27. október 2026 /

Mál nr. 26/2026 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 15. október 2026

í máli nr. 26/2026

A

gegn

B

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A.

Varnaraðili: B.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að endurgreiða tryggingarfé að fjárhæð 390.000 kr. ásamt vöxtum að frádreginni innborgun að fjárhæð 274.350 kr. 23. febrúar 2026.

Varnaraðili hefur ekki tekið til varna í málinu þrátt fyrir áskorun þar um með tölvubréfum 13. og 25. mars 2026.

Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:

Kæra sóknaraðila, dags. 23. janúar 2025.

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Aðilar gerðu ótímabundinn leigusamning frá 17. júní 2022 um leigu sóknaraðila á íbúð varnaraðila að C. Ágreiningur er um endurgreiðslu tryggingarfjár sem sóknaraðili lagði fram við upphaf leigutíma.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðili kveðst hafa flutt úr hinni leigðu eign 3. janúar 2026 en varnaraðili aðeins endurgreitt 274.350 kr. af 390.000 kr. tryggingarfé sem sóknaraðili haft lagt fram við upphaf leigutíma, eða 13. júní 2022. Sóknaraðili hafi ítrekað gengið á eftir endurgreiðslu tryggingarfjár og varnaraðili glatað rétti sínum til að gera kröfu í trygginguna þar sem hún hafi ekki gert það innan fjögurra vikna frá skilum á eigninni. Þá geri sóknaraðili athugasemd við frádrátt sem varnaraðili hafi einhliða ákveðið að gera á tryggingarfé á þeim grunni að skemmdir hafi orðið á munum í eigninni. Skemmdirnar sem um ræði hafi verið til staðar við upphaf leigutíma auk þess sem engar sameiginlegar úttektir hafi farið fram. Einu skemmdirnar sem hafi verið til staðar hafi verið á nokkrum parketlistum og sóknaraðili sérstaklega bent varnaraðila á þær en viljað skipta um þá sjálf með aðstoð föður síns. Þá hafi sóknaraðili þrifið íbúðina hátt og lágt fyrir afhendingu.

V. Niðurstaða

Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka og verður úr ágreiningi leyst á grundvelli þeirra gagna sem sóknaraðili hefur lagt fram.

Til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi aðila lagði sóknaraðili fram tryggingarfé að fjárhæð 390.000 kr. þann 13. júní 2022.

Í 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 er kveðið á um að leigusali skuli svo fljótt sem verða megi og eigi síðar en innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðis gera leigjanda skriflega grein fyrir því hvort hann geri kröfu í tryggingarfé samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. eða hafi uppi áskilnað um það, sbr. einnig 1. mgr. 64. gr. Hafi leigusali ekki gert kröfu samkvæmt 1. málsl. skuli hann skila leigjanda tryggingarfénu ásamt vöxtum án ástæðulauss dráttar og skuli hann greiða leigjanda dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá þeim degi er fjórar vikur eru liðnar frá skilum leiguhúsnæðis til þess dags er hann skilar tryggingarfénu.

Leigutíma lauk 3. janúar 2026. Varnaraðili gerði ekki skriflega kröfu í tryggingarfé sóknaraðila innan fjögurra vikna frá þeim degi, sbr. 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga. Ber honum þegar af þeirri ástæðu að skila sóknaraðila tryggingarfénu, 390.000 kr., ásamt vöxtum, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, frá þeim degi er tryggingarfé var lagt fram, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim degi er fjórar vikur voru liðnar frá skilum húsnæðis, þ.e. 1. febrúar 2026, til greiðsludags. Allt að frádreginni innborgun, kr. 274.350, þann 23. febrúar 2026 miðað við stöðu skuldarinnar á innborgunardegi.

Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Varnaraðila ber að endurgreiða sóknaraðila tryggingarfé að fjárhæð 390.000 kr. ásamt vöxtum, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, frá 13. júní 2022 til 1. febrúar 2026, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags. Allt að teknu tilliti til innborgunar 23. febrúar 2026 að fjárhæð 274.350 miðað við stöðu skuldarinnar á innborgunardegi.

 
 
 

Reykjavík, 15. október 2026

 
 

Auður Björg Jónsdóttir

 

Eyþór Rafn Þórhallsson                                              Þorvaldur Hauksson