Mál nr. 91/2026 Úrskurður 16. október 2026
Mál nr. 91/2026 Eiginnafn: Elisa (kvk.)
Hinn 16. október 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 91/2026 en erindið barst nefndinni 14. september 2026.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Elisa (kvk.) brýtur í bág við almennar ritreglur íslensks máls þar sem það getur talist afbökun á rithætti rótgróins nafns, Elísa. Því er aðeins unnt að samþykkja ritháttinn Elisa að hefð sé fyrir honum.
Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin endurnýjaði síðast á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:
1. Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.
2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
4. Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z. Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.
Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera níu konur, sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra, nafnið Elisa. Sú elsta er fædd árið 1986. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Telst því ekki hefð fyrir rithætti nafnsins á grundvelli 1. gr. vinnulagsreglna. Þar sem nafnið Elísa er rótgróið í íslensku er heldur ekki unnt að samþykkja ritháttinn á grundvelli 4. gr. vinnulagsreglna.
Viðmið í b.-lið 1. gr. vinnulagsreglna eru m.a. að nafn sé borið af a.m.k. 10 núlifandi Íslendingum og sá elsti þeirra hafi náð 30 ára aldri. Nafnið Elisa er nálægt því að uppfylla skilyrði b.-liðar um fjölda nafnbera en nær þó ekki lágmarkinu. Á móti kemur þó að elsti nafnberinn er talsvert eldri en sem nemur lágmarksaldrinum 30 ár.
Eiginnafnið Elísa er að uppruna stytting á nafninu Elísabet. Ýmsir rithættir af nafninu Elísabet eru á mannanafnaskrá, þ.m.t. Elisabeth. Með vísan til úrskurðar mannanafnanefndar frá 28. október 2020 í máli nr. 96/2020 telur mannanafnanefnd unnt að líta svo á að þar sem nafnið Elisa geti að uppruna talist leitt af eiginnafninu Elisabeth_,_ sem hefð er fyrir að rita með i, þá styðjist rithátturinn Elisa að því leyti við hefð í íslensku. Með hliðsjón af þessu og því sem áður sagði um hve rithátturinn fer nálægt því að uppfylla almenn skilyrði vinnulagsreglna um hefð telur mannanafnanefnd rétt að samþykkja nafnið Elisa á grundvelli hefðar.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Elisa (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.