1389/2026. Úrskurður frá 29. september 2026
Hinn 29. september 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1389/2026 í máli ÚNU 26040014.
Kæra og málsatvik
1. Kæra vegna tafa á afgreiðslu beiðni
Með erindi, dags. 11. mars 2026, lagði Rótin, félagasamtök, fram kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál þess efnis að Sjúkratryggingar Íslands hefðu ekki afgreitt upplýsingabeiðni félagsins. Kæran fékk málsnúmerið ÚNU 26030008 í málaskrá nefndarinnar.
Hinn 19. desember 2025 birtist tilkynning á vef Stjórnarráðs Íslands með yfirskriftina „Tímamótasamningur tryggir heildstæða og aðgengilegri meðferð við fíknsjúkdómi (sic)“. Þar komu fram upplýsingar um að Sjúkratryggingar Íslands og SÁÁ (Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann) hefðu undirritað nýjan heildarsamning um meðferð við fíknisjúkdómi, samningurinn væri til fjögurra ára og fjárhagsrammi hans rúmir tveir milljarðar á ári.
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál þykir rétt að nefna að umræddur samningur er á milli Sjúkratrygginga Íslands og S.Á.Á. sjúkrastofnana en félagið er í eigu SÁÁ. Í úrskurði þessum verður vísað til S.Á.Á sjúkrastofnana sem SÁÁ.
Með tölvupósti 12. febrúar 2026 til Sjúkratrygginga Íslands óskaði kærandi eftir aðgangi að fyrrnefndum samningi með vísan til 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Kærandi ítrekaði beiðnina með tölvupóstum 24. febrúar og 6. mars 2026 og lagði, svo sem fyrr segir, fram kæru 11. mars 2026 til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.
Kæran var kynnt fyrir Sjúkratryggingum Íslands með erindi 12. mars 2026. Sjúkratryggingar Íslands sendu tölvupósta degi síðar til nefndarinnar og kæranda og upplýstu að stofnunin hefði óskað eftir afstöðu viðsemjanda til beiðni kæranda og að tekin yrði ákvörðun þegar sú afstaða lægi fyrir.
Með tölvupósti 18. mars 2026 til Sjúkratrygginga Íslands lagðist SÁÁ gegn því að kæranda yrði veittur aðgangur að umbeðnum gögnum. Sjúkratryggingar Íslands svöruðu erindi kæranda með tölvupósti 16. apríl sama ár og afhentu umbeðin gögn þó með þeim hætti að stofnunin hafði afmáð tilteknar upplýsingar með vísan til þess að upplýsingarnar vörðuðu mikilvæga og virka fjárhags- og viðskiptahagsmuni SÁÁ sem óheimilt væri að veita aðgang að eftir 9. gr. upplýsingalaga. Nánar tiltekið hafði stofnunin strikað út upplýsingar í meginmáli samningsins og fylgiskjali IV við hann.
Með erindi 20. apríl 2026 tilkynnti úrskurðarnefndin kæranda um að málið yrði fellt niður á næsta fundi nefndarinnar.
2. Kæra vegna afgreiðslu á beiðni
Með erindi, dags. 19. apríl 2026, kærði kærandi til úrskurðarnefndar um upplýsingamál fyrrgreinda ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands frá 16. apríl 2026 um að afmá tilteknar upplýsingar úr afhentum gögnum. Kæran fékk málsnúmerið ÚNU 26040014 í málaskrá nefndarinnar. Kærandi kom á framfæri frekari röksemdum í tengslum við kæruna með tölvupósti til nefndarinnar 11. maí 2026.
Í kæru kemur meðal annars fram að meginregla upplýsingalaga sé að almenningur eigi rétt á aðgangi að gögnum hjá stjórnvöldum og að undantekningar frá þeirri meginreglu beri að túlka þröngt. Sjúkratryggingar Íslands hafi afmáð upplýsingar úr afhentum skjölum en af ákvörðun stofnunarinnar verði ekki ráðið að sértækt og efnislegt mat samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga hafi verið lagt á eðli upplýsinganna. Í ákvörðuninni komi þannig ekki fram hvaða upplýsingar teljist varða mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni SÁÁ, hvernig birting þeirra sé til þess fallin að valda samtökunum tjóni, hversu líklegt sé að slíkt tjón raungerist eða hversu verulegt það geti orðið. Enn síður verði séð að stofnunin hafi vegið þessa ætluðu einkahagsmuni gegn þeim ríku almannahagsmunum sem felist í aðgengi að upplýsingum um ráðstöfun opinbers fjár til heilbrigðisþjónustu.
Upplýsingarnar sem hafi verið afmáðar séu grundvallaratriði samningsins. Þær lúti að verði, magni, greiðsluforsendum og kostnaðaruppbyggingu þjónustu sem hið opinbera kaupir og slíkar upplýsingar hafi almennt ríka þýðingu fyrir almenning, fjölmiðla og aðhald með stjórnsýslunni. Fjárhags, rekstrar- og efnisleg grundvallaratriði samningsins hafi í heild sinni verið afmáð, en ekki einungis afmarkaðar upplýsingar sem geti fallið undir vernd 9. gr. upplýsingalaga.
Þá tekur kærandi fram að sambærileg upplýsingabeiðni hafi verið lögð fram árið 2023 varðandi þágildandi samninga við SÁÁ. Við endanlega afgreiðslu þeirrar beiðni hafi Sjúkratryggingar Íslands lagt til grundvallar að 9. gr. upplýsingalaga stæði ekki í vegi fyrir afhendingu upplýsinga um heildarverð samninganna. Jafnframt tiltekur kærandi að afgreiðsla málsins hjá Sjúkratryggingum Íslands hafi ekki verið í samræmi við 17. gr. upplýsingalaga um málshraða og að rökstuðningur stofnunarinnar fyrir synjun hafi verið ófullnægjandi.
Í samhengi við hagsmuni almennings af aðgangi að umbeðnum upplýsingum bendir kærandi á að upplýsingarnar lúti að sérhæfðri heilbrigðisþjónustu sem fjármögnuð sé af hinu opinbera. Upplýsingar um verð, magn, greiðsluforsendur og kostnaðarskiptingu í slíkum samningi hafi augljósa og verulega þýðingu fyrir almenning, fjölmiðla og aðhald með stjórnsýslunni. SÁÁ gegni mjög veigamiklu hlutverki í meðferð við áfengis- og vímuefnavanda hér á landi og reki Vog sem sé eina sjúkrahúsið hér á landi sem sérhæfi sig í fráhvarfsmeðferð við fíknivanda. Það undirstriki enn frekar hið veigamikla hlutverk sem SÁÁ sinni í fíknimeðferð sem fjármögnuð sé af hinu opinbera og styrki almannahagsmuni af gagnsæi um samninga vegna þjónustunnar og mikilvægi þess að almenningur geti fengið raunhæfa innsýn í hvernig opinberum fjármunum sé ráðstafað á þessu sviði.
Þá beri einnig að líta til þess að umrædd þjónusta hafi að verulegu leyti verið fjármögnuð af ríkinu um áratugaskeið sem leiði til þess að gera verði ríkar kröfur til þess að Sjúkratryggingar Íslands sýni með skýrum og sértækum hætti fram á hvaða upplýsingar séu raunverulega til þess fallnar að skaða virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni SÁÁ og hvers vegna þeir hagsmunir eigi að vega þyngra en upplýsingarréttur almennings um ráðstöfun opinbers fjár. Þá bendir kærandi á að SÁÁ sé almannaheillafélag á almannaheillaskrá og því sé gagnsæi sérstaklega mikilvægt og í samræmi við siðareglur sem gildi um slík félög.
Málsmeðferð
Kæran var kynnt Sjúkratryggingum Íslands með erindi, dags. 20. apríl 2026, og stofnuninni veittur kostur á að koma á framfæri umsögn um hana. Jafnframt var þess óskað að stofnunin léti úrskurðarnefnd um upplýsingamál í té afrit af þeim gögnum sem kæran lyti að. Umsögn Sjúkratrygginga Íslands barst úrskurðarnefndinni 30. júní 2026 og meðfylgjandi henni voru þau gögn sem stofnunin taldi að beiðni kæranda lyti að.
Í umsögninni kemur fram að hin kærða ákvörðun byggist á 9. gr. upplýsingalaga. Upplýsingar, sem hafi verið afmáðar úr samningi Sjúkratrygginga og SÁÁ, feli í sér magn- og verðupplýsingar sem líklegt sé að geti haft skaðleg áhrif á samkeppni séu þær gerðar aðgengilegar. Sjúkratryggingar Íslands hafi framkvæmt hagsmunamat og mat stofnunarinnar hafi verið að hagsmunir SÁÁ af því að opinbera ekki umræddar upplýsingar hafi verið ríkari en hagsmunir kæranda af aðgangi að þeim.
Að mati Sjúkratrygginga Íslands feli hinar afmáðu upplýsingar í sér virka fjárhags- og viðskiptahagsmuni sem hafi bein og raunveruleg áhrif á rekstur, samkeppnisstöðu og samningsstöðu. Heilbrigðisþjónusta sé sértækur markaður þar sem samkeppnin snúi fyrst og fremst að aðgengi að nauðsynlegum fagstéttum, s.s. læknum, hjúkrunarfræðingum, sjúkraþjálfurum o.fl. Verðlagning innan samninga feli í sér að sundurgreina þjónustuna niður í mælanlegar einingar sem endurspegli framlag hverrar fagstéttar sem aftur hafi áhrif á samanburð og samkeppni milli þjónustuaðila. Upplýsingar um magn og einingarverð séu því viðkvæmar upplýsingar sem eigi ekki að vera aðgengilegar öðrum en samningsaðilum.
Samningur Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ sé nýr og framkvæmd hans á fyrstu stigum. Samkvæmt samningnum starfi samstarfsnefnd aðila sem hafi það hlutverk að vakta umfang og tegund þjónustu samkvæmt honum og endurmeta ef notkun einstakra gjaldskrárliða víki frá því þjónustumagni eða fjölda þjónustuþega sem sett hafi verið við mótun gjaldskrárinnar. Kostnaðargreining fari fram á samningstímanum sem notuð sé til endurskoðunar gjaldskrár og einstakra þjónustuþátta. Þetta styðji að um sé að ræða virka viðskiptahagsmuni og að þrátt fyrir undirritaðan samning þá séu samningsviðræður áframhaldandi fyrir tilstilli samstarfsnefndar.
Í umsögn Sjúkratrygginga Íslands er einnig rakið að synjun stofnunarinnar styðjist við 10. gr. upplýsingalaga og þá einkum 3. tölul. ákvæðisins sem vísi til efnahagslegra mikilvægra hagsmuna ríkisins. Samningsumhverfi stofnunarinnar sé þannig úr garði gert að stofnunin semji um endurgjald fyrir þjónustu á vettvangi hvers samningsaðila fyrir sig en ekki yfir heildarmarkað tiltekinnar heilbrigðisþjónustu. Ef upplýsingar um magn og einingarverð séu gerðar opinberar munu viðsemjendur Sjúkratrygginga Íslands hafa kost á að bera sig saman við aðra án þess að hafa hvata til að líta til sveigjanleika eða mótvægisaðgerða sem kunni að eiga við í þeirra tilviki sem geti leitt til aukinna útgjalda hins opinbera og almennt til minni stjórnar á útgjöldum hins opinbera til heilbrigðisþjónustu.
Hlutverk Sjúkratrygginga Íslands sé að annast samningsgerð um veitingu heilbrigðisþjónustu og um endurgjald ríkisins vegna hennar. Brýnt sé að viðkvæmar upplýsingar um magn innkaupa og verðlagningu einstakra þjónustuþátta njóti trúnaðar enda geti birting þeirra haft skaðleg áhrif á samningsstöðu stofnunarinnar og raskað eðlilegri samkeppni. Slík upplýsingagjöf kunni jafnframt að skapa hvata til samræmingar milli viðsemjenda um verð og verðlagningu með tilheyrandi óæskilegum samkeppnislegum áhrifum. Óskað sé eftir að tekin sé sérstaklega afstaða til þess hvort rétt sé að afmá verðupplýsingar úr afhentum gögnum telji úrskurðarnefndin ekki rétt að fjarlægja bæði magn- og verðupplýsingar.
Umsögn Sjúkratrygginga Íslands var kynnt kæranda með erindi 6. júlí 2026 og honum gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust frá kæranda hinn 13. júlí 2026.
Svo sem fyrr greinir óskuðu Sjúkratryggingar Íslands eftir afstöðu SÁÁ til beiðni kæranda en SÁÁ lagðist gegn því að kæranda yrði veittur aðgangur að umbeðnum gögnum með svari 18. mars 2026. Með erindi 27. ágúst 2026 óskaði úrskurðarnefnd um upplýsingamál eftir að Sjúkratryggingar Íslands afhentu nefndinni afrit af afstöðu SÁÁ sem og stofnunin gerði með svari 31. sama mánaðar.
Í svari SÁÁ kom meðal annars fram að samningurinn innihéldi mikilvægar fjárhags- og viðskiptaupplýsingar sem féllu undir 9. gr. upplýsingalaga og að afhending þeirra myndi hafa í för með sér verulega röskun á fjárhags- og viðskiptalegum hagsmunum samtakanna.
Í samningnum væri fjallað um fjárhagslegar forsendur þjónustunnar, greiðslulíkan, matsforsendur og rekstraráhættu. Gögnin snertu beint samningsstöðu og samkeppnishæfi SÁÁ sem þjónustuveitanda og myndi birting gagnanna rýra samningsstöðu félagsins bæði gagnvart hinu opinbera og öðrum þjónustuveitendum. Þá innihéldi samningurinn viðkvæmar upplýsingar um innra skipulag og þjónustuframboð SÁÁ, meðal annars varðandi þjónustumagn og afkastaviðmið, en birting slíkra gagna gæti leitt til þess að aðrir aðilar gætu metið rekstrarstöðu félagsins. Jafnframt gæti afhending samningsins haft neikvæð áhrif á samningsstöðu SÁÁ við endurskoðun samningsins, skapað fordæmi um afhendingu sem gæti torveldað framtíðarviðræður og skapað hættu á að aðrir aðilar myndu nýta upplýsingar til að hafa áhrif á fjármögnun, þjónustumagn eða önnur samningsákvæði.
Framangreindu til viðbótar kom fram í svarinu að kærandi væri einkaaðili og beiðni hans lyti hvorki að opinberri stjórnsýsluákvörðun né eftirliti með samningsaðilum. Markmið upplýsingalaga um gagnsæi í opinberri stjórnsýslu ættu ekki að leiða til þess að SÁÁ, sem sé sjálfstæður þjónustuaðili sem starfi á grundvelli samnings við Sjúkratryggingar Íslands, þurfi að afhenda einkaaðilum viðkvæmar rekstrarupplýsingar.
Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins með vísan til 31. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.
Niðurstaða
Í máli þessu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að samningi Sjúkratrygginga Íslands við SÁÁ, dags. 19. desember 2025, í heild sinni. Samningurinn samanstendur af meginmáli, 17 blaðsíðum, og fimm fylgiskjölum, sem merkt eru I til V. Sjúkratryggingar Íslands afhentu kæranda afrit af umræddum gögnum þó með þeim hætti að stofnunin afmáði eftirfarandi upplýsingar úr samningnum og fylgiskjali IV:
1. Upplýsingar í grein 8.1 í samningnum um hámarks legudaga á ári vegna innlagnar í fráhvarfsmeðferð í tengslum við flýtiþjónustu fyrir heilbrigðisstofnanir og upplýsingar um meðferðarlengd og tíðni tiltekinna meðferða.
2. Upplýsingar í grein 8.3 í samningnum um lágmarks meðferðardaga vegna fráhvarfsmeðferðar í innlögn.
3. Upplýsingar í grein 9.1 í samningnum um hámarksgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands vegna þjónustu samkvæmt samningnum á árinu 2026.
4. Upplýsingar í grein 9.2 í samningnum um einingarverð samningsins, hámarksþóknun vegna tiltekinna þjónustuþátta og áætlað árlegt þjónustumagn þeirra.
5. Upplýsingar í grein 9.2 í samningnum um meðferðalengd og tíðni tiltekinna meðferða.
6. Upplýsingar í grein 10.1 í samningnum um hlutfallslega skiptingu einingarverðs í prósentum talið milli launakostnaðar og annars rekstrarkostnaðar.
7. Upplýsingar í fylgiskjali IV með samningnum um hlutfallslegt vægi launakostnaðar tiltekinna starfsstétta miðað við heildarlaunakostnað á árinu 2024.
Um rétt kæranda til aðgangs að umbeðnum upplýsingum fer eftir 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, en þar er mælt fyrir um að upplýsingarréttur almennings nái til fyrirliggjandi gagna sem varða tiltekið mál eða fyrirliggjandi gagna með þeim takmörkunum sem greinir í 6.–10. gr. laganna.
Synjun Sjúkratrygginga Íslands er meðal annars reist á að 9. gr. upplýsingalaga standi í vegi fyrir afhendingu umbeðinna upplýsinga með tilliti til hagsmuna SÁÁ. Samkvæmt 2. málsl. ákvæðisins er óheimilt að veita almenningi aðgang að gögnum er varða mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari. Fyrir liggur að SÁÁ leggst gegn afhendingu umbeðinna upplýsinga til kæranda.
Í athugasemdum við 9. gr. í frumvarpi því er varð að upplýsingalögum segir meðal annars:
Ákvæði 9. gr. frumvarpsins felur í sér nokkurs konar vísireglu um það hvenær rétt sé að halda leyndum upplýsingum um einkahagsmuni. Stjórnvaldi, eða öðrum aðila sem ákvörðun tekur á grundvelli laganna, er með öðrum orðum ætlað að vega og meta umbeðin gögn með tilliti til þess hvort upplýsingar sem þau hafa að geyma séu þess eðlis að rétt sé að undanþiggja þær aðgangi almennings. Við það mat verður að taka mið af því hvort upplýsingarnar séu samkvæmt almennum sjónarmiðum svo viðkvæmar að þær eigi ekkert erindi við allan þorra manna.
Í athugasemdunum segir jafnframt um 2. málsl. greinarinnar.
Óheimilt er að veita almenningi aðgang að gögnum um mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila. Þannig er óheimilt að veita upplýsingar um atvinnu-, framleiðslu- og viðskiptaleyndarmál eða viðkvæmar upplýsingar um rekstrar- eða samkeppnisstöðu svo og aðra mikilvæga viðskiptahagsmuni. Hér skiptir máli að lagt sé mat á tilvik hverju sinni með hliðsjón af hagsmunum þess lögaðila sem upplýsingar varða. Við matið þarf almennt að vega saman hagsmuni viðkomandi lögaðila af því að upplýsingum sé haldið leyndum gagnvart þeim mikilvægu hagsmunum að upplýsingar um ráðstöfun opinberra hagsmuna séu aðgengilegar almenningi. Þegar lögaðilar gera samninga við opinbera aðila, þar sem ráðstafað er opinberum hagsmunum, getur þetta sjónarmið haft mikið vægi við ákvörðun um aðgang að upplýsingum.
Við beitingu ákvæðis 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga gera lögin ráð fyrir að metið sé í hverju og einu tilviki hvort viðkomandi upplýsingar varði svo mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni viðkomandi fyrirtækja eða annarra lögaðila að ætla megi að þær séu til þess fallnar að valda þeim tjóni, verði þær gerðar opinberar. Við framkvæmd slíks mats verður að líta til þess hversu mikið tjónið geti orðið og hversu líklegt það er að tjón muni verða ef aðgangur er veittur að upplýsingunum. Enn fremur verður að líta til eðlis upplýsinganna, framsetningar þeirra og aldurs, svo og hvaða þýðingu þær hafi fyrir þann lögaðila sem um ræðir á þeim tíma er matið fer fram.
Þegar allt þetta hefur verið virt verður að meta hvort vegi þyngra, hagsmunir viðkomandi lögaðila af því að upplýsingunum sé haldið leyndum eða þeir hagsmunir sem meginreglu upplýsingalaga um upplýsingarétt almennings er ætlað að tryggja. Líkt og er rakið í fyrrgreindum athugasemdum skiptir almennt verulegu máli við mat á hagsmunum almennings hvort og þá að hvaða leyti upplýsingar sem um ræðir lúta að ákvörðunum um ráðstöfun opinbers fjár. Á þetta reynir sérstaklega þegar lögaðilar gera samninga við opinbera aðila sem fela í sér að hið opinbera kaupir af þeim þjónustu, verk eða annað. Í ljósi meginreglu upplýsingalaga, sbr. 5. gr. laganna, geta hagsmunir almennings af því að fá aðgang að slíkum upplýsingum rutt til hliðar viðskiptalegum hagsmunum enda hafi ekki verið sýnt fram á að það valdi viðkomandi samningsaðila tjóni verði upplýsingarnar gerðar opinberar.
Hefur úrskurðarnefndin m.a. byggt á því í úrskurðum sínum að það sjónarmið, að upplýsingar um umsamið endurgjald opinberra aðila til einkaaðila fyrir veitta þjónustu eða vörur skuli fara leynt, verði að jafnaði að víkja fyrir almennum fyrirmælum upplýsingalaga um upplýsingarétt almennings, sbr. t. d. úrskurð nefndarinnar í máli 1328/2025 og þá úrskurði sem þar er vísað til. Þá er rétt að líta til þess að fyrirtæki og aðrir lögaðilar, sem gera samninga við stjórnvöld eða lögaðila er falla undir ákvæði upplýsingalaga, verða í senn að vera búin undir að mæta samkeppni frá öðrum sem og að borgararnir láti reyna á rétt sinn til aðgangs að upplýsingum um viðkomandi samninga, meðal annars í því skyni að stuðla að gagnsæi í stjórnsýslunni og veita stjórnvöldum aðhald.
Í grein 1.2 í samningi Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ kemur fram að hann taki til fráhvarfs-, lyfja- og sálfélagslegrar meðferðar og endurhæfingar vegna fíknisjúkdóms, á legu-, dag- og göngudeildum samtakanna. Samningurinn taki jafnframt til fræðslu og stuðnings fyrir fjölskyldur og aðstandendur fíknisjúkra á göngudeildum samtakanna. Eins og áður hefur verið rakið afmáðu Sjúkratryggingar Íslands ýmsar upplýsingar úr afhentum samningi varðandi fyrirkomulag tiltekinna meðferða, svo sem um meðferðarlengd og tíðni þeirra, sbr. þær upplýsingar sem eru tilgreindar í liðum 1-2 og 5 í kafla I hér að framan.
Sjúkratryggingar Íslands afmáðu jafnframt tilteknar upplýsingar úr fylgiskjali IV með samningnum, sbr. lið 7 í kafla 1 hér að framan. Upplýsingar í fylgiskjalinu eru settar fram í töflu með tveimur dálkum sem bera yfirskriftina „Stéttarfélag“ og „Hlutfall af heild“. Í fyrrgreinda dálknum er að finna upplýsingar um sex stéttarfélög og í þeim síðari hvert var hlutfall launakostnaðar starfsmanna umræddra stéttarfélaga, í prósentum talið, af heildarlaunakostnaði SÁÁ á árinu 2024. Sjúkratryggingar Íslands afmáðu einungis umræddar prósentutölur úr skjalinu sem var afhent kæranda.
Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál verður að telja að framangreindar upplýsingar séu fyrst og fremst almenns eðlis og telur nefndin að engar af þessum upplýsingum geti talist vera upplýsingar um mikilvæga virka fjárhags- og viðskiptahagsmuni SÁÁ sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari samkvæmt 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga.
Auk framangreinds afmáðu Sjúkratryggingar Íslands upplýsingar sem tengjast greiðslum stofnunarinnar á grundvelli samningsins. Þar á meðal eru upplýsingar um hámarksgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands samkvæmt samningnum á árinu 2026, einingarverð fyrir hverja einingu, hlutfallslega skiptingu einingarverðs í prósentum talið milli launakostnaðar og annars rekstrarkostnaðar og hámarksþóknun vegna tiltekinna þjónustuþátta og áætlað árlegt þjónustumagn þeirra, sbr. upplýsingar undir liðum 3-4 og 6 í kafla I hér að framan.
Í tilkynningu sem birtist á vefsíðu Stjórnarráðs Íslands 19. desember 2025 komu fram upplýsingar um að fjárhagsrammi samningsins væru rúmir tveir milljarðar á ári sem samsvara fyrrgreindum upplýsingum um hámarksgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands á árinu 2026. Verður réttur kæranda til aðgangs að þessum upplýsingum því ekki takmarkaður á grundvelli 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga.
Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál má fallast á að aðrar umbeðnar upplýsingar varði fjárhags- eða viðskiptahagsmuni SÁÁ. Við úrlausn á því hvort kæranda verði veittur aðgangur að þessum upplýsingum skiptir máli að upplýsingarnar lúta að greiðslum Sjúkratrygginga Íslands til SÁÁ fyrir þjónustu varðandi fíknimeðferðir fyrir sjúkratryggða einstaklinga samkvæmt lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, og þar með ráðstöfun opinberra fjármuna. Í þessu samhengi er þess þó einnig að gæta að umbeðnar upplýsingar varpa meðal annars ljósi á hámarksþóknun tiltekinna þjónustuþátta, þar á meðal varðandi tilteknar meðferðir sem eru veittar á grundvelli samningsins. Þrátt fyrir að almenningur geti haft sérstaka hagsmuni af því að kynna sér upplýsingar um einingarverð opinberra samninga verður að telja að opinber birting upplýsingar um heildarfjárhæðir slíkra samninga dragi almennt úr vægi þeirra hagsmuna sem væru annars fyrir hendi án slíkrar birtingar, sbr. til hliðsjónar úrskurð nefndarinnar nr. 1328/2025.
Á hinn bóginn er það afstaða úrskurðarnefndarinnar að ekki hafi verið nægilega leitt í ljós að umræddar upplýsingar nái til svo mikilvægra virkra fjárhags- eða viðskiptahagsmuna SÁÁ að þær séu sérstaklega til þess fallnar að valda félaginu tjóni verði þær gerðar opinberar þótt eitthvert óhagræði kunni að geta fylgt því að kærandi og almenningur fái aðgang að þeim. Í þessu samhengi skiptir máli að telja verður að samningurinn lúti að veitingu þjónustu sem er sérstaks eðlis en ekki verður séð að heildstæð þjónusta, sambærileg þeirri sem samningurinn lýtur að, sé veitt af öðrum einkaaðilum. Jafnframt er til þess að líta að SÁÁ er óhagnaðardrifið félag sem var stofnað um rekstur heilbrigðisþjónustu fyrir þá sem eiga við fíknivanda að stríða.
Samkvæmt framangreindu og að teknu tilliti til þess hagsmunamats sem ber að framkvæma við beitingu 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga er það mat nefndarinnar að ákvæðið standi ekki í vegi fyrir afhendingu umræddra upplýsinga til kæranda.
Sjúkratryggingar Íslands hafa einnig byggt synjun sína á 10. gr. upplýsingalaga og þá einkum 3. tölul. ákvæðisins. Samkvæmt ákvæðinu er heimilt að takmarka aðgang almennings að gögnum þegar mikilvægir almannahagsmunir krefjast, enda hafi þau að geyma upplýsingar um efnahagslega mikilvæga hagsmuni ríkisins.
Í athugasemdum við 10. gr. í frumvarpi því er varð að upplýsingalögum segir eftirfarandi um 3. tölul. ákvæðisins:
Undir þessa undanþágu falla upplýsingar um fjármál ríkisins og efnahagsmál. Þetta eru þó ekki hvaða upplýsingar sem er heldur einvörðungu þær sem talist geta varðað mikilvæga hagsmuni ríkisins, eins og t.d. fjármálastöðugleika eða upplýsingar sem eru þess eðlis að afhending þeirra og birting gæti skaðað fjárhag eða efnahag ríkisins. Þá er að sjálfsögðu til viðbótar hið almenna skilyrði að mikilvægir almannahagsmunir krefjist þess að aðgangur sé takmarkaður.
Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál verður að telja að hvorki þær upplýsingar sem lúta að greiðslum Sjúkratrygginga Íslands til SÁÁ samkvæmt samningnum né aðrar umbeðnar upplýsingar teljist til upplýsinga um efnahagslega mikilvæga hagsmuni ríkisins í skilningi 3. tölul. 10. gr. upplýsingalaga, sbr. til hliðsjónar úrskurð nefndarinnar nr. 1219/2024. Þá verður að telja að umbeðnar upplýsingar verði ekki að öðru leyti felldar undir 10. gr. upplýsingalaga.
Í ljósi framangreinds og þar sem engar aðrar takmarkanir upplýsingarréttar eiga við um umbeðnar upplýsingar verður Sjúkratryggingum Íslands gert að veita kæranda aðgang að þeim í samræmi við það sem nánar greinir í úrskurðarorði.
Að endingu þykir rétt að benda á að samkvæmt 1. mgr. 17. gr. upplýsingalaga skal taka ákvörðun um það hvort orðið verður við beiðni um aðgang að gögnum svo fljótt sem verða má. Hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá móttöku hennar skal skýra aðila frá ástæðum tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta. Fyrir liggur að afgreiðsla á beiðni kæranda var ekki afgreidd innan sjö daga frá móttöku hennar og hefði Sjúkratryggingum Íslands því verið rétt að veita kæranda skýringar í samræmi við fyrrgreind fyrirmæli 17. gr. upplýsingalaga. Sjúkratryggingum Íslands er bent á að gæta framvegis að þessu atriði.
Úrskurðarorð
Sjúkratryggingar Íslands skulu veita kæranda, Rótinni, félagasamtökum, aðgang að samningi stofnunarinnar við S.Á.Á. sjúkrastofnanir, dags. 19. desember 2025, í heild sinni, þ.m.t. fylgiskjölum I til V.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir