1390/2026. Úrskurður frá 29. september 2026
Hinn 29. september 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1390/2026 í máli ÚNU 26040024.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 27. apríl 2026, kærði […] til úrskurðarnefndar um upplýsingamál að Múlaþing hefði ekki afgreitt upplýsingabeiðni hans.
Í kærunni kemur fram að Múlaþing innheimti gjald vegna reksturs grenndar- og söfnunarstöðva af jörðinni […] í Múlaþingi. Í framhaldi af því óskaði kærandi eftir rökstuðningi fyrir að gjaldið væri innheimt þar sem jörðin væri í eyði, enginn dveldi þar og engin losun úrgangs ætti sér stað. Í kjölfar þess að rökstuðningur var veittur beindi kærandi öðru erindi til sveitarfélagsins, dags. 13. febrúar 2026. Í því erindi óskaði hann eftir upplýsingum um hvort Múlaþing hefði á árunum 2023–2026 veitt einhverri fasteign, fasteignaflokki eða tilteknum eigendum undanþágu, niðurfellingu, frestun eða aðra ívilnun frá föstu gjaldi vegna reksturs grenndar- og söfnunarstöðva. Hefðu slíkar ákvarðanir verið teknar óskaði kærandi eftir upplýsingum um fjölda tilvika, almennri lýsingu á þeim sjónarmiðum og skilyrðum sem legið hefðu til grundvallar og tilvísun í viðkomandi stjórnvaldsákvarðanir, samþykktir eða fundargerðir.
Málsmeðferð
Kæran var kynnt Múlaþingi með erindi, dags. 29. apríl 2026. Í erindinu var skorað á Múlaþing að afgreiða beiðnina eins fljótt og verða mætti, en ellegar koma á framfæri umsögn um málið til nefndarinnar auk afrits af þeim gögnum sem kæran lyti að.
Beiðni kæranda var afgreidd hinn 26. maí 2026. Í svari Múlaþings til kæranda kom fram að gögnin sem óskað væri eftir lægju ekki fyrir í skilningi upplýsingalaga. Múlaþing notaðist við gagnagrunn og álagningarkerfi sem tilheyrði Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Talsverða vinnu þyrfti að inna af hendi til að útvega kæranda þær upplýsingar sem hann óskaði eftir. Vitað væri um eitt tilfelli þar sem undanþága frá gjaldi vegna reksturs grenndar- og söfnunarstöðva hefði verið veitt.
Með erindi, dags. 2. júní 2026, óskaði kærandi eftir að málinu yrði haldið áfram hjá nefndinni þótt beiðni hans hefði verið afgreidd. Í svari Múlaþings kæmi fram að undanþága frá gjaldinu hefði verið veitt a.m.k. einu sinni. Ætla mætti að gögn lægju fyrir um það tilvik. Beiðni kæranda lyti að slíkum gögnum eftir því sem þau lægju fyrir, en ekki að Múlaþing byggi til ný gögn eða tæki saman tölfræðilegar upplýsingar.
Úrskurðarnefndin óskaði með erindi, dags. 18. ágúst 2026, eftir upplýsingum frá Múlaþingi um hvort í vörslum sveitarfélagsins lægju fyrir gögn sem innihéldu þær upplýsingar sem beiðni kæranda frá 13. febrúar 2026 hefði lotið að, þ.m.t. gögn vegna þess tilviks sem vísað væri til í ákvörðun Múlaþings frá 26. maí 2026. Múlaþing svaraði erindinu hinn 31. ágúst 2026. Erindinu fylgdu þau gögn sem fundist hefðu í tengslum við málið. Sveitarfélagið teldi að kærandi ætti rétt til aðgangs að þeim. Gögnin voru í framhaldinu afhent kæranda hinn 31. ágúst 2026.
Kærandi óskaði eftir því með erindi, dags. 9. september 2026, að málinu yrði haldið áfram. Að mati kæranda ætti að fella niður gjald vegna reksturs grenndar- og söfnunarstöðva hjá […]. Afhending gagna úr vörslum Múlaþings breytti ekki afstöðu kæranda til kærunnar. Afhendingin leysti ekki úr þeim ágreiningi sem kærandi hefði gert athugasemdir við og fæli ekki í sér að hann teldi málinu lokið.
Með erindi, dags. 9. september 2026, óskaði nefndin upplýsinga hjá Múlaþingi um hvort gögn sem afhent hefðu verið kæranda hinn 31. ágúst 2026 væru öll þau gögn sem lægju fyrir hjá sveitarfélaginu og féllu undir beiðni kæranda frá 13. febrúar 2026. Sveitarfélagið svaraði hinn 16. september 2026. Í svarinu kom fram að Múlaþingi væri ekki kunnugt um að frekari gögn lægju fyrir sem féllu undir beiðni kæranda en þau sem hann hefði fengið afhent hinn 31. ágúst 2026. Svarið var kynnt kæranda hinn 16. september 2026 og honum veitt tækifæri til að bregðast við því. Viðbrögð við svarinu bárust ekki frá kæranda.
Niðurstaða
Grundvöllur kæru í máli þessu var að Múlaþing hefði ekki afgreitt beiðni kæranda um gögn í tengslum við gjaldtöku vegna reksturs grenndar- og söfnunarstöðva. Meðan málið var til meðferðar hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál var beiðnin afgreidd. Ljóst er að kærandinn fellir sig ekki við afgreiðslu beiðninnar.
Ákvörðun Múlaþings með afgreiðslunni var rökstudd þannig að óskylt væri að verða við beiðninni því hún krefðist þess að gögn yrðu unnin upp úr gagnagrunnum sem tilheyrðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Kærandinn gerði ljóst að hann óskaði einkum eftir gögnum sem þegar lægju fyrir í vörslu Múlaþings. Eftir að málið var lagt í þann farveg af hálfu sveitarfélagsins var gerð leit að gögnum sem féllu undir beiðni kæranda og þau gögn sem fundust afhent honum. Frekari gögn sem falla undir beiðnina liggja að sögn ekki fyrir í vörslu Múlaþings.
Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, er skylt, sé þess óskað, að veita almenningi aðgang að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál, með þeim takmörkunum sem greinir í 6.–10. gr. laganna. Sama gildir þegar óskað er aðgangs að tilteknum fyrirliggjandi gögnum. Ekki er þó skylt að útbúa ný skjöl eða önnur gögn í ríkari mæli en leiðir af 3. mgr. lagagreinarinnar. Í athugasemdum um 5. gr. með frumvarpinu sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, segir að réttur til aðgangs að gögnum nái aðeins til þeirra gagna sem til eru og fyrir liggja á þeim tímapunkti þegar beiðni um aðgang er sett fram og í þeirri mynd sem þau eru á þeim tíma.
Úrskurðarnefndin hefur ekki forsendur til að draga í efa þá staðhæfingu Múlaþings að ekki liggi fyrir í vörslu sveitarfélagsins frekari gögn sem falli undir beiðni kæranda en þau sem þegar hafa verið afhent honum. Skýringar Múlaþings og gögn málsins að öðru leyti gefa ekki tilefni til að ætla að frekari gögn sem heyri undir beiðnina liggi fyrir. Að þessu virtu og með vísan til 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga verður lagt til grundvallar að ekki liggi fyrir hjá Múlaþingi frekari gögn sem falli undir beiðni kæranda. Verður afgreiðsla Múlaþings á beiðni kæranda því staðfest að þessu leyti.
Úrskurðarvald nefndarinnar samkvæmt upplýsingalögum er bundið við að skera úr um ágreining sem varðar synjun beiðni um aðgang að gögnum og synjun beiðni um að afhenda gögn á því formi sem óskað er, sbr. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga. Kæruheimild vegna ágreinings um lögmæti gjaldtöku í tengslum við rekstur grenndar- og söfnunarstöðva er að finna í lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, sbr. 67. gr. þeirra laga. Athugasemdir kæranda sem lúta að því að fellt verði niður gjald vegna reksturs grenndar- og söfnunarstöðva koma því ekki til skoðunar eða úrlausnar í máli þessu.
Úrskurðarorð
Staðfest er afgreiðsla Múlaþings á beiðni kæranda, […], dags. 13. febrúar 2026, að því leyti sem hún byggist á að ekki liggi fyrir frekari gögn sem falla undir beiðnina en þau sem þegar hafa verið afhent kæranda.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir