11. júl. 2022Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið
Leiðtogafundur Evrópuráðsins haldinn á Íslandi
Fjórði leiðtogafundur í sögu Evrópuráðsins verður haldinn á Íslandi 16.-17.maí 2023. Forsætisráðherra Íslands og utanríkisráðherra Írlands tilkynntu í morgun formlega ákvörðun Evrópuráðsins um að efna til leiðtogafundar undir formennsku Íslands í ráðinu. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Íslands verða gestgjafar fundarins.