1380/2026. Úrskurður frá 20. ágúst 2026

Hinn 20. ágúst 2026 kvað úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóð­andi úrskurð nr. 1380/2026 í máli ÚNU 26060015.

Kæra og máls­atvik

1.

Með erindi, dags. 4. júní 2026, kærði Fréttin til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál að Rík­is­út­varpið ohf. hefði ekki afgreitt beiðni kæranda um gögn. Kæran fékk málsnúmerið ÚNU 26060003 í málaskrá úrskurð­ar­nefnd­ar­innar.

Með erindi, dags. 17. apríl 2026, óskaði kærandi eftir öllum gögnum varðandi styrki eða fjár­veit­ingar til Rík­is­út­varps­ins, annars vegar frá Evr­ópu­sam­band­inu eða einingum á vegum þess, og hins vegar hvaðanæva annars staðar frá, að frátöldum þeim tekjustofni sem tilgreindur væri í 1. tölul. 2. mgr. 14. gr. laga um Rík­is­út­varpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013. Óskað var gagna frá 2016–2026. Beiðnin væri óháð varð­veislu­formi gagnanna og hvort um væri að ræða beina eða óbeina styrki eða fjár­veit­ingar til handa Rík­is­út­varp­inu.

Úrskurð­ar­nefndin kynnti kæruna fyrir Rík­is­út­varp­inu hinn 5. júní 2026. Með erindi, dags. 15. júní 2026, var nefndin upplýst um að beiðni kæranda hefði nú verið afgreidd. Erindinu fylgdi afrit af svari til kæranda. Í svarinu, dags. sama dag, kom fram að Rík­is­út­varpið teldi gagna­beiðn­ina vera verulega víðtæka og benti í því samhengi á 1. mgr. 15. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012. Þá væri Rík­is­út­varp­inu ekki skylt að útbúa ný gögn á grundvelli upp­lýs­inga­laga, sbr. 5. gr. laganna.

Hvað sem því liði væri ljóst að nálgast mætti sundurliðun tekna Rík­is­út­varps­ins aftur til ársins 2011 í árs­reikn­ingum sem væru opin­ber­lega birtir, m.a. á vefsíðu Rík­is­út­varps­ins. Undir skýr­ing­ar­lið 4 í árs­reikn­ing­unum væri að finna sundurliðun á rekstr­ar­tekjum eftir tekjum af almanna­þjón­ustu, sölu auglýsinga og kostun og öðrum tekjum. Aðrar tekjur væru að stærstum hluta vegna dreifi­kerfis, útleigu húsnæðis og útleigu aðstöðu og tækja. Þá féllu styrkir einnig undir aðrar tekjur, einkum til framleiðslu kennslu- og barnaefnis og til varðveislu safnaefnis.

Tekjur Rík­is­út­varps­ins af auglýsingum og kostun hefðu á árunum 2016–2025 numið u.þ.b. 1,9–2,6 ma. kr. eða 23–33% af rekstr­ar­tekjum félagsins. Aðrar tekjur Rík­is­út­varps­ins en þjón­ustu­tekjur og tekjur af auglýsingum og kostun hefðu numið u.þ.b. 270–550 millj. kr. á sama tímabili eða í kringum 5% af rekstr­ar­tekjum félagsins, en þar af næmu leigutekjur af húsnæði og sendastöðum um 190–230 millj. kr. Að frátöldum leigutekjum af dreifikerfi og húsnæði væru aðrar tekjur talsvert sveiflu­kenndar milli ára. Þar væri um að ræða styrki og tekjur vegna útleigu á stúdíói ásamt vinnu, leigu á tækjabúnaði, sölu á safnaefni o.fl. Þá þyrfti að hafa í huga að oft félli til kostnaður á móti, svo sem vegna sam­fram­leiðslu eða í útseldri vinnu.

Rík­is­út­varpið hefði í gegnum árin fengið styrki til dag­skrár­gerðar af ýmsum toga og/eða efnt til samstarfs við utan­að­kom­andi aðila um tiltekið efni. Fjárframlag þessara aðila hefði verið með ýmsum hætti, oftast í formi beinna styrkja til fram­leiðsl­unnar en í einhverjum tilvikum hefðu laun þeirra sem ynnu að fram­leiðsl­unni utanhúss verið greidd af sam­starfs­að­ilum. Slík vinna gæti meðal annars verið und­ir­bún­ings­vinna, verk­efna­stjórnun o.fl. Forræði Rík­is­út­varps­ins og ábyrgð á efnistökum væri algert. Sérstaða Rík­is­út­varps­ins fælist í því að það sinnti bæði frétta­flutn­ingi og dag­skrár­gerð og væri þar óháð hags­munum stjórnmála, viðskipta, opin­berra aðila og einkaaðila. Því væri það skýrt og ávallt áskilið þegar tekið væri við styrkjum til dag­skrár­gerðar og framleiðslu á efni að Rík­is­út­varpið hefði óskorað dagskrár- og rit­stjórn­ar­vald yfir því efni sem framleiða ætti.

Á síð­ast­liðnum árum hefðu styrkirnir fyrst og fremst verið frá stjórn­völdum, þ.e. íslenska ríkinu, Reykja­vík­ur­borg og stofnunum, auk styrks frá Evr­ópu­sam­band­inu á síðasta ári vegna sam­starfs­verk­efn­is­ins LIFE ICEWATER.

Í svari Rík­is­út­varps­ins fylgdi svo yfirlit yfir styrki sem sýndi tímabil viðkomandi styrks, hver hefði veitt styrkinn og af hvaða tilefni. Í svarinu kom fram að ekki væri hægt að veita nánari sundurliðun, til að mynda niður á einstaka færslur og greiðendur úr bókhaldinu, en gert væri á yfirlitinu. Að öðru leyti væri vísað til árs­reikn­inga Rík­is­út­varps­ins.

Í framhaldi af svari Rík­is­út­varps­ins var mál ÚNU 26060003 fellt niður hjá úrskurð­ar­nefnd­inni en kæranda leiðbeint um að afgreiðslu Rík­is­út­varps­ins væri unnt að vísa til nefnd­ar­innar innan kæru­frests.

2.

Úrskurð­ar­nefnd­inni barst kæra frá Fréttinni hinn 23. júní 2026 vegna afgreiðslu Rík­is­út­varps­ins á beiðni kæranda. Kæran fékk málsnúmerið ÚNU 26060015 í málaskrá nefnd­ar­innar. Í kærunni er áréttað að óskað hafi verið eftir upp­lýs­ingum um alla erlenda styrki 10 ár aftur í tímann, þ.m.t. frá Evr­ópu­sam­band­inu. Í svari Rík­is­út­varps­ins hafi verið birt yfirlit yfir innlenda styrki, sem ekki hafi verið beðið um. Þó sé Evr­ópu­sam­bandið tilgreint í einni línu, en upphæð styrksins ekki tilgreind. Einfalt sé að nálgast umbeðnar upp­lýs­ingar úr bókhaldi Rík­is­út­varps­ins.

Óskað sé eftir því að úrskurð­ar­nefndin krefjist þess að Rík­is­út­varpið afhendi upphæð allra erlendra styrkja og hvaðan þeir komi, frá árinu 2016. Þá sé óskað eftir að nefndin kanni hvort Rík­is­út­varpið hafi gert samninga við und­ir­verk­taka sem hafi fengið styrki frá Evr­ópu­sam­band­inu.

Máls­með­ferð

Kæran var kynnt Rík­is­út­varp­inu með erindi, dags. 26. júní 2026, og félaginu gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að Rík­is­út­varpið afhenti úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þau gögn sem kæran varðar.

Umsögn Rík­is­út­varps­ins barst úrskurð­ar­nefnd­inni hinn 10. júlí 2026. Í umsögninni kemur fram að Rík­is­út­varpið hafi lagt þann skilning í beiðni kæranda frá 17. apríl 2026 að óskað væri eftir öllum styrkjum til Rík­is­út­varps­ins hvort sem þeir væru innlendir eða erlendir. Varðandi upphæð styrksins frá Evr­ópu­sam­band­inu hafi þegar verið búið að upplýsa kæranda um hana í mars 2026. Rík­is­út­varpið hafi talið að eðli máls samkvæmt væri óþarft að upplýsa um hana aftur. Samkvæmt þessu sé ljóst að Rík­is­út­varpið hafi nú afhent kæranda upp­lýs­ingar um alla innlenda og erlenda styrki frá árinu 2016.

Að því er varði ósk kæranda að úrskurð­ar­nefndin kanni hvort Rík­is­út­varpið hafi gert samninga við und­ir­verk­taka, sem hafi fengið styrki frá Evr­ópu­sam­band­inu, er tekið fram í umsögninni að slík beiðni hafi ekki borist Rík­is­út­varp­inu frá kæranda.

Umsögn Rík­is­út­varps­ins var kynnt kæranda með erindi, dags. 13. júlí 2026, og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athuga­semdum. Í athuga­semdum kæranda, dags. 10. ágúst 2026, kemur fram að óskað sé eftir að fá yfirlit yfir alla styrki til Rík­is­út­varps­ins frá Evr­ópu­sam­band­inu; kærandi sé ekki að huga að neinu öðru að þessu sinni, þ.m.t. innlendum styrkjum.

Niður­staða

Mál þetta varðar afgreiðslu Rík­is­út­varps­ins ohf. á beiðni kæranda um aðgang að gögnum varðandi styrki og fjár­veit­ingar til Rík­is­út­varps­ins bæði frá Evr­ópu­sam­band­inu og annars staðar frá árin 2016–2026.

Rík­is­út­varpið ohf. fellur undir gild­is­svið upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012, sbr. 2. mgr. 2. gr. laganna. Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laganna er skylt, sé þess óskað, að veita almenningi aðgang að fyr­ir­liggj­andi gögnum sem varða tiltekið mál og tilteknum fyr­ir­liggj­andi gögnum, með þeim takmörkunum sem greinir í 6.–10. gr. laganna. Ekki er þó skylt að útbúa ný skjöl eða önnur gögn í ríkari mæli en leiðir af 3. mgr. 5. gr. laganna.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. upp­lýs­inga­laga er heimilt að bera synjun beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt lögunum undir úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál. Hið sama gildir um synjun beiðni um að afhenda gögn á því formi sem óskað er. Af þessu leiðir að úrskurð­ar­vald nefnd­ar­innar samkvæmt ákvæðinu er bundið við að synjað hafi verið um aðgang að gögnum eða um afhendingu þeirra á því formi sem óskað er. Í athuga­semdum við 20. gr. með frumvarpinu sem varð að upp­lýs­inga­lögum, nr. 140/2012, kemur fram að í samræmi við þetta sæti ákvörðun um að fallast í öllu á beiðni um aðgang að upp­lýs­ingum ekki kæru til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar.

Beiðni kæranda frá 17. apríl 2026 tók til gagna um styrki og fjár­veit­ingar til Rík­is­út­varps­ins bæði frá Evr­ópu­sam­band­inu og hvaðanæva annars staðar frá. Í kæru til nefnd­ar­innar, dags. 23. júní 2026, var einkum gerð krafa um yfirlit yfir erlenda styrki til félagsins frá árinu 2016, þar sem fram kæmu fjárhæðir styrkjanna og hvaðan þeir hefðu komið. Í athuga­semdum kæranda til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar, dags. 10. ágúst 2026, tók kærandi hins vegar fram að hann óskaði að þessu sinni einungis eftir yfirliti yfir alla styrki frá Evr­ópu­sam­band­inu til Rík­is­út­varps­ins og væri ekki að huga að öðru. Í samræmi við þetta verður lagt til grundvallar að kæruefni málsins afmarkist við það að leggja mat á hvort kæranda hafi verið afhent gögn með upp­lýs­ingum um styrki frá Evr­ópu­sam­band­inu til Rík­is­út­varps­ins á því tímabili sem beiðnin náði yfir.

Með svari Rík­is­út­varps­ins til kæranda, dags. 15. júní 2026, fylgdi yfirlit yfir styrki til Rík­is­út­varps­ins þar sem fram komu tímabil styrk­veit­ingar, styrk­veit­andi og tilefni styrks. Í yfirlitinu var tilgreindur styrkur frá Evr­ópu­sam­band­inu vegna sam­starfs­verk­efn­is­ins LIFE ICEWATER. Þá liggur fyrir að Rík­is­út­varpið hafði áður, með svari til kæranda í mars 2026, upplýst hann um fjárhæð styrksins og fjármögnun verk­efn­is­ins.

Í umsögn Rík­is­út­varps­ins til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar, dags. 10. júlí 2026, kemur fram að kæranda hafi verið veittar upp­lýs­ingar um alla innlenda og erlenda styrki til félagsins frá árinu 2016. Samkvæmt yfirlitinu var fyrr­greindur styrkur vegna LIFE ICEWATER eini styrkurinn frá Evr­ópu­sam­band­inu á tímabilinu.

Samkvæmt fram­an­greindu verður lagt til grundvallar að kæranda hafi þegar verið afhent gögn sem geymi yfirlit yfir styrki frá Evr­ópu­sam­band­inu frá 2016–2026, og upp­lýs­ingar um fjárhæðir. Að því virtu liggur ekki fyrir synjun Rík­is­út­varps­ins á beiðni um aðgang að gögnum í skilningi 1. mgr. 20. gr. upp­lýs­inga­laga. Verður kærunni því vísað frá úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál.

Að því er varðar kröfu kæranda að nefndin afli upp­lýs­inga frá Rík­is­út­varp­inu um samninga sem Rík­is­út­varpið kunni að hafa gert við und­ir­verk­taka sem hafi fengið styrki frá Evr­ópu­sam­band­inu er ljóst að slíkri beiðni hefur ekki verið beint að Rík­is­út­varp­inu og þar af leiðandi ekki tekin ákvörðun um afgreiðslu slíkrar beiðni sem úrskurð­ar­nefnd­inni er fært að endurskoða. Hið sama á við um upp­lýs­ingar um styrki sem Rík­is­út­varpið kann að hafa fengið frá Evr­ópu­sam­band­inu á öðru tímabili en því sem tilgreint var í beiðninni sem mál þetta varðar.

Úrskurð­ar­orð

Kæru Frétt­ar­innar, dags. 23. júní 2026, vegna afgreiðslu Rík­is­út­varps­ins ohf. á beiðni um aðgang að gögnum, dags. 17. apríl 2026, er vísað frá úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir