21. des. 2021Líf og heilsa, Ferðaþjónusta, Leit og björgun, Löggæsla, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið
Lilja Dögg skipar verkefnastjórn um úrbætur í öryggismálum ferðaþjónustunnar
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að skipa verkefnastjórn til að móta tillögur um úrbætur í öryggismálum tengdri ferðaþjónustunni. Fyrirhugað er að í verkefnisstjórninni sitji fulltrúar frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, sem stýri starfi hópsins, dómsmálaráðuneytinu, Ferðamálastofu, Ríkislögreglustjóra, Samtökum ferðaþjónustunnar, Slysavarnafélaginu Landsbjörg og Umhverfisstofnun.