4. júní 2026 /

Úrskurður nr. 251/2026

Hinn 4. júní 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 251/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU25110062

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 13. nóvember 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 31. október 2025, um að synja umsókn hans um dvalarleyfi vegna náms, sbr. 65. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 55. gr. og 56. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn hans til nýrrar meðferðar.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi hefur ekki haft dvalarleyfi á Íslandi. Hinn 19. júní 2025 lagði kærandi fram umsókn um dvalarleyfi vegna náms, sbr. 65. gr. laga um útlendinga. Með bréfi, dags. 14. október 2025, óskaði Útlendingastofnun eftir frekari fylgigögnum vegna umsóknarinnar. Kærandi lagði fram frekari gögn vegna málsins 22. og 27. október 2025. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 31. október 2025, var umsókn kæranda synjað. Í hinni kærðu ákvörðun kom fram að kærandi hefði ekki sýnt fram á trygga framfærslu, sbr. a-lið 1. mgr. 55. gr. og 56. gr. laga um útlendinga. Til viðmiðunar miði Útlendingastofnun almennt við að mánaðarleg fjárráð samsvari að lágmarki grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar, eða 247.572 kr. á mánuði. Fram kom í ákvörðunarorði að kærandi gæti óskað eftir nánari rökstuðningi fyrir ákvörðuninni í samræmi við 1. og 3. mgr. 21. gr. stjórnsýslulaga. Samkvæmt gögnum málsins óskaði kærandi ekki eftir nánari rökstuðningi. Ákvörðunin var kærð til kærunefndar útlendingamála 13. nóvember 2025 og bárust frekari gögn 14. nóvember 2025.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er byggt á því að gallar séu á málsmeðferð Útlendingastofnunar. Kærandi vísar til þess að hann hafi lagt fram frekari gögn og fengið þau svör frá Útlendingastofnun að mál hans yrði sent til yfirferðar hjá lögfræðingum stofnunarinnar. Þann sama dag hafi kæranda þó borist ákvörðun um synjun dvalarleyfis í máli sínu. Kærandi telji að framlögð gögn hafi ekki verið tekin til skoðunar fyrir töku ákvörðunarinnar. Kærandi vísar til þess að faðir hans hafi látið fjárfestingarfélaga sinn millifæra 40 milljónir nígerískra næra inn á reikning kæranda en um hafi verið að ræða söluhagnað vegna fasteignaviðskipta. Kærandi vísar til þess að framangreind upphæð sýni fram á að hann hafi nægjanlegt fjármagn til framfærslu hér á landi. Synjun á umsókn hans sé því röng þar sem framlögð gögn sýni fram á nægjanlega framfærslu.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 65. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem ætlar að stunda fullt nám hér á landi dvalarleyfi enda sé hann eldri en 18 ára og fullnægi þeim kröfum sem gerðar eru í viðkomandi námi. Fullt nám er samfellt nám á háskólastigi, þ.m.t. nám á háskólastigi sem fram fer á vinnustöðum, eða annað það nám sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Sá sem sækir einstök námskeið telst ekki stunda fullt nám. Ákvæði 2. mgr. 65. gr. laga um útlendinga áskilur að 1. og 2. mgr. 55. gr. laga um útlendinga séu uppfyllt, ásamt því að útlendingur stundi fullt nám hér á landi samkvæmt staðfestingu eða vottorði frá hlutaðeigandi skóla eða hafi fengið heimild til undanþágu frá skilyrði um fullt nám, svo sem vegna skipulags náms á grundvelli beiðni frá hlutaðeigandi skóla.

Í 55. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um grunnskilyrði dvalarleyfis. Samkvæmt 1. mgr. 55. gr. er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi í samræmi við ákvæði VI.-IX. kafla samkvæmt umsókn uppfylli hann skilyrði stafliða a-d ákvæðisins, en í a-lið kemur fram að framfærsla útlendings skv. 56. gr. og sjúkratrygging þurfi að vera örugg. Samkvæmt 1. mgr. 56. gr. laga um útlendinga þarf útlendingur sem er eldri en 18 ára og sækir um dvalarleyfi að sýna fram á að framfærsla hans sé trygg þann tíma sem hann sækir um að fá að dveljast hér á landi. Þá segir í 4. mgr. 56. gr. að ráðherra sé heimilt, í samráði við ráðherra sem fer með félagsmál, að setja í reglugerð nánari ákvæði um kröfu um trygga framfærslu, þ.m.t. um hvað teljist trygg framfærsla, hvernig framfærslu skuli háttað og í hvaða tilvikum heimilt sé að víkja frá þeim kröfum. Ráðherra hefur ekki útfært nánar í reglugerð hvað telst trygg framfærsla. Í úrskurðarframkvæmd kærunefndar, sbr. einkum úrskurði nr. 229/2018, dags. 12. júlí 2018, og nr. 122/2021, dags. 17. mars 2021, hefur nefndin lagt áherslu á að framfærsla einstaklings sé sjálfstæð eða frá einstaklingi sem beri lögbundna framfærsluskyldu gagnvart honum. Í framkvæmd hefur verið byggt á tekjum sem viðkomandi aflar af atvinnu eða fé sem hann fer með sannanleg yfirráð yfir, t.d. innstæðu á bankareikningi sem skráður er á nafn viðkomandi eða ef innstæða á reikningi á öðru nafni er tryggð viðkomandi með öruggum hætti.

Líkt og að framan greinir hefur ráðherra heimild til að setja í reglugerð nánari ákvæði um kröfu um trygga framfærslu, en hefur ekki nýtt þá heimild. Samkvæmt ákvæði 4. mgr. 56. gr. laga um útlendinga og skýringum við ákvæðið í frumvarpi til laganna er þar einkum átt við upphæðir og aðra hlutlæga mælikvarða við mat á tryggri framfærslu. Ákvæði laga um útlendinga sem fjalla um trygga og örugga framfærslu eru matskennd en í því felst að löggjafinn hefur eftirlátið stjórnvöldum sem annast framkvæmd laganna, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga, að leggja mat á aðstæður sem byggist á málefnalegum sjónarmiðum.

Krafa um trygga og örugga framfærslu er eitt grunnskilyrða dvalarleyfis samkvæmt lögum um útlendinga. Þeir hagsmunir sem búa að baki því skilyrði snúa bæði að einstaklingnum sjálfum og íslensku samfélagi. Er því ætlað að tryggja að útlendingur fái raunhæft tækifæri til að dvelja hér á landi til samræmis við skilyrði og tilgang dvalarleyfis, geti séð fyrir sér án þess að lenda í fjárhagsvandræðum, s.s. varðandi húsnæði og daglegar þarfir, sem og til að koma í veg fyrir að viðkomandi verði útsettur fyrir misneytingu vegna bágrar fjárhagsstöðu. Er þá horft til þess að dvalarleyfishafar búa að jafnaði við skertara öryggisnet en í heimaríki, s.s. varðandi aðstoð fjölskyldu, vina og aðgangs að félagslegu kerfi. Jafnframt er spornað við því að útlendingar sækist í ólögmæta atvinnu sem gæti gert þá útsetta fyrir mansali, kynbundnu ofbeldi og annarri nauðung.

Við mat á því hvort framfærsla teljist örugg og trygg skal leggja heildstætt mat á aðstæður útlendings hverju sinni. Við það mat þarf m.a. að skoða hvort fjárhæð framfærslu sé næg og hvort trúverðugt sé að sú framfærsla sem byggt er á verði aðgengileg kæranda á gildistíma þess dvalarleyfis sem sótt er um. Við mat á því hvort það sé trúverðugt að kærandi hafi aðgang að þeirri framfærslu sem byggt er á á gildistíma dvalarleyfis er eðlilegt og málefnalegt að líta til uppruna fjárins, hvort og hve lengi kærandi hafi haft aðgengi að fjármununum og hvort trúverðugt sé að öðru leyti að kærandi muni hafa aðgang að fjármununum á gildistíma þess dvalarleyfis sem sótt er um.

Samkvæmt hinni kærðu ákvörðun lagði Útlendingastofnun til grundvallar að kærandi hefði ekki sýnt fram á trygga og örugga framfærslu á dvalartímanum. Gögn málsins bera með sér að kærandi hafi haft nægt fé á innistæðureikningi sínum daginn sem umsókn hans um dvalarleyfi var lögð fram 19. maí 2025 en mánuði síðar 19. júní 2025, millifærði kærandi 35 milljónir nígerískra næra (um 3,1 milljón íslenskra króna) af bankareikningi sínum og eftir stóðu 3.942 nígerískar nærur (um 355 íslenskar krónur). Hinn 7. ágúst 2025 hafi 35 milljónir nígerískra næra verið millifærðar aftur inn á reikning kæranda með skýringunni sala á eign. Þá hafi upphæðin verið tekin út af reikningnum aftur 28. ágúst 2025 með sömu skýringu. Hinn 16. október 2025, tveimur dögum eftir að Útlendingastofnun óskaði eftir bankayfirliti kæranda, hafi 40 milljónir næra verið lagðar inn á reikning kæranda með skýringunni söluhagnaður. Samkvæmt skýringum kæranda hafi faðir hans látið fjárfestingarfélaga sinn millifæra 40 milljónir næra inn á reikning kæranda en um hafi verið að ræða söluhagnað vegna fasteignaviðskipta.

Samkvæmt framangreindu hefur kærandi ekki haft stöðugt aðgengi og sannanleg yfirráð yfir þeim fjármunum sem hann byggir framfærslu sína á. Framangreindar millifærslur inn og út af reikningi kæranda bera ekki með sér að hann muni hafa tryggan aðgang að fjármununum á meðan dvalartíma hans stendur. Umræddar millifærslur inn og út af reikningi kæranda nema 35 milljónum nígerískra næra sem nema um 3,1 milljón íslenskra króna. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Nígeríu jafngilda ársmeðallaun í landinu um 160.000 krónum. Umræddar millifærslur, sem kærandi lýsti sem söluhagnaði vegna fasteignaviðskipta, nema því um tuttuguföldum ársmeðallaunum í Nígeríu. Framlögð bankayfirlit eru ekki til þess fallin að sýna fram á að kærandi muni hafa aðgang að tryggri og öruggri framfærslu, samkvæmt lögum um útlendinga, á því tímabili sem dvalarleyfisumsóknin tekur til. Kærandi hefur ekki lagt fram önnur gögn til stuðnings frásögn hans, s.s. yfirlit reikningsins yfir lengra tímabil, yfirlit fleiri reikninga í hans eigu eða annað sem rennir frekari stoðum undir frásögn hans.

Að framangreindu virtu og með hliðsjón af þeim fjárhæðum sem um ræðir eru skýringar kæranda á millifærslunum ótrúverðugar. Samkvæmt atvikum í málinu og gögnum málsins að öðru leyti hefur kærandi ekki sýnt fram á að hafa sannanleg yfirráð og aðgengi að nægum fjármunum sem nauðsynlegir eru til framfærslu á Íslandi á dvalartímanum.

Í greinargerð kæranda er byggt á því að gallar séu á málsmeðferð Útlendingastofnunar. Kærandi vísar til þess að hann hafi lagt fram frekari gögn og fengið þau svör frá Útlendingastofnun að mál hans yrði sent til yfirferðar hjá lögfræðingum stofnunarinnar. Þann sama dag hafi kæranda þó borist ákvörðun um synjun dvalarleyfis í máli sínu. Kærandi telji að framlögð gögn hafi ekki verið tekin til skoðunar fyrir töku ákvörðunarinnar.

Ekkert í gögnum málsins bendir til annars en að Útlendingastofnun hafi tekið umrædd gögn til skoðunar og að þau hafi, ásamt öðrum gögnum málsins, legið til grundvallar við ákvarðanatöku stofnunarinnar. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar kærunefndar er ekki tilefni til að gera athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, og verður því talið að fullnægjandi mat hafi verið lagt á framlögð gögn kæranda.

Að því virtu hefur kærandi ekki sýnt fram á að hann hafi trygga og örugga framfærslu í skilningi a-liðar 1. mgr. 55. gr. og 56. gr. laga um útlendinga og er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Þorsteinn Gunnarsson

Vera Dögg Guðmundsdóttir