16. október 2026 /
Mál nr. 90/2026 Úrskurður 16. október 2026
Mál nr. 90/2026 Aðlögun kenninafns: Lúðvíksdóttir
Hinn 16. október 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 90/2026.
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 28. ágúst 2026, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX um að dóttir hennar verði kennd við föður sinn, Ludwik, þannig að nafn hans verði aðlagað að íslensku og kenninafn dóttur hennar verið Lúðvíksdóttir.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Lúðvíksdóttir.