1374/2026. Úrskurður frá 11. ágúst 2026

Hinn 11. ágúst 2026 kvað úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóð­andi úrskurð nr. 1374/2026 í máli ÚNU 25100008.

Kæra og máls­atvik

Með erindi, dags. 9. október 2025, kærði Stapi ehf. – Jarð­fræði­stofa ákvörðun Sel­fossveitna bs. að synja beiðni félagsins um gögn.

Með erindi til Sel­fossveitna bs., dags. 18. ágúst 2025, óskaði kærandi eftir:

1. Upp­lýs­ingum um þær rannsóknir sem unnar hafi verið fyrir Sel­fossveitur frá árinu 2003 til 2025. Beiðnin taki til borana og jarð­hita­rann­sókna, með upp­lýs­ingum um stað­setn­ingu hola (hnit og dýpi), hita­mæl­ingum á Excel-formi, þar sem fram komi hiti og dýpi, líkt og hægt sé að finna í borholuskrá Orku­stofn­unar fram til ársins 2003.

2. Hita­stig­ul­skorti af Sel­foss­svæð­inu, þar sem staðsetning og hitastigull komi fram á korti og í töflum, eins og gera megi ráð fyrir að liggi fyrir í skýrslum sem unnar hafi verið fyrir Sel­fossveitur.

3. Öllum skýrslum, á skýru og vel læsilegu pdf formati, sem unnar hafi verið fyrir Sel­fossveitur um jarð­hita­leit og vinnslu­bor­anir frá árinu 2003 til dagsins í dag.

4. Yfirliti yfir kostnað við jarð­hita­rann­sóknir og boranir, sund­ur­lið­uðum fyrir hvert ár, frá árinu 2003 til 2025.

Sel­fossveitur svöruðu erindi kæranda 12. september 2025 og bentu honum á að gögnin sem hann óskaði eftir væru flest aðgengileg hjá Umhverfis- og orkustofnun. Þá kom fram um 2. lið fyr­ir­spurn­ar­innar að hita­stig­ul­skort sé ekki fyr­ir­liggj­andi hjá Sel­fossveitum. Til væru önnur gögn um hita­mæl­ingar sem væru ekki afhent þar sem þau væru vinnu­gögn.

Máls­með­ferð

1.

Kæran var kynnt Sel­fossveitum bs. með erindi, dags. 13. október 2025, og Sel­fossveitum gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að Sel­fossveitur afhentu úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þau gögn sem kæran varðar.

Umsögn Sel­fossveitna bs. barst úrskurð­ar­nefnd­inni 29. október 2025. Umsögninni fylgdu þrjú gögn sem öll bera það með sér að stafa frá Íslenskum orku­rann­sóknum (ÍSOR). Í fyrsta lagi kort yfir hitastig holu SE-35, í öðru lagi skýrsla dagsett í ágúst 2024 sem ber heitið „Borun og mælingar í SE-40 á Selfossi“ og í þriðja lagi skýrsla frá desember 2017 sem ber heitið „Jarð­hita­leit við Ölfusá á Selfossi – Hola SE-34.“

Í umsögn Sel­fossveitna kemur fram að í 1. lið beiðni kæranda felist ósk um þau gögn sem afhent séu Umhverfis- og orkustofnun um leið og þau séu tilbúin og því séu þau öll aðgengileg hjá stofnuninni. Um 2. lið beiðni kæranda segir í umsögninni að hita­stig­ul­skort af Sel­foss­svæð­inu sé ekki fyr­ir­liggj­andi hjá Sel­fossveitum. Þeim hita­mæl­ingum sem lægju fyrir hafi aðeins verið deilt milli Sel­fossveitna og ÍSOR og séu undanþegnar upp­lýs­inga­rétti þar sem þær séu vinnu­gögn. Um 3. lið beiðni kæranda segir í umsögninni að allar skýrslur sem unnar hafi verið fyrir Sel­fossveitur séu aðgengi­legar hjá Umhverfis- og orkustofnun. Þá kemur fram um 4. lið beiðni kæranda að hægt sé að nálgast allar upp­lýs­ingar um kostnað í árs­reikn­ingum Sel­fossveitna og að umbeðnar upp­lýs­ingar verði ekki sérstaklega teknar saman í tilefni af beiðni kæranda.

Umsögn Sel­fossveitna bs. var kynnt kæranda með erindi, dags. 30. október 2025, og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athuga­semdum. Í athuga­semdum kæranda, dags. 12. nóvember 2025, kemur fram að hita­mæl­ing­ar­gögnum hafi ekki verið skilað til Umhverfis- og orku­stofn­unar eftir að stofnunin og ÍSOR voru aðskilin árið 2003. Fullyrðing Sel­fossveitna um að umbeðin hita­mæl­ing­ar­gögn séu aðgengileg hjá Umhverfis- og orkustofnun sé því ekki rétt.

2.

Með erindi til Sel­fossveitna, dags. 11. desember 2025, óskaði úrskurð­ar­nefndin annars vegar eftir upp­lýs­ingum um það hversu mikil vinna það væri fyrir Sel­fossveitur að taka saman umbeðnar upp­lýs­ingar og hins vegar upp­lýs­ingum um hvort þær skýrslur sem afhentar voru með umsögn Sel­fossveitna væru einu skýrslurnar sem til væru hjá Sel­fossveitum og féllu undir gagnabeiðni kæranda.

Sel­fossveitur brugðust við erindi nefnd­ar­innar þann 16. desember 2025. Í svarinu kom fram að það tæki 20 klukku­stundir að taka saman hita­stig­ul­skort og að ráða þyrfti sérfræðinga í vinnu til þess að búa til gagnið. Þá kom fram að þær skýrslur sem Sel­fossveitur sendu nefndinni með umsögn sinni séu þær einu sem hafi fundist í gagnagrunni stofn­un­ar­innar. Aðrar skýrslur séu aðgengi­legar almenningi í gegnum Umhverfis- og orkustofnun og Sel­fossveitur hafi ekki kallað eftir þeim sérstaklega í tilefni af gagnabeiðni kæranda.

Með öðru erindi til Sel­fossveitna, dags. 30. mars 2026, óskaði úrskurð­ar­nefndin eftir upp­lýs­ingum um hvort frekari upp­lýs­ingar væru til í vörslu Sel­fossveitna, hvort sem þær væru skráðar í tiltekna málaskrá eða ekki, sem féllu undir beiðni kæranda. Auk þess óskaði úrskurð­ar­nefndin eftir upp­lýs­ingum um hvar árs­reikn­ingar Sel­fossveitna væru aðgengi­legir opin­ber­lega, þar sem gögnin fundust ekki við rannsókn nefnd­ar­innar.

Sel­fossveitur brugðust við erindi nefnd­ar­innar 1. apríl 2026. Í svarinu kom fram að ekki væru til nein frekari gögn á því formi sem kærandi bæði um nema borskýrslur sem aðgengi­legar væru hjá Umhverfis- og orkustofnun. Óvíst væri hvers vegna árs­reikn­ingar Sel­fossveitna væru ekki aðgengi­legar á vefsíðu Skattsins. Þeir hefðu þó almennt verið birtir á vefsíðu Sveit­ar­fé­lag­sins Árborgar en væru þar ekki lengur. Einhverjar upp­lýs­ingar úr árs­reikn­ingum Sel­fossveitna væru þó í árs­reikn­ingum Sveit­ar­fé­lag­sins Árborgar og væru umbeðnar upp­lýs­ing­arnar því aðgengi­legar þar. Með erindi Sel­fossveitna fylgdu árs­reikn­ingar stofn­un­ar­innar árin 2013 til 2024.

Með erindi til Sel­fossveitna, dags. 16. apríl 2026, óskaði úrskurð­ar­nefndin eftir nánari upp­lýs­ingum um 1. lið beiðni kæranda um upp­lýs­ingar um rannsóknir sem unnar hefðu verið fyrir Sel­fossveitur frá 2003 til 2025. Þar sem Sel­fossveitur héldu því fram að umbeðin gögn væru ekki fyr­ir­liggj­andi á því formi og eftir þeirri flokkun sem kærandi óskaði eftir óskaði nefndin eftir upp­lýs­ingum um hvort umbeðnar upp­lýs­ingar væru til á öðru formi eða samkvæmt annarri flokkun en kærandi hefði óskað. Í svari Sel­fossveitna, dags. 17. apríl 2026, kom fram að hluti umbeðinna upp­lýs­inga væri ekki í vörslum Sel­fossveitna en allar væru upp­lýs­ing­arnar aðgengi­legar hjá Umhverfis- og orkustofnun.

Óþarft er að rekja nánar það sem fram kemur í gögnum málsins með vísan til 31. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993. Úrskurð­ar­nefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við meðferð þess.

Niður­staða

1.

Í máli þessu er deilt um ákvörðun Sel­fossveitna bs. um afgreiðslu beiðni kæranda. Beiðnin var um 1) upp­lýs­ingar um boranir og jarð­hita­rann­sóknir sem unnar hefðu verið fyrir Sel­fossveitur, 2) hita­stig­ul­skort af Sel­foss­svæð­inu, 3) skýrslur um jarð­hita­leit og vinnslu­bor­anir, og 4) sundurliðað yfirlit yfir kostnað við jarð­hita­rann­sóknir og boranir.

Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012, er skylt, sé þess óskað, að veita almenningi aðgang að fyr­ir­liggj­andi gögnum sem varða tiltekið mál, með þeim takmörkunum sem greinir í 6.–10. gr. laganna. Sama gildir þegar óskað er aðgangs að tilteknum fyr­ir­liggj­andi gögnum. Samkvæmt 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. er óskylt að útbúa ný skjöl eða önnur gögn í ríkari mæli en leiðir af 3. mgr. laga­grein­ar­innar.

Þegar lagt er mat á inntak upp­lýs­inga­beiðni getur sá sem hefur beiðnina til afgreiðslu þurft að horfa til þess hvort óskað sé eftir gagni eða gögnum sem 1) liggi fyrir tilbúin í vörslu viðkomandi aðila, 2) liggi ekki fyrir tilbúin í vörslu hans en teljist fyr­ir­liggj­andi samkvæmt upp­lýs­inga­lögum sökum þess að unnt sé að kalla þau fram með tiltölulega einföldum hætti, eða 3) liggi ekki fyrir en unnt sé að búa þau til með samantekt og úrvinnslu upp­lýs­inga úr öðrum fyr­ir­liggj­andi gögnum.

Samkvæmt 1. mgr. 15. gr. upp­lýs­inga­laga skal sá sem fer fram á aðgang að gögnum tilgreina þau eða efni þess máls sem þau tilheyra með nægjanlega skýrum hætti til að hægt sé, án verulegrar fyrirhafnar, að afmarka beiðni við tiltekin gögn eða tiltekið mál. Samkvæmt 3. mgr. sömu lagagreinar ber, áður en beiðni er vísað frá vegna þess að ekki sé talið mögulegt að afmarka hana, að veita máls­aðila leið­bein­ingar og gefa honum færi á að afmarka beiðni sína nánar. Þá leiðir af 16. gr. laganna að þeim sem hefur gögn í vörslu sinni ber að afgreiða beiðni um aðgang að þeim, sbr. þó fyrri málslið laga­grein­ar­innar. Sé byggt á því að gögn sem óskað er eftir séu þegar aðgengileg almenningi ber samkvæmt 2. mgr. 19. gr. laganna að tilgreina nákvæmlega hvar og með hvaða hætti þau séu aðgengileg.

2.

Í fyrsta lið beiðni kæranda var óskað eftir upp­lýs­ingum um rannsóknir, þ.e. boranir og jarð­hita­rann­sóknir, sem unnar hefðu verið fyrir Sel­fossveitur frá árinu 2003 til 2025, þar sem tilteknar upp­lýs­ingar kæmu fram. Sel­fossveitur vísuðu í hinni kærðu ákvörðun til þess að gögnin sem óskað væri eftir væri að finna hjá Umhverfis- og orkustofnun. Af ákvörð­un­inni og gögnum málsins að öðru leyti verður ekki ráðið hvort hjá Sel­fossveitum liggja fyrir gögn sem hafa að geyma þær upp­lýs­ingar sem falla undir þennan lið beiðni kæranda. Þá benda gögn málsins ekki til þess að Sel­fossveitur hafi gert leit að gögnum í vörslum byggða­sam­lags­ins áður en beiðnin var afgreidd heldur virðist byggða­sam­lagið hafa látið við það sitja að vísa á Umhverfis- og orkustofnun. Það er ekki í samræmi við síðari málslið 16. gr. upp­lýs­inga­laga þar sem mælt er fyrir um að þeim sem hafi gögn í sínum vörslum beri að afgreiða beiðni um aðgang að þeim. Það á við þótt gögn kunni jafnframt að liggja fyrir hjá öðrum aðila sem heyrir undir upp­lýs­inga­lög. Nefndin telur því að annmarkar hafi verið á afgreiðslu byggða­sam­lags­ins á þessum lið beiðni kæranda.

Sömu annmarkar eru á afgreiðslu byggða­sam­lags­ins á þriðja lið beiðni kæranda, þar sem óskað var eftir öllum skýrslum sem unnar hefðu verið fyrir Sel­fossveitur um jarð­hita­leit og vinnslu­bor­anir frá árinu 2003 til dagsins sem beiðnin var sett fram. Um þennan lið beiðninnar vísuðu Sel­fossveitur einnig á Umhverfis- og orkustofnun. Við meðferð málsins afhentu Sel­fossveitur úrskurð­ar­nefnd­inni þrjú gögn sem bera með sér að stafa frá Íslenskum orku­rann­sóknum. Af því verður ráðið að a.m.k. hluti gagnanna sem falla undir þennan lið beiðninnar sé í vörslu Sel­fossveitna. Gögn málsins benda hins vegar ekki til þess að Sel­fossveitur hafi gert sérstaka leit að skýrslum í sínum vörslum við undirbúning afgreiðslu beiðni kæranda að þessu leyti og tekið afstöðu til réttar kæranda til aðgangs að þeim skýrslum sem fyndust við slíka leit. Byggða­sam­lag­inu bar að gera það þótt hluti gagnanna kynni einnig að vera í vörslu annars aðila.

Að því marki sem Sel­fossveitur byggðu synjun á aðgangi að hita­mæl­ing­ar­gögnum á því að þau væru vinnu­gögn var afgreiðslan einnig annmörkum háð. Ekki var tilgreint með skýrum hætti hvaða gögn væru talin vinnu­gögn eða hvernig skilyrði 8. gr. upp­lýs­inga­laga væru uppfyllt, þ.e. hvernig gögnin teldust und­ir­bún­ings­gögn sem útbúin væru til eigin nota og hvort þau hefðu verið afhent öðrum. Í þessu sambandi bendir úrskurð­ar­nefndin á að gögn sem unnin hafa verið af utan­að­kom­andi ráðgjöfum uppfylla að jafnaði ekki skilyrði þess að teljast vinnu­gögn.

Í öðrum lið beiðninnar óskaði kærandi eftir hita­stig­ul­skorti af Sel­foss­svæð­inu, þar sem staðsetning og hitastigull kæmu fram á korti og í töflum eins og gera mætti ráð fyrir að lægi fyrir í skýrslum sem unnar hefðu verið fyrir Sel­fossveitur. Úrskurð­ar­nefndin skilur þennan lið beiðninnar þannig að kærandi óski eftir hita­stig­ul­skorti, hvort sem slíkt efni er til sem sjálfstætt gagn eða sem hluti af skýrslu eða öðru fyr­ir­liggj­andi gagni í vörslu Sel­fossveitna.

Sel­fossveitur hafa upplýst að hita­stig­ul­skort af Sel­foss­svæð­inu liggi ekki fyrir hjá byggða­sam­lag­inu og að til þess að útbúa slíkt gagn þyrfti að fá sérfræðinga til verksins. Að því marki sem með þessu er átt við að ekki sé til sérstakt gagn með hita­stig­ul­skorti hjá Sel­fossveitum, og að slíkt kort yrði ekki útbúið nema með vinnu sérfræðinga, hefur úrskurð­ar­nefndin ekki forsendur til að draga þá skýringu í efa. Hafi hita­stig­ul­skort hins vegar verið sett fram í skýrslu eða öðru fyr­ir­liggj­andi gagni sem er í vörslu Sel­fossveitna, er um fyr­ir­liggj­andi gagn eða hluta af slíku gagni að ræða sem skylt er að veita aðgang að nema takmarkanir samkvæmt lögum standi því í vegi. Nefndin tekur fram að ef sú staða er uppi kann afgreiðsla þessa liðar beiðninnar að skarast við afgreiðslu þriðja liðar beiðni kæranda um skýrslur sem unnar hafa verið fyrir Sel­fossveitur um jarð­hita­leit og vinnslu­bor­anir.

Í fjórða lið beiðninnar óskaði kærandi eftir sund­ur­lið­uðu yfirliti yfir kostnað við jarð­hita­rann­sóknir og boranir fyrir árin 2003 til 2025. Afgreiðsla Sel­fossveitna á beiðni kæranda byggðist að hluta á því að umbeðnar upp­lýs­ingar væru aðgengi­legar opin­ber­lega, ýmist í árs­reikn­ingum Sel­fossveitna eða árs­reikn­ingum Sveit­ar­fé­lag­sins Árborgar, og að umbeðnar upp­lýs­ingar yrðu ekki sérstaklega teknar saman í tilefni af beiðni kæranda. Úrskurð­ar­nefndin leggur þann skilning í skýringar Sel­fossveitna að yfirlitið sem óskað var eftir sé ekki til hjá byggða­sam­lag­inu sem sérstakt gagn. Nefndin hefur ekki forsendur til að draga það í efa.

Við afgreiðslu beiðni kæranda tilgreindu Sel­fossveitur ekki með nákvæmum hætti hvar upp­lýs­ing­arnar væri að finna. Þá hafa Sel­fossveitur ekki gengið úr skugga um að þær upp­lýs­ingar sem kærandi óskaði eftir væru í reynd aðgengi­legar almenningi. Hvað afgreiðslu Sel­fossveitna á beiðni um upp­lýs­ingar um kostnað varðar, liggur fyrir í gögnum málsins að árs­reikn­ingar Sveit­ar­fé­lag­sins Árborgar eru aðeins aðgengi­legir á netinu frá árinu 2017 og að í árs­reikn­ing­unum kemur ekki fram sundurliðun á kostnaði Sel­fossveitna við jarð­hita­rann­sóknir og boranir eftir árum, eins og kærandi óskaði eftir. Þá vísuðu Sel­fossveitur ekki á tiltekinn stað eða vefslóð þar sem hægt væri að nálgast árs­reikn­ing­ana. Afgreiðsla Sel­fossveitna fullnægði samkvæmt þessu ekki kröfum 2. mgr. 19. gr. upp­lýs­inga­laga.

Þá telur nefndin að Sel­fossveitum hafi borið, að því leyti sem umbeðnar upp­lýs­ingar væru ekki aðgengi­legar opin­ber­lega, að hafa samband við kæranda og kanna hvort hann hefði hug á að fá afhent fyr­ir­liggj­andi gögn, svo sem reikninga eða færslur úr bókhaldi, sem hefðu að geyma upp­lýs­ing­arnar svo hann gæti sjálfur tekið saman yfirlitið sem hann óskaði eftir, sbr. 3. mgr. 15. gr. upp­lýs­inga­laga, sbr. og 10. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993.

3.

Úrskurð­ar­nefndin telur samkvæmt fram­an­greindu að hin kærða ákvörðun sé haldin slíkum annmörkum að þörf sé á því að fella hana úr gildi og leggja fyrir Sel­fossveitur að afgreiða beiðni kæranda að nýju. Við þá afgreiðslu er Sel­fossveitum rétt að eiga eftir atvikum samráð við kæranda um hvernig rétt sé að skilja beiðni hans, kanna hvaða gögn liggja fyrir í vörslum byggða­sam­lags­ins sem falla undir beiðnina, taka rökstudda afstöðu til aðgangs að þeim gögnum sem falla undir hana og tilgreina nákvæmlega hvar og með hvaða hætti upp­lýs­ingar eru aðgengi­legar ef byggt er á því að þær séu þegar aðgengi­legar almenningi.

Niður­staða þessi girðir ekki fyrir að Sel­fossveitur ákveði að hafna beiðni kæranda eða vísa henni frá, telji byggða­sam­lagið skilyrði upp­lýs­inga­laga til þess uppfyllt að lokinni full­nægj­andi rannsókn, leið­bein­ingum og rökstuddri afstöðu til aðgangs að þeim gögnum og upp­lýs­ingum sem beiðnin tekur til.

Úrskurð­ar­orð

Ákvörðun Sel­fossveitna bs., dags. 12. september 2025, um afgreiðslu beiðni kæranda, […] f.h. Stapa ehf. – Jarð­fræði­stofu, dags. 18. ágúst 2025, er felld úr gildi og lagt fyrir Sel­fossveitur bs. að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir