1388/2026. Úrskurður frá 29. september 2026

Hinn 29. september 2026 kvað úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóð­andi úrskurð nr. 1388/2026 í máli ÚNU 26020008.

Kæra og máls­atvik

Með erindi, dags. 15. febrúar 2026, kærði […] til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál ákvörðun Reykja­vík­ur­borgar að synja beiðni hans um aðgang að gögnum.

Samkvæmt gögnum málsins fór fram [for­eldra­tengdur viðburður] í leik­skól­anum […] hinn […]. Kæranda mun hafa verið boðið […] sem for­sjárað­ila barns í leik­skól­anum. Þegar kærandi hafi mætt í leikskólann hafi honum verið vísað burt […]. […]

Í framhaldi af atvikinu sendi kærandi upp­lýs­inga­beiðni til leikskólans, dags. […]. Í beiðninni óskaði hann m.a. eftir samskiptum leikskólans við móður barns kæranda varðandi umgengni, komu hans í leikskólann, takmarkanir á aðkomu hans eða réttindum, og önnur mál sem vörðuðu kæranda sem for­sjárað­ila. Þá óskaði hann skýringa á brottvísun hans af leik­skól­anum og hver grundvöllur þeirrar ákvörðunar hefði verið.

Með erindi, dags. […], upplýsti leikskólinn kæranda að […]. Viðbrögð leikskólans hefðu byggst á því að það þætti ljóst af úrskurði […], sem leikskólinn hefði fengið afhentan áður en [við­burð­ur­inn] fór fram, að umgengni kæranda við barn hans væri takmörkuð og ekki á þeim tíma sem [viðburðurinn] skyldi fara fram. [Við­burð­ur­inn] hefði síðan farið fram áður en leik­skól­anum hefði gefist tækifæri til að senda kæranda upp­lýs­ingar um að úrskurð­ur­inn hefði borist og gefa honum kost á að leggja fram sín sjónarmið.

Leikskólinn vildi nú gefa kæranda kost á að koma á framfæri sjónarmiðum sínum gagnvart þeirri ályktun að umgengni kæranda skyldi eingöngu fara fram á þeim tímum sem getið væri um í úrskurði […], og þar af leiðandi ætti kærandi ekki rétt á að koma í leikskólann á öðrum tímum eða í ósamræmi við úrskurðinn.

Varðandi beiðni um upp­lýs­ingar um samskipti leikskólans við móður barnsins yrði hún afgreidd á grundvelli reglugerðar um skil og miðlun upp­lýs­inga milli leik- og grunnskóla, nr. 896/2009, með takmörkunum samkvæmt 17. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993, og ákvæðum upp­lýs­inga­laga um aðgang aðila að upp­lýs­ingum um hann sjálfan.

Kærandi brást við erindinu daginn eftir, […]. Hann tók fram að í úrskurði […] væri hvergi vikið að því að réttur hans til að koma í leikskólann væri takmarkaður. Hann óskaði eftir úrskurði […] frá leik­skól­anum.

Úrskurð­ur­inn var afhentur hinn […]. Í með­fylgj­andi erindi leikskólans kom fram að ekki væri annað að sjá en að úrskurður […], […], væri í gildi. Að mati leikskólans samræmdist það ekki úrskurðinum að […]. Kærandi svaraði daginn eftir og hafði eftir […] að úrskurð­ur­inn tæki á því hvert skyldi vera inntak umgengni og hvernig hún skyldi fara fram; hann tæki ekki á þeim máls­atvikum sem hefðu orðið í leik­skól­anum.

Í erindi leikskólans, dags. […], kom fram að leitað yrði leið­bein­inga hjá […] vegna málsins. Í erindinu var upp­lýs­inga­beiðni kæranda afgreidd. Afgreiðslan fól í sér að umbeðin gögn voru afhent að hluta, á grundvelli 14. gr. upp­lýs­inga­laga. Þau gögn sem ekki væru afhent hefðu að geyma upp­lýs­ingar um einka­mál­efni annarra; það væri mat Reykja­vík­ur­borgar að hags­munir viðkomandi af leynd vægju þyngra en hags­munir kæranda af að fá aðgang að þeim, sbr. 3. mgr. laga­grein­ar­innar. […]

Gögnin sem afhent voru kæranda, með yfir­strik­unum, voru: 1) Tölvupóstur frá móður barns kæranda til starfs­manns Reykja­vík­ur­borgar, dags. […], og 2) tölvu­póst­sam­skipti milli móður barns kæranda og leik­skóla­stjóra […] frá tímabilinu […]. Í tölvu­póst­sam­skipt­unum afhenti móðirin leik­skóla­stjór­anum úrskurð […] og leik­skóla­stjór­inn spurði móðurina hvernig henni þætti rétt að bregðast við ef kærandi mætti [á for­eldra­tengda viðburðinn].

Í kæru til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar kemur fram að kærandi þurfi að fá aðgang að umbeðnum gögnum í heild sinni og að hags­munir hans af aðgangi séu miklir, því þau geymi forsendur sem lagðar hafi verið til grundvallar þeirri ákvörðun að vísa kæranda af leik­skól­anum.

Máls­með­ferð

Kæran var kynnt Reykja­vík­ur­borg með erindi, dags. 18. febrúar 2026, og borginni gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að borgin afhenti úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þau gögn sem kæran varðar.

Umsögn Reykja­vík­ur­borgar barst úrskurð­ar­nefnd­inni hinn 24. mars 2026. Í umsögninni kemur fram að þær upp­lýs­ingar sem hafi verið afmáðar úr gögnunum sem kærendum voru afhent séu um einka­mál­efni annarra og að hags­munir móður barnsins af að upp­lýs­ing­arnar fari leynt vegi þyngra en hags­munir kæranda af að fá aðgang að þeim. […] Afgreiðsla borgarinnar hafi verið í samræmi við upp­lýs­inga­lög.

Í kjölfar þess að umsögn Reykja­vík­ur­borgar var kynnt kæranda, kom hann á framfæri frekari athuga­semdum með erindi, dags. 31. mars 2026. Í athuga­semd­unum er tekið fram að dóms­mála­ráðu­neytið hafi komist að þeirri niður­stöðu að aðgerðir leikskólans gagnvart kæranda hafi verið ólögmætar og í kjölfar þess hafi ákvarðanir leikskólans verið dregnar til baka.

Úrskurð­ar­nefndin beindi fyrirspurn til Reykja­vík­ur­borgar með erindi, dags. 1. júní 2026, varðandi gögnin sem beiðni kæranda hefði verið afmörkuð við. Í svari borgarinnar, dags. 5. júní 2026, kom fram að það gagn sem hefði að geyma fyrsta samtal foreldra og deild­ar­stjóra væru óformlegir minnis­punktar deild­ar­stjóra sem teknir hefðu verið þegar rætt hefði verið við móður barnsins til að undirbúa komu þess í leikskólann. Við skráningu minnis­punkt­anna hefði ekki verið í und­ir­bún­ingi eða vinnslu mál sem tengdist heimildum eða réttindum kæranda. Því hefði það verið mat Reykjavíkur að um vinnugagn væri að ræða samkvæmt upp­lýs­inga­lögum.

[…]

Úrskurð­ar­nefndin óskaði nánari upp­lýs­inga frá Reykja­vík­ur­borg með erindi, dags. 16. september 2026, um staðhæfingu frá kæranda um að ákvarðanir leikskólans í málinu hefðu verið dregnar til baka. Í svari Reykja­vík­ur­borgar, dags. 21. september 2026, kom fram að leikskólinn hefði leitað leið­bein­inga hjá […] í kjölfar atviksins sem málið varðaði. Í framhaldi af því var kærandi upplýstur um að hann væri velkominn [á for­eldra­tengdan viðburð] leikskólans, dags. […], sem var næsti for­eldra­tengdi við­burð­ur­inn á eftir þeim sem málið varðaði.

Niður­staða

Mál þetta varðar beiðni kæranda um samskipti leikskólans […] við móður barns kæranda varðandi umgengni, komu hans í leikskólann, takmarkanir á aðkomu hans eða réttindum, og önnur mál sem vörðuðu kæranda sem for­sjárað­ila barnsins. Beiðnin var lögð fram í framhaldi af því að kærandi var beðinn um að yfirgefa [for­eldra­tengdan viðburð] á vegum leikskólans. Beiðnin var afgreidd með afhendingu gagna á grundvelli 14. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012, með upp­lýs­ingum afmáðum sem vörðuðu einka­mál­efni annarra.

Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993, gilda lögin þegar stjórn­völd taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna. Lögin gilda um öll mál sem til greina kemur að ljúka með stjórn­valds­ákvörðun, hvort sem slík ákvörðun er að lokum tekin eða ekki.

Af gögnum málsins verður ráðið að leikskólinn […] hafi, ekki síðar en hinn […], tekið til meðferðar það úrlausn­ar­efni hvort leikskólinn hefði rétt á að takmarka komur kæranda í leikskólann, þ.m.t. þátttöku í for­eldra­tengdum viðburðum og samskipti hans við barn sitt í leik­skól­anum. Þann dag gaf leikskólinn móður barns kæranda kost á að leggja fram gögn í tengslum við það, t.d. um forsjá og umgengni, þar sem leikskólinn væri að jafnaði ekki bær til að takmarka aðgengi foreldris að barni sínu nema að undangengnu mati. Samdægurs sendi móðir barnsins leik­skól­anum úrskurð […] um umgengni kæranda við barnið […].

Hinn […], tíu dögum eftir að [for­eldra­tengdi við­burð­ur­inn] fór fram, var kæranda síðan veittur kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, áður en leikskólinn mótaði afstöðu sína til málsins, um þær upp­lýs­ingar að umgengni hans skyldi takmarkast við þá tíma sem greindi í úrskurði […] og að honum væri því ekki heimilt að koma í leikskólann á öðrum tímum. Málið var síðar tekið til frekari athugunar og leitað leið­bein­inga vegna þess. Í framhaldi af því var kærandi upplýstur um að hann væri velkominn [á næsta for­eldra­tengda viðburð] leikskólans, dags. […].

Ekki er þörf á að taka afstöðu til þess hvort beiðni starfs­manns leikskólans um að kærandi yfirgæfi leikskólann hinn […] hafi, ein og sér, verið ákvörðun um rétt eða skyldu kæranda, eða hvort málið, sem hófst í síðasta lagi hinn […], hafi að lokum verið leitt til lykta með slíkri ákvörðun. Efni málsins laut að því hvort leikskólinn hefði rétt á að takmarka komur kæranda í leikskólann, þ.m.t. þátttöku í for­eldra­tengdum viðburðum og samskipti hans við barn sitt í leik­skól­anum. Málið gat þannig leitt til ákvörðunar um rétt eða skyldu kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórn­sýslu­laga og var málið því stjórn­sýslu­mál. Enn fremur telur úrskurð­ar­nefndin ljóst að kærandi hafi átt aðild að málinu.

Samkvæmt 1. mgr. 15. gr. stjórn­sýslu­laga á aðili máls rétt á að kynna sér skjöl og önnur gögn er málið varða. Við afmörkun á því hvaða gögn teljast varða mál verður að líta til þess hvort þau hafa efnislega þýðingu fyrir eða tengsl við það úrlausn­ar­efni sem er til meðferðar. Rétturinn verður því ekki afmarkaður við þau gögn sem hafa að geyma forsendur ákvörðunar eða sem niður­staða máls hefur beinlínis verið reist á.

Þau gögn sem ágrein­ingur í málinu varðar eru tölvupóstar frá móður barns kæranda til starfs­manna leikskólans, dags. […], og skjal sem ber heitið „Fyrsta samtal foreldra og deild­ar­stjóra“. Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda veittur aðgangur að tölvu­póst­unum að hluta.

Tölvu­póst­sam­skiptin […] varða umgengni kæranda og aðgengi hans að barninu í leik­skól­anum, þeim gögnum sem lágu fyrir um umgengni og því hvernig leikskólinn skyldi bregðast við kæmi kærandi á for­eldra­tengdan viðburð. Teljast þau því til gagna málsins.

Tölvu­póst­ur­inn […] varð til í tengslum við fyrra atvik við leikskólann og hafði að geyma afstöðu móður barnsins til umgengni kæranda við barnið utan tilgreindra umgengnis­tíma. Þótt tölvu­póst­ur­inn hafi orðið til áður en fram­an­greint stjórn­sýslu­mál hófst hafði hann að efni til bein tengsl við sama úrlausn­ar­efni og telst til gagna málsins. Hið sama á við um skjalið „Fyrsta samtal foreldra og deild­ar­stjóra“, sem hefur að geyma upp­lýs­ingar sem varða heimildir kæranda til umgengni við barnið í leik­skól­anum og varða stjórn­sýslu­málið í skilningi 1. mgr. 15. gr. stjórn­sýslu­laga. Um rétt kæranda til aðgangs að fram­an­greindum gögnum, og takmarkanir á þeim rétti, fer því samkvæmt ákvæðum stjórn­sýslu­laga.

Samkvæmt fyrri málslið 2. mgr. 4. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012, gilda lögin ekki um aðgang að upp­lýs­ingum samkvæmt stjórn­sýslu­lögum. Kæruheimild til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál, sbr. 1. mgr. 20. gr. upp­lýs­inga­laga, er afmörkuð við synjanir samkvæmt þeim lögum. Úrskurð­ar­nefndin er í ljósi þessa ekki bær til að leggja mat á rétt kæranda til aðgangs að þeim gögnum sem deilt er um aðgang að. Verður kærunni því vísað frá úrskurð­ar­nefnd­inni.

Úrskurð­ar­orð

Kæru […], dags. 15. febrúar 2026, er vísað frá úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir