1387/2026. Úrskurður frá 15. september 2026

Hinn 15. september 2026 kvað úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóð­andi úrskurð nr. 1387/2026 í máli ÚNU 26060020.

Kæra, máls­atvik og máls­með­ferð

Með erindi, dags. 22. júní 2026, kærði […] til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál ákvörðun Vest­manna­eyja­bæjar að synja beiðni hans um aðgang að gögnum.

Samkvæmt gögnum málsins auglýsti Vest­manna­eyja­bær lausa stöðu garð­yrkju­stjóra sveit­ar­fé­lag­sins. Umsókn­ar­frestur var til og með 4. maí 2026. Hinn 28. apríl 2026 óskaði kærandi eftir upp­lýs­ingum um nöfn umsækjenda frá sveit­ar­fé­lag­inu. Með erindi, dags. 16. júní 2026, var kæranda tjáð að hætt hefði verið við ráðningu í starfið. Kærandi ítrekaði erindi sitt daginn eftir og óskaði eftir nöfnum umsækjenda sem legið hefðu fyrir þegar ákvörðun hefði verið tekin að hætta við ráðninguna. Í svari sveit­ar­fé­lag­sins, dags. 19. júní 2026, var kæranda tjáð að hætt hefði verið við ráðningu í starfið og því yrðu nöfn umsækjenda ekki opin­beruð.

Kæran var kynnt Vest­manna­eyjabæ með erindi, dags. 2. júlí 2026, og sveit­ar­fé­lag­inu gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að sveit­ar­fé­lagið afhenti úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þau gögn sem kæran varðar.

Nöfn umsækjenda bárust úrskurð­ar­nefnd­inni hinn 7. júlí 2026. Hinn 13. júlí 2026 upplýsti Vest­manna­eyja­bær nefndina um að sviðsstjóri umhverfis- og fram­kvæmda­sviðs bæjarins hefði gert umsækjendum viðvart um það hinn 12. júní 2026 að hætt hefði verið við ráðninguna.

Úrskurð­ar­nefndin ítrekaði beiðni sína um umsögn hinn 20. júlí 2026. Samdægurs barst svar frá sveit­ar­fé­lag­inu um að það hygðist ekki að senda frá sér sérstakan rökstuðning annan en þann að fallið hafi verið frá ráðningu og að það væri íþyngjandi fyrir umsækjendur að birta nöfn þeirra.

Hinn 1. september 2026 upplýsti Vest­manna­eyja­bær úrskurð­ar­nefnd­ina um að enginn umsækjenda um starfið hefði afturkallað umsókn sína. Því hefðu allar umsóknir verið virkar þegar hætt hefði verið við ráðninguna.

Niður­staða

Í máli þessu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að upp­lýs­ingum um nöfn umsækjenda um starf garð­yrkju­stjóra hjá Vest­manna­eyjabæ. Kærandi óskaði eftir upp­lýs­ing­unum hinn 28. apríl 2026, áður en umsókn­ar­frestur rann út hinn 4. maí 2026. Umsækjendum um starfið var tilkynnt með erindi, dags. 12. júní 2026, að fallið hefði verið frá ráðningunni. Í kjölfarið var kæranda tjáð að upp­lýs­ing­arnar yrðu ekki afhentar, með vísan til þess að fallið hefði verið frá ráðningunni.

Í 1. tölul. 2. mgr. 7. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012, er mælt fyrir um að þegar aðrar takmarkanir á upp­lýs­inga­rétti samkvæmt lögunum eigi ekki við sé skylt að veita upp­lýs­ingar, sem varði opin­bera starfsmenn, um nöfn og starfsheiti umsækjenda um starf þegar umsókn­ar­frestur er liðinn. Með hliðsjón af atvikum málsins, og þar sem beiðni kæranda hafði ekki verið afgreidd af sveit­ar­fé­lag­inu þegar umsókn­ar­frestur um starfið rann út, verður að líta svo á að beiðni kæranda hafi falið í sér ósk um lista yfir nöfn umsækjenda samkvæmt þessu laga­ákvæði.

Um forsögu ákvæðisins í 1. tölul. 2. mgr. 7. gr. upp­lýs­inga­laga og þau sjónarmið sem það byggist á vísast m.a. til umfjöllunar í úrskurði úrskurð­ar­nefnd­ar­innar nr. 1302/2025 frá 3. október 2025. Eins og þar er rakið er skylda til að veita upp­lýs­ingar um nöfn umsækjenda um opin­ber störf í stjórn­sýsl­unni, að liðnum umsókn­ar­fresti, almenn regla í íslenskum rétti

Umsækjendum um starf garð­yrkju­stjóra var greint frá því með erindi, dags. 12. júní 2026, að fallið hefði verið frá ráðningunni. Vest­manna­eyja­bær hefur einkum vísað til þess að það sé íþyngjandi fyrir umsækjendur að listi með nöfnum þeirra verði birtur. Úrskurð­ar­nefndin telur að sjónarmið af því tagi eigi sér ekki stoð í lögum og geti ekki vikið til hliðar upp­lýs­inga­rétti kæranda í þessu máli. Nefndin telur því að Vest­manna­eyjabæ sé skylt að veita kæranda aðgang að upp­lýs­ingum um nöfn þeirra sem voru umsækjendur um starf garð­yrkju­stjóra við lok umsókn­ar­frests­ins hinn 4. maí 2026 og verður hin kærða ákvörðun því felld úr gildi.

Úrskurð­ar­orð

Vest­manna­eyja­bær skal veita kæranda, […], aðgang að upp­lýs­ingum um nöfn umsækjenda um starf garð­yrkju­stjóra Vest­manna­eyja­bæjar við lok umsókn­ar­frests­ins hinn 4. maí 2026.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir