02. nóv. 2021Auðlindir, Líf og heilsa, Covid-19, Ferðaþjónusta, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið
Skýrslu um fæðuöryggi á Íslandi skilað
Innlend matvælaframleiðsla stendur fyrir stórum hluta fæðuframboðs á Íslandi og þá sérstaklega próteini. Garðyrkjan sér fyrir um 43% af framboði grænmetis, búfjárrækt um 90% af kjöti, 96% af eggjum og 99% af mjólkurvörum. Mikilvægt er að marka stefnu um hvernig tryggja megi fæðuöryggi þjóðarinnar. Þetta eruniðurstöður skýrslu um fæðuöryggi á Íslandi sem unnin var af Landbúnaðarháskóla Íslands að beiðni Kristjáns Þórs Júlíussonar.