4. september 2026 /

Úrskurður nr. 373/2026

Hinn 4. september 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 373/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26030090

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 26. mars 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Brasilíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 24. mars 2026, um frávísun frá Íslandi.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun um frávísun verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom til Íslands 24. mars 2026. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. sama dag, var kæranda vísað frá landinu á grundvelli a-, c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun um frávísun kemur fram að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar hennar hér á landi eða fullnægjandi fjármagn til að dvelja hér á landi og snúa aftur heim.

Samkvæmt samantektarskýrslu lögreglu, dags. 26. mars 2026, var lögregla á Keflavíkurflugvelli kölluð til í tollsal flugvallarins vegna komu kæranda hingað til lands en hún hafi ekki verið með fullnægjandi fjármagn fyrir þriggja mánaða dvöl og framvísað óútfylltum skjölum frá Útlendingastofnun um vistráðningu. Kærandi kvaðst vera komin hingað til lands til að hitta nafngreindan íslenskan mann sem hafi ætlað að sjá um hana á meðan á dvöl hennar stæði á Íslandi og að hún myndi dvelja hjá honum þessa þrjá mánuði. Sökum tungumálaerfiðleika hafi kærandi verið boðið til frekari viðræðna í aðstöðu lögreglu og rætt við hana með aðstoð túlkaþjónustu. Kæranda hafi verið afhent upplýsingablað þar sem henni hafi verið kynntur réttur sinn til að hafa samband við lögfræðing á eigin kostnað, fulltrúa heimaríkis og viðurkennd mannréttindasamtök. Kærandi hafi greint frá því að vera komin hingað til lands til að heimsækja nafngreinda vinkonu móður sinnar auk þess sem hún hafi ætlað að skoða sig um hér á landi. Kærandi hafi ekki getað nefnt staði hér á landi sem hún hafi ætlað að skoða fyrir utan Bláa lónið en hún væri ekki með bókun þar. Kærandi kvaðst hafa þekkt vinkonu móður sinnar frá því að hún var lítil og hún hafi hvatt kæranda að koma hingað til lands í þeim tilgangi að skoða landið. Kærandi kvaðst ekki vita hvar vinkona móður hennar væri búsett á Íslandi en væri með frekari upplýsingar í símanum sínum. Þá kvaðst kærandi ekki vita nafnið á eiginmanni vinkonu móður sinnar og ekki þekkja hann persónulega. Kærandi hafi ætlað að dvelja á Íslandi í þrjá mánuði og dvelja á heimili vinkonu móður sinnar. Kærandi hafi verið með 500 brasilísk Real meðferðis en kvaðst hafa millifært fjármagn inn á vinkonu móður sinnar út af íslensku krónunni en ekki getað útskýrt það nánar eða sýnt fram á þær greiðslur. Kærandi kvaðst vera með bókaðan flugmiða frá Íslandi í júlí 2026 en hafi ekki getað sagt hvert hún væri að fara. Vinkona móður hennar hafi keypt flugmiðana og kærandi hafi átt bókaðan miða til Amsterdam 18. júní 2026. Kærandi kvaðst ætla að leita sér að starfi sem barnfóstra hér á landi en hún væri þó ekki með dvalar- eða atvinnuréttindi hér á landi. Kærandi hafi fengið boðsbréf frá vinkonu móður hennar. Síðar greindi kærandi frá því að hún væri komin hingað til lands til að passa börn vinkonu móður hennar en hún þekkti þó ekki börnin. Kærandi kvað vinkonu móður hennar hafa útvegað henni skjölin frá Útlendingastofnun en hún taldi þau innihalda boðsbréf og samning um að vera barnfóstra. Skjölin hafi ekki verið útfyllt þar sem hún vildi sjá Ísland og athuga hvort henni líkaði að vera hér á landi. Þegar kæranda var bent á að hún þyrfti atvinnuleyfi hér á landi til að starfa sem barnfóstra kvaðst kærandi ætla að skoða sig um og ekki vinna þessa þrjá mánuði sem hún væri hér. Ef henni myndi líka vel þá hafi hún ætlað aftur til heimaríkis og gera síðan tveggja ára samning við vinkonu móður hennar sem barnfóstra hér á landi. Þá hafi lögregla rætt við vinkonu móður kæranda og eiginmann hennar en þau hafi greint frá því að kærandi væri komin hingað til lands í vistráðningu og það væri í ferli að sækja um dvalarleyfi fyrir hana. Þau kváðust ætla að halda kæranda uppi og að þau væru með herbergi tilbúið fyrir hana heima hjá þeim. Ákveðið hafi verið að frávísa kæranda á grundvelli a-, c- og d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga þar sem kærandi hafi verið margsaga um tilgang dvalar sinnar hér á landi, verið með óútfyllt skjöl frá Útlendingastofnun og ekki nægileg fjárráð fyrir þriggja mánaða dvöl hér á landi. Kærandi hafi farið með flugi til Amsterdam 25. mars 2026.

Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 26. mars 2026. Kæranda var skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 27. mars 2026. Greinargerð kæranda barst 10. apríl 2026 ásamt fylgigögnum. Þá bárust gögn málsins frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum 8. maí 2026.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hún hafi komið hingað til lands í þeim tilgangi að dvelja hjá nafngreindu vinafólki sínu og þá einkum til að eyða tíma með þeim og fjölskyldu þeirra. Kærandi hafi verið stöðvuð við komuna til landsins en hún hafi greint frá því að hafa komið hingað til lands í framangreindum tilgangi og lagt fram boðsbréf þess efnis. Vinafólk kæranda hafi ítrekað reynt að hafa samband við lögreglu til að skýra stöðuna og upplýsa um tilgang ferðar kæranda en lögreglan hafi ekki viljað ræða við þau. Kærandi vísar til þess að tilgangur dvalar hennar hafi því ekki verið rannsakaður eða skoðaður nánar. Kærandi vísar til athugasemda með frumvarpi að 106. gr. laga um útlendinga og 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri og telji sig uppfylla skilyrði framangreindra ákvæða, en hún hafi verið með brottfararmiða, nægileg fjárráð og dvalarstað yfir fyrirhugaðan dvalartíma.

Kærandi byggir á því að verulegir annmarkar hafi verið á málsmeðferð í máli hennar sem og efnislegum forsendum og rökstuðningi sem lagður hafi verið til grundvallar. Kærandi hafi lagt fram fullnægjandi gögn til að uppfylla skilyrði fyrir inngöngu í landið en gögnin og andmælin sem lögð hafi verið fram hafi ekki verið rannsökuð nánar. Þá hafi lögreglan hvorki hlustað á kæranda þegar hún hafi reynt að koma þessum upplýsingum til lögreglu né skoðað gögnin frekar. Kærandi telji að ekki hafi verið gætt meðalhófs áður en ákvörðun hafi verið tekin auk þess sem brotið hafi verið gegn leiðbeiningar- og rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar. Þá séu forsendur og rökstuðningur hinnar kærðu ákvörðunar ófullnægjandi og verulegum annmörkum háður. Með vísan til framangreinds sé ástæða til að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 24. mars 2026, byggir á a-, c- og d-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.

Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann fullnægir ekki reglum sem settar eru um vegabréf, vegabréfsáritun, ferðaheimild eða komu til landsins. Líkt og þegar hefur verið rakið tók Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að frávísa kæranda á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Kærandi er ríkisborgari Brasilíu og þarf því ekki vegabréfsáritun hingað til lands, sbr. 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga. Verður því sá hluti ákvörðunar Lögreglustjórans á Suðurnesjum er varðar a-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga felldur úr gildi.

Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri. Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.

Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 um för yfir landamæri er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins.

Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.

Í skýrslutöku hjá lögreglu var kærandi margsaga um ástæðu heimsóknar sinnar til landsins. Kærandi greindi fyrst frá því að vera komin hingað til lands til að heimsækja nafngreinda vinkonu móður sinnar. Kærandi kvaðst ætla að skoða sig um á ferðamannastöðum, s.s. Bláa lóninu, en vinkona móður hennar hafi hvatt hana til að koma til Íslands til að skoða landið. Samkvæmt kerfum lögreglu átti kærandi bókaðan farmiða til Amsterdam 18. júní 2026. Þegar kærandi var spurð að því hvort hún ætlaði aðeins að vera ferðamaður hér á landi í þrjá mánuði greindi kærandi frá því að hún ætlaði að leita sér að starfi sem barnfóstra en hún væri ekki með dvalar- eða atvinnuréttindi hér á landi. Þá hafi kærandi ætlað að passa börn vinkonu móður sinnar hér á landi. Kærandi var með í farangri sínum óútfyllt skjöl frá Útlendingastofnun um vistráðningu. Þegar lögregla hafi greint henni frá því að til þess að starfa hér á landi þyrfti hún að hafa tilskilin leyfi til þess greindi kærandi frá því að hún hafi viljað sjá Ísland fyrst og kanna hvort henni líkaði að vera hér á landi áður en hún tæki ákvörðun. Kærandi hygðist svo snúa aftur til heimaríkis og gera síðan tveggja ára samning við vinkonu móður sinnar sem barnfóstra hér á landi.

Þegar lögregla ræddi við gestgjafa kæranda í komusal Leifsstöðvar greindu þau frá því að kærandi væri að koma til þeirra í vistráðningu. Þau væru að vinna að því að leggja inn umsókn og ef leyfið yrði ekki komið áður en kærandi þyrfti að fara heim myndi hún fara og koma aftur þegar leyfið lægi fyrir. Með vísan í framangreint misræmi er tilgangur fyrirhugaðrar dvalar kæranda hér á landi óljós. Með vísan til þess hefur kærandi ekki fært rök fyrir tilgangi dvalar, sbr. 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri.

Með vísan til framangreinds hefur kærandi ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem hún gaf upp fyrir dvölinni. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.

Samkvæmt d-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann getur ekki sýnt fram á að hann hafi eða eigi tryggð nægileg fjárráð til dvalar hér á landi og til heimferðar. Fram kemur í athugasemdum við ákvæðið að meta þurfi hverju sinni hvenær útlendingur teljist hafa nægileg fjárráð til framfærslu og til heimferðar. Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri skal við mat á því hvort útlendingur teljist hafa nægileg fjárráð m.a. tekið mið af lengd og tilgangi dvalar. Mat á fjárráðum megi byggja á reiðufé, ferðatékkum og greiðslukortum sem útlendingur sé handhafi að.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi með 500 brasilísk Real meðferðis en hjá lögreglu greindi kærandi frá því að hún hafi millifært fjármuni á vinkonu móður sinnar, sem hún hygðist dvelja hjá hér á landi, án þess að útskýra það frekar eða leggja fram gögn því til stuðnings. Kærandi hefur ekki borið fyrir sig aðgengi að ferðatékkum og er því ljóst að fjárráð kæranda hafi takmarkast við 500 brasilísk Real sem samsvara tæpum 12.000 krónum. Samkvæmt gögnum málsins átti kærandi bókaðan flugmiða til Amsterdam 18. júní 2026 eða tæplega þremur mánuðum síðar. Hafði kærandi því ekki næga fjármuni til umráða fyrir upphald á því tímabili. Í gögnum málsins liggur fyrir boðsbréf vegna heimsóknar þar sem fram kemur að gestgjafi kæranda muni bera ábyrgð á kostnaði við dvöl hennar hér á landi. Ljóst er að gestgjafi kæranda er þó ekki framfærsluskyldur gagnvart kæranda. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um misræmi í frásögn kæranda um tilgang fyrirhugaðrar dvalar hennar hér á landi verður lagt til grundvallar að kærandi hafi ekki sýnt fram á nægileg fjárráð til dvalar hér á landi og innan Schengen-svæðisins. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.

Í málatilbúnaði kæranda er m.a. byggt á því að lögreglu hafi borið að sannreyna frásögn hennar með því að hafa samband við þá aðila sem hafi boðið henni hingað til lands áður en ákvörðun um frávísun hafi verið tekin. Um sé að ræða brot á leiðbeiningarskyldu, meðalhófsreglu og rannsóknarreglu. Þá byggir kærandi á því að forsendur og rökstuðningur hinnar kærðu ákvörðunar hafi verið ófullnægjandi og verulegum annmörkum háður. Hin kærða ákvörðun sé ekki rökstudd með fullnægjandi hætti eða tiltekið hvaða gögn hafi skort. Með vísan til framangreinds sé ástæða til að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi.

Í lögregluskýrslu, dags. 26. mars 2026, kemur fram að lögregla hafi farið í komusal og rætt við vinafólk kæranda hér á landi. Þá kemur fram í ákvörðun lögreglu um frávísun, dags. 24. mars 2026, að kærandi eigi rétt á eftirfarandi rökstuðningi, sbr. 1. mgr. 21. gr. stjórnsýslulaga. Samkvæmt gögnum málsins hafi kærandi ekki óskað eftir eftirfarandi rökstuðningi. Með vísan til framangreindrar niðurstöðu í máli kæranda verður ekki fallist á að brotið hafi verið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga eða að brotið hafi verið gegn reglum um meðalhóf og leiðbeiningarskyldu. Með vísan til framangreinds er ekki tilefni til að gera athugasemdir við ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Samantekt

Að öllu framangreindu virtu er ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um að frávísa kæranda á grundvelli c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, staðfest. Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er felld úr gildi.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun á grundvelli c- og d-liðar 1. mgr. 106. gr. er staðfest. Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun á grundvelli a-liðar sama ákvæðis er felld úr gildi.

The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District on refusal of entry on the grounds of Art. 106 para. 1(c) and (d) is affirmed. The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District on refusal of entry on the grounds of Art. 106 para. 1 (a) is vacated.

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir