1. ágúst 2026 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar Matvælastofnunar um veitingu leyfis til blóðtöku úr fylfullum hryssum.

Miðvikudaginn, 19. ágúst 2026, var í atvinnuvegaráðuneytinu

kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:

 

Stjórnsýslukæra

Með bréfi dags 14. júlí 2026 bar [X] lögmaður fram kæru f.h. [X] vegna ákvörðunar Matvælastofnunar frá 13. maí 2026 um að veita lyfja- og líftæknifyrirtækinu Ísteka ehf. skilyrt starfsleyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum.

Stjórnsýslukæran er byggð á 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga og barst innan kærufrests.

Kröfur

Kærendur gera kröfu um ógildingu ákvörðunar Matvælastofnunar þann 13. maí 2026 um að veita lyfja- og líftæknifyrirtækinu Ísteka ehf. skilyrt starfsleyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum, en til vara er gerð krafa um að hún verði endurskoðuð.

Sjónarmið kærenda

Kærendur byggja á því að ákvörðun þáverandi Matvælaráðuneytis þann 24. janúar 2025 um að neita kærendum um aðild að öðru sambærilegu máli, málsnr. MAR24090175, hafi verið röng og standist ekki skoðun, enda sé þar með í raun ómögulegt að fá ívilnandi leyfisveitingar á sviði dýraverndar endurskoðaðar fyrir æðra stjórnvaldi. Slík niðurstaða brjóti því gegn almennri meginreglu stjórnsýsluréttar um að almennt skuli heimilt að fá ákvarðanir lægra stjórnvalds endurskoðaðar. Á grundvelli þeirrar afstöðu fara kærendur fram á að litið verði á erindi þeirra sem stjórnsýslukæru og þeim heimiluð kæruaðild.

Málatilbúnaður kærenda byggir að öðru leyti á efnislegum rökum og málsástæðum til stuðnings kröfu sinni um ógildingu áðurnefndrar ákvörðunar Matvælastofnunar, dags. 13. maí 2026.

Forsendur og niðurstaða

Meginregla stjórnsýsluréttar um aðild er að sá sem á beinna, sérstakra, verulegra og lögvarinna hagsmuna að gæta telst aðili máls. Sérhver maður eða lögaðili getur verið aðili máls sem varðar hann. Oftast er aðild máls ekki miklum vafa undirorpin, en sá telst almennt vera aðili máls sem stjórnvaldsákvörðun beinist að.

Meginreglan er sú að skýra ber ákvæði laga til samræmis við hinar almennu reglur stjórnsýsluréttarins um aðild nema það komi skýrt fram af ákvæðinu að með því sé vikið frá þeim. Dæmi þess má finna í 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, þar sem umhverfisverndarsamtökum er játuð sérstök aðild að kærumálum sem varða tilgang samtakanna að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Í fyrirliggjandi máli er engri slíkri sérreglu í lögum fyrir að fara.

Kærendur byggja, eins og áður segir, á því að verði þeim ekki játuð aðild verði þar með ómögulegt að fá leyfisveitingar á sviði dýraverndar endurskoðaðar fyrir æðra stjórnvaldi. Ekki er unnt að fallast á þá röksemd. Af meginreglu stjórnsýsluréttar um aðild leiðir að aðili máls skuli hafa lögvarinna hagsmuna að gæta. Þannig geta afskipti manna sem byggjast á hagsmunum sem sprottnir eru af aðkomu að tilteknum málaflokki eða lífsskoðunum ekki skapað þeim aðilastöðu eftir almennum reglum stjórnsýsluréttar, sbr. dóm Hæstaréttar frá 9. júní 2005 í máli nr. 20/2005.

Því telur ráðuneytið, að öllum gögnum og málsástæðum virtum, að kærendur bresti aðild að því máli er varðar leyfisveitingu Ísteka ehf. þann 13. maí 2026. Í ljósi þess og á framangreindum grundvelli er stjórnsýslukæru kærenda frá 14. júlí 2026 vísað frá ráðuneytinu.

Úrskurðarorð

Stjórnsýslukæru [X], dags. 14. júlí 2026, vegna ákvörðunar Matvælastofnunar, dags. 13. maí 2026, um að veita lyfja- og líftæknifyrirtækinu Ísteka ehf. starfsleyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum er hér með vísað frá ráðuneytinu.