Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 285/2017

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 285/2017

Fimmtudaginn 5. október 2017

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, dags. 3. ágúst 2017, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. júní 2017, um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði og innheimta ofgreiddar bætur.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun þann 24. mars 2017 og var umsóknin samþykkt. Með bréfi, dags. 10. maí 2017, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda að stofnuninni hefðu borist upplýsingar um að hann hefði verið staddur erlendis í apríl 2017 samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa tilkynnt um það til stofnunarinnar. Kæranda var veittur sjö daga frestur til að skila inn skýringum og farseðlum. Skýringar bárust frá kæranda 4. júní 2017 og afrit af flugfarseðli barst 22. júní 2017 þar sem fram kom að kærandi hafi dvalið erlendis á tímabilinu 12. til 25. apríl 2017.

Með bréfi, dags. 27. júní 2017, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans yrði felldur niður frá og með 23. júní 2017 í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hefði ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrir fram um dvöl sína erlendis. Kærandi var einnig krafinn um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 að fjárhæð 117.225 kr. að meðtöldu 15% álagi, fyrir tímabilið 12. til 25. apríl 2017. Kærandi óskaði eftir endurupptöku vegna þeirrar ákvörðunar og með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 7. júlí 2017, var fyrri ákvörðun staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 3. ágúst 2017. Með bréfi, dags. 9. ágúst 2017, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 22. ágúst 2017. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 29. ágúst 2017, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust frá kæranda með tölvupósti 9. september 2017.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi farið til útlanda til að hvíla sig eftir erfiðan skilnað. Hann hafi ekki verið með hugann við Vinnumálastofnun á þeim tímapunkti og ekki haft vitneskju um að hann þyrfti leyfi til að fara í frí. Kærandi tekur fram að hann hafi komið heiðarlega fram í samskiptum sínum við Vinnumálastofnun en gert mistök með því að tilkynna ekki ferðina.

III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að tilgangur laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Með lögunum sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi og því sé gert ráð fyrir að hinir tryggðu séu í virkri atvinnuleit þann tíma. Atvinnuleysistryggingar veiti hinum tryggðu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi. Í 13. gr. laganna séu talin upp almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Í c-lið ákvæðisins komi meðal annars fram að það sé skilyrði fyrir greiðslum að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Í 2. mgr. 14. gr. laganna sé einnig mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda, en þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 sé kveðið á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða. Óumdeilt sé að kærandi hafi verið staddur erlendis á sama tíma og hann hafi verið skráður atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun. Stofnuninni hafi ekki borist tilkynning fyrir fram um utanlandsferð kæranda, líkt og skylt sé samkvæmt 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laganna. Af þeim sökum hafi kærandi ekki uppfyllt skilyrði laga nr. 54/2006 á því tímabili og þar af leiðandi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma.

Vinnumálastofnun tekur fram að á því tímabili sem atvinnuleitandi fái greiddar atvinnuleysisbætur beri honum að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á högum sínum, sbr. 3. mgr. 9. gr. laganna, þar á meðal ferðir sínar utanlands. Atvinnuleitendum beri því að uppfylla allar sínar skyldur við Vinnumálastofnun á meðan þeir njóti greiðslna atvinnuleysisbóta. Þegar rafrænni umsókn um greiðslu atvinnuleysisbóta sé skilað sé umsækjendum kynnt margvísleg atriði er varða réttindi og skyldur, þar með talið að tilkynna beri um ferðir erlendis. Þá þurfi umsækjendur að samþykkja að þeir hafi lesið og skilið þær upplýsingar sem fram komi í umsókn um réttindi og skyldur þeirra. Kæranda hafi verið sendur tölvupóstur þann 29. mars 2017 þar sem honum hafi verið bent á að ef farið væri til útlanda þyrfti að tilkynna það fyrir fram og skila afriti af flugfarseðlum til stofnunarinnar því til staðfestingar. Víðtækar og ítarlegar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda séu á heimasíðu Vinnumálastofnunar en þar komi skýrt fram að atvinnuleitanda beri að veita nákvæmar upplýsingar um hagi sína. Vinnumálastofnun vísar til þess að í málinu liggi fyrir að kærandi hafi látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta. Stofnuninni sé skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og innheimta þær sem hafi verið ofgreiddar í samræmi við 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006. Skuld kæranda verði skuldajafnað við síðari tilkomnar atvinnuleysisbætur í samræmi við 3. mgr. 39. gr. laganna.

IV. Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og innheimta ofgreiddar bætur samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.

Ákvæði 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur … látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 þar sem fram kemur að launamaður sé tryggður samkvæmt lögunum sé hann búsettur og staddur hér á landi. Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var staddur erlendis á tímabilinu 12. til 25. apríl 2017 en tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrir fram um ferð sína. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi ekki haft vitneskju um að hann þyrfti að tilkynna Vinnumálastofnun um ferðina. Úrskurðarnefndin tekur fram að á því tímabili sem atvinnuleitandi fær greiddar atvinnuleysisbætur ber honum að tilkynna Vinnumálastofnun um allar breytingar á högum sínum, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006, þar á meðal ferðir sínar erlendis. Líkt og Vinnumálastofnun hefur vísað til er umsækjendum um atvinnuleysisbætur kynnt margvísleg atriði er varða réttindi og skyldur þegar rafrænni umsókn er skilað, þar með talið að tilkynna beri um ferðir erlendis, og umsækjendur þurfa að samþykkja að hafa lesið og skilið þær upplýsingar sem fram koma í umsókn um réttindi og skyldur. Úrskurðarnefndin bendir einnig á að kærandi fékk þær upplýsingar í tölvupósti 29. mars 2017 að tilkynna þyrfti fyrir fram um ferðir erlendis og skila bæri afriti af flugfarseðlum til stofnunarinnar því til staðfestingar. Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hafi mátt vita, eða að minnsta kosti hafi haft tilefni til þess að afla sér frekari upplýsingar um skyldur sínar, að hann yrði að tilkynna Vinnumálastofnun sérstaklega um ferð sína erlendis. Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum gagnvart stofnuninni er hann tilkynnti ekki um ferð sína erlendis. Að því virtu bar Vinnumálastofnun að láta kæranda sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar staðfest.

Mál þetta lýtur einnig að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að endurkrefja kæranda um ofgreiddar bætur samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 vegna tímabilsins sem hann var erlendis, að fjárhæð 117.225 kr. að meðtöldu 15% álagi. Í 2. mgr. 39. gr. laganna kemur fram að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Þegar kærandi var erlendis á tímabilinu 12. til 25. apríl 2017 uppfyllti hann ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um að vera búsettur og staddur hér á landi. Að því virtu átti hann ekki rétt á greiðslum frá Vinnumálastofnun á því tímabili sem endurgreiðslukrafan lýtur að en ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Hins vegar skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um ferð sína erlendis. Að mati úrskurðarnefndarinnar er því ekki tilefni til að fella niður álagið. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. júní 2017, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði og innheimta ofgreiddar bætur er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum