1. september 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 65/2026 Úrskurður 31. ágúst 2026

Mál nr. 65/2026        Eiginnafn:    Matteo (kk.)

Hinn 31. ágúst 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 65/2026 en erindið barst nefndinni 16. júlí 2026.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

1.    Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
2.    Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
3.    Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
4.    Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Matteo (kk.) er ritháttarafbrigði eiginanafnsins Matteó, sem fært var á mannanafnaskrá í kjölfar úrskurðar Mannanafnanefndar 24. júlí 2021 í máli nr. 74/2021. Rithátturinn Matteo er ekki í samræmi við ritreglur íslensks máls þar sem o er ekki ritað aftast í orði í íslensku og því aðeins unnt að samþykkja umbeðinn rithátt að hefð sé fyrir honum. 
Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin endurnýjaði síðast á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:

1.    Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af                       Íslendingi undanfarin 70 ár.
2.    Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.    Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum,                   frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

4.    Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er          áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.  Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.
Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast 
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera fimm einstaklingar, sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra, nafnið Matteo. Sá elsti er fæddur árið 1997. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Telst því ekki hefð fyrir rithætti nafnsins á grundvelli 1. gr. vinnulagsreglna. Aftur á móti er nafnið tökunafn og þessi ritháttur þekktur meðal annars á Ítalíu. Telur nefndin unnt að leggja til grundvallar að rithátturinn teljist hefðaður á grundvelli 4. gr. vinnulagsreglna enda er nafnið Matteó ekki rótgróið á Íslandi.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Matteo (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.