1375/2026. Úrskurður frá 11. ágúst 2026
Hinn 11. ágúst 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1375/2026 í máli ÚNU 26020002.
Kæra, málsatvik og málsmeðferð
Hinn 1. febrúar 2026 kærði […] til úrskurðarnefndar um upplýsingamál ákvörðun sveitarfélagsins Hvalfjarðarsveitar um að synja beiðni hans um aðgang að gögnum.
Í kærunni kemur fram að beiðni kæranda til sveitarfélagsins hafi annars vegar lotið að „skýrslu um úttekt á jarðvegsnámum í sveitarfélaginu, sem sveitarfélagið [hafi] sjálft vísað til sem „endanlegrar skýrslu“ og hins vegar að stjórnsýslugögnum vegna framkvæmdaleyfa Hólabrúarnámu, þ.m.t. umsóknum, fylgigögnum, áhrifamati á vatnshlot og gögnum um mælingar og mótvægisaðgerðir.“
Samkvæmt gögnum málsins óskaði kærandi eftir því með tölvupósti, dags. 18. desember 2025, að sveitarfélagið afhenti honum afrit af skýrslu um námur, sem sveitarfélagið hefði vísað til í nýlegu erindi þess til námueigenda í sveitarfélaginu.
Sama dag beindi kærandi annarri beiðni um gögn til Hvalfjarðarsveitar og óskaði þess að honum yrðu afhent gögn vegna Hólabrúarnámu. Í þeirri beiðninni kom nánar tiltekið fram að óskað væri eftir afriti af eftirfarandi:
Umsóknum og fylgigögnum þeirra, um bæði framkvæmdaleyfin sem gefin hafa verið út vegna námunnar.
Útgefin framkvæmdaleyfi vegna námunnar.
Áhrifamat á vatnshlot sem fylgja átti umsóknum um framkvæmdaleyfi.
Afrit af niðurstöðu þeirra mælinga og mótvægisaðgerða sem getið er um í niðurstöðu Skipulagsstofnunar við matsskyldufyrirspurninni og leggja þurfi fram við umsókn um leyfi fyrir framkvæmdinni.
Hinn 9. janúar synjaði sveitarfélagið fyrri beiðni kæranda á þeim grundvelli að vinnu vegna málsins væri ólokið og að ekki væri tímabært að afhenda gögnin.
Málsmeðferð
Með bréfi, dags. 2. febrúar 2026, var kæran kynnt Hvalfjarðarsveit og sveitarfélaginu gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að sveitarfélagið afhenti úrskurðarnefnd um upplýsingamál þau gögn sem kæran varðar.
Umsögn sveitarfélagsins barst úrskurðarnefndinni 27. febrúar 2026. Í umsögninni er í fyrsta lagi tilgreint að sveitarfélagið hafi synjað kæranda um afhendingu á minnisblaði sveitarfélagsins, dags. 11. desember 2025, þar sem fjallað sé um 9 stærstu námur sveitarfélagsins þar sem stærðir námusvæða séu áætlaðar og magn efnis sem unnið hafi verið úr námunum. Fram kemur að þessa synjun byggi sveitarfélagið annars vegar á því að gagnið sé vinnugagn í skilningi upplýsingalaga nr. 140/2012 og sé undanþegið upplýsingarétti almennings á þeim grundvelli. Hins vegar byggi synjun á afhendingu þessa gagns á því að upplýsingar í minnisblaðinu geti verið viðkvæmar fyrir fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og lögaðila, sem í hlut eigi, og af þeirri ástæðu beri að hafna aðgangi að minnisblaðinu á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga. Ljóst er að umrætt gagn, sem sveitarfélagið vísar til sem minnisblaðs, er sama gagn og skýrslan sem kærandi vísar til í beiðni sinni til sveitarfélagsins, dags. 18. desember, og í kæru til úrskurðarnefndarinnar þann 1. febrúar.
Í umræddri umsögn sveitarfélagsins, dags. 27. febrúar, er í öðru lagi tilgreint að vegna anna hafi farist fyrir að bregðast við og afhenda kæranda önnur gögn hjá sveitarfélaginu sem kæra hans lúti að, þ.e. umsóknir, framkvæmdaleyfi og fylgigögn vegna Hólabrúarnámu. Þau gögn hafi sveitarfélagið sent kæranda þann 26. febrúar 2026 og telji sig hafa afhent öll umbeðin gögn vegna framkvæmdaleyfis frá árinu 2025. Ekki hafi fundist öll gögn sem kærandi hafi óskað eftir vegna eldra framkvæmdaleyfis en þau gögn sem hafi fundust hafi verið send kæranda.
Kærandi brást við afstöðu Hvalfjarðarsveitar með umsögn, dags. 6. mars 2026. Þar mótmælir hann röksemdum sveitarfélagsins sem varða aðgang að skýrslu um námur í sveitarfélaginu. Hvalfjarðarsveit brást við umsögn kæranda með erindi, dags. 17. mars 2026, þar sem áréttuð var fyrri afstaða um að skýrslan teldist vinnugagn og væri af þeirri ástæðu undanþegin upplýsingarétti hans.
Þann 10. júlí 2026 sendi Hvalfjarðarsveit nýtt svar til kæranda og afhenti honum með því það skjal sem honum hafði áður verið synjað um aðgang að, nánar tiltekið skýrslu fyrir stærstu níu námur í Hvalfjarðarsveit frá 11. desember 2025. Um leið afhenti sveitarfélagið kæranda einnig eldri útgáfu af sömu skýrslu frá 2. desember 2025. Fram kom að skýrslurnar væru nánast eins en í eldri útgáfunni vantaði einn dálk í niðurstöðutöflu í skýrslunni. Í svarinu 10. júlí kom einnig fram að umrædd skýrsla hefði verið lögð fram til kynningar á fundi umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar sveitarfélagsins og gerð opinber á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar með því að birta hana sem fylgiskjal með fundargerð frá fundi nefndarinnar.
Kærandi brást við þessu með tölvupósti, dags. 13. júlí, sem hann beindi bæði til sveitarfélagsins og til úrskurðarnefndarinnar. Þar kemur fram að hann hyggist ekki óska niðurfellingar á kærumálinu heldur óski hann þess að úrskurðarnefndin ljúki meðferð málsins og úrskurði um lögmæti á þeirri ákvörðun sem sveitarfélagið tók um að synja honum um afhendingu skýrslunnar. Afhending á skýrslunum breyti því ekki að ágreiningu hafi verið uppi um lögmæti synjunarinnar og að kærandi telji að úrlausn þess álitaefnis hafi sjálfstæða þýðingu, m.a. með tilliti til framtíðarafgreiðslu á sambærilegum upplýsingabeiðnum.
Í sambandi við umrætt mál telji hann að sérstaklega þurfi að úrskurða um eftirfarandi atriði:
[H]vort rétt hafi verið að skilgreina skýrslurnar sem innri vinnugögn, þrátt fyrir að sveitarfélagið hefði áður vísað til „endanlegrar skýrslu“ og kynnt niðurstöður hennar landeigendum og námuréttarhöfum.
[H]vaða þýðingu það hafi að niðurstöðu[m] úr skýrslunni [hafi] þegar verið miðlað […] til utanaðkomandi aðila.
[H]vort lögmætt hafi verið að láta afstöðu einstakra námuréttarhafa til afhendingar hafa áhrif á upplýsingarétt almennings.
[H]vort heimilt hafi verið að halda gögnunum frá almenningi á sama tíma og niðurstöður vinnunnar voru lagðar til grundvallar skipulagsvinnu vegna efnistökusvæða
og hvort síðari breyting á afstöðu sveitarfélagsins sýni að upphafleg synjun hafi verið byggð á fullnægjandi lagagrundvelli.
Þá lýsir kærandi því einnig að hann telji að ekki verði fram hjá því litið að ákvörðun sveitarfélagsins um að synja beiðninni hafi leitt til kærumáls og þess að sveitarfélagið leitaði til lögmannsstofu til að gæta hagsmuna sinna. Af því hafi hlotist verulegur lögfræðikostnaður sem ætla megi að nemi hundruðum þúsunda króna og sé greiddur af fjármunum sveitarfélagsins sem að hluta sé frá skatttekjum íbúa. Í ljósi þess að hluti af gögnunum sem óskað var eftir hafi nú þegar verið afhentur telji hann sérstaklega mikilvægt að úr því verði skorið hvort þessi kostnaður og málsmeðferð hafi verið afleiðing lögmætrar synjunar eða ákvörðunar sem ekki átti sér fullnægjandi stoð í upplýsingalögum.
Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins með vísan til 31. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við meðferð þess.
Niðurstaða
Mál þetta lýtur að afgreiðslu sveitarfélagsins Hvalfjarðarsveitar á beiðni kæranda um aðgang að gögnum.
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 er heimilt að kæra til úrskurðarnefndar um upplýsingamál synjun stjórnvalds um að veita aðgang að gögnum samkvæmt lögunum. Sama gildir um synjun stjórnvalds á beiðni um að afhenda gögn á því formi sem óskað er. Þá leiðir af 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að til nefndarinnar er einnig heimilt að kæra óhóflegan drátt á afgreiðslu beiðni um upplýsingar samkvæmt lögum um upplýsingarétt almennings.
Hvalfjarðarsveit hefur undir meðferð kærumálsins afhent kæranda afrit af fyrirliggjandi skýrslum sem féllu undir fyrri beiðni hans og varða níu stærstu námurnar í sveitarfélaginu. Úrskurðarnefndin tekur fram að umrædd skýrsla var unnin af verktaka á vegum sveitarfélagsins og synjun á umbeðnum gögnum gat því að lögum ekki byggst á því að um væri að ræða vinnugagn í skilningi 8. gr. upplýsingalaga enda var skjalið af þeirri ástæðu ekki unnið af stjórnvaldinu sjálfu í skilningi 1. mgr. 8. gr. laganna. Þar sem gagnið hefur nú verið afhent kæranda telst hins vegar ekki lengur fyrir hendi ágreiningur sem felldur verður undir kæruheimild 20. gr. upplýsingalaga. Kæru málsins hvað þennan þátt varðar ber því að vísa frá úrskurðarnefndinni.
Hvalfjarðarsveit hefur einnig afhent kæranda afrit af gögnum sem féllu undir síðari beiðni hans og varða Hólabrúarnámu sérstaklega. Sveitarfélagið afhenti þó ekki hluta af gögnum sem féllu undir þá beiðni á þeim grundvelli að þau gögn væru ekki fyrirliggjandi hjá sveitarfélaginu.
Samkvæmt 5. gr. upplýsingalaga ber stjórnvöldum, þegar þess er óskað, að veita almenningi aðgang að „fyrirliggjandi gögn“ með þeim takmörkunum á upplýsingarétti sem leiðir af 6. til 10. gr. upplýsingalaga.
Í ljósi skýringa sveitarfélagsins varðandi þennan þátt kærumálsins hefur úrskurðarnefndin ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að önnur eða frekari gögn en kærandi hefur þegar fengið afhent séu ekki fyrirliggjandi hjá sveitarfélaginu, óháð því hvort sveitarfélaginu hafi borið að halda slíkum upplýsingum og gögnum til haga, sbr. 27. gr. upplýsingalaga og 22. gr. laga um opinber skjalasöfn nr. 77/2014.
Þar af leiðandi liggja ekki fyrir gögn sem réttur samkvæmt upplýsingalögum gæti náð til og verður ákvörðun sveitarfélagsins að þessu leyti því staðfest.
Úrskurðarorð
Afgreiðsla sveitarfélagsins Hvalfjarðarsveitar á beiðni kæranda, […], dags. 18. desember 2025, varðandi gögn um Hólabrúarnámu er staðfest. Að öðru leyti er kæru […] frá 1. febrúar 2026 vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir