1373/2026. Úrskurður frá 11. ágúst 2026

Hinn 11. ágúst 2026 kvað úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóð­andi úrskurð nr. 1373/2026 í máli ÚNU 25110016.

Kæra, máls­atvik og máls­með­ferð

1.

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál barst kæra frá […] með erindi, dags. 24. nóvember 2025. Í kærunni kemur fram að hinn 13. október 2025 hafi kæranda borist erindi frá Vest­manna­eyjabæ þar sem fram hafi komið að bókhaldi þurfi að haga þannig að á einfaldan og aðgengi­legan hátt megi rekja viðskipti og notkun fjármuna. Vest­manna­eyja­bær geti þess vegna ekki tekið við reiðufé.

Kærandi kveðst hafa óskað eftir því að sækja afrit af gögnum, sem hann hafði óskað eftir hjá bænum á grundvelli upp­lýs­inga­laga, í ráðhús bæjarins og greiða fyrir samkvæmt gjaldskrá. Kæran sé sú að Vest­manna­eyja­bær verði úrskurðaður til að taka við greiðslum fyrir veitta þjónustu í lögeyri og samkvæmt gjaldskrá. Það sé ólíðandi að bærinn rukki með íþyngjandi hætti í þeim eina tilgangi að bíta af sér beiðni um þjónustu.

Kæran var kynnt Vest­manna­eyjabæ 1. desember 2025 og bænum gefinn kostur á að koma á framfæri athuga­semdum um hana. Þær bárust tveimur dögum síðar. Í athuga­semdum bæjarins kemur fram að kærandi hafi sent 2.000 kr. í seðlum í umslagi með beiðni um að fá send gögn. Peningarnir hafi verið fyrir væntanlegum útlögðum kostnaði, þ.e. pappír, umslagi og send­ing­ar­kostn­aði. Honum hafi af þessu tilefni verið sent eft­ir­far­andi erindi:

Samkvæmt lögum um bókhald nr. 145/1994 þarf að haga bókhaldi þannig að á skýran og aðgengi­legan hátt megi rekja viðskipti og notkun fjármuna. Vest­manna­eyja­bær getur því ekki tekið við greiðslum í reiðufé. Þú getur komið í Ráðhúsið og skoðað gögnin án endurgjalds. Óskir þú eftir að fá þau afhent verður gefinn út reikningur.

Vest­manna­eyja­bær fari eftir útgefinni gjaldskrá samkvæmt upp­lýs­inga­lögum. Bærinn sé ekki með sjóðsvél og geti því ekki uppfyllt ákvæði laga um bókhald. Með vísan til svars til kæranda sé ekkert því til fyrirstöðu að kærandi fái umbeðin gögn.

Með erindi til Vest­manna­eyja­bæjar, dags. 29. desember 2025, óskaði úrskurð­ar­nefndin eftir nánari upp­lýs­ingum um málið. Svar barst frá bænum 6. janúar 2026. Í svarinu var rakið að á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í lok júlí 2025 hefði verið ákveðið að vinna þyrfti greinargerð til Vega­gerð­ar­innar með sýn stærstu hags­mun­aað­ila hafnarinnar á nýtingu stór­skipa­kants og annarra innviða sveit­ar­fé­lag­sins við uppbyggingu sinna fyrirtækja. Hinn 14. október 2025 hefði kærandi sent erindi og spurt hvort grein­ar­gerðin lægi fyrir. Svar við erindinu hefði verið útbúið 17. október 2025; kærandi hefði þá fengið rukkun í heimabanka fyrir útlögðum kostnaði (pappír, umslag og send­ing­ar­gjald). Til hefði staðið að senda honum svarbréfið þegar hann væri búinn að greiða útlagðan kostnað. Kærandi hefði þá sent bréf, dags. 30. október 2025. Því bréfi hefðu fylgt 2.000 kr. í seðlum til að mæta útlögðum kostnaði. Hann hefði þá fengið svarbréf frá sveit­ar­fé­lag­inu, dags. 4. nóvember 2025, þar sem honum hefði verið tjáð að hann gæti ekki greitt með reiðufé en hann gæti komið á staðinn og fengið að skoða gögnin án greiðslu eða fengið þau afhent og þá greitt reikning fyrir útlögðum kostnaði.

Reikningur væri gefinn út fyrir fram ef senda þyrfti gögn í pósti, enda væri send­ing­ar­kostn­að­ur­inn stærsti hluti reikn­ings­ins. Ef aðili vildi koma á staðinn og fá gögn gæti hann gert það og þá væri gefinn út reikningur, án send­ing­ar­kostn­aðar. Það væri þó ekkert sem kæmi í veg fyrir að viðkomandi greiddi fyrir fram ef hann kysi það og sækti síðan gögnin í kjölfarið. Það skipti ekki máli hvort reikningur væri greiddur fyrir fram eða eftir á ef gögn væru sótt. Hins vegar, ef senda ætti gögnin, væri gefinn út reikningur fyrir fram. Vest­manna­eyja­bær gæti ekki tekið við reiðufé eins og kærandi færi fram á og vildi kærandi ekki fá reikning, fyrir fram eða eftir á, gæti hann komið í ráðhúsið og skoðað gögnin án endurgjalds eða óskað eftir að fá þau með rafrænum hætti, sem væri einnig gjald­frjálst.

Fjárhæðin væri kr. 1.990 og þar af væri send­ing­ar­kostn­aður 1.930 kr. Gögn væru send í ábyrgð­ar­pósti þar sem kærandi óskaði eftir rekjanleika póst­send­inga til hans. Áður hefðu gögn verið send í almennum bréfpósti. Kærandi hefði hins vegar óskað eftir rekjanleika póst­send­inga til sín og því hefði verið horfið frá því að notast við almennan bréfpóst.

2.

Fyrir liggur að kærandi ítrekaði beiðni sína frá 14. október 2025 með öðru erindi til Vest­manna­eyja­bæjar, dags. 5. nóvember 2025. Sú ítrekun var afgreidd með ákvörðun Vest­manna­eyja­bæjar, dags. 2. febrúar 2026, þar sem kæranda var vísað á vefslóð þar sem grein­ar­gerð­ina væri að finna. Ákvörðunin var kærð til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar, sem leysti úr málinu með úrskurði nr. 1358/2026 frá 20. maí 2026, og lagði þar fyrir Vest­manna­eyjabæ að afgreiða beiðni kæranda að nýju þar sem sú vefslóð sem gefin hefði verið upp hefði ekki verið virk með þeim hætti sem hún var afhent kæranda. Úrskurð­ar­nefndin fékk upp­lýs­ingar um það frá Vest­mann­eyjabæ 2. júní 2026 að búið væri að afgreiða beiðni kæranda að nýju og senda kæranda upp­lýs­ingar um nákvæmlega hvar gagnið væri að finna.

Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins, sbr. 31. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993. Úrskurð­ar­nefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

Niður­staða

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi óskaði eftir greinargerð í vörslu Vest­manna­eyja­bæjar sem fjallar um stór­skipa­kant í Vest­manna­eyja­höfn. Svar við erindinu var útbúið og kæranda send rukkun í heimabanka fyrir útlögðum kostnaði vegna svarsins. Kærandi mun hafa sent bænum greiðslu í formi reiðufjár fyrir svarbréfið. Bærinn hafi þá tjáð kæranda að ekki væri hægt að veita reiðufé viðtöku. Kæruefnið í málinu er að bærinn verði úrskurðaður til að taka við greiðslum fyrir veitta þjónustu í lögeyri og samkvæmt gjaldskrá.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012, er heimilt að bera synjun beiðni um aðgang að gögnum undir úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál. Hið sama gildir um synjun beiðni um að afhenda gögn á því formi sem óskað er. Þá er í 1. mgr. 18. gr. laganna mælt fyrir um að veita skuli aðgang að gögnum á því formi eða sniði sem þau eru varðveitt á, nema þau séu þegar aðgengileg almenningi, sbr. 2. mgr. 19. gr. laganna. Í síðarnefnda ákvæðinu kemur fram að þegar beiðni er afgreidd með vísan til þess að umbeðnar upp­lýs­ingar séu þegar aðgengi­legar almenningi, án þess að gögnin séu afhent, skuli tilgreina nákvæmlega hvar og með hvaða hætti þær séu aðgengi­legar. Af þessu leiðir að séu gögn sem óskað er eftir þegar aðgengileg opin­ber­lega er þeim sem hefur beiðni til afgreiðslu ekki skylt að afhenda gögnin, hvorki á pappír né með rafrænum hætti, heldur er heimilt að láta við það sitja að vísa á hvar megi nálgast gagnið.

Líkt og þegar hefur verið rakið hefur grein­ar­gerðin sem kærandi óskaði aðgangs að verið gerð aðgengileg opin­ber­lega á vef Vest­manna­eyja­bæjar. Kærandi hefur haft aðgang að virkri vefslóð sem vísar á grein­ar­gerð­ina og fengið afrit af grein­ar­gerð­inni á papp­írs­formi. Að auki liggur fyrir að Vest­manna­eyja­bær hefur, í kjölfar úrskurðar nr. 1358/2026 frá 20. maí 2026, tekið nýja ákvörðun þar sem kæranda er bent á hvar nákvæmlega grein­ar­gerðin sé aðgengileg almenningi.

Bærinn hefur því uppfyllt þá skyldu sem mælt er fyrir um í 2. mgr. 19. gr. upp­lýs­inga­laga og kærandi fengið aðgang að grein­ar­gerð­inni.

Í kæru til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar hefur kærandi tilgreint að hann fari fram á að Vest­manna­eyja­bær verði úrskurðaður til að taka við greiðslum fyrir veitta þjónustu í lögeyri og samkvæmt gjaldskrá. Af þessu tilefni tekur úrskurð­ar­nefndin fram að ef stjórn­völd setja skilyrði um greiðslu tiltekinna gjalda fyrir afgreiðslu beiðna um aðgang að gögnum á grundvelli upp­lýs­inga­laga þarf sú gjaldtaka að hafa stoð í lögum, og þá þarf að gæta þess sérstaklega að gjöldin og álagning þeirra sé í samræmi við viðkomandi laga­heim­ildir.

Í fyr­ir­liggj­andi máli hefur gagnið sem kæran lýtur að þegar verið afhent kæranda, eins og fyrr greinir. Í tengslum við þá afhendingu reyndi ekki á greiðslu gjalds. Samkvæmt þessu liggur ekki lengur fyrir ákvörðun Vest­manna­eyja­bæjar sem kæranleg er til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar, þar sem bærinn hefur hvorki synjað beiðni kæranda um aðgang að gögnum né beiðni um gögn á því formi sem óskað sé eftir, sbr. 1. mgr. 20. gr. upp­lýs­inga­laga. Kæru málsins ber af þessum sökum að vísa frá og kemur því ekki til þess að úrskurð­ar­nefndin taki í þessum úrskurði afstöðu til þess hvort það greiðslu­fyr­ir­komu­lag sem Vest­manna­eyja­bær áskildi við afgreiðslu beiðni kæranda hafi verið í samræmi við lög.

Úrskurð­ar­orð

Kæru […], dags. 24. nóvember 2025, er vísað frá úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir