1. september 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 72/2026 Úrskurður 8. september 2026

Mál nr. 72/2026                    Millinafn:       Haf

Hinn 8. september 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 72/2026 en erindið barst nefndinni 10. ágúst 2026.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess
  • millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Haf er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki unnið sér hefð sem eiginnafn og getur ekki orðið nafnbera til ama. Þá er nafnið ekki ættarnafn og uppfyllir því öll skilyrði laganna.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Haf er samþykkt.