08. júl. 2026Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar, Úrskurðir, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Mál nr. 98/2026-Úrskurður
Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. EES-samningurinn. Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn kæranda um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar. Samkvæmt 29. gr. EES-samningsins og 6. gr. reglugerðar (EB) nr. 883/2004 er meginreglan sú að taka ber tillit til trygginga-, starfs- eða búsetutímabila sem umsækjandi um greiðslur hefur lokið í öðrum aðildarríkjum þegar metið er hvort hann uppfylli skilyrði um trygginga-, starfs- eða búsetutímabil í því aðildarríki sem sótt er um réttindi. Fyrir liggur að Tryggingastofnun hefur hvorki vísað til ákvæðis í reglugerð (EB) nr.…