Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Upplýsingatæknimál ríkisins
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 51–100 af 239
    Raða eftir:
    16. nóv. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Ísland hækkar um fjögur sæti milli ára

    Ísland er í sjöunda sæti meðal Evrópuþjóða þegar kemur að stafrænni opinberri þjónustu samkvæmt árlegri könnun Evrópusambandsins.

    05. nóv. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Atvinnuvegaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Samstarfsvettvangur um European Digital Innovation Hub á Íslandi

    Íslensk stjórnvöld vinna nú að undirbúningi á þátttöku Íslands í áætlun Evrópusambandsins um stafræna Evrópu (DIGITAL Europe). Áætlunin varir frá 2021 til 2027 og er gert ráð fyrir að aðild Íslands verði staðfest um mitt árið 2021.

    04. sep. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Léttum lífið - Spörum sporin og aukum hagkvæmni

    Hvernig bætum við opinbera þjónustu og léttum líf almennings á sama tíma og við spörum skattgreiðendum pening? Hvaða hlutverk leika fjárfesting og áhersla á stafræna tækni í þessum efnum? Hvernig á opinber þjónusta að vera til framtíðar? Þessum spurningum og fleirum verður svarað á opnum viðburði fjármála- og efnahagsráðuneytisins miðvikudaginn 14. apríl næstkomandi en yfirskrift hans er Léttum lífið: Spörum sporin og aukum hagkvæmni með umbótum í opinberri þjónustu.

    27. ágú. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Drög að opinberri skýjastefnu í samráðsgátt

    Drög að skýjastefnu hins opinbera hafa verið lögð í samráðsgátt. Þetta er í fyrsta sinn sem stefna er unnin um notkun skýjalausna, en hún er mikilvægur hluti stafrænna umskipta og er markmið stefnunnar að samræma markmið í notkun slíkra lausna og útfærslu þeirra.

    23. ágú. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Ráðstefnan Tengjum ríkið haldin í annað sinn

    Ráðstefnan Tengjum ríkið, þar sem fjallað er um stafræna framtíðarsýn hins opinbera og nýjungar sem unnið er að til að stórefla stafræna þjónustu, verður haldin 26. ágúst næstkomandi. Þetta er í annað sinn sem ráðstefnan er haldin, en hún fór fram í fyrsta sinn á síðasta ári.

    15. jún. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Aukið hagræði og betri þjónusta með stafrænu pósthólfi

    Skilvirkni og gagnsæi eykst og opinber þjónusta batnar með nýsamþykktum lögum Alþingis um stafrænt pósthólf. Þau fela í sér að allir með íslenska kennitölu fá slíkt pósthólf sem hið opinbera nýtir til að koma gögnum til fólks. Með lögunum verður meginreglan sú að gögnum sé miðlað til einstaklinga og lögaðila með stafrænum hætti í gegnum miðlæga gátt, sem Ísland.is er þegar vísir að.

    31. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Umgjörð stafrænnar þjónustu bætt með fullri aðild Íslands að NIIS

    Stórum áfanga í átt að betri umgjörð stafrænnar þjónustu er náð með fullri aðild Íslands NIIS-stofnuninni (Nordic Institute for Interoperability Solutions), sem tekur gildi 1. júní, en Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur undirritað samning um aðildina. Stofnuninni var komið á fót árið 2017 af eistneskum og finnskum stjórnvöldum. Hún er óhagnaðardrifin og vinnur að framþróun Straumsins (X-Road) – gagnaflutningskerfis sem gerir stofnunum kleift að veita örugga stafræna þjónustu.

    18. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Sýslumenn

    Nýr vefur sýslumanna á Ísland.is

    Dómsmálaráðherra opnaði í dag nýjan vef sýslumanna á Ísland.is ásamt Kristínu Þórðardóttur formanns Sýslumannaráðs og Andra Heiðari Kristinssyni framkvæmdastjóra Stafræns Íslands.

    03. maí 2021Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ánægja með þjónustu opinberra stofnana en tækifæri til umbóta

    Á heildina litið er almenningur nokkuð ánægður með þjónustu opinberra stofnana. Þetta sýna niðurstöður þriðja og síðasta áfanga þjónustukönnunar Gallup sem lauk í febrúar sl. Ríkisstjórnin vinnur markvisst að því að bæta almannaþjónustu og er könnunin liður í þeirri vinnu.

    16. apr. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Stefna um stafræna þjónustu stjórnvalda í samráðsgátt

    Stafræn þjónusta hins opinbera á að vera skýr, örugg, einföld og hraðvirk þannig að fólk komist beint að efninu, hvar og hvenær sem er. Þetta kemur fram í drögum að nýrri stefnu um stafræna þjónustu sem nú er til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

    13. apr. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Léttum lífið - Viðburður um opinbera þjónustu til framtíðar

    Hvernig á opinber þjónusta að vera til framtíðar? Miðvikudaginn 14. apríl stendur fjármála- og efnahagsráðuneytið fyrir opnum viðburði þar sem fjallað verður um hvernig bæta megi opinbera þjónustu og létta líf almennings á sama tíma og peningar skattgreiðenda sparast. Yfirskrift viðburðarins er Léttum lífið: Spörum sporin og aukum hagkvæmni með umbótum í opinberri þjónustu.

    24. mar. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins

    10-12 þúsund bílferðir sparast árlega með stafrænum skilavottorðum ökutækja

    Undanfarið hefur fjöldi stafrænna umsókna og ferla bæst við vefinn Ísland.is, upplýsinga- og þjónustuveitu opinberra aðila á Íslandi. Nýlega urðu skilavottorð vegna úr sér genginna ökutækja stafræn sem felur í sér mikinn sparnað á tíma almennings, fyrirtækja og stofnana. Ætla má að breytingarnar spari um 10-12 þúsund bílferðir á ári sem áður þurfti til að ljúka undirritun pappíra.

    19. mar. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Undirritaði samevrópska ráðherrayfirlýsingu um stafræna tækni

    Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra undirritaði í dag viljayfirlýsingu ráðherra Evrópusambandsins og EFTA-ríkjanna um tæknimál. Yfirlýsingin felur í sér vilja ríkjanna til að leggja áherslu á nýtingu stafrænnar tækni í því skyni að ná markmiðum í loftslagsmálum og auka sjálfbærni.

    09. mar. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Samantekt um tæknilega innviði og rafræna þjónustu hins opinbera

    Í samræmi við ályktun Alþingis frá árinu 2019 um að stórefla vinnu í upplýsingatækni hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið unnið samantekt um verkefni sem unnin hafa verið þvert á stofnanir ríkis og sveitarfélaga.

    03. mar. 2021Dómsmálaráðuneytið, Sýslumenn, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Hægt að sækja um meistarabréf stafrænt

    Iðnaðarmenn sem öðlast meistararéttindi geta nú sótt um meistarabréf sín rafrænt eftir að opnað var fyrir stafrænar umsóknir um meistarabréf í löggiltum iðngreinum á vefnum Ísland.is.

    23. nóv. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Stafræn vinnuvélaskírteini tekin í gagnið

    Fyrir þá sem eru með íslensk ADR-eða vinnuvélaréttindi og eiga snjallsíma.

    12. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ísland meðal efstu ríkja í stafrænni opinberri þjónustu

    Ísland er í hópi fremstu ríkja heims þegar kemur að stafrænni opinberri þjónustu. Þetta er niðurstaðan í nýútgefnum mælikvarða Sameinuðu þjóðanna (SÞ), þar sem Ísland er í 12. sæti af 193 löndum og færist upp um sjö sæti frá síðustu mælingu, en mælikvarðinn er gefinn út á tveggja ára fresti.

    29. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Covid-19, Norrænt samstarf, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Norðurlöndin komi tvíefld út úr heimsfaraldrinum

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra fundaði í dag með norrænum fjármálaráðherrum í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Helsta umræðuefni fundarins var hvernig tryggja megi að Norðurlöndin komist sem fyrst og með sem farsælustum hætti út úr þeim vanda sem leiðir af heimsfaraldri kórónuveiru.

    27. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Landsarkitektúr upplýsingaöryggis í samráðsgátt

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur sett drög að landsarkitektúr upplýsingaöryggis opinberra aðila inn í samráðsgátt stjórnvalda og er umsagnarfrestur til 12. nóvember nk.

    03. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Beint að efninu: Ísland.is fær nýja ásýnd og þjónusta efld

    Ísland.is hefur fengið nýja ásýnd og merki sem endurspeglar kröfur nútímans um sjálfvirkni, einfaldleika og stafrænar lausnir. Vefurinn verður stórefldur á þessu ári og þjónusta bætt, m.a. með rafrænum eyðublöðum sem fela í sér mikinn tímasparnað og einfaldari samskipti. Markmiðið er að einstaklingar og fyrirtæki geti nálgast opinbera þjónustu með einföldum hætti á einum stað og er fangað í nýju slagorði: Beint að efninu

    25. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Stafræn umskipti mikilvæg að mati stjórnenda stofnana

    Stjórnendur stofnana telja mikilvægt að vinna að stafrænum umskiptum (digital transformation) svo hægt verði að nýta tækni framtíðarinnar, auka nýsköpun og gera starfsfólk hæfara til þess að takast á við nýjar áskoranir. Þetta kemur fram í könnun sem fjármála- og efnahagsráðuneytið lét gera á stafrænum umskiptum stofnana.

    25. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Endurbættur vefur Ísland.is með skýrara viðmóti fyrir notendur

    Vefurinn Ísland.is, sem er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi, hefur verið opnaður í nýrri og endurbættri útgáfu með það að markmiði að gera viðmót gagnvart notendum skýrara og betra.

    24. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ráðstefnan Tengjum ríkið haldin í dag

    Um 800 þátttakendur hafa skráð sig á ráðstefnuna Tengjum ríkið sem hefst klukkan 13 í dag og fjallar um stafræna framtíð hins opinbera. Ráðstefnan er ókeypis og öllum opin en hún er ætluð þeim sem hafa áhuga á stafrænni þjónustu, jafn þjónustuveitendum sem notendum.

    16. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Tengjum ríkið – ráðstefna um stafræna framtíð hins opinbera

    Ráðstefna um stafræna framtíðarsýn hins opinbera og nýjungar sem unnið er að til að stórefla stafræna þjónustu verða kynntar á ráðstefnu Stafræns Íslands „Tengjum ríkið“ fimmtudaginn 24. september næstkomandi. Meðal þess sem fjallað verður um er nýr og endurbættur vefur Ísland.is, sem er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi þar sem hægt er að nálgast margvíslega þjónustu í einni gátt.

    15. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Umsóknarferli stuðningslána endurbætt

    Breytingar hafa verið gerðar á umsóknarkerfi stuðningslána á Ísland.is til að tryggja að ferlið verði enn aðgengilegra og auðskiljanlegra. Opnað var fyrir umsóknir um lánin í júlí sl. og hefur nú verið sótt um 815 stuðningslán að andvirði tæplega 7 milljarða íslenskra króna.

    12. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skilvirkari og betri opinber þjónusta með stafrænu pósthólfi

    Skilvirkari og betri opinber þjónusta og aukið gagnsæi við meðferð mála eru meðal helstu markmiða með frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um stafrænt pósthólf sem verið hefur til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda en frestur til að veita umsögn um frumvarpið var til 7. desember sl.

    26. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Nýsköpun, Efnahagsmál og opinber fjármál

    App til að auðvelda endurvinnslu hlutskarpast í nýsköpunarkeppninni Gagnaþon fyrir umhverfið

    Sigurvegarar Gagnaþons fyrir umhverfið voru tilkynntir í beinni útsendingu í dag. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra afhenti verðlaunin ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands og Ara Kristni Jónssyni, rektor Háskólans í Reykjavík

    26. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Nýsköpun, Efnahagsmál og opinber fjármál, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Gagnaþon fyrir umhverfið: Fjöldi spennandi verkefna í úrslitum sem kynnt verða í dag

    Nýsköpunarkeppnin Gagnaþon fyrir umhverfið stóð yfir dagana 12. - 19. ágúst en í dag verða veitt verðlaun fyrir bestu verkefnin í þremur flokkum keppninnar. Úrslit verða tilkynnt kl 13:00 í beinni útsendingu á Facebook-síðu gagnaþonsins og á Vísi.is. Úrslit tilkynna Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands & Ari Kristinn Jónsson rektor Háskólans í Reykjavík.

    17. júl. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Upplýsingatæknimál ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Loftslagsmál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Skráning hafin á Gagnaþon fyrir umhverfið

    Gagnaþon fyrir umhverfið er yfirskrift nýsköpunarkeppni sem fer fram dagana 12.-19. ágúst næstkomandi. Að þessu sinni er áhersla lögð á þróun lausna sem gagnast umhverfinu, í samræmi við aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.

    12. júl. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Stefna um notkun skýjalausna til umsagnar í samráðsgátt

    Notkun skýjalausna er mikilvæg forsenda þess að styðja við stafræn umskipti, auka sjálfvirkni og hækka öryggisstig upplýsinga og upplýsingakerfa hins opinbera. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt drög að stefnu um notkun skýjalausna í samráðsgátt stjórnvalda sem opin verða til umsagnar til 20. desember nk.

    03. júl. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Áframhaldandi samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja um stafræna þróun

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók í gær þátt í fundi norrænu ráðherranefndarinnar um stafræn málefni, sem haldinn var í Kaupmannahöfn.

    02. júl. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Styrkjum úthlutað til fjölbreyttra umhverfisverkefna

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra hefur úthlutað 67,7 milljónum króna til verkefna á málefnasviði ráðuneytisins. Alls var úthlutað styrkjum til 43 verkefna en að þessu sinni var áhersla lögð á verkefni sem lúta að loftslagsmálum og hringrásarhagkerfinu auk annarra verkefna á málefnasviði ráðuneytisins.

    22. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hægt að áætla fjárhæðir stuðningslána og lokunarstyrkja í reiknivél á Ísland.is

    Fyrirtæki geta nú kannað hvernig þau falla undir úrræði sem stjórnvöld hafa kynnt vegna Covid-19 í reiknivél á vefnum Ísland.is. Senn verður opnað fyrir móttöku umsókna um lokunarstyrki og stuðningslán á vefnum, auk þess sem þar er að finna upplýsingar um viðbótarlán.

    19. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Vigdís Jóhannsdóttir ráðin markaðsstjóri Stafræns Íslands

    Vigdís Jóhannsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Stafræns Íslands. Fjármála- og efnahagsráðuneytið setti á fót verkefnastofu um Stafrænt Ísland til að tryggja framgang markmiða ríkisstjórnarinnar. Verkefnastofan vinnur með ráðuneytum, stofnunum og öðrum opinberum aðilum að því að efla stafræna þjónustu við almenning og tryggja þannig skýr, einföld og hraðvirk samskipti.

    13. maí 2020Forsætisráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Fyrstu heildarlögin um vernd uppljóstrara samþykkt á Alþingi

    Alþingi samþykkti í gær frumvarp forsætisráðherra um vernd uppljóstrara sem lagt var fyrir þingið síðastliðið haust.

    29. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Upplýsingatæknimál ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hakkaþon um nýsköpun í heilbrigðisþjónustu

    Almenningur og frumkvöðlar taka höndum saman um að finna nýjar lausnir á sviði heilbrigðisþjónustu til gera heilbrigðiskerfinu betur kleift að fást við nýjar áskoranir vegna COVID-19. Dagana 22.-24. maí verður haldin nýsköpunarkeppni þar sem einstaklingum og frumkvöðlum gefst kostur á aðkeppa um bestu lausnirnar. Vefsíða keppninnar var formlega opnuð í dag hakkathon.island.is.

    15. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ánægja með opinbera þjónustu samkvæmt fyrstu samræmdu könnuninni

    Almennt er mikil ánægja með opinbera þjónustu samkvæmt niðurstöðum úr fyrstu samræmdu könnun á þjónustu ríkisstofnana sem gerð var í janúar síðastliðnum.

    05. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Allir reikningar ríkisstofnana og ríkissjóðs orðnir rafrænir

    Allir reikningar frá ríkissjóði og ríkisstofnunum eru orðnir rafrænir og gildir það frá og með 1.maí. Markmiðið er að lækka viðskiptakostnað allra aðila, nútímavæða viðskiptaumhverfi ríkisins með auknu framboði stafrænnar þjónustu og framfylgja umhverfissjónarmiðum.

    25. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Umfangsmikil aukning í fjárfestingu í stafrænum innviðum

    Umfangsmikil aukning fjárfestingar í tækni, stafrænum lausnum og betri upplýsingakerfum í þágu einstaklinga og fyrirtækja var í dag samþykkt af þingflokkum stjórnarflokkanna. Aukningin er hluti af 15 ma. kr. fjárfestingaátaki sem kynnt var um liðna helgi og er liður í viðamiklum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna kórónaveirunnar. Alls verða framlög aukin um 1.350 m.kr. á árinu 2020 til verkefna á sviði nýsköpunar, upplýsingatækni, netöryggis og stafrænnar þjónustu, samkvæmt þingsályktun fjármála- og efnahagsráðherra sem rædd verður á Alþingi nú í vikunni.

    13. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkisstofnanir vel í stakk búnar fyrir fjarvinnu starfsfólks

    Nýtt skrifstofuumhverfi ríkisins, Microsoft 365, reynist vel við að tryggja að starfsfólk ríkisins geti á næstunni sinnt störfum sínum að heiman í ljósi Covid-19 faraldursins og hefur í för með sér að flestar stofnanir þurfa engar viðbótarfjárfestingar til þess að starfsmenn geti unnið heiman frá. Þar gegnir kerfið Teams lykilhlutverki, sem heldur utan um vinnu verkefnahópa, samvinnu í skjölum og fjarfundi.

    09. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Nýsköpun, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Rekstur norrænna fyrirtækja auðveldaður með aukinni samtengingu stafrænna kerfa

    Á dögunum samþykktu atvinnuvegaráðherrar Norðurlanda áætlun sem m.a. felur í sér áframhaldandi stuðning við Nordic Smart Government – umfangsmikið samstarfsverkefni sem ætlað er að auðvelda rekstur fyrirtækja þvert á Norðurlöndin með aukinni samtengingu stafrænna kerfa. Skatturinn stýrir vinnu íslenska landsteymisins við verkefnið, en vinna við það hófst 2016.

    14. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Vinnumál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Rekstur og eignir ríkisins, Nýsköpun, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fundur um einföldun rekstrarumhverfis fyrirtækja með snjöllum lausnum

    Hvernig má einfalda rekstrarumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja? Nordic Smart Government, sem er norrænt samstarfsverkefni, stendur fimmtudaginn 16. janúar fyrir fundi á Grand hótel um leiðir til að gera gera fyrirtækjum og stofnunum kleift að miðla og sækja viðskipta- og bókhaldsgögn á sjálfvirkan, snjallan, öruggan og fljótlegan hátt.

    07. jan. 2020Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Upplýsingatæknimál ríkisins, Persónuskilríki, Sýslumenn, Umferð, Dómsmálaráðuneytið

    Stafræn ökuskírteini komin á Ísland.is

    Frá og með deginum í dag er hægt að sækja um og fá stafræn ökuskírteini í símann á Ísland.is

    16. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Yfir hundrað sóttu kynningarfund um útboð á hönnun og þróun stafrænnar þjónustu

    Mikill áhugi var á kynningu útboðs um hönnun og þróun stafrænnar þjónustu hins opinbera sem fram fór í dag. Stafrænt Ísland, fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytisins, stóð fyrir kynningunni. Um 115 aðilar frá um 40 fyrirtækjum mættu á fundinn auk þess sem um 20 aðilar fylgdust með streymi á YouTube.

    12. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Neytendamál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Útboð um eflingu stafrænnar þjónustu fyrir allt að 18 teymi

    Stafrænt Ísland, fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytisins, hyggst standa fyrir útboði sem skila á rammasamningum fyrir allt að 18 teymi frá öflugum fyrirtækjum. Markmiðið er að teymin vinni með Stafrænu Íslandi að því að bæta þjónustu á island.is fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Kynningarfundur fyrir áhugasöm fyrirtæki verður haldinn mánudaginn 16. desember.

    06. des. 2019Forsætisráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Lög og réttur

    Lagabreytingar á sviði tjáningarfrelsis og upplýsingaréttar

    Alþingi hefur samþykkt frumvörp forsætisráðherra um breytingar á stjórnsýslu- og upplýsingalögum.

    28. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Bylting í aðgengi fólks að stafrænni þjónustu

    Með 350 milljóna viðbótarframlagi á næsta ári, sem samþykkt var í fjárlögum í gær, verður stafræn þjónusta hins opinbera stóraukin. Þetta er í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um að stafræn samskipti verði meginsamskiptaleið við hið opinbera fyrir lok ársins 2020.

    25. sep. 2019Auðlindir, Neytendamál, Upplýsingatæknimál ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Ferðaþjónusta, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ertu með snjallt verkefni?

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

    13. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Rekstur og eignir ríkisins

    Mikil aukning í notkun stafrænnar þjónustu hjá hinu opinbera

    Innskráningar á vefi hins opinbera voru 52% fleiri fyrstu átta mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. Fyrstu átta mánuði þessa árs voru innskráningarnar 7,4 milljónir talsins, sem jafngildir 42 þúsund heimsóknum á dag. Þetta bendir til þess að fólki kjósi í auknum mæli að nýta stafræna þjónustu til þess að sinna erindum við hið opinbera, fremur en að gera sér ferð til stofnana eða eiga í samskiptum með öðrum hætti.

    11. ágú. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Rekstur og eignir ríkisins

    Tæknistefna island.is í samráðsgátt

    Drög að tæknistefnu island.is hafa verið lögð í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Stafrænt Ísland, sem vinnur að því að að aðstoða opinberar stofnanir við að bæta stafræna þjónustu, ætlar að hefja þróun á lausnum sem snúa að miðlægri þjónustugátt undir merkjum island.is. Þar munu fyrirtæki og einstaklingar getað nálgast þjónustu hins opinbera á einfaldan og skilvirkan hátt.

    • First
    • Prev
    • 1
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband