1386/2026. Úrskurður frá 15. september 2026

Hinn 15. september 2026 kvað úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóð­andi úrskurð nr. 1386/2026 í máli ÚNU 26050010.

Kæra og máls­atvik

Hinn 13. maí 2026 kærði […] til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál ákvörðun Sveit­ar­fé­lag­sins Árborgar að synja beiðni hennar um aðgang að gögnum.

Með erindi, dags. 9. apríl 2026, óskaði kærandi eftir milli­upp­gjöri og fjár­hags­tölum fyrir árið 2026, út febr­úar­mánuð, sem lögð hefðu verið fram á fundi bæjarráðs Árborgar sama dag. Daginn eftir synjaði sveit­ar­fé­lagið beiðninni á þeim grunni að gögnin teldust vinnu­gögn samkvæmt upp­lýs­inga­lögum, þar sem milli­upp­gjörið væri ekki endanlegt og afstemmt. Í opnu bókhaldi á vef sveit­ar­fé­lag­sins væri hins vegar að finna alla árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­sins og fjár­hags­áætl­anir. Kærandi kveðst ósammála þeirri afstöðu sveit­ar­fé­lag­sins að um vinnu­gögn sé að ræða, enda hafi gögnin verið lögð fram á fundi bæjarráðs og fengið málsnúmer.

Máls­með­ferð

Kæran var kynnt Sveit­ar­fé­lag­inu Árborg 15. maí 2026 og kostur gefinn á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að sveit­ar­fé­lagið afhenti úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þau gögn sem kæran varðar.

Umsögn sveit­ar­fé­lag­sins barst úrskurð­ar­nefnd­inni hinn 8. júní 2026. Umsögninni fylgdu fjögur skjöl sem sveit­ar­fé­lagið teldi að heyrðu undir beiðni kæranda:

1. „Útskýringar á frávikum febrúar 2026“

2. „Upp­áskrifta­reikn­inga feb 2026“

3. „Frávik febrúar niður á deildir 2026“

4. „Frávik febrúar 2026“

Í umsögninni kemur fram að gögnin sem málið varða uppfylli öll skilyrði vinnugagna í skilningi upp­lýs­inga­laga. Gögnin hafi verið útbúin af starfs­manni fjár­mála­deildar sveit­ar­fé­lag­sins. Þau séu ekki hluti af endanlega afstemmdum rekstrar- og efna­hags­reikn­ingi heldur ófullgerð vinnu­gögn; því sé ekki hægt að byggja á þeim við neina formlega ákvarð­ana­töku. Tilgangur með gögnunum hafi eingöngu verið sá að vera innanhúss vinnu­gögn til að fylgjast með þróun fjár­hags­stærða. Þá hafi gögnin alfarið verið rituð og sett saman innanhúss af starfs­manni fjár­mála­deildar sveit­ar­fé­lag­sins, ekki af utan­að­kom­andi sér­fræð­ingum eða verktökum. Gögnin hafi verið lögð fram á fundi bæjarráðs sem liður í innri starfsemi og stjórnun sveit­ar­fé­lag­sins. Bæjarráð og bæjarstjórn heyri til innra skipulags sveit­ar­fé­lag­sins og því feli kynning eða afhending vinnugagna til kjörinna fulltrúa ekki í sér afhendingu til utan­að­kom­andi. Gögnunum hafi ekki verið dreift eða þau afhent út fyrir stjórn­sýslu sveit­ar­fé­lag­sins.

Þá eigi 3. mgr. 8. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012, ekki við í málinu; gögnin hafi ekki verið endanlega afstemmd og sýni því ekki raun­veru­lega efna­hags­lega stöðu. Því hafi ekki verið byggt á þeim við ákvarðanir eða úrlausnir mála í bæjarráði eða bæjarstjórn. Upp­lýs­ingar um raunveruleg og endanleg fjármál sveit­ar­fé­lag­sins komi fram í öðrum opin­berum gögnum, einkum árs­reikn­ingum og opnu bókhaldi sveit­ar­fé­lag­sins sem aðgengilegt sé almenningi.

Umsögn sveit­ar­fé­lag­sins var kynnt kæranda með erindi, dags. 8. júní 2026, og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athuga­semdum. Þær bárust sama dag.

Með erindi, dags. 18. ágúst 2026, óskaði úrskurð­ar­nefndin eftir nánari útskýringum á þeim gögnum sem sveit­ar­fé­lagið teldi að féllu undir beiðni kæranda og afhent höfðu verið samhliða umsögn til nefnd­ar­innar. Svör sveit­ar­fé­lag­sins bárust hinn 26. ágúst 2026. Í þeim kemur í fyrsta lagi fram að „Frávik febrúar niður á deildir 2026“ og „Frávik febrúar 2026“ séu fjár­hags­upp­lýs­ingar um frávik deilda eða sviða. Gögnin gefi ákveðna sýn á rekstur sveit­ar­fé­lag­sins en séu ekki nærri því eins nákvæm og sex mánaða milli­upp­gjörið eða árs­reikn­ingur. Gögnin bjóði því upp á rangtúlkun á niður­stöðum. Þá komi í þeim fram frávik deilda og sviða sem í sumum tilvikum sé unnt að tengja við tiltekna starfsmenn.

Í öðru lagi kemur fram að „Upp­áskrifta­reikn­inga feb 2026“ sýni þá reikninga sem ekki séu samþykktir fyrir viðkomandi tímabil. Skjalið sé einnig notað til að kanna hvort sömu starfsmenn vanræki reglulega uppáskrift reikninga og þar komi fram nöfn þeirra. Skjalinu sé aðeins ætlað að vera hlið­sjón­ar­gagn en ekki opin­bert skjal fyrir almenning. Í þriðja lagi sé skjalið „Útskýringar á frávikum febrúar 2026“ hlið­sjón­ar­skjal sem sé hugsað fyrir þá í bæjarstjórn sem ekki séu vanir að lesa úr tölulegum upp­lýs­ingum. Gögnin innihaldi skriflegar og ítarlegri upp­lýs­ingar um svið, deildir, reikninga o.fl. sem í sumum tilvikum sé unnt að tengja við tiltekna starfsmenn, fyrirtæki, ein­stak­linga eða mál.

Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins með vísan til 31. gr. stjórn­sýslu­laga nr. 37/1993. Úrskurð­ar­nefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

Niður­staða

Í máli þessu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að gögnum í vörslu Sveit­ar­fé­lag­sins Árborgar. Beiðni kæranda var um milli­upp­gjör og fjár­hags­tölur fyrir árið 2026, út febr­úar­mánuð. Ákvörðun sveit­ar­fé­lag­sins að hafna beiðninni var byggð á því að gögnin væru vinnu­gögn samkvæmt upp­lýs­inga­lögum.

Þau gögn sem sveit­ar­fé­lagið hefur afmarkað beiðnina við eru í fyrsta lagi skjalið „Útskýringar á frávikum febrúar 2026“, sem hefur að geyma skriflegar skýringar á frávikum og breytingum frá fyrri mánuði. Í öðru lagi er skjalið „Upp­áskrifta­reikn­inga feb 2026“, sem er yfirlit úr bók­halds­kerfi yfir reikninga sem ekki höfðu verið samþykktir fyrir viðkomandi tímabil. Í þriðja lagi er skjalið „Frávik febrúar niður á deildir 2026“, sem hefur að geyma rauntölur ársins 2026 út febr­úar­mánuð, sam­an­burð­ar­tölur samkvæmt mán­að­ar­áætlun ársins 2026 að teknu tilliti til viðauka og mismun þar á milli, sundurliðað eftir deildum. Í fjórða lagi er skjalið „Frávik febrúar 2026“, sem hefur að geyma sams konar yfirlit eftir málaflokkum og sjóðum, auk upp­lýs­inga um tólf mánaða áætlun.

Samkvæmt 5. tölul. 6. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012, tekur réttur almennings til aðgangs að gögnum ekki til vinnugagna. Hugtakið vinnugagn er skilgreint í 1. mgr. 8. gr. upp­lýs­inga­laga en samkvæmt máls­grein­inni eru vinnu­gögn þau gögn sem stjórn­völd eða aðrir aðilar samkvæmt I. kafla laganna hafa ritað eða útbúið til eigin nota við undirbúning ákvörðunar eða annarra lykta máls. Í síðari málslið máls­grein­ar­innar er tekið fram að gögn teljist ekki lengur til vinnugagna hafi þau verið afhent öðrum, nema afhending hafi verið til eft­ir­lits­að­ila á grundvelli laga­skyldu.

Í athuga­semdum við 8. gr. með frumvarpinu sem varð að upp­lýs­inga­lögum, nr. 140/2012, segir um 1. mgr. að stjórn­völdum sé falið að taka ýmsar matskenndar ákvarðanir og móta tillögur um áætlanir eða aðrar aðgerðir. Eins geti verið að stjórn­völd þurfi að undirbúa ýmsar aðrar ákvarðanir, svo sem um samninga við einkaaðila. Oft geymi lög ekki að öllu leyti þau skilyrði sem þurfi að fullnægja svo slíkar ákvarðanir verði teknar, eða þau sjónarmið eða markmið sem að skuli stefnt. Þegar stjórn­völd standi frammi fyrir slíkum verkefnum verði þau iðulega að vega og meta ólík sjónarmið og velja svo á hvaða grundvelli úr málinu skuli leyst. Af því leiði að það taki einatt einhvern tíma að móta afstöðu til fyr­ir­liggj­andi mála og á því tímabili kunni ólík sjónarmið að hafa mismunandi vægi og breytast, t.d. ef fram komi nýjar upp­lýs­ingar. Í athuga­semd­unum er tekið fram að gögn sem til verði í slíku ferli þurfi ekki að endurspegla réttilega að hvaða niður­stöðu sé stefnt. Því sé eðlilegt að stjórn­völdum sé heimilt að hafna aðgangi að þeim þótt stjórn­völdum sé einnig á grundvelli reglunnar um aukinn aðgang að gögnum heimilt að afhenda slík gögn, standi reglur um þagn­ar­skyldu því ekki í vegi.

Í athuga­semdum við 8. gr. kemur enn fremur fram að til þess að skjal teljist vinnu­skjal þurfi þremur skilyrðum að vera fullnægt. Gagn þurfi að vera und­ir­bún­ings­gagn í reynd, það skuli hafa verið útbúið eða ritað af starfs­mönnum stjórn­valds­ins sjálfs og það megi ekki hafa verið afhent öðrum.

Úrskurð­ar­nefndin hefur kynnt sér gögnin sem málið varðar. Gögnin voru útbúin af fjár­mála­deild sveit­ar­fé­lag­sins í tengslum við yfirferð bæjarráðs á fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­lag­sins út febrúar 2026. Gögnin voru lögð fram á fundi bæjarráðs hinn 9. apríl 2026. Af fund­ar­gerðum bæjarráðs Sveit­ar­fé­lag­sins Árborgar verður ráðið að milli­upp­gjör hafi verið lögð fyrir ráðið mánaðarlega á árinu 2026.

Af efni gagnanna og skýringum sveit­ar­fé­lag­sins er ljóst að gögnin hafi verið sérstaklega tekin saman til að gera bæjarráði kleift að sinna því hlutverki sínu að yfirfara rekstur sveit­ar­fé­lag­sins, þ.m.t. að kanna frávik og reikninga sem ekki höfðu verið samþykktir, og meta hvort þörf væri á frekari skýringum, leið­rétt­ingum eða annarri eftirfylgni. Því til stuðnings má vísa til þess að í skýr­inga­skjal­inu kemur t.d. fram að óskað verði frekari skýringa vegna frávika á launaliðum hjá tilgreindri deild. Þá kveður sveit­ar­fé­lagið að yfirlitið yfir upp­áskrift­ar­reikn­inga hafi verið notað til að hafa eftirlit með því hvort uppáskrift reikninga hefði ítrekað dregist hjá sömu starfs­mönnum. Gögnin voru sérstaklega tekin saman sem grundvöllur þessarar yfirferðar og eftirfylgni sem af henni kynni að leiða. Að mati nefnd­ar­innar teljast gögnin því und­ir­bún­ings­gögn í reynd í skilningi 1. mgr. 8. gr. upp­lýs­inga­laga.

Að mati nefnd­ar­innar fól afhending gagnanna til bæjarráðs ekki í sér afhendingu til annarra í skilningi 1. mgr. 8. gr. upp­lýs­inga­laga, enda er bæjarráð fastanefnd sveit­ar­stjórnar og fékk gögnin afhent til að sinna lögbundnu hlutverki sínu við fjár­mála­stjórn sveit­ar­fé­lag­sins. Þá hefur það enga þýðingu fyrir mat á hvort gagn teljist vinnugagn hvort það hafi verið skráð í málaskrá eða því úthlutað tilteknu málsnúmeri.

Þar sem gögnin teljast vinnu­gögn ber að taka afstöðu til þess hvort engu að síður skuli afhenda þau samkvæmt 3. mgr. 8. gr. upp­lýs­inga­laga. Í gögnunum kemur hvorki fram endanleg ákvörðun um afgreiðslu máls né lýsing á vinnureglum eða stjórn­sýslu­fram­kvæmd. Þá koma ekki fram upp­lýs­ingar í gögnunum sem skylt var að skrá samkvæmt 1. mgr. 27. gr. laganna.

Varðandi það hvort í gögnunum komi fram upp­lýs­ingar um máls­atvik sem ekki komi annars staðar fram telur nefndin að þótt gögnin hafi að geyma tölulegar upp­lýs­ingar um rekstur, frávik og reikninga sem ekki höfðu verið samþykktir, auk skýringa á tilteknum frávikum, komi ekki fram í gögnunum mikilvægar staðreyndir sem skýri forsendur tiltekinnar ákvörðunar eða annarra lykta máls. Verður því ekki talið að 3. tölul. 3. mgr. 8. gr. upp­lýs­inga­laga eigi við um gögnin.

Að þessu virtu telur úrskurð­ar­nefndin að gögnin sem hafnað var að afhenda kæranda séu vinnu­gögn samkvæmt upp­lýs­inga­lögum og að Sveit­ar­fé­lag­inu Árborg hafi verið heimilt að takmarka aðgang kæranda að þeim. Ákvörðun sveit­ar­fé­lag­sins verður því staðfest.

Í hinni kærðu ákvörðun var ekki tekin afstaða til þess hvort veita bæri kæranda aðgang að gögnunum í ríkari mæli en skylt er samkvæmt lögunum, sbr. 2. mgr. 11. gr. upp­lýs­inga­laga. Var ákvörðunin að þessu leyti ekki í samræmi við ákvæðið. Nefndin beinir því til sveit­ar­fé­lag­sins að gæta framvegis að fyrirmælum upp­lýs­inga­laga að þessu leyti.

Úrskurð­ar­orð

Ákvörðun Sveit­ar­fé­lag­sins Árborgar, dags. 10. apríl 2026, að hafna beiðni kæranda, […], er staðfest.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir