03. sep. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Framhaldsfræðsla, Innflytjendur, Útlendingar
Úttektir á íslenskukennslu fyrir útlendinga
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur ákveðið að styðja við þrjár rannsóknir og úttektir á íslenskukennslu fyrir útlendinga, auk þess að láta framkvæma kerfisbundna greiningu á innlendum og alþjóðlegum ritrýndum rannsóknum sem varða framhaldsfræðslu. Á vegum félags- og vinnumarkaðsráðuneytis er nú unnið að heildarendurskoðun á framhaldsfræðslukerfinu og lögum um framhaldsfræðslu og eru verkefnin liður í þeirri vegferð.