Mál nr. 5/2026
Árið 2026, 12. október, var af yfirfasteignamatsnefnd í máli nr. 5/2026 kveðinn upp svohljóðandi
ÚRSKURÐUR
Með bréfi, dags. 25. júní 2026, kærði X, kt. [], ákvörðun Grímsnes- og Grafningshrepps, dags. 5. maí 2026, varðandi álagningu fasteignaskatts vegna fasteignar hans í landi Neðra-Apavatns, Grímsnes- og Grafningshreppi, fnr. [], fyrir tímabilið 27. apríl 2026 til 5. maí 2026.
Með tölvubréfi, dags. 26. júní 2026, óskaði yfirfasteignamatsnefnd eftir umsögn Grímsnes- og Grafningshrepps vegna kærunnar. Umbeðin umsögn barst nefndinni með bréfi, dags. 11. ágúst 2026.
Með tölvubréfi, dags. 11. ágúst 2026, var umsögn sveitarfélagsins send kæranda og honum gefinn kostur á að gera við hana athugasemdir. Athugasemdir bárust frá kæranda með bréfi, dags. 11. ágúst 2026.
Málið var tekið til úrskurðar 12. október 2026.
I. Málavextir
Kærandi er eigandi að sumarhúsi í landi Neðra-Apavatns, Grímsnes- og Grafningshreppi, fnr. []. Fasteignin er skráð sem sumarhús og gestahús í fasteignaskrá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
Í febrúar 2026 fékk kærandi álagningarseðil fasteignagjalda fyrir árið 2026 frá Grímsnes- og Grafningshreppi, en þar kom m.a. fram að að fasteignaskattur vegna eignarinnar fyrir árið 2026 væri ákvarðaður samkvæmt gjaldflokki a-liðar 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.
Að sögn kæranda skráði hann fasteignina til útleigu á vefsíðuna www.airbnb.is þann 27. apríl 2026 í þeim tilgangi að undirbúa heimagistingu í eigninni síðar um vorið. Kærandi kveðst hins vegar hafa lokað fyrir bókanir á vefsíðunni fram til 26. maí 2026 og því hafi ekki verið hægt að bóka gistingu í eigninni fyrr en frá og með þeim degi. Þann 27. apríl 2026 gerði Grímsnes- og Grafningshreppur breytingu á álagningu fasteignaskatts vegna eignarinnar þar sem álagningin var ákvörðuð samkvæmt gjaldflokki c-liðar 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 frá og með 27. apríl 2026 í stað a-liðar 3. mgr. 3. gr. sömu laga eins og áður hafði verið. Mun þessi breyting hafa verið gerð með vísan til fyrrgreindrar skráningar eignarinnar á vefsíðunni www.airbnb.is.
Þann 5. maí 2026 samþykkti sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu skráningu heimagistingar í fasteign kæranda samkvæmt lögum nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og reglugerð nr. 1277/2016 um sama efni. Sama dag sendi kærandi tölvupóst til Grímsnes- og Grafningshrepps og fylgdi með tölvupóstinum staðfesting sýslumanns fyrir heimagistingu í eigninni. Kærandi gerði jafnframt kröfu um að álagning fasteignaskatts yrði leiðrétt með vísan til skráningar heimagistingar í eigninni. Sveitarfélagið breytti álagningunni þann sama dag og var fasteignaskattur vegna eignarinnar að nýju ákvarðaður samkvæmt a-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 og þá frá og með 5. maí 2026.
Þann 3. júní 2026 sendi kærandi andmæli og beiðni um endurákvörðun fasteignaskatts til Grímsnes- og Grafningshrepps vegna álagningar fasteignaskatts fyrir eignina samkvæmt c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 fyrir tímabilið 27. apríl 2026 til 5. maí 2026. Sveitarfélagið svaraði erindinu degi síðar og benti kæranda á að heimilt væri að vísa ágreiningi um gjaldskyldu fasteignaskatts til yfirfasteignamatsnefndar, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga nr. 4/1995. Með tölvupósti, dags. 4. júní 2026, ítrekaði kærandi beiðni sína um að sveitarfélagið tæki málið til endurákvörðunar/endurskoðunar. Þá óskaði hann eftir skriflegum rökstuðningi fyrir þeirri ákvörðun sveitarfélagsins að synja beiðni hans um endurákvörðun auk þess sem óskað var eftir afriti af öllum gögnum málsins.
Kærandi fékk ekki frekari rökstuðning, gögn eða skýringar frá sveitarfélaginu. Kærandi vill ekki una framangreindri ákvörðun sveitarfélagsins varðandi álagningu fasteignaskatts vegna fyrrgreindrar fasteignar hans fyrir tímabilið 27. apríl 2026 til 5. maí 2026 og hefur því kært hana líkt og að framan greinir.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi gerir aðallega kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi eða breytt og að úrskurðað verði að sumarhús hans í landi Neðra-Apavatns, Grímsnes- og Grafningshreppi, fnr. [], hafi ekki átt að sæta álagningu fasteignaskatts samkvæmt c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 á tímabilinu 27. apríl 2026 til 5. maí 2026. Þá er þess krafist að álagning fasteignaskatts vegna fyrrgreinds tímabils verði ákveðin samkvæmt a-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 og að Grímsnes- og Grafningshreppi verði gert að leiðrétta álagninguna til samræmis við niðurstöðu yfirfasteignamatsnefndar og endurgreiða kæranda gjaldkröfu vegna áðurnefnds tímabils. Til vara er þess krafist að málinu verði vísað til sveitarfélagsins til nýrrar meðferðar með fyrirmælum um fullnægjandi rannsókn, rökstuðning og gagnaafhendingu. Jafnframt er þess krafist að yfirfasteignamatsnefnd taki afstöðu til þess hvort sú málsmeðferð sveitarfélagsins að byggja álagningu fasteignaskatt samkvæmt c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 á því einu að fasteignin hafi sést á www.airbnb.is hafi verið fullnægjandi og lögmæt. Að endingu er gerð krafa um að sveitarfélaginu verði gert að leggja fram öll gögn sem ákvörðun þess byggðist á, þ.m.t. skjáskot, minnisblöð, samskipti, skráningar eða önnur gögn sem sveitarfélagið telur sýna fram á að fasteign kæranda hafi verið nkanir ﷽﷽﷽﷽fi ekki verið opnað fyrir bi verið savarað.
skorts 4/1995 t mdar og endurgreiða gjaldkrö-fu vegna fyrirhugaðarar ýtt til ferðaþjónustu á tímabilinu 27. apríl 2026 til 5. maí 2026.
Kærandi telur að álagningu fasteignaskatt vegna fasteignar hans í landi Neðra-Apavatns hafi ranglega verið ákvörðuð samkvæmt c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 fyrir tímabilið 27. apríl 2026 til 5. maí 2026 þar sem eignin hafi ekki verið nýtt til ferðaþjónustu á fyrrgreindu tímabili. Því til viðbótar hafi málsmeðferð sveitarfélagsins verið haldin verulegum annmörkum, einkum vegna skorts á rannsókn og rökstuðningi svo og þess að beiðni hans um endurákvörðun, rökstuðning og gögn hafi ekki verið svarað.
Kærandi kveðst hafa skráð fasteignina á vefsíðuna www.airbnb.is þann 27. apríl 2026 í þeim tilgangi að undirbúa lögmæta heimagistingu í eigninni síðar um vorið. Við skráninguna hafi verið lokað fyrir bókanir í eigninni fram til 26. maí 2026. Þann 5. maí 2026 hafi kærandi síðan fengið staðfestingu sýslumanns fyrir skráningu heimagistingar í eigninni. Á tímabilinu 27. apríl 2026 til 5. maí 2026 hafi fasteignin því ekki verið bókanleg til gistingar á fyrrgreindri vefsíðu, engir gestir dvalið í eigninni (engar gistinætur) og engar tekjur falli til á tímabilinu. Þrátt fyrir þessar staðreyndir hafi sveitarfélagið lagt fasteignaskatt á fasteignina samkvæmt c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 og virðist sem sú ákvörðun hafi eingöngu byggst á því að eignin hafi verið sýnileg á tilgreindri vefsíðu á fyrrgreindu tímabili. Kærandi hafi ítrekað andmælt ákvörðun sveitarfélagsins og óskað eftir rökstuðningi og gögnum sem lágu til stuðnings ákvörðuninni en þeirri beiðni hafi í engu verið svarað að öðru leyti en að upplýst hafi verið um að hægt væri að vísa málinu til yfirfasteignamatsnefndar.
Bent er á að samkvæmt 3. gr. laga nr. 4/1995 falli íbúðir, íbúðarhús og sumarhús almennt undir gjaldflokk a-liðar 3. mgr. 3. gr. laganna við álagningu fasteignaskatts en mannvirki sem nýtt eru fyrir ferðaþjónustu falli hins vegar undir c-lið sömu málsgreinar. Ágreiningsefni þessa máls snúi þannig fyrst og fremst að því hvort sumarhús kæranda hafi í raun verið ,,nýtt fyrir ferðaþjónustu” á tímabilinu 27. apríl 2026 til 5. maí 2026 en kærandi telur að svo hafi ekki verið. Orðalag lagaákvæðisins vísi til raunverulegrar nýtingar. Það eitt að fasteignin hafi verið sýnileg á bókunarsíðu geti hugsanlega verið vísbending um fyrirhugaða starfsemi, en það jafngildi ekki sjálfkrafa því að eignin hafi verið nýtt fyrir ferðaþjónustu, sérstaklega þegar fyrir liggi að fasteignin var ekki bókanleg, engin gisting átt sér stað og engar tekjur fallið til. Auk þess beri að líta til 13. gr. laga nr. 85/2007 þar sem fram komi að heimagisting sem uppfylli skilyrði laganna teljist ekki fara fram í atvinnuhúsnæði í skilningi laga nr. 4/1995. Í tilviki sumarhúss kæranda hafi skráning heimagistingar legið fyrir 5. maí 2026 en fyrsta bókanlega gistinóttin í fasteigninni ekki verið fyrr en 26. maí 2026. Af því leiðir að ekki sé grundvöllur til að telja að fasteignin hafi verið nýtt fyrir ferðaþjónustu fyrir 5. maí 2026.
Vakin er athygli á því að svo virðist sem sveitarfélagið byggi á því að sumarhúsið hafi verið sýnilegt á vefsíðunni www.airbnb.is frá 27. apríl 2026 en kærandi telur að sú forsenda sé ófullnægjandi. Fasteignin var þrátt fyrir það ekki bókanleg frá 27. apríl 2026 til 5. maí 2026 og því gat enginn bókað gistingu í eigninni á því tímabili, engir gestir dvöldu í eigninni og engar gistinætur verið seldar og þar af leiðandi engar tekjur fallið til vegna útleigu eignarinnar á því tímabili. Skráning heimagistingar hafi verið samþykkt 5. maí 2026 og fyrsta bókanlega gistinóttin í eigninni verið 26. maí 2026. Gera verði greinarmun á milli undirbúnings á starfsemi og raunverulegrar nýtingar fasteignar til ferðaþjónustu. Sýnileiki eða skráning á bókunarvef felur ekki sjálfkrafa í sér að starfsemi sé hafin. Að telja fasteign nýtta til ferðaþjónustu án bókana, gesta eða tekna, eins og sveitarfélagið virðist gera, er í senn bæði ómálefnaleg og of rúm túlkun á c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995. Til samanburðar mætti heimfæra sömu sjónarmið yfir á veitingastað sem auglýsir fyrirhugaða opnun án þess að veitingastaðurinn hefði opnað, engir viðskiptavinir komið og engin sala farið fram. Sýnileiki fasteignar á vefsíðunni www.airbnb.is getur sýnt fyrirhugaða starfsemi eða undirbúning en getur einn og sér ekki leitt til þess að talið verði að fasteignin hafi verið nýtt fyrir ferðaþjónustu.
Kærandi bendir á að Grímsnes- og Grafningshreppi hafi samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 átt að sjá til þess að málið væri nægilega upplýst áður en ákvörðun var tekin. Af gögnum málsins verður ráðið að sveitarfélagið hafi ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni með fullnægjandi hætti. Þannig verður ekki séð að kannað hafi verið hvort fasteignin væri bókanleg á tilgreindu tímabili né hvort bókanir, gistinætur eða tekjur hefðu átt sér stað. Þá verður heldur ekki séð að sveitarfélagið hafi lagt mat á það hvenær raunveruleg útleiga eignarinnar hófst eða hvort um lögmæta heimagistingu samkvæmt lögum nr. 85/2007 hafi verið að ræða. Þess í stað virðist sem ákvörðun sveitarfélagsins hafi eingöngu byggst á því að fasteignin hafi verið sýnilega á tilgreindum bókunarvef. Slík forsenda getur ekki, ein og sér, talist fullnægjandi grundvöllur íþyngjandi stjórnvaldsákvörðunar án þess að raunveruleg notkun og starfsemi hafi verið rannsökuð.
Þá verði einnig að líta til 13. gr. stjórnsýslulaga um andmælarétt aðila máls. Áður en ákvörðunin var tekin hafi kærandi ekki fengið raunhæft tækifæri til að koma að gögnum og sjónarmiðum sem sýndu m.a. að fasteignin hafi ekki verið bókanleg, ekki verið leigð út né verið tekjuskapandi á umræddu tímabili. Þannig hafi kæranda ekki verið gert kleift að gæta hagsmuna sinna með fullnægjandi hætti áður en hin íþyngjandi ákvörðun var tekin. Þá beri stjórnvaldi samkvæmt 12. gr. stjórnsýslulaga að gæta meðalhófs og velja ekki íþyngjandi úrræði nema nauðsyn beri til. Við mat á því hvort fasteign kæranda hafi verið nýtt fyrir ferðaþjónustu verði að leggja áherslu á raunveruleg og staðreynanleg not eignarinnar en ekki mögulegan eða fyrirhugaðan rekstur.
Kærandi telur að svar sveitarfélagsins frá 4. júní 2026 hafi ekki fullnægt kröfum um efnislegan rökstuðning samkvæmt stjórnsýslulögum. Ekki hafi verið gerð viðhlítandi grein fyrir málsástæðum, lagagrundvelli eða atvikum sem leiddu til þeirrar niðurstöðu að álagning fasteignaskatts skyldi grundvallast á c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 á umræddu tímabili. Þá hafi ekki verið fjallað með fullnægjandi hætti um þau gögn eða sjónarmið sem kærandi hafi lagt fram eða hvers vegna þau voru ekki talin hafa þýðingu fyrir niðurstöðuna. Beiðni um rökstuðning hafi ekki verið svarað innan lög-bundins frests. Kærandi telur að þetta feli í sér sjálfstæðan annmarka á málsmeðferð sveitarfélagsins.
Þá bendir kærandi á að hann hafi óskað eftir afriti af öllum gögnum málsins með vísan til 15. gr. stjórnsýslulaga og þá sérstaklega þeim gögnum sem sveitarfélagið byggði ákvörðun sína á. Sveitarfélagið hafi hins vegar engin gögn afhent og því telur kærandi mikilvægt að yfirfasteignamatsnefnd kalli eftir öllum gögnum málsins frá sveitarfélaginu, þ.m.t. öllum skjáskotum, innri skráningum, minnisblöðum, tölvupóstum eða öðrum upplýsingum sem sveitarfélagið byggði ákvörðun sína á. Beiðni kæranda um endurákvörðun og endurupptöku hafi byggst á því að hin kærða ákvörðun hafi verið reist á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik. Sveitarfélagið hafi hins vegar ekki tekið efnislega afstöðu til beiðni hans.
Að öllu framangreindu virtu telur kærandi að verulegir annmarkar hafi verið á rannsókn málsins, meðferð andmælaréttar, beitingu meðalhófs, rökstuðningi ákvörðunar og afhendingu gagna. Því verði að leggja til grundvallar að málsmeðferð sveitarfélagsins hafi ekki uppfyllt þær kröfur sem stjórnsýslulög gera til undirbúnings, töku og rökstuðnings íþyngjandi stjórnvaldsákvörðunar.
Samkvæmt framansögðu telur kærandi að fasteignaskattur vegna fasteignar hans í landi Neðra-Apavatns, Grímsnes- og Grafningshrepps, hafi ranglega verið ákvarðaður samkvæmt c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 fyrir tímabilið 27. apríl 2026 til 5. maí 2026.
III. Sjónarmið sveitarfélagsins, Grímsnes- og Grafningshrepps
Grímsnes- og Grafningshreppur krefst þess að álagning fasteignaskatts vegna fasteignar kæranda í landi Neðra-Apavatns, Grímsnes- og Grafningshreppi, fnr. [], fyrir árið 2026, verði staðfest, þannig að fasteignin falli undir gjaldflokk c-liðar 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 frá 27. apríl 2026 til 5. maí 2026, en undir gjaldflokk a-liðar sömu málsgreinar að öðru leyti á árinu 2026. Telur sveitarfélagið að álagning fasteignaskatts vegna fasteignar kæranda fyrir árið 2026 hafi að öllu leyti verið í samræmi við lög.
Samkvæmt 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 er fasteignum skipt í þrjá gjaldflokka við álagningu fasteignaskatts. Ákvæði a-liðar 3. mgr. 3. gr. laganna fjallar m.a. um álagningu fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði og sumarbústaði, ákvæði b-liðar taki til sjúkrastofnana, skóla, íþróttahúsa o.fl. og loks taki c-liður til allra annarra fasteigna, m.a. mannvirkja sem nýtt eru til ferðaþjónustu. Yfirfasteignamatsnefnd hafi staðfest í úrskurðum sínum að ákvæði a-liðar beri að túlka þröngt og feli í reynd í sér undantekningu frá c-lið 3. mgr. 3. gr. laganna, sbr. úrskurð yfirfasteignamatsnefndar í máli nr. 1/2023. Jafnframt hafi verið staðfest í dómaframkvæmd að ákvörðun um skattflokk fasteigna ráðist af raunverulegri notkun þeirra, sbr. dóm Hæstaréttar í máli nr. 85/2006 og dóm Landsréttar í máli nr. 121/2021.
Hvers kyns gistiþjónusta telst til ferðaþjónustu í skilningi c-liðar 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995. Um sölu á gistingu gilda lög nr. 85/2007, sbr. a-lið 2. mgr. 1. gr. laganna. Gististaðir í skilningi laganna eru staðir þar sem boðin er gisting að hámarki í 30 daga samfleytt í senn gegn endurgjaldi, s.s. á hótelum, gistiheimilum, gistiskálum, íbúðum og sumarhúsum, með eða án veitinga, sbr. 1. mgr. 3. gr. laganna. Heimagisting í skilningi laganna er gisting gegn endurgjaldi á lögheimili einstaklings eða í einni annarri fasteign í hans eigu utan þéttbýlis. Fjöldi útleigðra daga í báðum eignum samanlagt skal ekki fara yfir 90 daga á hverju almanaksári og samanlagðar tekjur af leigu eignanna skulu ekki nema hærri fjárhæð en kveðið er á um 3. tl. 4. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. ml. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 85/2007. Heimagisting telst til gististaðar í flokki I. Sá sem hyggst stunda starfsemi sem fellur undir gistiflokka II-IV skal hafa til þess rekstrarleyfi útgefið af leyfisveitanda, sbr. 1. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2007. Heimagisting er hins vegar skráningarskyld, sbr. 1. mgr. 13. gr. sömu laga, og er leyfi til heimagistingar veitt af sýslumanni í kjölfar tilkynningar þar um.
Óumdeilt er að sumarhús kæranda hafi verið auglýst til útleigu, a.m.k. á vefsíðunni www.airbnb.is, á tímabilinu 27. apríl 2026 til 5. maí 2026. Á því tímabili hafði kærandi hvorki rekstrarleyfi til sölu gistinga í flokki II né skráða heimagistingu í flokki I á grundvelli laga nr. 85/2007. Því verður að líta svo á að gisting hafi verið boðin í fasteigninni á umræddu tímabili og að fasteignin hafi verið nýtt fyrir ferðaþjónustu í skilningi c-liðar 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995.
Að mati sveitarfélagsins er ekki hægt að fallast á röksemdir og sjónarmið kæranda um að fyrirhugað hafi verið að nýting eignarinnar félli aðeins undir heimagistingu samkvæmt 13. gr. laga nr. 85/2007 og því skyldi álagning fasteignaskatts fyrir allt árið 2026 miðast við a-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 þrátt fyrir að heimagisting hafi ekki verið skráð fyrr en 5. maí 2026. Leyfi til heimagistingar getur ekki haft afturvirk áhrif á flokkun fasteignarinnar vegna tímabilsins fram til útgáfu leyfisins þegar fasteignin var nýtt í sama tilgangi. Gildir jafnframt einu hver árangur kæranda var af útleigunni, en það hefur ítrekað verið staðfest í framkvæmd yfirfasteignamatsnefndar að ef eign er auglýst til útleigu til skamms tíma telst slíkt falla undir ferðaþjónustu í skilningi 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995, sbr. t.d. úrskurði yfirfasteignamatsnefndar í málum nr. 13/2016, 11/2017, 2/2020, 4/2021, 13/2021, 1/2023 og 5/2024.
Það sé á ábyrgð kæranda að afla tilskilinna leyfa til heimagistingar og verður hann að bera allan halla af þeim drætti sem varð á öflun leyfis til heimagistingar af hans hálfu. Þá skipti ekki máli hver árangur kæranda var af útleigu eignarinnar, hvenær fyrstu gestirnir voru væntanlegir, með hvaða hætti hægt hafi verið að bóka fasteignina á umræddu tímabili eða hvers eðlis sú útleiga hafi átt að vera og getur það ekki ráðið ákvörðun sveitarstjórnar um álagningu fasteignaskatts. Það sem hér skipti máli sé að fasteignin hafi verið auglýst á internetinu til útleigu til ferðamanna án þess að tilskilið leyfi til heimagistingar lægi fyrir. Í þessu sambandi bendir sveitarfélagið á úrskurð yfirfasteignamatsnefndar í máli nr. 2/2020, þar sem málsatvik hafi verið með sambærilegum hætti. Í því máli taldi yfirfasteignamatsnefnd að sveitarfélagi hefði verið heimilt að ákvarða fasteignaskatt samkvæmt c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 vegna tímabils áður en leyfi til heimagistingar var gefið út, enda hafði fasteignin verið boðin til gistingar gegn endurgjaldi á www.airbnb.com, rétt eins og í þessu máli. Loks verði ekki séð að sú breyting sem gerð var með lögum nr. 67/2016 hafi þýðingu fyrir úrlausn málsins, enda lá leyfi til heimagistingar ekki fyrir á því tímabili sem hér um ræðir og gat því ekki verið um að ræða heimagistingu sem ,,uppfyllir skilyrði“ laga nr. 85/2007.
Bent er á að kærandi hafi ekki tilkynnt fyrirfram til heilbrigðiseftirlits sveitarfélagsins hvernig nýtingu eignarinnar yrði háttað á umræddu tímabili eða að hún yrði ekki nýtt til útleigu fyrir ferðamenn. Í úrskurðum yfirfasteignamatsnefndar hefur verið talið nauðsynlegt að eigendur tilkynni um slíkt fyrirfram ef ákvarða á fasteignaskatt samkvæmt a-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995. Ekki sé t.d. nægjanlegt að eigandi taki eign frá til eigin nota á vefsíðu eða greini síðar frá því að eignin hafi ekki átt að vera til útleigu eða að hún hafi ekki verið tæk til slíks. Má í þessu sambandi vísa til úrskurðar yfirfasteignamatsnefndar í máli nr. 1/2023 en af þeim úrskurði megi álykta að, þar sem fasteign kærenda var auglýst á vefsíðu þar sem boðin var gisting til ferðamanna, hefði kærendum borið að tilkynna sveitarfélaginu fyrirfram um að fasteignin yrði ekki nýtt til útleigu á umræddu tímabili til þess að fasteignaskattur vegna eignarinnar yrði ákvarðaður samkvæmt a-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995. Sækir framangreind afstaða enn fremur stoð í jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga, sbr. úrskurð yfirfasteignamatsnefndar í máli nr. 18/2015.
Sveitarfélagið telur samkvæmt öllu framansögðu að því hafi verið heimilt að ákvarða fasteignaskatt vegna fasteignar kæranda í landi Neðra-Apavatni, Grímsnes- og Grafningshreppi samkvæmt c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 fyrir tímabilið 27. apríl 2026 til 5. maí 2026, en samkvæmt a-lið sömu málsgreinar að öðru leyti á árinu 2026.
Sveitarfélagið hafnar því að meðferð málsins hafi verið haldin slíkum annmörkum að það leiði til ógildingar álagningarinnar. Það liggur fyrir að fasteign kæranda var auglýst á opinberri bókunarsíðu áður en leyfi til heimagistingar var veitt. Fullnægjandi upplýsingar hafi því legið fyrir til að hægt væri að ákvarða gjaldflokkun fasteignarinnar fyrir tímabilið 27. apríl 2026 til 5. maí 2026. Ekki hafi verið nauðsynlegt að afla sérstakra upplýsinga um bókanir eða tekjur af útleigu, enda réðst gjaldflokkun eignarinnar af því að fasteignin var boðin fram til gistingar án þess að tilskilið leyfi lægi fyrir. Sveitarfélagið telur fullsannað að slíkar upplýsingar hefðu ekki haft þýðingu fyrir úrlausn málsins. Því er hafnað að rannsókn málsins hafi verið ófullnægjandi.
Þá er því hafnað að kærandi hafi ekki haft tök á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri vegna gjaldflokkunar fasteignarinnar. Gjaldflokkun eignarinnar hafi verið breytt eftir að í ljós kom að fasteignin var auglýst á www.airbnb.is án þess að leyfi til heimagistingar lægi fyrir. Í kjölfarið áttu kærandi og sveitarfélagið í samskiptum þar sem kærandi fékk skýringar á breyttri gjaldflokkun. Kærandi sendi sveitarfélaginu leyfi til heimagistingar í fasteigninni þann 5. maí 2026 og var gjaldflokkuninni þá breytt á nýjan leik. Af þessu megi ráða að kærandi hafi í reynd átt kost á að koma upplýsingum og gögnum á framfæri, auk þess sem sveitarfélagið tók tillit til upplýsinga frá kæranda við afgreiðslu málsins og breytti gjaldflokkuninni um leið og leyfi til heimagistingar lá fyrir. Kærandi hafi að öðru leyti ekki bent á upplýsingar eða sjónarmið sem hefðu verið til þess fallin að leiða til annarrar niðurstöðu. Því verði ekki séð að málsmeðferð sveitarfélagsins hafi að þessu leyti verið haldin verulegum annmörkum sem leitt geti til ógildingar ákvörðunarinnar.
Þá er því hafnað að ákvörðun sveitarfélagsins hafi ekki verið rökstudd eða að beiðni kæranda um endurupptöku hafi ekki verið afgreidd. Kærandi hafi fengið skýringar frá sveitarfélaginu fyrir ástæðum álagningarinnar símleiðis í byrjun maí 2026 og því til viðbótar, var í svari við erindi kæranda frá 3. júní 2026 gerð grein fyrir því að flokkun fasteignarinnar í gjaldflokk c-liðar 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 hefði byggst á auglýsingu eignarinnar á vefsíðunni www.airbnb.is. Í kjölfar síðara erindis kæranda þann 4. júní 2026 var honum jafnframt bent á kærurétt til yfirfasteignamatsnefndar. Verði talið að annmarkar hafi verið á málsmeðferð sveitarfélagsins að þessu leyti, þá telur sveitarfélagið ljóst að slíkir annmarkar hafi hvorki verið verulegir né til þess fallnir að hafa áhrif á efni ákvörðunarinnar.
Sveitarfélagið telur það ekki falla undir valdsvið yfirfasteignamatsnefndar að leggja skyldu á sveitarfélagið til að breyta ákvörðun sinni eða taka slíka kröfu til efnislegrar umfjöllunar, sbr. m.a. úrskurð yfirfasteignamatsnefndar í máli nr. 5/2024. Í öllu falli hafnar sveitarfélagið því að nokkur réttur til endurgreiðslu fasteignaskatts sé til staðar.
IV. Athugasemdir kæranda
Kærandi áréttar að fasteign hans hafi ekki verið bókanleg til gistingar á tímabilinu 27. apríl 2026 til 5. maí 2026, engin gisting hafi því farið fram, engar gistinætur seldar og engar tekjur fallið til. Fyrsta bókanlega gistinóttin hafi verið 26. maí 2026, eftir að skráning heimagistingar hafði verið samþykkt í eigninni. Mál þetta snúist því ekki um það hvort skráning heimagistingar hafi afturvirk áhrif heldur hvort fasteignin hafi í raun verið nýtt til ferðaþjónustu áður en skráning heimagistingar lá fyrir og áður en unnt var að bóka gistingu í eigninni.
Kærandi mótmælir því sem ítrekað komi fram í umsögn sveitarfélagsins að fasteignin hafi verið ,,auglýst til útleigu” á www.airbnb.is og að þar með hafi gisting verið boðin í fasteigninni. Það eitt að eign sé sýnileg á bókunarsíðu segi ekki til um það hvort unnt hafi verið að bóka hana eða gisting hafi raunverulega verið boðin gegn endurgjaldi. Í þessu máli liggi fyrir gögn sem sýna að lokað var fyrir bókanir á tímabilinu 27. apríl 2026 til 5. maí 2026 og að fyrsta gistinóttin hafi verið 26. maí 2026. Sýnileiki fasteignar á bókunarsíðu getur ekki einn og sér leitt til þess að fasteign teljist hafa verið nýtt til ferðaþjónustu þegar fyrir liggur að fasteignin var ekki bókanleg, engin gisting fór fram og engar tekjur féllu til á umræddu tímabili.
Vegna tilvísana sveitarfélagsins til fyrri úrskurða yfirfasteignamatsnefndar þar sem fasteignir eru taldar falla undir ákvæði 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 hafi þær verið auglýstar á bókunarsíðum, þá telur kærandi að atvik þessa málsins séu ekki að öllu leyti sambærileg þeim málum sem vísað er til. Þetta sé ekki mál þar sem fasteign hafi verið um lengri tíma auglýst til skammtímaútleigu án leyfis og síðar verið upplýst að bókanir hafi ekki átt sér stað. Þvert á móti sé hér um að ræða afmarkað undirbúningstímabil áður en bókanir hófust og áður en nokkur raunveruleg nýting eignarinnar hófst. Kærandi telur að ekki verði, án nánara mats, lagt að jöfnu annars vegar langvarandi auglýsing fasteignar á bókunarsíðu og hins vegar stutta tæknilega sýnilega skráningu á www.airbnb.is þar sem lokað var fyrir bókanir þar til eftir að skráning heimagistingar lá fyrir.
Kærandi mótmælir þeirri röksemd sveitarfélagsins að ekki hafi verið nauðsynlegt að afla sérstakra upplýsinga um bókanir eða tekjur, þar sem gjaldflokkun eignarinnar hafi ráðist af því að hún hafi verið boðin fram til gistingar án þess að leyfi lægi fyrir. Kjarni málsins sé einmitt hvort fasteignin hafi verið boðin fram til gistingar á hinu tilgreinda tímabili. Til að svara þeirri spurningu hafi verið nauðsynlegt að kanna hvort fasteignin hafi verið bókanleg, hvort gisting hafi farið fram og hvort tekjur hafi fallið til. Þegar stjórnvöld taki íþyngjandi ákvörðun verða þau að byggja ákvörðun sína á nægilega upplýstum málsatvikum. Það sé ekki fullnægjandi að byggja eingöngu á því að fasteignin hafi ,,sést” á www.airbnb.is, ef gögn sýna að ekki hafi verið hægt að bóka gistingu í eigninni á umræddu tímabili. Sveitarfélagið hafi samkvæmt framansögðu ekki rannsakað málið með fullnægjandi hætti áður en álagning var ákveðin samkv. c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 frá 27. apríl 2026.
Kærandi bendir á að engin sala á gistingu í eigninni hafi farið fram áður en skráning heimagistingar lá fyrir þann 5. maí 2026. Fasteignin var ekki bókanleg á tímabilinu 27. apríl 2026 til 5. maí 2026. Það leiði af 13. gr. laga nr. 85/2007 að heimagisting sem uppfyllir skilyrði laganna telst ekki fara fram í atvinnuhúsnæði í skilningi laga nr. 4/1995. Skráning heimagistingar í fasteign kæranda hafði verið samþykkt áður en fyrsta bókanlega gistinóttin rann upp. Það styður þá ályktun að fyrirhuguð starfsemi hafi verið lögmæt heimagisting en ekki notkun fasteignar sem atvinnuhúsnæði eða óleyfislegs gististaðar.
Kærandi telur að rökstuðningur sveitarfélagsins fyrir hinni kærðu ákvörðun hafi verið ófullnægjandi. Svar sveitarfélagsins við beiðni um rökstuðning hafi í reynd aðeins falið í sér upplýsingar um kærurétt til yfirfasteignamatsnefndar. Ekki hafi verið tekin afstaða til þeirra gagna sem kærandi hafi lagt fram og þá hafi sveitarfélagið ekki afhent gögn málsins þrátt fyrir beiðni þar um. Það geti ekki talist fullnægjandi rökstuðningur að vísa almennt til þess eins að fasteignin hafi sést á www.airbnb.is, án þess að fjalla um þau sérstök málsatvik sem höfðu þýðingu í málinu.
Með vísan til ákvæða 21. og 22. gr. stjórnsýslulaga hafi kærandi óskað eftir skriflegum rökstuðningi fyrir hinni kærðu ákvörðun. Þá var einnig óskað eftir afriti af öllum gögnum málsins með vísan til 15. gr. sömu laga svo og ítrekuð beiðni um endurskoðun eða endurupptöku málsins með vísan til 24. gr. stjórnsýslulaga. Beiðni um rökstuðning var sett fram þar sem ekki hafði verið tekið efnislega afstöðu til beiðni um endurákvörðun eða leiðréttingu á álagningu. Samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga getur aðili máls krafist þess að stjórnvald rökstyðji ákvörðun sína skriflega innan 14 daga hafi slíkur rökstuðningur ekki fylgt ákvörðuninni. Þegar kæra var send yfirfasteignamatsnefnd voru liðnar þrjár vikur án þess að sveitarfélagið hefði svarað erindi kæranda og enn hefur ekkert svar borist við beiðni um rökstuðning, gögn og endurupptöku eða endurákvörðun, þrátt fyrir fyrrgreint ákvæði 21. gr. stjórnsýslulaga.
Að mati kæranda verður ekki séð að sú skýring sveitarfélagsins að fasteignin hafi ,,sést” á www.airbnb.is eða ábending um kærurétt jafngildi fullnægjandi rökstuðningi í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Í rökstuðningi skal vísa til þeirra réttarreglna sem ákvörðunin er byggð á. Að því marki sem ákvörðunin byggist á mati skal jafnframt greina frá þeim meginsjónarmiðum sem voru ráðandi við matið. Auk þess skal rekja í stuttu máli þau málsatvik sem hafa verulega þýðing fyrir úrlausn málsins. Í þessu máli lágu fyrir málsatvik sem höfðu verulega þýðingu, þ.e. að fasteignin hafði ekki verið bókanlega á tilgreindu tímabili, engar gistinætur seldar og því engar tekjur fallið til. Sveitarfélagið fjallaði ekki efnislega um þessi atriði þrátt fyrir framlagningu gagna af hálfu kæranda og ósk um rökstuðning. Sveitarfélagið veitti því ekki rökstuðning sem uppfyllir kröfur 21. og 22. gr. stjórnsýslulaga.
Kærandi bendir á að sveitarfélagið hafi ekki orðið við beiðni hans um aðgang að gögnum málsins samkvæmt 15. gr. stjórnsýslulaga og engin formleg afstaða tekin til þeirrar beiðni. Hafi sveitarfélagið talið rétt að synja kæranda um aðgang að einhverjum gögnum eða takmarka aðgang að þeim bar sveitarfélaginu að taka um það ákvörðun og rökstyðja sérstaklega. Upplýsingar um kæruheimild komi ekki í stað þess að verða við beiðni aðila máls um rökstuðning og gögn samkvæmt stjórnsýslulögum. Beiðni kæranda um endurskoðun eða endurákvörðun málsins byggðist á því að ákvörðun sveitarfélagsins hafi grundvallast á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik.
Samkvæmt framansögðu telur kærandi að málsmeðferð sveitarfélagsins hafi verið haldin verulegum annmörkum og að þeir annmarkar hafi raunverulega þýðingu í málinu. Hefði sveitarfélagið rannsakað málið með fullnægjandi hætti og tekið efnislega afstöðu til framlagðra gagna hefði komið í ljós að fasteignin var ekki bókanleg, ekki leigð út og var ekki tekjuskapandi á tilgreindu tímabili. Þau atriði hefðu átt að leiða til annarrar niðurstöðu eða að minnsta kosti til rökstuddrar efnislegrar afstöðu af hálfu sveitarfélagsins.
Kærandi gerir sér grein fyrir því að yfirfasteignamatsnefnd leysi fyrst og fremst úr ágreiningi um gjaldskyldu samkvæmt lögum nr. 4/1995. Kröfur kæranda ber að skilja í því ljósi, en þess er óskað að yfirfasteignamatsnefnd taki afstöðu til þess hvort fasteign hans hafi með réttu verið sett í gjaldflokk c-liðar 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 á tímabilinu 27. apríl 2026 til 5. maí 2026.
V. Niðurstaða
I.
Kærandi gerir aðallega kröfu um að fasteignaskattur vegna sumarhúss hans í landi Neðra-Apavatni, Grímsnes- og Grafningshreppi, fnr. [], fyrir tímabilið 27. apríl 2026 til 5. maí 2026 verði ákvarðaður samkvæmt a-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 og að sveitarfélaginu verði gert að leiðrétta álagningu fasteignaskatts vegna þess tímabils. Til vara gerir kærandi kröfu um að málinu verði vísað til nýrrar meðferðar hjá sveitarfélaginu þar sem meðferð málsins hafi verið ófullnægjandi og ekki í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga. Auk þess gerir kærandi kröfu um að sveitarfélaginu verði gert að leggja fram öll gögn sem lágu til grundvallar hinni kærðu ákvörðun.
Af hálfu Grímsnes- og Grafningshrepps er þess krafist að kröfum kæranda verði hafnað og að álagning fasteignaskatts vegna eignarinnar fyrir árið 2026 verði staðfest, þannig að fasteignin falli undir gjaldflokk c-liðar 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 á tímabilinu 27. apríl 2026 til 5. maí 2026, en undir gjaldflokk a-liðar sömu málsgreinar að öðru leyti á árinu 2026.
II.
Kveðið er á um álagningu fasteignaskatts í II. kafla laga nr. 4/1995. Samkvæmt 3. mgr. 3. gr. laganna er það á valdi viðkomandi sveitarstjórna að ákveða fyrir lok hvers árs skatthlutfall innan þeirra marka sem greinir í stafliðum a til c í ákvæðinu. Verði ágreiningur um gjaldskyldu sker yfirfasteignamatsnefnd úr þeim ágreiningi, sbr. 3. málsl. 3. mgr. 4. gr. sömu laga.
Samkvæmt 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995, sbr. 2. gr. laga nr. 140/2005, er fasteignum skipt í þrjá gjaldflokka við álagningu fasteignaskatts. Af fasteignum sem falla undir upptalningu í a-lið ákvæðisins skal skatturinn vera allt að 0,5% af álagningarstofni en af fasteignum samkvæmt b-lið og c-lið, allt að 1,32% af álagningarstofni. Fasteignir sem falla undir a-lið ákvæðisins eru íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, erfðafestulönd í dreifbýli og jarðeignir, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði, hesthús, öll hlunnindi og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum. Undir b-lið falla sjúkrastofnanir samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, skólar, heimavistir, leikskólar, íþróttahús og bókasöfn. Undir c-lið falla allar aðrar fasteignir, svo sem iðnaðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði, fiskeldismannvirki, veiðihús og mannvirki sem nýtt eru fyrir ferðaþjónustu.
i a-liðar gr. 3. gr. laga nr. 4/h falla allar aðrar fasteignir, svo sem iðnaður-, skrifstofu- og verslunarhlið Ákvæði a-liðar 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995, sem fjallar meðal annars um sumarbústaði, er undantekningarákvæði eins og ákvæði b-liðar sömu greinar. Af orðalagi c-liðar 3. mgr. 3. gr. laganna verður ráðið að á allar aðrar fasteignir en þær sem sérstaklega eru taldar upp í stafliðum a og b verður lagður fasteignaskattur, allt að 1,32% af fasteignamati og lóðarréttindum. Í dæmaskyni er þar meðal annars tilgreind ,,mannvirki sem nýtt eru fyrir ferðaþjónustu.” Þá er sveitarstjórnum veitt heimild í 4. mgr. 3. gr. laganna til að hækka um allt að 25% hundraðshluta álagningu á þær eignir sem falla undir a- og c-lið 3. mgr. 3. gr. laganna.
Hugtakið ferðaþjónusta er ekki skilgreint sérstaklega í lögum nr. 4/1995 en það hefur hins vegar verið skilgreint af Hagstofu Íslands þannig að ferðaþjónusta teljist ekki sérstök atvinnugrein heldur samanstandi hún af mörgum atvinnugreinum. Þannig er almennt talið að til ferðaþjónustu teljist meðal annars hvers konar gistiþjónusta. Um sölu á gistingu gilda lög nr. 85/2007, sbr. a-lið 2. mgr. 1. gr. laganna en gististaðir í skilningi þeirra laga eru þeir staðir þar sem boðin er gisting til lengri eða skemmri tíma gegn endurgjaldi, svo sem á hótelum, gistiheimilum, í gistiskálum, íbúðum og sumarhúsum, með eða án veitinga, sbr. 1. mgr. 3. gr. laganna. Sala á gistingu er leyfisskyld, sbr. 1. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2007.
III.
Álitaefni þessa máls snýr fyrst og fremst að því hvernig ákvarða skuli fasteignaskatt vegna sumarhúss kæranda í landi Neðra-Apavatns, Grímsnes- og Grafningshreppi fyrir tímabilið 27. apríl 2026 til 5. maí 2026. Af gögnum málsins virðist óumdeilt að fasteignin hafi verið skráð á vefsíðunni www.airbnb.is á fyrrgreindu tímabili. Hins vegar hefur komið fram af hálfu kæranda að ekki hafi verið mögulegt að bóka gistingu í eigninni fyrr en frá og með 26. maí 2026 þar sem lokað var fyrir bókanir á vefsíðunni fram að þeim tíma. Engin sala gistinga hafi því átt sér stað á umræddu tímabili og engar tekjur fallið til. Þá liggur fyrir að skráning heimagistingar samkvæmt lögum nr. 85/2007 var samþykkt í fasteigninni frá og með 5. maí 2026 í kjölfar erindis kæranda til sýslumanns.
Sveitarfélagið, Grímsnes- og Grafningshreppur, hefur vísað til þess að sumarhús kæranda hafi hvað sem öðru líður verið auglýst til útleigu á bókunarsíðum þrátt fyrir að kærandi hafi ekki verið með skráða heimagistingu eða haft leyfi til sölu gistinga í eigninni. Þó kærandi hafi ekki leigt eignina út til gistinga fyrr en eftir skráningu heimagistingar í eigninni á árinu 2026 breyti það ekki þeirri staðreynd að eignin hafi sannanlega verið skráð til útleigu á tímabilinu 27. apríl 2026 til 5. maí 2026. Það hvernig tilhögun kæranda varðandi útleigu eignarinnar var háttað eða hvenær fyrstu gestirnir hafi gist í eigninni skipti því í raun ekki máli fyrir niðurstöðu málsins heldur ráði það úrslitum að eignin hafi verið skráð opinberlega til útleigu fyrir ferðamenn á fyrrgreindu tímabili og því hafi sveitarfélaginu verið heimilt að ákvarða fasteignaskatt vegna eignarinnar skv. c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995.
Yfirfasteignamatsnefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu í fyrri úrskurðum sínum að gisting sem boðin er á bókunarsíðum fyrir gistingu til ferðamanna sé leyfisskyld, sbr. m.a. úrskurði yfirfasteignamatsnefndar í málum nr. 4/2015 og 18/2015, enda sé um að ræða sölu á gistingu sem telst til ferðaþjónustu. Þá hefur einnig komið fram í fyrri úrskurðum nefndarinnar að heimilt sé að skipta álagningu fasteignaskatts milli einstakra gjaldflokka innan hvers gjaldárs, sbr. m.a. úrskurð yfirfasteignamatsnefndar í máli nr. 4/1995. Hefur í því sambandi verið vísað til 6. gr. laga nr. 4/1995, þar sem fram kemur að ef afnot fasteignar sem metin er sem ein heild eru með þeim hætti að greiða skuli fasteignaskatt af henni samkvæmt fleiri en einum gjaldflokki sbr. 3. mgr. 3. gr. laganna skuli byggingarfulltrúi ákveða hlutfallslega skiptingu milli gjaldflokka.
Þá hefur verið talið að sveitarfélögum sé heimilt að leggja á fasteignaskatt samkvæmt gjaldflokki c-liðar 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 á frístundahús (sumarbústaði) sem nýtt eru hluta úr ári sem gististaðir til ferðamanna. Skal álagning samkvæmt c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 í slíkum tilvikum taka mið af þeim dagafjölda á ári hverju sem eignin er nýtt til ferðaþjónustu. Til að unnt sé að skipta álagningu og reikna eftir a- og c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 verði að tilgreina fyrirfram aðgreind tímabil útleigu og tímabil eigin notkunar, sbr. m.a. úrskurði yfirfasteignamatsnefndar í málum nr. 3/2013 og 18/2015. Það fyrirkomulag að eigendur fasteigna geti tilkynnt í lok ákveðins tímabils eða í lok hvers ár hvernig aðgreiningu útleigutímabila hafi verið háttað er að mati yfirfasteignamatsnefndar andstætt lögum nr. 4/1995 sem og jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Yfirfasteignamatsnefnd hefur jafnframt komist að þeirri niðurstöðu í fyrri úrskurðum sínum að fasteignir sem uppfylla skilyrði laga nr. 85/2007 um skráða heimagistingu falli ekki undir c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995, sbr. m.a. úrskurð yfirfasteignamatsnefndar í máli nr. 9/2017.
Af atvikum þess máls sem hér um ræðir verður ráðið að kærandi hafi ekki tilkynnt fyrirfram til sveitarfélagsins hvernig nýtingu sumarhúss hans í landi Neðra-Apavatns, Grímsnes- og Grafningshreppi, yrði háttað á tímabilinu 27. apríl 2026 til 5. maí 2026, m.a. að eignin yrði ekki nýtt til útleigu fyrir ferðamenn fyrr en að fenginni skráningu heimagistingar og það þrátt fyrir að hún væri auglýst á opinberri bókunarsíðu. Þegar það er haft í huga að fasteignin var auglýst opinberlega á vefsíðu þar sem boðin er gisting til ferðamanna verður að telja að nauðsynlegt hafi verið fyrir kæranda að tilkynna sveitarfélaginu fyrirfram hvernig nýtingu eignarinnar yrði háttað á fyrrgreindu tímabili, þ. á m. að fasteignin yrði ekki nýtt til útleigu fyrr en eftir skráningu heimagistingar þannig að fasteignaskattur vegna eignarinnar fyrir allt árið 2026 yrði ákvarðaður samkvæmt a-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995. Að mati yfirfasteignamatsnefndar verður ekki talið nægilegt að taka eignina frá til eigin nota eða loka fyrir bókanir á bókunarsíðum með þeim hætti sem gert var af hálfu kæranda. Þannig verður með hliðsjón af fyrri úrskurðum yfirfasteignamatsnefndar ekki talið nægilegt að tilkynna sveitarfélaginu eftir á hvernig nýtingu eignarinnar hafi verið háttað á því tímabili sem um ræðir.
Með hliðsjón af fyrri úrskurðum yfirfasteignamatsnefndar m.a. í málum nr. 13/2016, 13/2017, 4/2021 og 1/2023 verður talið að sveitarfélaginu hafi verið heimilt að ákvarða fasteignaskatt vegna sumarhúss kæranda samkvæmt c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 fyrir tímabilið 27. apríl 2026 til 5. maí 2026.
IV.
Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Markmið með rannsókn stjórnvalds er að tryggja að tekin sé efnislega rétt ákvörðun í því máli sem er til meðferðar hverju sinni. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í málinu. Ákvæði 10. gr. stjórnsýslulaga gerir hins vegar ekki áskilnað um að stjórnvald afli gagna með nánar tilteknum hætti. Stjórnsýslulögin gera jafnframt ráð fyrir því að aðili máls eigi þess kost að tjá sig um efni þess áður en ákvörðun er tekin í málinu. Þannig má segja að það sé hluti af rannsókn stjórnsýslumála að gefa aðila máls kost á því að tjá sig áður en ákvörðun er tekin, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga.
Taka verður undir það með kæranda að rökstuðningur sveitarfélagsins hefði mátt vera ítarlegri og skýrari. Það mátti þó ráða af svörum sveitarfélagsins að meginforsenda þeirrar ákvörðunar sem lá til grundvallar álagningu fasteignaskatts samkvæmt c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 á tímabilinu 27. apríl 2025 til 5. maí 2026 grundvallaðist á því að fasteignin hafði verið auglýst til gistingar á bókunarsíðunni www.airbnb.is áður en leyfi til heimagistingar fyrir eignina lá fyrir. Þá fékk kærandi í samskiptum sínum við sveitarfélagið upplýsingar um ástæður þessarar gjaldflokkunar og átti kost á því að koma að gögnum og sjónarmiðum sínum til málsins, þ. á m. lagði kærandi fram staðfestingu á skráningu heimagistingar í eigninni og í kjölfar þeirra upplýsinga gerði sveitarfélagið breytingu á álagningu fasteignaskatts vegna eignarinnar. Með hliðsjón af framansögðu verður ekki talið að sveitarfélaginu hafi verið skylt að afla upplýsinga, umfram það sem þegar lá fyrir, um raunverulegan fjölda bókana, gistinátta eða tekjur af útleigu, enda byggðist ákvörðunin um álagningu fasteignaskatts samkvæmt c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 ekki á umfangi rekstrar eða tekjum af honum. Verður því ekki séð að frekari upplýsingar um slíkt hefðu, miðað við þær forsendur sem lágu til grundvallar ákvörðuninni, getað leitt til annarrar niðurstöðu.
Að mati yfirfasteignamatsnefndar hefði málsmeðferð Grímsnes- og Grafningshrepps mátt vera vandaðri. Þannig hefði átt að gera kæranda með skýrari hætti grein fyrir þeim sjónarmiðum og lagagrundvelli sem hin kærða ákvörðun byggðist á og taka með formlegum hætti afstöðu til þeirra sjónarmiða og gagna sem kærandi lagði fram. Þá hefði einnig verið rétt að afgreiða með formlegum hætti beiðni kæranda um endurupptöku og verða við beiðni hans um aðgang að gögnum í samræmi við ákvæði 15. gr. stjórnsýslulaga. Þótt af hálfu sveitarfélagsins hefði mátt standa betur að rökstuðningi, afhendingu gagna og beiðni kæranda um endurupptöku, verður ekki séð að kærandi hafi vegna þess farið á mis við upplýsingar eða tækifæri til að koma þeim sjónarmiðum á framfæri sem gátu haft þýðingu við gjaldflokkun eignarinnar.
Samkvæmt framansögðu voru að mati yfirfasteignamatsnefndar ákveðnir annmarkar á meðferð málsins hjá sveitarfélaginu, sem sneru m.a. að rökstuðningi hinnar kærðu ákvörðunar, afhendingu gagna og svarleysi vegna endurupptökubeiðni. Ekki verður hins vegar talið að öllu framangreindu virtu að þeir annmarkar hafi verið þess eðlis að þeir leiða til ógildingar hinnar kærðu ákvörðunar.
V.
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið verður fasteignaskattur vegna fasteignar kæranda að Neðra-Apavatni, lóð, Grímsnes- og Grafningshreppi, fnr. [], ákvarðaður samkvæmt c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 fyrir tímabilið 27. apríl 2026 til 5. maí 2026 og samkvæmt a-lið sömu lagagreinar fyrir annan hluta þess árs.
Úrskurðarorð
Álagning fasteignaskatts vegna Neðra – Apavatns, lóð, Grímsnes- og Grafningshreppi, fnr. [], fyrir tímabilið 27. apríl 2026 til 5. maí 2026, skal vera samkvæmt c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 en samkv. a-lið sömu lagagreinar fyrir annan hluta ársins 2026.
_______________________________
Björn Jóhannesson
________________________ ________________________
Axel Hall Valgerður Sólnes