29. apríl 2026 /

Mál nr. 33/2024 - Úrskurður

Mál nr. 33/2024

 

Úrskurður kærunefndar jafnréttismála

 

A

gegn

Reykjavíkurborg

 

Ráðning í starf. Mismunun á grundvelli kyns. Umsóknargögn. Ekki fallist á brot. Málskostnaður.

A, sem sótti um stöðu skólastjóra hjá kærða, taldi að sér hefði verið mismunað á grundvelli kyns við ráðningu karlmanns í stöðuna, sbr. 1. mgr. 19. gr. laga nr. 150/2020  um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. A taldi sig hafa uppfyllt auglýst hæfisskilyrði betur en karlinn og því hefði verið um brot á lögum nr. 150/2020 að ræða.  Þegar litið var til umsóknarferilsins, þeirra gagna sem kærandi lagði fram með umsókn og til rökstuðnings kærða fyrir ákvörðuninni, var ekki talið að kærandi hefði leitt líkur að því að henni hefði verið mismunað á grundvelli kyns. Samkvæmt því var það niðurstaða kærunefndar að kærði hefði ekki gerst brotlegur við lög nr. 150/2020.

  1. Á fundi kærunefndar jafnréttismála hinn 29. apríl 2026 er tekið fyrir mál nr. 33/2024 og kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
  2. Með kæru, dags. 20. desember 2024, kærði A brot á 19. gr. laga nr. 150/2020 gagnvart sér er kærði, Reykjavíkurborg, réð karlkyns umsækjanda í starf skólastjóra grunnskólans B, sem kærði tilkynnti um með bréfi, dags. 10. júní 2024. Óskaði kærandi eftir rökstuðningi fyrir ákvörðuninni hinn 20. júní s.á., ásamt ráðningargögnum. Rökstuðningur, ásamt gögnum, barst kæranda hinn 25. s.m. Kærandi óskaði eftir frekari gögnum sama dag, og voru nánari upplýsingar veittar hinn 12. ágúst 2024. Hinn 6. september gerði kærandi athugasemdir við fyrri afgreiðslu kærða á gagnabeiðni og voru frekari gögn lögð fram 23. september 2024. Í kæru gerir kærandi og kröfu um málskostnað sér til handa.
  3. Kæran ásamt fylgigögnum var kynnt kærða með bréfi kærunefndar jafnréttismála, dags. 4. febrúar 2025. Greinargerð kærða er dags. 14. mars 2025. Var hún send kæranda til athugasemda með bréfi, dags. 15. maí, og eru athuga­semdir kæranda dags. 5. júní s.á. Voru þær kynntar kærða og eru athugasemdir vegna þeirra dags. 8. júlí 2025. Kærandi gerði viðbótarathugasemdir vegna umsagnar kærða og voru þær kynntar kærða með bréfi dags. 8. ágúst 2025. Kærði svaraði þeim athugasemdum með bréfi, dags. 25. ágúst s.á., og voru þær kynntar kæranda 10. febrúar sl.

 

MÁLAVEXTIR

  1. Málavextir eru þeir að hinn […] 2024 auglýsti skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar eftir skólastjóra grunnskólans B.
  2. Samkvæmt auglýsingu voru menntunar- og hæfniskröfurnar þær að viðkomandi hefði leyfi til að nota starfsheitið kennari en viðbótarmenntun og/eða reynsla í sérkennslufræðum var talin æskileg, svo og viðbótarmenntun í stjórnun. Þá var gerð krafa um reynslu af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi auk þess sem góð fagleg þekking á hegðunar- og atferlisvanda var talin æskileg. Gerð var krafa um færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða framsækna skólaþróun ásamt reynslu af fjölbreyttum kennsluþáttum með hliðsjón af þörfum nemenda, svo og stjórnunar- og leiðtogahæfileika, færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun og framúrskarandi lipurð og hæfni í samskiptum. Jafnframt var gerð krafa um þekkingu á þjónustukerfi og öðrum stofnunum eins og Barnavernd, Velferðarsviði og heilbrigðisstofnunum.
  3. Í auglýsingu var helstu verkefnum lýst svo: að veita faglega forystu og starfa samkvæmt framtíðarstefnu skólans í samstarfi við viðeigandi stofnanir, eftirfylgni með teymisfundum og samstarfi, dagleg umsýsla nemendamála, vinna að starfsþróun innan skólans, öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins, stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi, starfsmannamálum, o.fl.
  4. Kærandi, sem er kona, sótti um stöðuna 14. maí 2024 og taldi sig uppfylla menntunar- og hæfniskröfur auglýsingarinnar ásamt því að hafa reynslu og þekkingu á þeim verkefnum sem þar voru tilgreind. Kærandi var hins vegar ekki boðuð í viðtal vegna umsóknarinnar og með tölvubréfi, dags. 10. júní s.á., var kæranda tilkynnt að karlkyns umsækjandi sem hefði verið metinn hæfastur umsækjenda hefði verið ráðinn. Óskaði kærandi í kjölfarið eftir rökstuðningi hinn 20. júní s.m. og barst hann kæranda hinn 25. júní s.m. Þar kom fram að fimm hefðu sótt um stöðuna og hefðu þrír þeirra sem samkvæmt starfsumsókn þóttu standa öðrum framar verið boðaðir í viðtal og eftir heildstætt mat hefði karlinn verið talinn uppfylla best hæfniskröfur sem gerðar hefðu verið. Kærandi taldi sig ekki hafa fengið sanngjarna og óhlutdræga meðhöndlun í umsóknarferlinu og lítið verið gert úr hæfni hennar, menntun og reynslu, en að sama skapi hefði meira verið gert úr reynslu þess einstaklings sem ráðinn hefði verið en efni hefði staðið til.
  5. Af hálfu kærða var m.a. til þess vísað að gögn sem skyldu fylgja umsókn um starfið og sem vísað hefði verið til í kæru til nefndarinnar hefðu ekki fylgt með umsókn kæranda um starfið, heldur hefðu borist síðar eða daginn eftir að umsóknarfresti lauk. Umsækjendur bæru ábyrgð á því að skila umsókn innan frests og að henni fylgdu gögn sem áskilin væru í auglýsingu. Yrði kærandi að bera halla af því að gögn hefðu ekki fylgt umsókninni, en að umsóknarferli loknu hefðu umsóknir verið metnar á grundvelli þeirra gagna sem umsækjendur létu fylgja umsóknum og að loknu því mati hefði ákvörðun verið tekin um boðun umsækjenda til viðtals. Af hálfu kærða var þó tekið fram að jafnvel þótt viðkomandi gögn hefðu fylgt umsókn kæranda hefði kærandi ekki verið talin meðal hæfustu umsækjenda.

SJÓNARMIÐ KÆRANDA

  1. Af hálfu kæranda er sérstaklega vísað til 16. gr., sbr. 19. og 21. gr. laga nr. 150/2020. Í 4. mgr. 19. gr. segi svo að ef leiddar séu líkur að því við ráðningu að einstaklingi hafi verið mismunað á grundvelli kyns, skuli vinnuveitandi sýna fram á að aðrar ástæður en kyn hafi legið til grundvallar ákvörðun hans. Í ferilskrá kæranda sem hafi fylgt umsóknargögnum komi fram að kærandi hafi frá árinu […] verið deildarstjóri farteymis. Á þessum sex árum hafi reynt á verkefni sem talin séu upp í auglýsingu um starfið. Kærandi hafi komið á laggirnar skóla- og stoðþjónustuúrræði á grunni borgarráðssamþykktar, fundið húsnæði, ráðið starfsfólk, útbúið starfsmannahandbók, verkferla o.þ.h. Hafi kærandi séð um daglegan rekstur og sem dæmi borið ábyrgð á þróun og daglegu starfi ráðgjafa sem fari inn í og aðstoði við áskoranir nemenda með fjölþættan vanda í grunnskólum. Hafi þessar upplýsingar komið fram með umsókn en kærandi ekki fengið færi á að fara nánar yfir reynslu sína þar sem hún hafi ekki verið boðuð í viðtal. Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs hafi verið yfirmaður kæranda lengst af og því hafi þessar upplýsingar legið fyrir við ráðninguna. Þá hafi sú sem tók ákvörðun um að ráða í starfið þekkt vel til starfa og bakgrunns kæranda.
  2. Við samanburð á menntun, viðbótarmenntun, stjórnunarreynslu ásamt sérþekkingu eða á öðrum sérstökum hæfileikum hafi kærandi haft meiri menntun og bæði lengri og fjölbreyttari starfsreynslu en sá sem ráðinn hafi verið í starfið. Að því er menntun varðar hafi kærandi lokið samtals 354 ECTS einingum í tómstunda- og félagsmálafræði, og um næstu áramót eftir ráðningu myndi kærandi ljúka diplómanámi í sama fagi með áherslu á stjórnun, sem sé metið 30 ECTS. Karlinn sem ráðinn var hafi lokið 300 ECTS einingum. Varðandi viðbótarmenntun hafi kærandi lokið ýmsum námskeiðum sem komi að gagni, t.d. stjórnendamarkþjálfun, kennsluréttindum til lífsleiknikennslu og námskeiði um tengslavanda hjá BUGL.  Kærandi hafi lokið leiðbeinandanámskeiði ART, og námskeiði Ross Greene í umhverfisskipulagi fyrir börn með reiðivanda, auk þess að vera með réttindi ökukennara. Karlinn sem ráðinn hafi verið hafi hins vegar lokið námskeiðum tengdum fötluðum, margbreytileika og sérkennslu og um varnarviðbrögð í vinnu með fötluðum, auk fjölbreyttra námskeiða og ráðstefnu um menntun í skóla margbreytileikans. Því sé ljóst að kærandi hafi mun meiri viðbótarmenntun, en ásamt því að leggja áherslu á stjórnun í grunnnámi sínu hafi hún bætt við sig menntun í stjórnun eins og menntunar- og hæfniskröfur í auglýsingu kváðu á um.
  3. Af hálfu kæranda er tekið fram að hún hafi 17 ára stjórnunarreynslu, hafi verið deildarstjóri hjá [kærða] í sex ár, deildarstjóri í lausnamiðaðri nemendavernd í fimm ár og deildarstjóri farteymis í sex ár, auk 11 ára kennslureynslu í skólaseli og í farkennsluteymi sem sé hluti af stjórnunarreynslu. Karlinn hafi hins vegar eins og hálfs árs stjórnunarreynslu, hálft ár sem aðstoðarskólastjóri og eitt ár sem deildarstjóri ráðgjafarsviðs grunnskólans B. Kennslureynsla hans sé 13,5 ár, þar af 12,5 í grunnskólanum B. Sú fullyrðing að karlinn hafi mikla reynslu sem stjórnandi fái ekki staðist, auk þess sem karlinn hafi engin stig fengið fyrir viðbótarmenntun í stjórnun í hæfnismati.
  4. Að því er varðar færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun hafi kærandi í starfi sínu sem deildarstjóri farteymis frá […] mikla slíka reynslu, en hún sjái um allan rekstur teymisins. Þá hafi hún séð um rekstur í starfi hjá Þjónustu- og rekstrarsviði og umsjón með húsnæði […] í starfi hjá [kærða]. Hafi kærandi þannig séð um fjármálaáætlanir, borið ábyrgð á fjárhagsramma og séð um reikninga, auk ársuppgjöra, rekstur, ráðningar og launamál. Karlinn hafi enga reynslu í áætlanagerð eða fjármálastjórnun. Slík reynsla komi heldur ekki fram í viðtalsgögnum
  5. Í sambandi við reynslu af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi hafi slík reynsla spannað 17 ár. Í kynningarbréfi með umsókn komi fram að kærandi hafi leitt verkefni sem lúti að lausnamiðaðri nemendavernd og hafi unnið að þverfaglegri samvinnu frá 2013 og hafi þurft að kalla mismunandi kerfi að borðinu í lausnaleit. Hafi hún unnið með flestum skólastjórnendum í Reykjavík auk mikillar samvinnu við aðrar stofnanir sem hlut eiga að máli. Að því er varðar karlinn sem ráðinn var komi fram í matslíkani að leitað sé eftir árafjölda í tengslum við forystu og þróun í skólastarfi, og að auki sé karlinn talinn hafa góða reynslu af slíkri forystu í starfi sínu hjá grunnskólanum B sem og verkefnastjórn á unglinga- og miðstigi. Kærandi telur umsögnina ekki eiga sér stoð í umsóknargögnum og hún feli í sér ofmat.
  6. Með vísan til hæfnisliðarins reynsla af fjölbreyttum kennsluháttum með hliðsjón af þörfum nemenda telur kærandi sig hafa yfirburða faglega þekkingu og reynslu af hegðunar- og atferlisvanda og þekki öll þjónustukerfi og aðrar stofnanir innan málaflokksins. Sem deildarstjóri frá […]−[…] í lausnamiðaðri nemendavernd (skólaseli) hafi kærandi komið að því að finna lausn á vanda nemenda og aðstoða skóla við að veita ráðgjöf vegna þeirra sem áttu í hvað mestum vanda. Frá […] hafi kærandi síðan verið deildarstjóri farteymis og borið yfirábyrgð á þróun og daglegu starfi ráðgjafa sem fari inn í grunnskóla. Dæmi um skóla sem kærandi hafi unnið með sé grunnskólinn B. Karlinn sem ráðinn var hafi verið spurður um þekkingu á hegðunar- og atferlisvanda og miðað við reynslu og þekkingu kæranda og svör karlsins hafi kærandi haft mun lengri og dýpri reynslu og þekkingu á fjölbreyttum kennsluháttum með hliðsjón af þörfum nemenda og geti karlinn á engan hátt talist standa kæranda framar að þessu leyti.
  7. Kærandi bendir sérstaklega á að umsókn hennar hafi verið lögð fram rafrænt í gegnum ráðningarkerfi kærða, 50skills. Kærandi hafi upplifað tæknivanda við skráningu gagna í ráðningarkerfið, en kærandi segist hafa sent umsóknina í gegnum símtæki. Hafi kærandi því ekki náð að skila inn ákveðnum gögnum eins og kynningarbréfi og bréfi um framtíðarsýn fyrir grunnskólann B. Fagstjóri grunnskóla hjá kærða hafi verið í veikindaleyfi og hafi kærandi haft samband við skrifstofustjóra hjá kærða og óskað eftir heimild til að senda fylgiskjöl með tölvupósti hinn 15. maí 2024. Engar athugasemdir eða fyrirvari hafi verið gerður af hálfu kærða um að gögnin væru of seint fram komin eða væru ófullnægjandi sem hafi skapað réttmætar væntingar hjá kæranda. Hafi kærandi þannig fengið formlegt leyfi til að skila gögnum daginn eftir að umsóknarfrestur rann út, og séu þau gögn því órjúfanlegur hluti umsóknargagna. Kærandi mótmæli  harðlega þeirri túlkun kærða að hún hafi ekki skilað inn öllum gögnum sem áskilin voru eða að hún skuli bera halla af því að hafa sent gögnin með framangreindum hætti. Kærandi telur fjölmörg fordæmi fyrir því, m.a. hjá kærða, að litið sé til gagna sem skilað sé eftir að umsóknarfresti lýkur ef umsóknin sjálf hefur borist innan frestsins. Þó svo að fram hafi komið tvær útgáfur af ferilskrá kæranda, sem erfitt sé að gera grein fyrir hvernig hafi getað gerst, hafi sú ferilskrá sem skilað hafi verið inn með rafrænni umsókn átt að nægja til að leiða hæfni kæranda í ljós. Auk þess hafi upplýsingar legið fyrir hjá kærða um kæranda sem hafi um árabil starfað innan kerfis kærða og yfirmenn hans hafi þekkt vel til. Að líta fram hjá hæfni kæranda, þrátt fyrir fyrirliggjandi þekkingu um kæranda og það sem aðgengilegt var í ferilskrá bendi til þess að matið hafi verið ómálefnalegt. Áréttar kærandi að það að umsækjandi geti ekki sent með umsókn fullgild gögn vegna tæknilegra takmarkana eigi ekki að verða viðkomandi að falli, ef í kjölfarið séu gerðar ráðstafanir til að tryggja að öll gögn berist, en hafa verði í huga að stigamat kærða hafi m.a. byggt á gögnum sem bárust með tölvupósti til kærða en hafi ekki fylgt umsókninni sjálfri. Sýni það að gögnin hafi verið skoðuð og notuð við matið.
  8. Kærandi áréttar að í ferilskrá sem fylgt hafi umsókn komi fram mikilvægar upplýsingar um starfsreynslu kæranda í tengslum við skólasel og sem deildarstjóri farteymis. Nánari upplýsingar, sem flestar liggi fyrir í ferilskrá, hafi ekki verið metnar að verðleikum og við ákvörðun um hverjir yrðu boðaðir í viðtöl hafi verið litið fram hjá vitneskju hjá kærða um reynslu kæranda. Þá hafi yfirmenn kæranda og vitað af því að kærandi væri að ljúka viðbótarnámi í stjórnun, en kærandi útskrifaðist úr því […] 2025. Verði að telja það ómálefnalegt að kærandi hafi ekki verið boðuð í starfsviðtal sérstaklega með tilliti til sterkrar starfsreynslu og sérhæfingar á svið sérkennslu o.fl. Það að útiloka kæranda frá viðtali þýddi að kærandi gat ekki veitt skýringar á þeim atriðum sem kærði byggir á að væru ófullnægjandi í umsókn kæranda.
  9. Þó svo að matskenndar stjórnvaldsákvarðanir gefi stjórnvöldum ákveðið svigrúm við val á hæfasta umsækjanda, þá sé slíkt svigrúm ekki skilyrðislaust. Slíkar ákvarðanir verði að byggjast á málefnalegum og lögmætum sjónarmiðum og megi ekki fela í sér mismunun. Telur kærandi því að kærði hafi brotið gegn meginreglum stjórnsýsluréttarins og jafnframt 19. gr. laga nr. 150/2020.

SJÓNARMIÐ KÆRÐA

  1. Af hálfu kærða er bent á að í umsókn kæranda, sem send var rafrænt, hafi einungis komið fram umbeðnar grunnupplýsingar um kæranda. Í gögnum sem fylgdu kæru til nefndarinnar sé að finna ferilskrá kæranda á word-formi og kynningarbréf, en önnur ferilskrá hafi fylgt umsókn kæranda. Samanburður á skjölunum sýni mismunandi upplýsingar. Kynningarbréfið sem kærandi hafi lagt fram með kæru hafi hvorki borist með umsókn hennar né meðan á umsóknarferlinu stóð. Með umsókn kæranda hafi fylgt tvö skjöl, annars vegar skjal sem viðhengi í dálknum ferilskrá og hins vegar skjal undir dálknum kynningarbréf, en bæði þessi tvö skjöl hafi verið ferilskrá kæranda. Umsókninni var skilað rétt fyrir miðnætti á lokadegi umsóknarfrests um starfið, hinn 14. maí 2024. Athugun kærða leiði í ljós að kynningarbréfið hafi verið útbúið 15. maí s.á., þ.e. degi eftir að umsóknarfresturinn rann út. Í auglýsingu hafi komið fram að umsókn skyldi fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, kennaraleyfisbréf, kynningarbréf og greinargerð um framtíðarsýn á skólastarfið, upplýsingar um farsæl verkefni, upplýsingar um umsagnaraðila og annað er málið varðar. Þessi grundvallargögn hafi hins vegar ekki fylgt umsókninni, þ.e. kynningarbréf, leyfisbréf og upplýsingar um framtíðarsýn og farsæl verkefni.
  2. Af umsókn kæranda hafi verið ljóst að kærandi hafi uppfyllt almenn hæfisskilyrði og lágmarkskröfur en ekki hafi verið talið skylt að gefa kæranda kost á að koma á framfæri frekari upplýsingum. Kærandi hafi borið ábyrgð á að skila umsókn ásamt fylgigögnum innan frests. Kærandi beri ábyrgð á að hafa ekki staðið betur að umsókninni, en óljóst sé hvers vegna það hafi ekki verið gert. Í auglýsingu um starfið hafi komið fram hvað teljist nauðsynlegt að fylgdi umsókn, þ.m.t. ferilskrá og kynningarbréf, og hvað væri valkvætt, þ.e. greinargerð um framtíðarsýn og önnur gögn. Þeir þættir sem voru nauðsynlegir hafi verið stjörnumerktir og ekki unnt að skila inn rafrænni umsókn nema að fylla út þá liði. Að umsóknarfresti liðnum hafi umsóknir verið metnar á grundvelli gagna sem fylgdu umsókn í þeim tilgangi að ákveða hvaða umsækjendur skyldu boðaðir í viðtal. Þeir sem hafi best uppfyllt hlutlægar hæfniskröfur hafi verið boðaðir í viðtal.
  3. Í auglýsingu um starfið hafi markmiðið verið að afmarka þau málefnalegu sjónarmið sem lögð yrðu til grundvallar við ráðningu og hafi verið gætt að jafnræði og réttaröryggi umsækjenda, í samræmi við það svigrúm sem ráðningaraðili hafi til að ákvarða hvað leggja skuli til grundvallar. Samhliða gerð auglýsingar hafi verið hannaður matsrammi og hafi vægi hæfniviðmiða verið höfð til hliðsjónar. Grunnskólinn B sé […] og hæfniskröfur séu að hluta til frábrugðnar kröfum sem gerðar séu til annarra skólastjóra grunnskóla. Mikilvægt sé að umsækjandi hafi starfað innan málaflokksins og tekist á við […]. Þá hafi verið gerð krafa um stjórnunar- og leiðtogahæfileika, lipurð og hæfni í samskiptum.
  4. Þó að í kæru málsins megi finna ítarlegan rökstuðning fyrir hæfni kæranda sé hins vegar ljóst að þær upplýsingar hafi einungis að litlu leyti komið fram í umsóknargögnum. Eðli máls samkvæmt hafi umsóknarferli tekið mið af fyrirliggjandi upplýsingum sem hafi borist með umsókn. Kærði áréttar að í tölvupósti sem kærandi sendi daginn eftir, 15. maí, til ábyrgðaraðila ráðningarferlisins, hafi hvorki komið fram skýringar á tæknivanda sem kærandi telur sig hafa lent í né beiðni um að téð gögn sem fylgdu tölvupóstinum mættu komast að eftir lok umsóknarfrests. Slík beiðni hafi aldrei borist og hafi því ekki verið tekin til skoðunar hjá kærða. Hið viðhengdu gögn í tölvupóstinum skiluðu sér því ekki inn í ráðningarferlið. Í sjálfvirku svari við póstinum komi fram að viðkomandi sé fjarverandi vegna veikinda og bent á að hafa samband við skóla- og frístundasvið kærða. Kærandi hafi ekki fylgt því eftir. Nefndur starfsmaður kærða tekur fram í yfirlýsingu af sinni hálfu að hún kannist ekki við að hafa veitt kæranda leyfi til að skila gögnum eftir lok umsóknarfrests. Þá er og hafnað því sjónarmiði kæranda að þar sem fyrir hafi legið uppsöfnuð vitneskja innan kærða um nefnd atriði varðandi reynslu kæranda, menntun og hæfni hafi ekki þurft að rekja nefnda eiginleika sérstaklega í umsóknargögnum. Telur kærði það hvorki færa leið að fara í slíka upplýsingaöflun né að skylda sé til að afla slíkra upplýsinga frá ótilgreindum aðilum.
  5. Af hálfu kærða er og áréttað að ómögulegt sé að segja til um hvort gögn sem ekki fylgdu umsókn hafi haft þýðingu í málinu. Þessi skjöl eigi það sammerkt, að mati kærða, að vera rýr að efni og veita litlar upplýsingar um hæfni kæranda eða framtíðarsýn á grunnskólann B. Í kynningarbréfi kveðist kærandi vilja vita meira um auglýsta stöðu og hvaða sýn kærði hafi um framtíðarstöðu skólans, en framtíðarsýn kæranda hafi verið efnisrýr. Ekki verði séð, þó svo að litið sé til þeirra gagna sem bárust eftir að umsóknarfresti lauk, að þau gögn hefðu breytt niðurstöðunni, og hefði kærandi raðast neðar en þeir þrír umsækjendur sem boðaðir voru til viðtals. Þannig hefði kæranda t.d. verið áætluð þrjú stig fyrir framtíðarsýn eins og öðrum umsækjendum utan þess umsækjanda sem skilað hafi inn framúrskarandi lýsingu á framtíðarsýn sem  mikil vinna hefði verið lögð í.
  6. Af hálfu kærða er ítrekað að ekkert bendi til þess að brotið hafi verið gegn 19. gr. laga nr. 150/2020 í tengslum við ákvörðun í ráðningu skólastjóra grunnskólans B. Kærandi hafi í engu leitt að því líkur að kynferði hafi haft nokkur áhrif við ráðningu í starfið. Það komi því ekki í hlut kærða að færa fram sönnur í skilningi 4. mgr. 19. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

NIÐURSTAÐA

  1. Mál þetta snýr að því hvort kærði hafi brotið gegn 19. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, með ráðningu karls í starf skólastjóra grunnskólans B í Reykjavík í júnímánuði 2024.
  2. Í 1. mgr. 1. gr. laga nr. 150/2020 kemur fram að markmið laganna sé að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns og koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kynjanna á öllum sviðum samfélagsins. Samkvæmt 1. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafn­réttismála, gilda lögin um stjórnsýslu á sviði jafnréttismála á því sviði sem löggjöf um jafn­réttismál tekur til, m.a. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, og um störf kærunefndar jafnréttismála. Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laganna tekur kærunefnd jafnréttismála til með­ferðar kærur sem til hennar er beint samkvæmt framansögðu og kveður upp skriflegan úrskurð um hvort ákvæði laganna hafi verið brotin.
  3. Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 150/2020 er atvinnurekendum óheimilt að mismuna umsækjendum um starf á grundvelli kyns. Samkvæmt sönnunarreglu í 4. mgr. 19. gr. laganna kemur það í hlut umsækjanda sem telur á sér brotið að leiða líkur að því að honum hafi verið mismunað á grundvelli kyns. Takist sú sönnun ber atvinnu­rekandanum að sýna fram á að aðrar ástæður en kyn hafi legið til grundvallar ákvörðun hans. Af framangreindu er ljóst að það kemur í hlut kæranda að færa fram staðreyndir eða önnur gögn og upplýsingar sem leiða líkur að því að kyn hafi haft áhrif á ráðningu í það starf sem um ræðir í málinu hjá kærða.
  4. Við mat á því hvort ákvæði 19. gr. laga nr. 150/2020 hafi verið brotið skal taka mið af menntun, starfsreynslu, sérþekkingu eða öðrum sérstökum hæfileikum sem krafa er gerð um í viðkomandi starfi samkvæmt lögum eða reglugerðum eða telja verður annars að komi að gagni í starfinu. Árétta ber að framangreint verður ekki talið fela í sér sjálfstæða heimild fyrir nefndina til að byggja á öðrum sjónarmiðum en kærði hefur sjálfur lagt til grundvallar og ekki heldur heimild til að endurmeta innbyrðis vægi þessara sjónarmiða með sjálfstæðum hætti, svo lengi sem þau voru málefnaleg og innan þess svigrúms sem kærði hefur, sbr. athugasemdir við 19. gr. frumvarps þess sem varð að lögum nr. 150/2020. Þá fellur það ekki undir valdsvið kærunefndarinnar að endurskoða mat kærða á því hvaða umsækjandi fellur best að þeim sjónarmiðum sem lögð var áhersla á við ráðninguna nema draga megi þá ályktun af gögnum málsins að matið hafi ekki verið forsvaranlegt.
  5. Fyrir liggur að auglýsing um starfið var birt hinn 30. apríl 2024 á vef kærða Reykjavíkurborgar og var umsóknarfrestur til og með 14. maí s.á. Í auglýsingunni var helstu verkefnum og ábyrgð lýst og gerð grein fyrir hæfniskröfum til umsækjenda. Kveðið var á um að umsókn skyldi fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari, kynningarbréf og greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið, upplýsingar um farsæl verkefni, upplýsingar um umsagnaraðila og annað sem málið varðaði. Af rafræna umsóknarforminu sem fylgdi auglýsingunni, leiddi að alltaf væri nauðsynlegt fyrir umsækjanda að tilgreina nafn og netfang og að auki kennitölu og símanúmer. Jafnframt voru  ferilskrá og kynningarbréf tilgreind sem nauðsynleg og voru allir þessir liðir stjörnumerktir. Greinargerð um framtíðarsýn og önnur gögn voru tilgreind sem valkvæð og voru ekki merkt með stjörnu. Mun fyrirkomulagið hafa verið þannig að ekki var unnt að senda umsókn í kerfinu ef stjörnumerktu reitirnir voru ekki fylltir með fylgiskjölum. Kærandi skilaði umsókn sinni rafrænt skömmu fyrir lok umsóknarfrests, eða kl. 23:48 hinn 14. maí í gegnum farsíma. Fyllti kærandi hina stjörnumerktu reiti út og lét fylgja ferilskrá í tveimur reitum, þ.e. bæði í reit fyrir ferilskrá og fyrir kynningarbréf. Af hálfu kærða er bent á að í ferilskrá sem fylgdi kæru til nefndarinnar hafi komið fram upplýsingar sem ekki hafi komið fram í ferilskránni sem fylgdi umsókninni og tilgreindi kærði nokkur atriði þar að lútandi. Óumdeilt mun því vera að leyfisbréf vegna kennararéttinda, kynningarbréf og lýsing á framtíðarsýn hafi ekki fylgt hinni rafrænu umsókn kæranda.
  6. Í kæru greinir að þar sem kærandi hafi ekki náð að skila inn ákveðnum gögnum eins og kynningarbréfi og um framtíðarsýn hafi hún rætt símleiðis daginn eftir við skrifstofustjóra grunnskólamála hjá kærða og óskað eftir heimild til að senda fylgiskjölin með tölvupósti, þar sem ábyrgðaraðili málsins hafi verið í veikindaleyfi. Af þessum sökum hafi kærandi sent tölvupóst á báða fyrrnefnda starfsmenn þann dag með umræddum fylgiskjölum. Engar athugasemdir eða fyrirvari hafi verið gerður við móttöku gagnanna. Telur kærandi sig þannig hafa fengið skýra heimild til að skila fylgigögnunum með þessum hætti. Samkvæmt yfirlýsingu kvaðst fyrrnefndur starfsmaður kærða ekki muna glögglega eftir nefndum atvikum, en taldi ólíklegt að hún hafi samþykkt að tekið yrði tillit til gagnanna í umsóknarferlinu, enda utan hennar starfssviðs. Ábyrgðarmaður ráðningarferlisins tók fram í yfirlýsingu að hún kannist ekki við að hafa gefið heimild fyrir nefndum skilum umsóknargagna eða hafa vitað að umsækjandi hafi lent í vandræðum með gagnaskil.
  7. Í framangreindu tölvubréfi kæranda, dags. 15. maí 2024, tiltekur kærandi einungis að meðfylgjandi gögn fylgi umsókn sinni um skólastjórastöðu grunnskólans B. Ekki verður fallist á með kæranda að í þessum tölvupósti hafi falist sérstök beiðni um heimild til að skila gögnum eftir lok umsóknarfrests eða að nefndar væru ástæður fyrir því að gögnum hafi ekki verið skilað með umsókn. Gjalda ber almennt varhug við því, m.a. með tilliti til jafnræðissjónarmiða, að frekari umsóknargögn um starf hjá opinberum aðilum séu móttekin eftir lok umsóknarfrests nema sérstakar ástæður réttlæti slíkt. Hvað sem því líður má fallast á það með kærða að þau gögn sem kærandi sendi eftir lok frestsins, þ.e. kynningarbréf og um framtíðarsýn á grunnskólann B voru stutt og takmörkuð að efni. Verður kærandi því að bera halla af hvers konar óskýrleika varðandi umsókn sína um starfið. Að sama skapi verður ekki fallist á þann málatilbúnað kæranda að kærða hafi borið skylda í ráðningarferli til þess að afla frekari upplýsinga um starfsferil eða hagi hennar sem einstaka starfsmenn hans kunnu að búa yfir.
  8. Við mat á hæfni umsækjenda var notast við matslíkan þar sem hæfniskröfum í auglýsingu var gefið vægi. Var þekking og reynsla metin út frá umsóknum í samræmi við fyrir fram gefna kvarða og gaf hver liður mest fjögur stig. Þeim sem skoruðu hæst í hlutlægum hæfnisþáttum var í framhaldi boðið til viðtals og þeir síðan endurmetnir með tilliti til huglægra þátta til viðbótar. Í hinum hlutlægu þáttum var tekið mið af viðbótarmenntun í sérkennslufræðum og þekkingu og reynslu í sérkennslufræðum, sem talin var æskileg (vægi 10% hvor liður); reynslu af faglegri forystu og þróun í skólastarfi miðað við árafjölda og í áætlanagerð og fjármálastjórn (8% hvor liður); viðbótarmenntun í stjórnun (6%) og mat á greinargerð um framtíðarsýn (5%). Í þessu fyrra mati fékk kærandi 8 stig en karlinn sem ráðinn var 14 stig. Þá fengu tveir kvenkyns umsækjendur 14 og 13 stig og komust þær áfram í matsferlinu ásamt karlinum, en kærandi ásamt einum öðrum umsækjanda ekki. Fékk kærandi fjögur og þrjú stig fyrir liðina áætlanagerð og fjármálastjórn og greinargerð um framtíðarsýn, eitt stig í liðunum viðbótarmenntun og þekking og reynsla í sérkennslufræðum og sama fyrir liðinn reynsla af faglegri forystu og þróun í skólastarfi. Kærandi fékk ekki stig fyrir liðinn viðbótarmenntun í stjórnun. Karlinn fékk fjögur stig fyrir liðina viðbótarmenntun og þekking og reynsla í sérkennslufræðum, þrjú fyrir liðina reynsla af faglegri forystu og þróun í skólastarfi og áætlanagerð og fjármálastjórn og fyrir greinargerð um framtíðarsýn. Karlinn fékk ekki stig fyrir liðinn viðbótarmenntun í stjórnun. Af hálfu kærunefndar verða forsendur nefnds hæfnismats og innbyrðis vægi matsliða að teljast samræmast svigrúmi sem ætla verður ráðningaraðila við ákvörðun hæfniskrafna og verða þær ekki álitnar ómálefnalegar eða matið til grundvallar þeim bersýnilega óforsvaranlegt. Jafnframt verður almennt ekki talið ómálefnalegt að einungis hluti umsækjenda, sem fá flest stig í hlutlægum matsþáttum samkvæmt umsóknargögnum, njóti framgangs í matsferli og séu boðaðir til viðtals.
  9. Ljóst er af fyrirliggjandi matsgögnum að stigagjöf  kæranda í tilteknum matsliðum, einkum liðunum viðbótarmenntun í sérkennslufræðum og þekking og reynsla af sérkennslufræðum, sem vógu þyngst í matsramma, ásamt einkunn í liðnum viðbótarmenntun í stjórnun og reynsla af faglegri forystu þróunar í skólastarfi, hafi leitt til þess að kærandi var ekki valin til áframhalds í umsóknarferlinu.
  10. Af hálfu kærða er á því byggt að við mat á viðbótarmenntun kæranda hafi verið stuðst við ferilskrá en þar segi að kærandi hafi lokið grunnnámi B.Ed. 2005, diplómu bakkalárs í tómstunda- og félagsmálafræði 2006, auk meistaranáms í sama fagi 2018. Hafi kærandi því verið talin hafa uppfyllt grunnmenntun en ekki hafi verið litið svo á að kærandi hefði viðbótarmenntun í sérkennslufræðum eða í stjórnun. Í umsóknargögnum var ekki að finna upplýsingar um að kærandi myndi innan skamms ljúka diplómanámi í tómstunda- og félagsmálafræði, með áherslu á stjórnun og opinbera stjórnsýslu eins og byggt er á í kæru. Ekki hafi þar heldur verið að finna upplýsingar um námskeið sem kærandi mun hafa sótt, svo sem stjórnendamarkþjálfun, kennsluréttindi í lífsleiknikennslu, námskeið í tengslavanda hjá BUGL, ART námskeið og Ross Greene námskeið. Nefndar upplýsingar eru þess eðlis að ekki verður séð að kærði hafi átt að eiga frumkvæði að því að leita eftir þeim eða að það hafi fallið undir rannsóknarskyldu kærða sem stjórnvalds að gera slíkt. Með vísan til framangreinds verður ekki fallist á að einkunnagjöf kæranda varðandi viðbótarmenntun í sérkennslufræðum eða í stjórnun hafi verið óforsvaranleg eða ómálefnaleg, en óumdeilt er að karlinn sem ráðinn var hafði lokið meistaraprófi (M.Ed.) í sérkennslufræðum.
  11. Að því er varðar reynslu af kennslu og faglegri forystu og þróun í skólastarfi er til þess vísað í ferilskrá kæranda, að kærandi hafi m.a. frá árinu […] verið deildarstjóri farteymis. Í lýsingu á verkefnum farteymis í umsókninni kemur fram að kærandi hafi komið á laggirnar nýju stoðþjónustuúrræði á grunni borgarráðssamþykktar, fundið húsnæði, ráðið starfsfólk, gert starfsmannahandbók, verkferla og annað tilfallandi sem þyrfti þegar nýr vinnustaður verði til. Af hálfu kærða er til þess vísað að samkvæmt ferilskrá hafi reynsla kæranda einkum lotið að því að stýra frístundastarfi með ungmennum. Af 11 ára tilgreindri kennslureynslu samkvæmt kæru til nefndarinnar hafi tæpur helmingur verið starf í skólaseli, sem kærði telur ekki unnt að leggja að jöfnu við kennslu eða teljist til kennslureynslu. Mat kærða á reynslu kæranda tók ljóslega fyrst og fremst mið af þessari aðstöðu, en til þess var vísað í rökstuðningi kærða að karlinn sem ráðinn var hafði starfað sem kennari í grunnskólanum B í um 15 ár, þ.m.t. sem deildarstjóri stoðþjónustu og ráðgjafarsviðs. Verður og ekki fram hjá því litið að í umsóknargögnum gerir kærandi takmarkaða grein fyrir reynslu sinni á þessu sviði. Ekki verður því séð af gögnum málsins að mat á kæranda að þessu leyti geti talist óforsvaranlegt, ómálefnalegt eða að öðru leyti utan þess svigrúms sem játa verður ráðningaraðila við hlutlægt mat á kostum eða hæfni umsækjenda.
  12. Að öllu framangreindu virtu verður ekki talið að leiddar hafi verið líkur að því að kæranda hafi verið mismunað á grundvelli kyns við meðferð umsóknar um starf skólastjóra grunnskólans B. Af þeim ástæðum verður ekki talið að kærði hafi brotið gegn 19. gr. laga nr. 150/2020 er karl var ráðinn skólastjóri. Málskostnaður úrskurðast því ekki.
  13. Uppkvaðning úrskurðar í málinu hefur tafist umfram þann tveggja mánaða frest sem nefndin hefur til að úrskurða í máli eftir að gagnaöflun í því er lokið samkvæmt 5. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála. Er ástæða þess fyrst og fremst mikill fjöldi mála sem er til meðferðar hjá nefndinni, svo og breytingar á vistun hennar og á starfsmannahaldi.

 

Ú r s k u r ð a r o r ð

Kærði, Reykjavíkurborg, braut ekki gegn 19. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, við ráðningu í stöðu skólastjóra grunnskólans B.

Ekki er fallist á kröfu kæranda um að kærði greiði honum málskostnað við að hafa kæruna uppi.

 

Ari Karlsson

Andri Árnason

Maren Albertsdóttir

Var efnið hjálplegt?