30. september 2026 /

Úrskurður nr. 423/2026

Hinn 30. september 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 423/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26020035

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 11. febrúar 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Bandaríkjanna (hér eftir kærandi), ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 11. febrúar 2026, um frávísun frá Íslandi.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom til Íslands 11. febrúar 2026, með flugi frá Baltimore, Bandaríkjunum. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dagsettri sama dag, var kæranda vísað frá landinu.

Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað frá Íslandi á grundvelli c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Kom fram að hann hefði ekki atvinnuleyfi og hafi ekki getað sýnt fram á nægileg fjárráð til framfærslu á meðan á dvöl hans stæði. Kæranda var leiðbeint um að hann gæti óskað eftir rökstuðningi með vísan til 1. mgr. 21. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi óskaði ekki eftir rökstuðningi.

Samkvæmt skýrslu lögreglu, dags. 11. febrúar 2026, hafði landamæravörður samband við lögreglu vegna kæranda. Kærandi hafi greint frá því að tilgangur dvalar hans hér á landi væri að leitast eftir atvinnu en hann hafi ekki haft farmiða aftur frá landinu. Lögregla hafi boðið kæranda til frekari viðræðna í aðstöðu lögreglunnar þar sem honum hafi verið kynntur réttur sinn til að leita sér m.a. aðstoðar lögmanns á eigin kostnað samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi greint frá því að tilgangur komu hans til landsins hafi einnig verið að hitta nafngreinda kærustu sína og hafi veitt upplýsingar um heimilisfang hennar. Hann hafi greint frá því að ætla að dvelja hjá henni í mánuði hér á landi. Aðspurður hvar kærandi hygðist leita að atvinnu greindi kærandi frá því að hann myndi leita að starfi á skyndibitastað eða öðru slíku. Kærandi hafi kvaðst vita að hann þyrfti að sækja um atvinnu- og dvalarleyfi til að starfa hér á landi. Kærandi hafi ekki getað tengst netbanka sínum til að sýna fram á fjármagn en greint frá því að vera með 6.000 bandaríkjadali á reikningi sínum. Lögregla hafi haft samband við kærustu kæranda, og hún staðfest að hún væri að búast við honum og að hann hygðist dvelja hjá henni. Hún hafi einnig greint frá því að hún myndi fara með kæranda til Útlendingastofnunar til að sækja um atvinnuleyfi.

Í kjölfarið hafi lögregla tekið ákvörðun um að frávísa kæranda á grundvelli c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Lögregla hafi lagt til grundvallar að kærandi hafi ekki lagt fram umsókn um atvinnu- eða dvalarleyfi á Íslandi en væri í atvinnuleit. Þá hafi kærandi ekki getað sýnt fram á nægt fjármagn fyrir dvölinni. Eftir birtingu ákvörðunar hafi tengdamóðir kæranda haft samband við lögregluna og boðist til að aðstoða kæranda við flugmiðakaup ef þess þyrfti. Kærandi hafi farið úr landi með flugi til Baltimore sama dag.

Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 11. febrúar 2026 og var skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga, sama dag. Gögn frá lögreglu bárust kærunefnd 23. febrúar 2026. Hinn 3. mars 2026 lagði kærandi fram greinargerð vegna málsins.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er vísað til þess að kærandi njóti undanþágu frá áritunarskyldu til landsins og megi dvelja í allt að 90 daga á Íslandi án vegabréfsáritunar. Kærandi vísar til 9. viðauka við reglugerð nr. 795/2022 um vegabréfsáritanir, sbr. 20. gr. og 49. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að íslensk stjórnvöld geti ekki sett kæranda frekari skorður við komu eða athafnafrelsi á Íslandi en lög leyfi. Leiði þetta af lögmætisreglu íslenskrar stjórnskipunar, sbr. 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrár.

Samkvæmt 1. mgr. 51. gr. laga um útlendinga skuli útlendingur sækja um sitt fyrsta dvalarleyfi áður en hann komi til landsins og sé honum óheimilt að koma til landsins fyrr en umsóknin hafi verið samþykkt. Frá þessu sé heimilt að víkja sé umsækjandi undanþegin áritunarskyldu. Því liggi ekki fyrir að kærandi hafi komið til landsins í andstöðu við 51. gr. laga um útlendinga og önnur ákvæði laganna eða laga nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga. Þá ítrekar kærandi að hann hafi greint frá því að ætla að leita hér að atvinnu á meðan hann dveldi hér. Þá hafi kærandi ætlað að hitta kærustu sína og dvelja hjá henni. Af skýrslu lögreglu megi ráða að kærandi hafi verið meðvitaður um að þurfa að sækja fyrst um atvinnu- og dvalarleyfi hygðist hann starfa hér. Kærandi vísar til þess að það hafi ekki verið rétt að halda því fram að hann hafi ætlað að hefja störf án tilskyldra leyfa.

Kærandi hafnar því að hafa ekki haft næg fjárráð til dvalar á Íslandi. Kærandi hafi greint lögreglu frá innistæðu sinni á bankareikningi. Sú innistæða sé margföld sú framfærsla sem honum beri að sýna fram á. Kærandi hafi jafnframt greint frá dvalarstað hjá kærustu sinni en hún hafi einnig verið reiðubúin að ábyrgjast framfærslu hans. Kærandi telur að hann hafi uppfyllt skilyrði 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri og gerir athugasemd við að lögregla hafi slegið því föstu að hann gæti ekki framfleytt sér hér á landi án frekari rannsóknar. Kærandi telur að lögreglu hafi borið að leiðbeina kæranda í samræmi við 7. gr. stjórnsýslulaga um hvaða gögn hann gæti lagt fram til að sýna fram á framfærslu, sem og að gæta að sjónarmiðum 12. gr. stjórnsýslulaga. Lögregla hafi getað kannað betur fjölskylduaðstæður kæranda og veitt honum tækifæri á að hafa samband við bankastofnun sína. Kærandi vísar í þessu samhengi til tveggja úrskurða kærunefndar nr. 708/2024 og 462/2024 þar sem ákvarðanir lögreglunnar hafi ekki verið í samræmi við skýrleikareglu stjórnsýsluréttar auk þess sem skort hafi efni rökstuðnings. Kærandi telur að vísun lögreglunnar til c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga og rökstuðningur embættisins leiði til þess að felli beri hina kærðu ákvörðun úr gildi.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem ekki þarf vegabréfsáritun til landgöngu heimilt að dveljast hér á landi í 90 daga frá komu til landsins. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu telst jafngilda dvöl hér á landi. Kærandi er ríkisborgari Bandaríkjanna og þarf því ekki vegabréfsáritun til landgöngu hér á landi, enda sé hann handhafi vegabréfs með lífkennum.

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 11. febrúar 2026, byggir á c- og d-liðum 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017.

Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins.

Samkvæmt c-lið ákvæðisins er heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri. Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.

Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 um för yfir landamæri er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a- til e-liðum ákvæðisins.

Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.

Ákvörðun lögreglunnar um að frávísa kæranda með vísan til c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er byggð á því að kærandi hafi ekki verið búinn að sækja um atvinnu- eða dvalarleyfi á Íslandi en hafi greint frá því að vera í leit að atvinnu, sbr. fyrri hluta ákvæðisins. Samkvæmt gögnum málsins kvaðst kærandi vera kominn til landsins til að dvelja hjá kærustu sinni í mánuð. Kærandi gaf upp upplýsingar um dvalarstað og símanúmer. Kærandi greindi frá því að hann hygðist leita sér að starfi hér á landi en hefði ekki lagt fram umsókn um atvinnu- og dvalarleyfi. Kærandi greindi frá því að hann myndi sækja um atvinnu- og dvalarleyfi ef til þess kæmi. Lögregla átti símtal við kærustu kæranda, sem staðfesti að kærandi hygðist dvelja hjá henni og að hún hygðist styðja hann við að leggja fram umsókn um dvalarleyfi.

Líkt og að framan er rakið er kærandi undanþeginn skyldu til að hafa vegabréfsáritun fyrir komu til landsins og er því heimilt dvelja hér á landi í 90 daga án þess að hafa vegabréfsáritun. Í samræmi við 51. gr. laga um útlendinga getur einstaklingur sem hyggst leggja fram umsókn um atvinnu- og dvalarleyfi lagt fram umsókn eftir komuna til landsins sé hann undanþeginn áritunarskyldu. Gögn málsins benda ekki til þess að kærandi hafi áður starfað ólöglega hér á landi og var því ekki ástæða til að draga í efa trúverðugleika framburðar kæranda. Á grundvelli áritunarfrelsis síns var kæranda heimilt að dveljast hér á landi, kanna atvinnumöguleika sína og jafnframt leggja fram umsókn um atvinnu- og dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun hygðist hann gera það, svo lengi sem hann dveldi ekki umfram heimilan dvalartíma. Með vísan til þess og annarra atvika málsins verður ekki talið að skilyrði til frávísunar á grundvelli fyrri hluta c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga hafi verið uppfyllt með vísan til þeirra röksemda lögreglunnar um að kærandi hafi ekki verið búinn að sækja um atvinnu- eða dvalarleyfi á Íslandi.

Samkvæmt d-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann getur ekki sýnt fram á að hann hafi eða eigi tryggð nægileg fjárráð til dvalar hér á landi og til heimferðar. Fram kemur í athugasemdum við ákvæðið að meta þurfi hverju sinni hvenær útlendingur teljist hafa nægileg fjárráð til framfærslu og til heimferðar. Þá yrði skilyrðum um nægileg fjárráð til heimferðar t.d. fullnægt með framvísun farmiða. Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri skal við mat á því hvort útlendingur teljist hafa nægileg fjárráð m.a. tekið mið af lengd og tilgangi dvalar. Mat á fjárráðum megi byggja á reiðufé, ferðatékkum og greiðslukortum sem útlendingur sé handhafi að.

Samkvæmt gögnum málsins greindi kærandi frá því að hafa ekki verið með farmiða frá landinu. Aðspurður hafi kærandi greint frá því að vera með 6.000 bandaríkjadali á bankareikningi sínum, sem samsvarar 739.620 á gengi umrædds dags, en hann hafi ekki getað tengst netbanka sínum til að sýna fram á það. Fjármagn sem kærandi kvaðst hafa aðgang að nægir fyrir dvöl kæranda og flugmiða til heimferðar einkum með hliðsjón af því að kærandi hugðist dvelja á heimili kærustu sinnar. Af skýrslu lögreglu verður ekki ráðið að hvaða leyti kærandi hafi ekki náð að tengjast netbanka sínum, hvort að kærandi hafi ekki náð að tengjast interneti eða hvort um tæknilega örðugleika hafi verið að ræða í síma hans. Jafnframt verður ekki ráðið af skýrslu lögreglu að honum hafi verið leiðbeint með frekari hætti um mikilvægi þess að afla staðfestingar frá bankastofnun sinni eða sýna fram á innistæðu á bankareikningi sínum til að geta sýnt fram á nægileg fjárráð til dvalar hér á landi og til heimferðar. Með vísan til atvika málsins var leiðbeiningarskyldu lögreglunnar áfátt að þessu leyti. Að því virtu voru skilyrði til frávísunar á grundvelli d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga ekki uppfyllt. Áréttast í þessu sambandi að ákvörðun um frávísun er íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki ástæða til að taka afstöðu til annarra athugasemda kæranda við málsmeðferð lögreglunnar.

Samantekt

Að öllu framangreindu virtu er hin kærða ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, felld úr gildi.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum er felld úr gildi.

The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is vacated.

Þorsteinn Gunnarsson

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Var efnið hjálplegt?