13. ágúst 2026 /

Mál nr. 346/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 346/2026

Fimmtudaginn 13. ágúst 2026

A gegn Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 13. maí 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 12. maí 2026, um að fresta umsókn hennar um húsnæðisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um húsnæðisbætur með umsókn þann 30. apríl 2026. Með bréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 12. maí 2026, var kæranda tilkynnt að afgreiðslu umsóknar hennar hefði verið frestað vegna upplýsinga um eignastöðu. Með ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 20. maí 2026, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar um húsnæðisbætur hefði verið synjað þar sem eignir allra heimilismanna skertu bætur að fullu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 13. maí 2026. Með bréfi, dags. 21. maí 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð barst 4. júní 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 5. júní 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi sé að reyna að fá húsnæðisbætur sem virðist ekki ganga upp. Þau hjónin fái alltaf synjun vegna eigna sem þau sitji uppi með en að mati kæranda sé skrítið að ekki sé tekið tillit til aðstæðna hjá fólki. Kærandi hafi ekki verið að fá neinar vaxtabætur. Þau hjónin þurfi alltaf að borga til baka svo það sé ekkert að koma í þeirra vasa. Kærandi eigi íbúð á B sem sé búin að vera á sölu á annað ár. Það hafi hvorki verið spurt um eignina né hafi hún verið skoðuð. Það sé allt nýtt inni í íbúðinni en samt sé hún ekkert að seljast. Kærandi sé að borga af láninu af húsinu og svo leigu í Reykjavík en þau hjónin hafi þurft að flytja frá B vegna þess að maður kæranda hafi ekki getað fengið vinnu á B. Maður kæranda hafi fengið vinnu hjá syni þeirra í borginni en sonur þeirra sé einnig með langveika dóttur sem kærandi sé að reyna gera sitt besta með að aðstoða.

Kærandi og eiginmaður hennar séu búin að búa inni á heimili sonar þeirra í eitt ár. Kærandi sé öryrki og það sé mjög erfitt fyrir hana að borga lánið af íbúðinni fyrir norðan og borga leigu í borginni án aðstoðar. Þegar kærandi sé búin að borga alla reikninga og lyf sé ekkert eftir. Það sem bjargi þeim í augnablikinu sé að þau eigi mat í frystikistu en maturinn þar sé orðinn þriggja ára gamall. Kærandi voni að hægt verði að sjá á þessu að hún sé að segja sannleikann um aðstöðuna sem hún sé í, sem að hennar mati mætti taka tillit til. Auk þess að borga reikninga sé eiginmaður kæranda að ganga fram af sér í vinnu en hann sé búinn að fara í lungnaaðgerð þar sem efri parturinn af lunganu hafi verið tekinn. Hann sé einnig búinn að fara í tvær hjartaþræðingar og að ganga í gegnum krabbameinsveikindi. Kærandi sitji uppi með eignina því það gangi ekkert að selja hana.

III.  Sjónarmið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Í greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að kærandi hafi skilað inn umsókn um húsnæðisbætur þann 30. apríl 2026 vegna leigu á húsnæðinu C. Þann 11. maí 2026 hafi kæranda borist bréf þess efnis að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefði fjallað um rétt hennar til húsnæðisbóta og frestað afgreiðslu umsóknar þar sem við samkeyrslu gagnagrunna Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Skattsins hafi kærandi og/eða heimilismaður virst njóta réttar til vaxtabóta. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi þá óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda svo unnt væri að meta rétt til vaxtabóta. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi þá óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda svo unnt væri að meta rétt til húsnæðisbóta, ásamt því að óska eftir gögnum eða upplýsingum sem gætu þá staðfest að kærandi og/eða heimilismenn ættu ekki rétt til vaxtabóta.

Þann 12. maí 2026 hafi Húsnæðis- og mannvirkjastofnun borist tölvupóstur frá kæranda þar sem meðal annars hafi verið útskýrt að þau væru með eign til sölu á B og væru að leigja eign í Reykjavík. Þann sama dag hafi kæranda borist bréf frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þar sem kærandi hafi verið upplýst um að umsókn hennar hefði verið frestað vegna eigna. Heildareignir samkvæmt framtali hafi numið 25.203.270 kr. Þar hafi kærandi verið upplýst um að ef útreikningur hafi ekki endurspeglað rétta eignastöðu skyldi skila inn upplýsingum sem staðfesti breytingu á eignum

Þann 19. maí 2026 hafi kæranda borist svar frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þar sem henni hafi verið leiðbeint um að miða bæri við núverandi eignastöðu samkvæmt síðasta framtali. Ef hún teldi að fasteignamat eignanna væri ekki rétt gæti hún óskað eftir endurmati fasteignamats hjá fasteignaskrá. Einnig hafi henni verið veittar upplýsingar um andmælarétt. Þann sama dag hafi kærandi óskað eftir því að fá synjunarbréf.

Kærandi hafi óskað eftir að flýta málsmeðferðinni þar sem fyrir hafi legið að hún uppfyllti ekki skilyrði og að hún fengi synjunarbréf. Bréf hafi borist kæranda þann 20. maí 2026 um að umsókn hennar hafi verið synjað þar sem eignir allra heimilismanna skerði bætur að fullu. Í bréfinu hafi kærandi verið upplýst um að synjun komi ekki í veg fyrir að hægt sé að sækja um að nýju, t.d. ef aðstæður breytist svo sem eignastaða eða fjöldi heimilismanna.

Í máli þessu sé deilt um synjun húsnæðisbóta vegna eignastöðu. Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur megi endurskoða rétt til húsnæðisbóta hvenær sem er og endurreikna fjárhæð þeirra þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem hafi orðið á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna. Ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um synjun húsnæðisbóta vegna eignastöðu hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Ágreiningur málsins snúi að ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar vegna eignastöðu heimilismanna. Samkvæmt skattframtali sé eignastaða heimilismanna 25.203.270 kr.

Í V. kafla laga um húsnæðisbætur, sbr. IV. kafla reglugerðar um húsnæðisbætur nr. 1200/2016 sé fjallað um útreikning húsnæðisbóta og áhrif eigna og tekna á grunnfjárhæðir húsnæðisbóta. Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga um húsnæðisbætur sé heimild til að endurskoða rétt til húsnæðisbóta hvenær sem er og endurreikna fjárhæð húsnæðisbóta þannig að bætur verði í samræmi við þær breytingar sem hafi orðið á aðstæðum umsækjanda og/eða annarra heimilismanna.

Í 18. gr. laga um húsnæðisbætur, sbr. 15. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur sé fjallað um áhrif eigna á grunnfjárhæðir húsnæðisbóta. Í 1. mgr. komi fram að grunnfjárhæðir samkvæmt 2. mgr. 16. gr., eftir atvikum að teknu tilliti til lækkunar vegna tekna samkvæmt 17. gr., lækki sem nemi hlutfalli af samanlögðum eignum allra heimilismanna, 18 ára og eldri, sem fari umfram 13.900.000 kr. uns þær falli alveg niður við 60% af þeirri fjárhæð eða 22.240.000 kr. Samkvæmt 3. mgr. sé með eignum í lögunum átt við allar eignir samkvæmt 72. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að frádregnum skuldum.

Það liggi fyrir að eignir heimilismanna í lok árs 2025 hafi verið 25.203.270 kr. samkvæmt upplýsingum frá Skattinum og því töluvert hærri en tilgreind eignaviðmið laganna, sem hafi þau áhrif að húsnæðisbætur skerðist að fullu og skilyrði til greiðslu húsnæðisbóta séu ekki uppfyllt.

Af hálfu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sé byggt á því að málsmeðferðin hafi að öllu leyti verið í samræmi við ákvæði stjórnsýslu. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun krefjist þess að hin kærða ákvörðun stofnunarinnar í málinu verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 20. maí 2026, um að synja umsókn kæranda um húsnæðisbætur.

Í 8. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur kemur fram að húsnæðisbætur séu mánaðarlegar greiðslur sem greiðast til umsækjanda, sbr. þó 4. mgr. 21. gr., og skuli ákvarðaðar og reiknaðar út miðað við grunnfjárhæðir sem miðast við fjölda heimilismanna, sbr. 3. tölul. 3. gr., að teknu tilliti til tekna, sbr. 17. gr., eigna, sbr. 18. gr., og greiðsluþátttöku í húsnæðiskostnaði, sbr. 19. gr.

Í 18. gr. laga nr. 75/2016 segir að grunnfjárhæðir samkvæmt 2. mgr. 16. gr., eftir atvikum að teknu tilliti til lækkunar vegna tekna samkvæmt 17. gr., lækki sem nemi hlutfalli af samanlögðum eignum allra heimilismanna, 18 ára og eldri, sem fari umfram 12.500.000 kr., nú 13.900.000 kr., sbr. 15. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur, uns þær falli alveg niður við 60% hærri fjárhæð. Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. laganna skal miða við eignir í lok þess almanaksárs þegar greiðslur húsnæðisbóta stóðu yfir. Þó skuli fasteign eða búseturéttur samkvæmt lögum um húsnæðissamvinnufélög, sem geti orðið andlag réttar til vaxtabóta, ekki teljast til eigna samkvæmt 1. mgr. hafi fasteignin eða búseturétturinn ekki verið í eigu umsækjanda eða annarra heimilismanna meðan á greiðslum húsnæðisbóta hafi staðið á almanaksárinu. Þá kemur fram í 3. mgr. 18. gr. að með eignum í lögunum sé átt við allar eignir samkvæmt 72. gr. laga um tekjuskatt að frádregnum skuldum samkvæmt 1. mgr. 75. gr. sömu laga, sbr. þó 2. málsl. 2. mgr. Í 2. mgr. 72. gr. laga um tekjuskatt segir að framtalsskyldar eignir séu allar fasteignir, lausafé og hvers konar önnur verðmæt eignarréttindi, með þeim takmörkunum sem um ræði í 74. gr., og skipti ekki máli hvort eignirnar gefi af sér arð eða ekki.

Samkvæmt gögnum málsins var eignastaða kæranda í lok árs 2025 yfir framangreindum eignarmörkum. Á meðal eigna kæranda er um að ræða fasteign á B en kærandi hefur vísað til þess að hún sitji uppi með eignina en eignin sé búin að vera til sölu á annað ár.

Af ákvæði 18. gr. laga nr. 75/2016 er ljóst að framangreind eign kæranda skal tekin með við mat á því hvort hún eigi rétt til greiðslu húsnæðisbóta. Þar sem eignir kæranda skerða húsnæðisbætur að fullu er það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 20. maí 2026, um að synja umsókn A, um húsnæðisbætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir