Sendiráð Íslands í París
Menning
Menning
Sendiráð gegna mikilvægu hlutverki á sviði menningar. Sendiráðið gætir lögum samkvæmt menningarhagsmuna Íslands erlendis, miðlar og fræðir um íslenskan menningararf og samtímamenningu, skipuleggur menningarviðburði gjarnan í samstarfi við menningarstofnanir og kynningarmiðstöðvar, styður við viðskiptatækifæri á sviði skapandi greina, er bakhjarl listafólks og annarra fulltrúa íslensks menningarlífs, kemur á tengslum, miðlar upplýsingum um listviðburði á heimasíðu og til tengiliða sendiráðsins.
Sendiráðin byggja starfsemi sína á árlegum menningaráætlunum en verkefni spretta upp árið um kring og leitast sendiráðið við að koma upplýsingum á framfæri eða styðja við með öðrum hætti