- september 2026 /
Dómsmálaráðuneytið
Mál nr. 66/2026 Úrskurður 12. ágúst 2026
Mál nr. 66/2026 Aðlögun kenninafns: Knútsdóttir
Hinn 12. ágúst 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 66/2026.
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 16. júlí 2026, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX að kenna sig við föður sinn, Knut, þannig að nafn hans verði aðlagað að íslensku og kenninafn hennar verið Knútsdóttir,
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Knútsdóttir