr. 18. gr. upp­lýs­inga­laga skal veita aðgang að gögnum á því formi eða sniði og á þeim tungumálum sem þau eru varðveitt á, nema þau séu þegar aðgengileg almenningi, sbr. 2. mgr. 19. gr. laganna. Í 2. málsl. 1. mgr. 18. gr. segir svo að séu gögn eingöngu varðveitt á rafrænu formi geti aðili valið á milli þess að fá þau á því formi eða útprentuð á pappír. Í máli þessu kemur því til álita hvort 2. málsl. 1. mgr. 18. gr. leiði til þess að aðili hafi val um form umbeðinna gagna þegar þau eru þegar aðgengileg almenningi.

Í athuga­semdum við 18. gr. í frumvarpi því er varð að upp­lýs­inga­lögum nr. 140/2012 segir að séu upp­lýs­ingar þegar aðgengi­legar almenningi, til dæmis á vef stjórn­valds­ins eða á annarri vefslóð, sé almennt full­nægj­andi að vísa á upp­lýs­ing­arnar þar.

Með hliðsjón af fram­an­greindu hefur 2. málsl. 1. mgr. 18. gr. upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012 ekki verið túlkaður á þá leið að ákvæðið leggi skyldu á stjórn­völd að afhenda gögn á því formi sem aðili óskar eftir þegar þau eru þegar aðgengileg almenningi, sbr. 2. mgr. 19. gr. laganna og úrskurði nefnd­ar­innar nr. 598/2015, 675/2017, 896/2020, 914/2020, 943/2020 og 1358/2026. Herjólfi var því heimilt að afgreiða beiðni kæranda um aðgang að umbeðnum upp­lýs­ingum með því að gefa upp vefslóð á vef Vest­manna­eyja­bæjar með fund­ar­gerðum Herjólfs.

Þar sem umbeðin gögn eru þegar aðgengileg almenningi og Herjólfur hefur með full­nægj­andi hætti bent kæranda á hvar þau eru að finna verður afgreiðsla Herjólfs staðfest.

Úrskurð­ar­orð

Ákvörðun Vest­manna­eyja­ferj­unnar Herjólfs ohf. um afhendingu á fundargerð í ágústmánuði 2026 er staðfest.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir

Var efnið hjálplegt?