30. september 2026 /

Úrskurður nr. 415/2026

Hinn 30. september 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 415/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26010128

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 29. janúar 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 27. janúar 2026, um frávísun frá Íslandi.

Kærandi krefst þess að staðfest verði að útgefið skjal Lögreglustjórans á Suðurnesjum hafi verið afturköllun á fyrri ákvörðun um frávísun kæranda. Til vara að ákvörðun Lögreglustjórans á Suðunesjum verði felld úr gildi vegna sjónarmiða um meðalhóf.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 27. janúar 2026, var kæranda vísað frá landinu á grundvelli h- og k-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt samantektarskýrslu lögreglu, dags. 27. janúar 2026, hafi tollgæslan á Keflavíkurflugvelli óskað eftir aðstoð lögreglu vegna kæranda en samkvæmt tollvörðum hafi hann átt brotasögu hér á landi og honum áður verið brottvísað frá Íslandi og hlotið endurkomubann. Kæranda hafi verið boðið í viðtal í aðstöðu lögreglu þar sem honum hafi verið kynntur réttur sinn til lögfræðiaðstoðar á eigin kostnað, réttur til að hafa samband við fulltrúa heimaríkis og viðurkennd mannúðar- eða mannréttindasamtök. Kærandi hafi ferðast hingað til lands ásamt kærustu sinni, sem hann hafi hitt á Íslandi fyrir þremur árum síðan, og kvaðst vera kominn hingað til lands til að verja tíma með henni áður en hann færi aftur til heimaríkis. Kærandi kvaðst ætla að dvelja á Íslandi í tvær vikur og framvísaði boðsbréfi frá kærustu sinni og 750 evrum í reiðufé. Þá hafi kærandi framvísað flugbókun til Mílanó 9. febrúar 2026. Við uppflettingu í kerfum lögreglu mátti sjá að lögregla hafi haft töluverð afskipti af kæranda frá árinu 2019. Afskipti lögreglu hafi varðað sölu og dreifingu fíkniefna þar sem kærandi hafi verið farþegi í bifreið, kærandi hafi hlotið dóm fyrir sölu og dreifingu fíkniefna, peningaþvætti, dvöl án dvalarleyfis, vörslu fíkniefna og fyrir að fylgja ekki fyrirmælum lögreglu. Þá hafi kærandi fengið brottvísun og tveggja ára endurkomubann en hann ekki sinnt tilkynningarskyldu og reynt að koma sér undan framkvæmd brottvísunar. Þá hafi kærandi hlotið dóm fyrir sölu og dreifingu fíkniefna í tveimur liðum, vörslu fíkniefna og brot gegn lögum um útlendinga fyrir að hafa ekki framvísað skilríkjum að kröfu lögreglu. Kærandi hafi verið grunaður um líkamsárás og handtekinn í kjölfar hópslagsmála. Þá hafi kærandi verið grunaður um nauðgun og vörslu fíkniefna auk þess að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Tekin hafi verið ákvörðun um að frávísa kæranda á grundvelli h- og k-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga þar sem kærandi hafi átt útistandandi skuld vegna sakarkostnaðar og þar sem að brotasaga kæranda gæfi til kynna að hann væri ógn við allsherjarreglu og almannaöryggi. Kærandi hafi farið með flugi til Albaníu 28. janúar 2026.

Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 29. janúar 2026. Vegna ákvörðunar um frávísun var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga 13. febrúar 2026. Greinargerð kæranda barst 19. febrúar 2026.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er byggt á því að kærunefnd staðfesti að útgefið skjal Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 10. febrúar 2026, hafi verið afturköllun á fyrri ákvörðun um frávísun kæranda, dags. 27. janúar 2026. Að mati kæranda hafi skjalið verið ígildi nýrrar stjórnvaldsákvörðunar og ákvörðunin staðfest af fulltrúa Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Efni skjalsins hafi skýrlega borið með sér að vera ætlað kæranda, bæði hvað varði nafn og málsnúmer. Texti skjalsins hafi borið með sér að ákvörðun í máli kæranda væri afturkölluð. Breyti engu þó að skjalið hafi borið með sér að ákvörðun um afturköllun væri meðfylgjandi enda hafi auðkenning starfsmanns Lögreglustjórans gefið til kynna að um niðurlag ákvörðunar væri að ræða. Þá breyti heldur engu þótt um misritun hafi verið að ræða enda taki heimild til leiðréttingar á ákvörðun fyrst og fremst til bersýnilegra villna á formi ákvörðunar en ekki efnislegra áhrifa hennar. Til vara krefst kærandi þess að frávísunarákvörðun verði dæmd ógild vegna sjónarmiða um meðalhóf.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 27. janúar 2026, byggir á h- og k-liðum 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.

Samkvæmt h-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landinu hafi hann ekki greitt sekt sem honum hafi verið gert að greiða meðan á fyrri dvöl hans stóð. Samkvæmt gögnum málsins á kærandi útistandandi skuld vegna dómssekta og sakarkostnaðar frá árunum 2022 og 2024 en samtala skuldar kæranda er 2.034.605 kr. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að kærandi hafi greitt skuld sína við ríkissjóð. Að framangreindu virtu er staðfest ákvörðun lögreglu um frávísun á grundvelli h-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga enda voru skilyrði ákvæðisins uppfyllt þegar lögregla tók hina kærðu ákvörðun.

Samkvæmt k-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að vísa útlendingi frá landinu sé það nauðsynlegt vegna allsherjarreglu, þjóðaröryggis, almannaheilbrigðis eða alþjóðasamskipta ríkisins eða annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæðið svari til e-liðar 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri. Í ákvörðun lögreglu kemur fram að kærandi væri talinn ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi, almannaheilbrigði eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis innan Schengen-svæðisins.

Við túlkun á framangreindum lagaákvæðum er unnt að líta til dóma Evrópudómstólsins á þessu sviði, sbr. 6. gr. EES-samningsins og 2. mgr. 3. gr. samnings milli EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls. Hefur Evrópudómstóllinn í dómaframkvæmd sinni vísað til þeirrar viðurkenndu meginreglu þjóðaréttar að ríki hafi, með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar sínar, rétt til að stjórna aðgengi erlendra ríkisborgara að landsvæði sínu og dvöl þeirra þar. Má sjá slíka nálgun m.a. í dómum dómstólsins í málum nr. C-41/74 (Van Duyn), frá 4. desember 1974 og nr. C-33/07 frá 10. júlí 2008, þar sem m.a. kemur fram að aðildarríki hafi heimild til að meta hvenær takmarka skuli réttinn til frjálsrar farar á grundvelli allsherjarreglu en slíkar undantekningar beri að túlka þröngt. Er því ljóst að við túlkun og beitingu framangreinds ákvæðis um allsherjarreglu er stjórnvöldum falið svigrúm til að skilgreina nánar hvenær aðstæður eru slíkar að nauðsynlegt sé að takmarka frjálsa för til verndar allsherjarreglu. Slíkt mat verði þó ávallt að hvíla á málefnalegum grundvelli og taka mið af inntaki skuldbindinga íslenska ríkisins.

Samkvæmt samantektarskýrslu lögreglu, dags. 27. janúar 2026, kemur fram að lögregla hafi margsinnis haft afskipti af kæranda síðan árið 2019. Afskipti lögreglu af kæranda hafi verið vegna sölu og dreifingu fíkniefna, skipulagðrar brotastarfsemi og ólögmætrar dvalar. Í málaskrá lögreglu kemur fram að kærandi hafi verið farþegi í bifreið þar sem fram hafi farið sala og dreifing fíkniefna, kærandi hafi hlotið dóm fyrir sölu og dreifingu fíkniefna, peningaþvætti, dvöl án dvalarleyfis, vörslu fíkniefna og fyrir að fylgja ekki fyrirmælum lögreglu. Þá hafi kærandi fengið brottvísun og tveggja ára endurkomubann en hann ekki sinnt tilkynningarskyldu og reynt að koma sér undan framkvæmd brottvísunar. Þá hafi kærandi hlotið dóm fyrir sölu og dreifingu fíkniefna í tveimur liðum, vörslu fíkniefna og brot gegn lögum um útlendinga fyrir að hafa ekki framvísað skilríkjum að kröfu lögreglu. Kærandi hafi verið grunaður um líkamsárás og handtekinn í kjölfar hópslagsmála. Þá hafi kærandi verið grunaður um nauðgun og vörslu fíkniefna.

Í úrskurðaframkvæmd kærunefndar hefur verið litið til málaskrár lögreglu sem vísbendingu um hegðunarmynstur brotamanna, til viðbótar við önnur gögn, sbr. til hliðsjónar dóm Landsréttar nr. 419/2022, dags. 1. desember 2023. Þá hefur einkum verið litið til þess hvort að hegðun og framferði viðkomandi sé með þeim hætti að lögregla hafi þurft að hafa ítrekuð afskipti af þeim. Er nefndin þeirrar skoðunar að fíkniefnalagabrot varði almannaöryggi og bendir til hliðsjónar á að í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins hafa slík brot verið talin geta fallið undir hugtakið almannaöryggi (e. public security), sbr. til dæmis mál C-145/09 Tsakouridis (m.a. 46. og 47. mgr. dómsins). Enn fremur er ljóst að fíkniefnabrot kæranda hafi beinst að grundvallarhagsmunum íslensk samfélags, meðal annars þeirra hagsmuna að vernda einstaklinga og þjóðfélagið í heild gegn þeirri skaðsemi sem ávana- og fíkniefni hafa verið talin fela í sér. Hefur löggjafinn hér á landi reynt að stemma stigu við dreifingu, sölu og notkun á slíkum efnum með refsikenndum viðurlögum líkt og ákvæði almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 bera með sér. Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar með tilliti til þeirra brota sem kærandi er grunaður um og hefur hlotið dóm fyrir, að framferði hans feli í sér ógn gagnvart allsherjarreglu í skilningi k-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga og er skilyrðum ákvæðisins fyrir frávísun því fullnægt. Með vísan til alls framangreinds er lagt til grundvallar að koma kæranda hingað til lands hafi verið raunveruleg ógn við allsherjarreglu í skilningi k-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga.

Í málatilbúnaði kæranda er byggt á því að tiltekið skjal Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 10. febrúar 2026 sem sent hafi verið til talsmanns kæranda, hafi í raun verið afturköllun stjórnvaldsins á hinni kærðu ákvörðun um frávísun, dags. 27. janúar 2026. Að mati kæranda hafi skjalið verið ígildi nýrrar stjórnvaldsákvörðunar og að sú ákvörðun hafi verið staðfest af fulltrúa Lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Í umræddu skjali, sem ber með sér að vera fylgiskjal með sendingu, segir að meðfylgjandi skjalinu sé ákvörðun um afturköllun á fyrri ákvörðun Lögreglustjórans í máli kæranda. Ljóst er að um mistök hafi verið að ræða þegar umrætt skjal var sent 13. febrúar 2026 enda liggur ekki fyrir í gögnum málsins ákvörðun um afturköllun eða að slík ákvörðun hafi í raun verið tekin. Þá er ljóst að haft var samband við talsmann kæranda 19. febrúar 2026 af Lögreglustjóranum á Suðurnesjum þar sem tekið var fram að skjalið hafi verið sent fyrir mistök og ljóst að engin ákvörðun hafi verið tekin um afturköllun. Verður ekki fallist á að framangreint skjal hafi vakið réttmætar væntingar hjá kæranda um að ákvörðunin hafi verið afturkölluð og er málsástæðu kæranda hvað þetta varðar hafnað.

Að framangreindu virtu er hin kærða ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli h- og k-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga staðfest.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum er staðfest.

The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is affirmed.

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir

Var efnið hjálplegt?