Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Síðbúinn skil ársreiknings

Hinn 20. maí 2025, var í atvinnuvegaráðuneytinu

kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:

 

Stjórnsýslukæra

Þann 29. janúar 2025 barst ráðuneytinu erindi [A] (hér eftir kærandi) f.h. [B] ehf. kt. […] og [C] ehf. kt. […] (hér eftir félögin), þar sem borin er fram kæra vegna ákvarðana ársreikningaskrár hjá ríkisskattstjóra (hér eftir ársreikningaskrá) frá 3. janúar 2025 um að hafna beiðni um niðurfellingu stjórnvaldssekta sem ársreikningaskrá lagði á félögin, hinn 1. október 2024, þar sem ársreikningi fyrir reikningsárið 2023 hafði ekki verið skilað innan tilskilins frests.

Stjórnsýslukæran er byggð á 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 (hér eftir stjórnsýslulög).

Kröfur

Kærandi krefst þess að stjórnvaldssektin verði felld niður.

 

Málsatvik

Eins og kemur fram að ofan, þá hafnaði ársreikningaskrá, hinn 3. janúar 2025, beiðni kæranda um niðurfellingu stjórnvaldssekta sem ársreikningaskrá lagði á félögin, hinn 1. október 2024, þar sem ársreikningum fyrir reikningsárið 2023 hafði ekki verið skilað innan tilskilins frests.

Hinn 29. janúar 2025 barst erindi kæranda. Í erindi sínu vísar kærandi til þess að félögin hafi verið stofnuð árið 2023. Enginn starfsemi hafi verið á því reikningsári og hafi kærandi skilað skattskýrslu fyrir það ár. Kærandi hafi orðið þess var í lok nóvember 2024 að félögin hefðu verið sektuð þar sem að ársreikningi hefði ekki verið skilað. Kærandi tekur fram að enginn áminning hafði borist honum um ársreikningaskil. Kærandi greinir frá því að einungis hefðu tilkynningar farið fram á island.is en Skatturinn hafi ekki sent netfang hans til umsjónaraðila island.is. Kærandi vísar einnig til þess að honum hafi ekki verið veitt raunveruleg aðvörun um að skil á ársreikningi hefðu ekki átt sér stað. Það sé ósamræmi í framkvæmd hjá Skattinum að senda tölvupósta vegna annarra skattskila en ekki vegna ársreikninga. Kærandi telji það óeðlilegt að gera þá kröfu að einstaklingar og fyrirtæki heimsæki vefsíðu Skattsins reglulega til þess að leita að hugsanlegum vanhöldum þegar önnur skilaboð sendast með tölvubréfi. Enn fremur vísar kærandi til þess að Skatturinn hafi sent fjölpóst til allra félaga í desember 2024 þar sem athygli sé vakin á því að skrá sig hjá island.is til að tryggja að tilkynningar skili sér. Kærandi áréttar að lokum að refsingin sé óhófleg og íþyngjandi fyrir félög sem höfðu ekki hafið starfsemi og að enginn tilraun hafi verið gerð til þess að koma áminningu til kæranda með hefðbundnum hætti.

Hinn 4. febrúar 2025 beindi ráðuneytið fyrirspurn til ársreikningaskrá þar sem óskað var eftir upplýsingum um hvort að kærandi hafi fengið tölvubréf fyrir sektarálagningu. Hinn 23. mars 2025 var erindi ráðuneytisins ítrekað.

Hinn 24. mars 2025 barst fyrirspurn frá kæranda um stöðu á máli hans. Með tölvubréfi ráðuneytisins, dags. 26. mars 2025, var kæranda tilkynnt um að mál hans hefði verið tekið til meðferðar.

Hinn 28. mars 2025 tilkynnti ársreikningaskrá ráðuneytinu að tæknimaður gæti ekki staðfest hvort að félögin hefðu fengið tilkynningar með tölvubréfi. Jafnframt var áréttað að tölvubréfið hefði ekki verið á forræði ársreikningaskrá. Sama dag upplýsti ársreikningaskrá ráðuneytið að það hefði sent frekari beiðni um upplýsingar á tæknisvið. Hinn 10. apríl 2025 sendi ráðuneytið fyrirspurn um hvort tæknisvið hefði orðið við framangreindri upplýsingabeiðni. Hinn 14. apríl 2025 ítrekaði ráðuneytið fyrirspurn sína.

Hinn 2. maí 2025 óskaði kærandi eftir upplýsingum um hvenær hann gæti ætt von á niðurstöðu í málinu. Ráðuneytið svaraði kæranda samdægurs með tölvubréfi þar sem fram kom að enn væri verið að bíða eftir upplýsingum frá tæknisviði hjá hinu lægra settu stjórnvaldi.

Hinn 6. maí 2025 óskaði ráðuneytið eftir afriti af ákvörðun ársreikningaskrá í máli [B] ehf. Jafnframt óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum um hvort að áminningar um skil á ársreikningum hefðu verið birtar í fjölmiðlum.

Hinn 12. maí 2025 upplýsti ársreikningaskrá að samkvæmt svari tæknisviðs hefðu félögin ekki fengið „kynningarpóstinn um pósthólfið á ísland.is sem var sendur út um miðjan desember.“ Einnig var það áréttað að tölvubréfið sem sent var út í desember 2024 væri ekki sent samkvæmt lagaskyldu heldur eingöngu almennar upplýsingar um stafræna pósthólfið og hvað væri að fara að gerast á árinu 2025. Notast hafi verið við ákveðinn netfangabanka og ljóst að tölvubréfin myndu fara fram hjá einhverjum. Af þeim sökum hafi Skatturinn auglýst einnig á heimasíðu sinni, samfélagsmiðlum, í spjallmenni og á fleiri stöðum til þess að reyna ná til sem flestra. Stafrænt Ísland hafi einnig verið með auglýsingar.

Hinn 13. maí 2025 bárust enn frekari upplýsingar um auglýsingarferli ársreikningaskrá. Fram kom að minnt er á skil ársreikninga í auglýsingum í fjölmiðlum sem og á samfélagsmiðlum. Samkvæmt ársreikningaskrá voru heilsíðuauglýsingar í morgunblaðinu og viðskiptablaðinu 14. ágúst 2024. Þá var aftur heilsíðuauglýsing í viðskiptablaðinu 18. september 2024 og auglýsing í morgunblaðinu 19. september 2024.

 

Forsendur og niðurstaða

I.

Samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 3. gr. laga um ársreikninga ber stjórn og framkvæmdastjóri ábyrgð á gerð, skilum og birtingu ársreiknings fyrir hvert reikningsár.

Samkvæmt 1. mgr. 109. gr. laga um ársreikninga skal félag skv. 1. gr. laganna senda ársreikningaskrá ársreikning sinn, ásamt áritun endurskoðenda eða undirritun skoðunarmanna og upplýsingum um hvenær ársreikningurinn var samþykktur, eigi síðar en mánuði eftir samþykkt ársreiknings og samstæðureiknings en þó eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs.

Samkvæmt 1. mgr. 120. gr. laga um ársreikninga skal ársreikningaskrá leggja stjórnvaldssektir að fjárhæð 600.000 kr. á þau félög sem vanrækja að skila ársreikningi eða samstæðureikningi til opinberrar birtingar innan frests sem kveðið er á um í 109. gr. laganna. Skal ársreikningaskrá jafnframt krefjast úrbóta.

Samkvæmt 2. mgr. 120. gr. laga um ársreikninga skal lækka sektarfjárhæðina um 90% ef úrbætur eru gerðar innan 30 daga frá tilkynningu um álagningu stjórnvaldssektar. Ef úrbætur eru gerðar innan tveggja mánaða frá tilkynningu sektarfjárhæðar skal lækka sektarfjárhæðina um 60% og ef úrbætur eru gerðar innan þriggja mánaða frá tilkynningu sektarfjárhæðar skal lækka sektarfjárhæðina um 40%.

Samkvæmt 8. mgr. 120. gr. laga um ársreikninga er heimilt að lækka eða fella niður stjórnvaldssekt skv. 1. og 2. mgr. sömu greinar hafi óviðráðanleg atvik sannarlega valdið því að félag hafi ekki staðið skil á ársreikningi eða samstæðureikningi til opinberrar birtingar innan þeirra fresta sem kveðið er á um í 109. gr. laganna.

II.

Félagið sem um ræðir í málinu er einkahlutafélag og fellur sem slíkt undir ákvæði laga um ársreikninga, m.a. ákvæði 109. gr. laganna um skil ársreikninga til ársreikningaskrár til opinberrar birtingar. Ljóst er að kæranda bar að skila ársreikningum innan þess frests sem kveðið er á um í 2. mgr. 109. gr. laga um ársreikninga. Ársreikningaskrá lagði stjórnvaldssekt á kæranda að fjárhæð 600.000 kr. fyrsta virka dag eftir það tímamark og skoraði jafnframt á kæranda að skila ársreikningi félagsins sem allra fyrst.

Samkvæmt 8. mgr. 120. gr. laga um ársreikninga er heimilt að lækka eða fella niður stjórnvaldssekt skv. 1. og 2. mgr. sömu greinar hafi óviðráðanleg atvik sannarlega valdið því að félag hafi ekki staðið skil á ársreikningi til opinberrar birtingar innan þeirra fresta sem kveðið er á um í 109. gr. Um undantekningareglu er að ræða sem ber að túlka þröngt.

Í athugasemdum í greinargerð með frumvarpi því sem lögfesti umrædda undaþáguheimild kemur fram að dæmi um atvik sem falla ekki undir ákvæðið séu m.a. skortur á þekkingu á gildandi lögum og reglum, lítill eða enginn rekstur, slæm fjárhagsstaða í félaginu eða þegar sektarfjárhæð er stór hluti af útgjöldum félagsins.

Það er mat ráðuneytisins að ofangreindar málsástæður kæranda geta ekki fallið undir undanþáguheimild 8. mgr. 120. gr. laga um ársreiknings. Ekki verður fallist á að kæranda hafi ekki mátt vera ljóst um lögmælta skyldu sína, samkvæmt 2. mgr. 3. gr. laga um ársreikninga, til þess að skila ársreikningi til ársreikningaskrá þótt að hann hafi ekki fengið áminningu þess efnis frá stjórnvöldum með tölvupósti. Enn fremur hefur komið fram að skilin voru auglýst í fjölmiðlum, samfélagsmiðlum og öðrum stöðum. Þá er ljóst að málsástæða kæranda um að félagið hafi ekki verið í rekstri fellur ekki undir undanþáguheimildina með vísan til ofangreindra athugasemda í greinargerð með frumvarpi því sem lögfesti umrædda undanþáguheimild.

Með vísan til þess sem að framan greinir er það niðurstaða ráðuneytisins að staðfesta ákvarðanir ársreikningaskrár frá 3. janúar 2025 um að hafna beiðni um niðurfellingu stjórnvaldssekta sem lagðar voru á félögin vegna síðbúinna skila ársreikninga. Þá er vakin athygli á að úrskurðurinn verður einungis sendur með rafrænum hætti, nema annars sé óskað.

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir ársreikningaskrár ríkisskattstjóra, dags. 3. janúar 2025, um að hafna beiðni um niðurfellingu stjórnvaldssekta á félögin [B] ehf. og [C]ehf. vegna síðbúinna skila á ársreikningum er staðfest.

Var efnið hjálplegt?