Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Síðbúinn skil ársreiknings

Hinn 1. apríl 2025, var í atvinnuvegaráðuneytinu

kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:

 

Stjórnsýslukæra

Þann 9. janúar 2025 barst ráðuneytinu erindi [A] (hér eftir kærandi) f.h. [B] ehf. kt. […] (hér eftir félagið), þar sem borin er fram kæra vegna ákvörðunar ársreikningaskrár hjá ríkisskattstjóra (hér eftir ársreikningaskrá) frá 2. janúar 2025 um að hafna beiðni um niðurfellingu stjórnvaldssekta sem ársreikningaskrá lagði á félagið, hinn 3. október 2023 og 1. október 2024, þar sem ársreikningum fyrir reikningsárin 2022 og 2023 hafði ekki verið skilað.

Stjórnsýslukæran er byggð á 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 (hér eftir stjórnsýslulög).

 

Kröfur

Kærandi krefst þess að stjórnvaldssektir verði felldar niður.

 

Málsatvik

Félaginu voru sendar rafrænar tilkynningar um að því bæri að skila ársreikningi til opinberrar birtingar innan tilgreindra tímamarka.

Að skilafrestum loknum var fésekt að fjárhæð kr. 600.000 lögð á félagið þar sem ársreikningi þess fyrir viðkomandi reikningsár hafði ekki verið skilað, sbr. 1. mgr. 120. gr. laga nr. um ársreikninga nr. 3/2006 (hér eftir lög um ársreikninga).

Kærandi óskaði eftir niðurfellingu sektar hjá ársreikningaskrá hinn 31. desember 2024. Með ákvörðun ársreikningaskrá, dags. 2. janúar 2025, var beiðni kæranda hafnað.

Hinn 9. janúar 2025 barst ráðuneytinu kæra á ákvörðun ársreikningaskrá. Hinn 31. janúar 2025 óskaði ráðuneytið eftir umsögn frá ársreikningaskrá vegna kærunnar. Hinn 14. febrúar barst ráðuneytinu umbeðin umsögn.

Með tölvubréfi, dags. 17. febrúar 2025, var óskað eftir andmælum kæranda við umsögn ársreikningaskrá. Í bréfinu var kæranda veittur frestur til 10. mars 2025 til þess að koma andmælum sínum á framfæri. Enginn andmæli bárust.

Hinn 1. apríl 2025 óskaði ráðuneytið eftir gögnum um félagið frá fyrirtækjaskrá. Gögnin bárust samdægurs. Meðal gagna var tilkynning um breytingu á stjórn, dags. 21. desember 2011, þar sem fram kom nafn stjórnarformanns og varamanns.

 

Sjónarmið kæranda

Í erindi sínu vísar kærandi m.a. til þess hún sé eini starfsmaður félagsins. Kærandi greinir einnig frá því að eftir covid-19 faraldurinn hafi hún verið illa vinnufær vegna veikinda. Afleiðing þessa veikinda hafi verið sein skil ársreikninga félagsins. Kærandi benti jafnframt á að skil á uppgjöri, framtali og ársreikningum fyrir viðskiptavini hafi gengið fyrir hjá kæranda. Kærandi kveðst ekki hafa minnkað við sig vinnu vegna afkomukvíða og traust á því að heilsa hennar myndi skána.

 

Sjónarmið ársreikningaskrár

Í umsögn ársreikningaskrá er m.a. vísað til þess að 8. mgr. 120. gr. laga um ársreikninga sé undantekningarregla sem túlka ber þröngt. Einnig er vísað til þess að ársreikningaskrá telji að þær aðstæður í máli kæranda, þ.e. langvarandi veikindi eina stjórnarmanns og framkvæmdastjóra félagsins, geti ekki talist óviðráðanleg atvik sem sannarlega hafi valdið því að félagið hafi ekki staðið skil á ársreikningi innan þeirra fresta sem kveðið er á um í 109. gr. laga um ársreikninga, sem heimili lækkun eða niðurfellingu á fésekt skv. 8. mgr. 120. gr. laganna. Jafnframt hafi ársreikningaskrá ekki þótt tilefni til að óska eftir læknisvottorði, með vísan til athugasemda í greinagerð með frumvarpi því sem lögfesti umrædda undanþáguheimild um að veikindi hjá einum af þeim sem ber ábyrgð á skilum ársreikninga félagsins falli ekki þar undir.

 

Forsendur og niðurstaða

I.

Í 3. gr. laga um ársreikninga er fjallað um samningu ársreiknings. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að stjórn og framkvæmdastjóri félags beri ábyrgð á gerð, skilum og birtingu ársreiknings fyrir hvert reikningsár. Samkvæmt 3. mgr. ákvæðisins skulu stjórn og framkvæmdastjóri jafnframt undirrita ársreikninginn.

Samkvæmt 1. mgr. 109. gr. laga um ársreikninga skal félag skv. 1. gr. laganna senda ársreikningaskrá ársreikning sinn, ásamt áritun endurskoðenda eða undirritun skoðunarmanna og upplýsingum um hvenær ársreikningurinn var samþykktur, eigi síðar en mánuði eftir samþykkt ársreiknings og samstæðureiknings en þó eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs.

Samkvæmt 1. mgr. 120. gr. laga um ársreikninga skal ársreikningaskrá leggja stjórnvaldssektir að fjárhæð 600.000 kr. á þau félög sem vanrækja að skila ársreikningi eða samstæðureikningi til opinberrar birtingar innan frests sem kveðið er á um í 109. gr. laganna. Skal ársreikningaskrá jafnframt krefjast úrbóta.

Samkvæmt 2. mgr. 120. gr. laga um ársreikninga skal lækka sektarfjárhæðina um 90% ef úrbætur eru gerðar innan 30 daga frá tilkynningu um álagningu stjórnvaldssektar. Ef úrbætur eru gerðar innan tveggja mánaða frá tilkynningu sektarfjárhæðar skal lækka sektarfjárhæðina um 60% og ef úrbætur eru gerðar innan þriggja mánaða frá tilkynningu sektarfjárhæðar skal lækka sektarfjárhæðina um 40%.

Samkvæmt 8. mgr. 120. gr. laga um ársreikninga er heimilt að lækka eða fella niður stjórnvaldssekt skv. 1. og 2. mgr. sömu greinar hafi óviðráðanleg atvik sannarlega valdið því að félag hafi ekki staðið skil á ársreikningi eða samstæðureikningi til opinberrar birtingar innan þeirra fresta sem kveðið er á um í 109. gr. laganna.

II.

Félagið sem um ræðir í málinu er einkahlutafélag og fellur sem slíkt undir ákvæði laga um ársreikninga, m.a. ákvæði 109. gr. laganna um skil ársreikninga til ársreikningaskrár til opinberrar birtingar. Ljóst er að kæranda bar að skila ársreikningum vegna reikningsársins 2022 og 2023 innan þess frests sem kveðið er á um í 2. mgr. 109. gr. laga um ársreikninga. Ársreikningaskrá lagði stjórnvaldssekt á kæranda að fjárhæð 600.000 kr. fyrsta virka dag eftir það tímamark og skoraði jafnframt á kæranda að skila ársreikningi félagsins vegna reikningársins 2023 sem allra fyrst.

Samkvæmt 8. mgr. 120. gr. laga um ársreikninga er heimilt að lækka eða fella niður stjórnvaldssekt skv. 1. og 2. mgr. sömu greinar hafi óviðráðanleg atvik sannarlega valdið því að félag hafi ekki staðið skil á ársreikningi til opinberrar birtingar innan þeirra fresta sem kveðið er á um í 109. gr. Um undantekningareglu er að ræða sem ber að túlka þröngt. Í athugasemdum í greinargerð með frumvarpi því sem lögfesti umrædda undaþáguheimild kemur fram að dæmi um atvik sem falla ekki undir ákvæðið sé m.a. veikindi hjá einum af þeim sem ábyrgð ber á að skila ársreikningi.

Kærandi hefur, eins og áður hefur komið fram, borið fyrir sig veikindi og að kærandi sé jafnframt eini starfsmaður félagsins. Kærandi hefur einnig vísað til þess að skil á uppgjöri, framtali og ársreikningum fyrir viðskiptavini sína hafi gengið fyrir skilum á sínum eigin ársreikningum.

Það er mat ráðuneytisins að veikindi kæranda geta ekki fallið undir undanþáguheimild 8. mgr. 120. gr. laga um ársreikninga á þeim grundvelli að kærandi sinnti störfum sínum á veikindatímabili sínu sem hafi m.a. falið í sér skil á ársreikningum félaga. Því er ekki hægt að álykta annað en að kærandi hafi verið fær um að skila ársreikningum sínum innan lögbundna fresta. Jafnframt kom það fram í ofangreindum upplýsingum frá fyrirtækjaskrá að skráður sé varamaður í stjórn félagsins. Til staðar var því annar sem bar ábyrgð á að skila ársreikningi í fjarveru/við veikindi stjórnarmanns. Getur því undanþáguheimildin ekki átt við í máli þessu.

Með vísan til þess sem að framan greinir er það niðurstaða ráðuneytisins í málinu að staðfesta ákvörðun ársreikningaskrár frá 2. janúar 2025 um að hafna beiðni um niðurfellingu stjórnvaldssekta sem lagðar voru á félagið vegna síðbúinna skila ársreikninga vegna reikningsárana 2022 og 2023. Þá er vakin athygli á að úrskurðurinn verður einungis sendur með rafrænum hætti, nema annars sé óskað.

Úrskurðarorð

Ákvörðun ársreikningaskrár ríkisskattstjóra, dags. 2. janúar 2025, að hafna beiðni um niðurfellingu stjórnvaldssekta á félagið [B] ehf. vegna síðbúinna skila ársreikninga vegna reikningsáranna 2022 og 2023 er staðfest.

Var efnið hjálplegt?