1378/2026. Úrskurður frá 20. ágúst 2026

Hinn 20. ágúst 2026 kvað úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóð­andi úrskurð nr. 1378/2026 í máli ÚNU 26050019.

Kæra og máls­atvik

Með úrskurði úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál nr. 1352/2026 frá 9. apríl 2026 var lagt fyrir Landspítala að taka að nýju til afgreiðslu beiðni […] um tiltekna sundurliðun Íslendinga sem greindir voru með SARS-CoV-2 og lögðust inn á spítala.

Landspítali afgreiddi beiðnina að nýju hinn 21. maí 2026. Í hinni nýju afgreiðslu kemur fram að í þágu rannsóknar á málinu hafi verið haft samband við einn vís­inda­manna rann­sókn­ar­innar, forstjóra spítalans og skjala­stjóra. Leitt hafi verið í ljós að gögn sem óskað væri eftir liggi ekki fyrir hjá spítalanum. Var því beiðni […] vísað frá.

[…] kærði þessa afgreiðslu Landspítala til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar hinn 26. maí 2026. Í kærunni kemur fram að upphafleg ákvörðun spítalans frá 24. febrúar 2026 hafi ekki byggst á því að gögnin sem óskað væri eftir lægju ekki fyrir heldur á því að gögnin hefðu líklega orðið til á grundvelli leyfa samkvæmt lögum um vís­inda­rann­sóknir á heil­brigð­is­sviði, nr. 44/2014. Það væri því ekki á valdsviði spítalans að veita aðgang að gögnunum, enda lægju þau ekki fyrir hjá spítalanum. Eftir úrskurð nr. 1352/2026 hefði mála­til­bún­aður spítalans breyst. Kærandi vísar til þess að tölfræðileg framsetning og samantekt hafi verið kynnt opin­ber­lega og notuð af stjórnendum spítalans. Það veki upp spurningar um hvort und­ir­liggj­andi gögn eða vinnslur hafi verið til, hvort þau hafi verið varðveitt, hvort þeim hafi verið eytt og hvernig sú „nánari leit“ sem vísað sé til í kærðu ákvörð­un­inni hafi farið fram.

Kærandi óski eftir að úrskurð­ar­nefndin taki afstöðu til þess hvort rannsókn Landspítala, þ.m.t. leit að gögnum, hafi verið full­nægj­andi, og hvort fyrir liggi upp­lýs­ingar um að gögn hafi áður verið til. Kærandi óski einnig eftir að Landspítala verði gert að skýra hver gerði leitina að gögnum og hvenær, í hvaða kerfum eða gagna­grunnum hafi verið leitað, og hvort gögn hafi áður verið til í einhverri mynd.

Máls­með­ferð

Kæran var kynnt Landspítala með erindi, dags. 29. maí 2026, og spítalanum gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Umsögn Landspítala barst úrskurð­ar­nefnd­inni 26. júní 2026. Í umsögninni kemur eft­ir­far­andi fram:

Í upphaflegu umsögn Landspítala til úrskurð­ar­nefndar, dags. 6. mars sl., var tekið skýrt fram að umbeðin gögn væru ekki fyr­ir­liggj­andi hjá Landspítala. Það var staðhæft vegna þess að leit hafði þegar farið fram og ekkert fundist hjá Landspítala sem hægt var að fella undir beiðnina. Þessi sjónarmið voru líklega ekki nægilega skýr í upphaflega svari spítalans til kæranda. Þó vissulega hafi komið fram að um væri að ræða gögn sem væru ekki fyr­ir­liggj­andi á Landspítala.

Umrædd glæra frá fyrirlestri forstjóra spítalans liggur fyrir og kærandi hefur þegar fengið afrit af henni. Í tilefni af erindi úrskurð­ar­nefnd­ar­innar var aftur gerð leit af umbeðnum gögnum. Einn af vís­inda­mönnum umræddrar rannsóknar sem er jafnframt prófessor og yfirlæknir í svæfinga- og gjör­gæslu­lækn­ingum leitaði aftur í sinni gagna­geymslu á drifum Landspítala og umbeðin gögn eru ekki fyr­ir­liggj­andi þar. Þá leitaði skjala­stjóri Landspítala aftur í skjala­safni skrifstofu forstjóra og öðrum svæðum sem skjala­stjóri hefur aðgang að. Skjala­stjóri fann ekkert nema umrædda glæru­kynn­ingu sem þegar hefur verið afhent. Þá liggur fyrir að forstjóri spítalans fékk umrædda glæru frá með­rann­sak­anda sínum í tiltekinni vís­inda­rann­sókn á heil­brigð­is­sviði og þau gögn sem bárust honum, þ.e. glæra sem er hluti af glæru­kynn­ingu sem málið snýst um, eru varðveitt á Landspítala.

Umsögn Landspítala var kynnt kæranda með erindi, dags. 2. júlí 2026, og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athuga­semdum. Í athuga­semdum kæranda, dags. 6. júlí 2026, er vísað til þess að í skýrslu, sem afhent hafi verið kæranda og að sögn liggi til grundvallar þeirri glæru sem forstjóri Landspítala kynnti opin­ber­lega á málþingi við Háskóla Íslands, segi að ákveðið hafi verið að sameina í einn hóp þá sem hefðu þegið einn skammt af bóluefni og þá sem aldrei hefðu verið bólusettir. Af þessu mætti ráða að við töl­fræði­lega úrvinnslu gagnanna hefði þessi ákvörðun verið tekin og að hóparnir hefðu þannig verið aðskildir áður en þeir hefðu verið sameinaðir. Beiðni kæranda lúti að þessari sundurliðun.

Með erindi, dags. 16. júlí 2026, óskaði úrskurð­ar­nefndin eftir upp­lýs­ingum frá spítalanum um hvort leitað hefði verið til þess starfs­manns spítalans sem vann skýrsluna, sem kærandi fékk afhenta og forstjóri spítalans fékk umrædda glæru frá, um það hvort gögn með umbeðinni sundurliðun væru í hans vörslu. Svar Landspítala barst hinn 28. júlí 2026. Í því kom fram að höfundur skýrslunnar hefði verið spurður hvort umrædd gögn væru fyr­ir­liggj­andi í eigin gögnum höfundar eða málum í skjala­safni Landspítala. Höfundurinn hefði svarað þannig að gögn sundurliðuð á þann hátt sem óskað væri eftir væru ekki til. Svör spítalans voru kynnt kæranda og viðbrögð við svarinu bárust nefndinni hinn 12. ágúst 2026.

Óþarft er að rekja nánar það sem fram kemur í gögnum málsins, sbr. 31. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993. Úrskurð­ar­nefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

Niður­staða

1.

Mál þetta varðar afgreiðslu Landspítala á beiðni kæranda um gögn tengd fram­setn­ingu á tölfræði um inn­lagn­ar­hlut­fall vegna Covid-19 eftir bólu­setn­ing­ar­stöðu. Í tilgreindum töl­fræði­legum upp­lýs­ingum í skýrslu um þróun inn­lagn­ar­hlut­falls vegna Covid-19 frá september 2021 til janúar 2022 voru sameinaðir í einn hóp þeir sem hefðu þegið einn bólu­efn­is­skammt og þeir sem aldrei hefðu verið bólusettir. Beiðni kæranda var um gögn sem sýndu innbyrðis skiptingu í þessum sameinaða hópi.

Í upphaflegu erindi kæranda frá nóvember 2025 var jafnframt óskað upp­lýs­inga um heild­ar­fjölda innlagðra sjúklinga sem fram­setn­ingin byggði á og sam­bæri­legrar skiptingar innbyrðis í sameinaða hópnum yfir lengra tímabil en september 2021–janúar 2022. Með hliðsjón af efni þeirrar kæru sem til úrlausnar er í þessu máli og gögnum málsins að öðru leyti lítur úrskurð­ar­nefndin svo á að ágrein­ingur í málinu afmarkist við það hvort gagn með fram­an­greindri skiptingu liggi fyrir í vörslu Landspítala.

Með úrskurði úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál nr. 1352/2026 frá 9. apríl 2026 var fyrri ákvörðun Landspítala um afgreiðslu beiðninnar vísað til spítalans til nýrrar meðferðar og afgreiðslu. Sú niður­staða byggðist einkum á því að spítalinn hefði ekki lagt fram gögn eða skýringar um hvort rannsakað hefði verið nánar hvort gögn með þessum upp­lýs­ingum lægju fyrir í öðrum málasöfnum eða upp­lýs­inga­kerfum á vegum spítalans, t.d. með fyrirspurn til höfundar fram­an­greindrar skýrslu eða til forstjóra spítalans.

Í nýrri afgreiðslu spítalans var beiðni kæranda vísað frá á þeim grundvelli að gögn með umbeðinni sundurliðun væru ekki fyr­ir­liggj­andi hjá spítalanum. Eins og lagt var til grundvallar í úrskurði nr. 1352/2026 sæta ákvarðanir stjórnvalda sem fela í sér synjun eða frávísun á beiðni um aðgang að gögnum kæru til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar, sbr. 1. mgr. 20. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012, og er kæru í málinu því réttilega beint til nefnd­ar­innar.

2.

Í 1. mgr. 5. gr. upp­lýs­inga­laga er mælt fyrir um að upp­lýs­inga­réttur almennings nái til fyr­ir­liggj­andi gagna sem varða tiltekið mál og tiltekinna fyr­ir­liggj­andi gagna. Samkvæmt 3. málsl. sömu málsgreinar er ekki skylt að útbúa ný skjöl eða önnur gögn í ríkari mæli en leiðir af 3. mgr. laga­grein­ar­innar. Af athuga­semdum við 5. gr. með frumvarpinu sem varð að upp­lýs­inga­lögum, nr. 140/2012, verður ráðið að skilyrði þess að gagn sé undirorpið upp­lýs­inga­rétti sé að það liggi fyrir hjá þeim sem fær beiðni um aðgang til afgreiðslu. Þá segir að upp­lýs­inga­réttur nái aðeins til þeirra gagna sem til eru og fyrir liggja þegar beiðni um aðgang er sett fram og í þeirri mynd sem þau eru þá.

Við nýja meðferð og afgreiðslu beiðninnar rannsakaði Landspítali málið í samræmi við forsendur úrskurðar nr. 1352/2026. Einn vís­inda­manna þeirrar rannsóknar sem fram­an­greind skýrsla tengist gerði leit í eigin gagna­geymslu á drifum Landspítala. Þá leitaði skjala­stjóri spítalans í skjala­safni skrifstofu forstjóra og á öðrum svæðum sem skjala­stjóri hafði aðgang að. Við þá leit fannst ekki gagn með þeirri sundurliðun sem kærandi óskaði eftir. Í kjölfar fyr­ir­spurnar úrskurð­ar­nefnd­ar­innar var svo leitað til höfundar skýrslunnar og hann spurður hvort gögn með umbeðinni sundurliðun lægju fyrir í gögnum hans eða málum í skjala­safni Landspítala. Í svari hans kom fram að gögn sundurliðuð á þann hátt sem óskað væri eftir væru ekki til.

Kærandi hefur vísað til þess að lýsing í skýrslunni á aðferða­fræði sem lögð var til grundvallar beri með sér að við gerð útfærslu fram­setn­ingar á tölfræðinni í skýrslunni hafi verið tekin meðvituð ákvörðun um að láta tvo undirhópa mynda einn sameinaðan hóp. Úrskurð­ar­nefndin fellst á að orðalag í skýrslunni gefi slíkt til kynna en telur hins vegar að af henni einni og sér verði ekki ályktað með vissu að sérstakt gagn með sundurliðun þessara tveggja hópa liggi fyrir eða hafi áður legið fyrir.

Að teknu tilliti til þeirrar rannsóknar sem gerð var við nýja afgreiðslu beiðninnar og skýringa þeirra aðila sem leitað var til hefur úrskurð­ar­nefndin ekki forsendur til að draga í efa þá fullyrðingu Landspítala að gagn með umbeðinni sundurliðun sé ekki fyr­ir­liggj­andi hjá spítalanum. Landspítali hefur samkvæmt fram­an­greindu bætt úr þeim annmarka á rannsókn málsins sem gerðar voru athuga­semdir við í úrskurði nefnd­ar­innar nr. 1352/2026 og lagt full­nægj­andi grundvöll að þeirri niður­stöðu að gagn með umbeðinni sundurliðun sé ekki fyr­ir­liggj­andi hjá spítalanum. Verður því ekki leidd af upp­lýs­inga­lögum skylda til að afhenda kæranda slíkt gagn. Hin kærða ákvörðun verður því staðfest.

Úrskurð­ar­orð

Ákvörðun Landspítala, dags. 21. maí 2026, um afgreiðslu beiðni kæranda, […], er staðfest.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir