Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Covid-19
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 501–550 af 892
    Raða eftir:
    10. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Framhald á lokunarstyrkjum

    Ríkisstjórnin samþykkti í dag að leggja fyrir Alþingi breytingar á lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru með það fyrir augum að tryggja framhald á lokunarstyrkjum til rekstraraðila sem gert er að sæta lokun á starfsemi eða stöðva hana frá 18. september 2020.

    10. sep. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19

    Félagsmálaráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka vegna verkefna á sviði félagsmála

    Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 9. nóvember 2020.

    09. sep. 2020Covid-19, Ferðaþjónusta, Fiskeldi, Landbúnaður, Nýsköpun, Orka, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Íslenskt – láttu það ganga

    Frá bakara til forritara. Frá forritara til hönnunar. Frá hönnun til bænda. Frá bónda til bakara. Frá þér til þín. Þannig gengur þetta – frá þér til þín í í stöðugri hringrás. Þetta er á meðal þess sem atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið ásamt Samtökum iðnaðarins, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samorku og Bændasamtökum Íslands, vilja minna landsmenn á í kynningarátakinu Íslenskt – láttu það ganga sem fer af stað í dag. Tilgangur átaksins er að hvetja landsmenn, almenning og fyrirtæki til viðskipta við innlenda aðila á fjölbreyttum sviðum, við val á framleiðslu, vörum og þjónustu.

    07. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Stuðningslán virkjuð á Ísland.is

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stuðningslán á Ísland.is. Stuðningslán eru hluti af viðspyrnuaðgerðum stjórnvalda og er ætlað að styðja við smærri og meðalstór fyrirtæki sem orðið hafa fyrir miklu tekjufalli.

    07. sep. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Samningar um viðbótarfjárveitingu til landshlutasamtaka undirritaðir

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og framkvæmdastjórar sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga undirrituðu í lok júní samninga um ráðstöfun 200 milljóna kr. aukafjárveitingar til sóknaráætlana landshluta.

    06. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna fundar með ráðherrum

    Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna fundaði með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra og Páli Magnússyni, ráðuneytisstjóra mennta- menningarmálaráðuneytis í dag.

    06. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Gjörbreytt þjónusta heilsugæslustöðva í COVID-19 faraldri

    Komur á heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu voru rúmlega 30% færri í mars en í janúar síðastliðnum. Á sama tíma fjölgaði símtölum til mikilla muna og notkun á Heilsuveru jókst um 77% á tímabilinu. Þessar upplýsingar koma fram í nýrri samantekt á vef Sjúkratrygginga Íslands. Þar má hvernig fjöldi koma þróaðist hjá einstökum heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu, ásamt þróun bókana, fyrirspurna og beiðna um endurnýjun á lyfjum í gegnum www.heilsuvera.is.

    03. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Breyttu fyrirkomulagi um afhendingu lyfja (skriflegt umboð) frestað til 30. mars

    Breyttu fyrirkomulagi um afhendingu lyfja, sem taka átti að gildi þriðjudaginn 10. mars 2020, hefur verið frestað til 30. mars næstkomandi. Í tilkynningu Lyfjastofnunar um frestunina segir að í ljósi örrar fjölgunar COVID-19 smita sé mikilvægt að hægja á eða stöðva ferla sem geti haft aukna smithættu í för með sér. Skriflegt umboð sé þess eðlis að það auki hættu á að veirur berist manna á milli. Því hafi Lyfjastofnun ákveðið að fresta kröfu um skriflegt umboð til 30. mars nk.

    28. ágú. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Sveitarfélög mjög misjafnlega í stakk búin til að takast á við efnahagsleg áhrif Covid-19

    Í skýrslu starfshóps er áætlað að fjárhagsstaða sveitarfélaga sé lakari sem nemur 33 milljörðum króna vegna Covid-19.

    28. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Kaup á bóluefni vegna COVID-19 rædd í ríkisstjórn

    Ákveðið hefur verið að kaup bóluefna gegn COVID-19 hér á landi fari fram á grundvelli samninga Evrópusambandsins við lyfjaframleiðendur. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) hefur þegar gert samning við sænsk-breska fyrirtækið AstraZeneca um kaup á bóluefni og samningaviðræður ESB við fleiri framleiðendur bóluefna standa yfir. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti málið á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Ísland mun njóta góðs af Evrópusamstarfinu fyrir milligöngu Svíþjóðar sem hefur heimild til að framselja ríkjum EES, þar á meðal Íslandi og Noregi, bóluefni á grundvelli samninga ESB og hefur lýst sig reiðubúið til þess. Norsk stjórnvöld hafa einnig ákveðið að fara þessa leið til að tryggja aðgengi að bóluefni fyrir sína landsmenn.…

    28. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Starfshópur greinir efnahagsleg áhrif sóttvarna

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað starfshóp sem vinna mun reglulegar greiningar á efnahagslegum áhrifum valkosta í sóttvarnarmálum, með tilliti til hagsmuna ólíkra samfélagshópa og geira hagkerfisins. Bæði verða metin skammtímaáhrif og áhrif á getu hagkerfisins til þess að taka við sér af krafti að nýju þegar faraldurinn og áhrif hans líða hjá.

    27. ágú. 2020Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar, Covid-19

    Skráning útlendinga sem ekki komast til síns heima vegna Covid-19

    Dómsmálaráðherra hefur birt nýja reglugerð sem tekur á dvöl þeirra útlendinga sem ekki hafa komist til síns heima frá 20 mars. sl. vegna ferðatakmarkana, sóttkvíar eða einangrunar.

    27. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Helstu skilmálar mögulegrar ríkisábyrgðar á lánsfjármögnun Icelandair Group

    Fjármála- og efnahagsráðherra lagði í fyrradag fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um ríkisábyrgðir og frumvarp til fjáraukalaga, til að óska heimildar vegna fyrirhugaðrar ríkisábyrgðar á lánalínu Icelandair í tengslum við heimsfaraldur kórónuveiru. Fyrirgreiðslunni er ætlað að stuðla að áframhaldandi rekstri og tryggja að fullnægjandi árangur geti náðst í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins en þingleg meðferð málanna hefst þegar Alþingi kemur saman í dag.

    26. ágú. 2020Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Covid-19

    Fundur um áhrif og viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum í Afríku

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók í dag þátt í fjarfundi þróunarsamvinnuráðherra Norðurlanda með ráðherrum sjö Afríkuríkja, yfirmönnum sex stofnana Sameinuðu þjóðanna og öðrum samstarfsaðilum. Efnahagsleg og samfélagsleg áhrif og viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum í Afríku voru þar í brennidepli.

    26. ágú. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Vinnumál

    Tekjutengdar atvinnuleysisbætur verða sex mánuðir

    Hlutabótaleiðin framlengd um tvo mánuði og áframhaldandi greiðslur vegna launa í sóttkví.

    25. ágú. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Vinnumál

    Atvinnuleitendum gert mögulegt að fara í nám án þess að greiðslur falli niður

    Aðgerðirnar eru hluti af átakinu Nám er tækifæri.

    25. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Endurskoðuð fjármálastefna: ríkissjóði beitt til að auka viðnámsþrótt heimila og fyrirtækja

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um breytingu á gildandi fjármálastefnu fyrir árin 2018–2022. Tilgangur breytinganna er að styðja við stefnu ríkisstjórnarinnar um að bregðast við efnahagskreppu og koma í veg fyrir þrálátt atvinnuleysi í kjölfar heimsfaraldurs kórónaveiru með því að leggja áherslu á að verja og skapa verðmæt störf um allt land á næstu misserum. Markmiðið er samkeppnishæft þjóðfélag þar sem velsæld byggist á öflugum mannauði og kröftugu efnahagslífi.

    25. ágú. 2020Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Æfingar listafólks heimilar á ný

    Snertingar verða heimilar við æfingar í sviðslistum, tónlist og við kvikmyndatöku frá 28. ágúst nk.

    25. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Ný auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar

    Ný auglýsing heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar tekur gildi 28. ágúst næstkomandi og gildir til og með 10. september. Litlar breytingar verða á þeim takmörkunum sem nú gilda og er það í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra sem fram koma í meðfylgjandi minnisblaði. Þær breytingar sem þó verða gerðar eru raktar hér að neðan. Efnið var kynnt á fundi ríkisstjórnar í dag.

    22. ágú. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Niðurstöður úr fyrri skimun ráðherra vegna kórónuveiru neikvæðar

    Niðurstöður úr fyrri skimun ráðherra vegna kórónuveiru reyndust neikvæðar í öllum tilfellum. Félags- og barnamála- og heilbrigðisráðherra þurftu ekki að fara í skimun líkt og áður hefur komið fram.

    21. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ferðakostnaður ríkisins lækkaði um 1,1 milljarð króna milli ára

    Uppfært: Ferðakostnaður ríkisins lækkaði á fyrstu sex mánuðum ársins um 1,1 milljarð króna og fór úr 2 ma.kr. árið 2019 í tæpa 0,9 ma.kr.árið 2020. Lækkunin nemur 55% en hana má rekja til heimsfaraldurs kórónuveiru.

    21. ágú. 2020Covid-19, Félags- og fjölskyldumál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Vel heppnað sumarverkefni fyrir börn í viðkvæmri stöðu

    Alls sóttu 30 sveitarfélög um styrk og fengu þau öll samþykkta úthlutun.

    20. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Samstaðan skilar árangri - grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu

    Frá fyrstu aðgerðum rík­is­stjórn­ar­inn­ar vegna heims­far­ald­urs­ins hafa skila­boð okk­ar verið skýr: Við mun­um beita rík­is­fjár­mál­un­um til að hjálpa fólki og fyr­ir­tækj­um í vanda og skapa skil­yrði fyr­ir vöxt efna­hags­lífs­ins á ný. Lík­lega má full­yrða að eng­inn sé ósnort­inn af af­leiðing­um far­ald­urs­ins, en af­leiðing­arn­ar væru meiri og þung­bær­ari ef ekk­ert væri aðhafst. Þetta kemur fram í grein Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra í Morgunblaðinu í dag.

    19. ágú. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Leiðbeiningar fyrir framhalds- og háskóla tryggi sameiginlegan skilning

    Á annað hundrað skólastjórnendur, kennarar og sérfræðingar tóku þátt í fjarfundi um sóttvarnarráðstafanir í framhalds- og háskólum með Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni og Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni í gær.

    19. ágú. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19

    Umhyggja, sveigjanleiki og þrautseigja verði leiðarljós í skólastarfi

    Fulltrúar lykilaðila í starfsemi leik- og grunnskóla undirrituðu í dag sameiginlega yfirlýsingu um leiðarljós skólanna á komandi skólaári.

    18. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Breyttar reglur um sóttkví, einangrun og sýnatöku á landamærum

    Farþegar sem koma til Íslands frá og með 19. ágúst geta valið á milli þess að fara í tvær sýnatökur vegna COVID-19 með 5 daga sóttkví á milli þar til niðurstaða seinni sýnatöku liggur fyrir, eða sleppa sýnatöku og sitja í 14 daga sóttkví frá komunni til landsins. Reglugerð heilbrigðisráðherra þessa efnis tekur gildi á miðnætti. Krafa um skimun og sóttkví nær til þeirra sem hafa dvalið í meira en sólarhring síðastliðna 14 daga í löndum sem skilgreind eru af sóttvarnalækni sem áhættusvæði en sem stendur gildir það um öll lönd. Börn fædd árið 2005 eða síðar eru undanþegin sýnatöku og sóttkví og sama gildir um þá sem íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa staðfest með PCR-prófi að hafi áður fengið COVID-19 sýkingu og lokið einangrun, eða ef COVID-19 sýking hefur verið staðfest með mótefnamælingu.…

    18. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Tölur yfir stöðu efnahagsaðgerða vegna Covid-19

    Stjórnvöld hafa frá því í mars gripið til ýmissa aðgerða í því skyni að verja grunnstoðir samfélagsins vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, t.d. með hlutastarfaleið, viðbótarlánum, frestun skattgreiðslna, lokunarstyrkjum, greiðsluhléi lána, úttekt séreignarsparnaðar, styrkingu ferðaþjónustu og fleiri aðgerðum. Upplýsingar yfir stöðu aðgerðanna hafa verið settar upp með myndrænum hætti og verða uppfærðar vikulega á vef Stjórnarráðsins héðan í frá eftir því sem breytingar verða á þeim.

    18. ágú. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Ferðaþjónusta, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Sex sveitarfélög fá stuðning vegna hruns í ferðaþjónustu

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynnti ríkisstjórn í morgun skiptingu 150 milljóna króna fjárveitingar til sex sveitarfélaga vegna hruns í ferðaþjónustu í kjölfar Covid-19.

    18. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Ræður og greinar

    Samtal um leiðarljós

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Á fimmtudaginn næstkomandi, 20. ágúst, boða ég til samráðsfundar í formi vinnustofu, í samstarfi við forsætis-, dóms- og menntamálaráðuneyti, með lykilaðilum af hinum ýmsu sviðum samfélagsins. Markmið fundarins er að ræða áframhaldandi stefnu og aðgerðir vegna Covid-19 til lengri tíma litið. Efnt er til samráðsins í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Markmiðið er að að stilla saman strengi og móta áherslur sem geti nýst í áframhaldandi vinnu við mótun aðgerða vegna Covid-19 á næstu misserum. Vegna sóttvarnarsjónarmiða verður fjöldi þátttakenda takmarkaður en þeim mun meiri áhersla verður lögð á það að öll sem vilja og hafa áhuga geti tekið þátt í fundinum á netinu.

    14. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Efnahagsleg sjónarmið við ákvörðun um umfang sóttvarnaaðgerða á landamærum

    Meðfylgjandi er minnisblað fjármála- og efnahagsráðherra um efnahagsleg sjónarmið við ákvörðun um umfang sóttvarnarráðstafana á landamærum sem lagt var fram í ríkisstjórn í dag:

    14. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19, Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Að lifa með veirunni – samráðsfundur 20. ágúst

    Heilbrigðisráðherra í samvinnu við forsætis- og dómsmálaráðuneytið efnir til samráðsfundar í formi vinnustofu 20. ágúst með lykilaðilum í samfélaginu um áframhaldandi aðgerðir vegna Covid-19 til lengri tíma litið. Efnt er til samráðsins í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Streymt verður beint frá fundinum sem markar upphaf samráðsins en afraksturinn verður birtur í samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið er að móta áherslur og leiðarljós sem geti nýst í áframhaldandi vinnu við mótun aðgerða vegna Covid-19 á næstu misserum.

    14. ágú. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Allir komufarþegar fari í tvöfalda skimun og 5-6 daga sóttkví

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi í dag að eigi síðar en frá og með miðvikudeginum 19. ágúst næstkomandi verði allir komufarþegar skimaðir tvisvar við komuna til Íslands.

    13. ágú. 2020Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Íþróttaæfingar- og keppnir hefjast að nýju

    Æfingar og keppnir fullorðinna í íþróttagreinum með mikilli nálægð verður leyfð að nýju eftir 13. ágúst. Um þetta er fjallað í nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

    12. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum frá 10. desember

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem taka gildi 10. desember næstkomandi. Varfærnar tilslakanir verða gerðar á reglugerð um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar og gilda breytingarnar til 12. janúar. Reglugerð um takmarkanir á skólahaldi vegna farsóttar verður að mestu óbreytt til áramóta en gert er ráð fyrir að kynna fljótlega nýjar reglur um skólastarf sem eiga að taka gildi 1. janúar 2021.

    12. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skýrsla um efnahagsmál Norðurlanda: Spá aukinni landsframleiðslu á næsta ári

    Horfur eru á að landsframleiðsla á Norðurlöndum dragist saman á bilinu 3,1%-7,6% á árinu 2020 vegna áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar um stöðu og horfur efnahagsmála sem unnin er árlega af fjármálaráðuneytum ríkjanna.

    10. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Þriðji samningur Evrópusambandsins um bóluefni í höfn

    Evrópusambandið hefur gert samning við lyfjafyrirtækið Janssen Pharmaceutica NV, dótturfyrirtæki Johnson & Johnson, um kaup á bóluefni gegn COVID-19. Samningurinn felur í sér að strax og prófunum er lokið og niðurstöður sýna að bóluefnið er öruggt og með fullnægjandi virkni er aðildarríkjum sambandsins tryggður réttur til kaupa á bóluefni fyrir 200 milljónir manna. Eins og áður hefur komið fram munu Ísland og önnur aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins njóta sama aðgangs að bóluefnum sem Evrópusambandið semur um og önnur ríki sambandsins.

    10. ágú. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Styrkur til Barnahúss eflir starfsemi og styttir biðlista

    Styrkurinn er liður í aðgerðapakka stjórnvalda til þess að bregðast við afleiðingum Covid-19 faraldursins.

    10. ágú. 2020Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    1,1 milljarða kr. aukning til menningarmála

    Framlög til menningar-, íþrótta- og æskulýðsmála aukast um 7% milli áranna 2020-2021 samkvæmt nýkynntu fjárlagafrumvarpi ársins 2021

    09. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Efni frá samráðsfundinum „að lifa með veirunni“ birt í samráðsgátt

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda samantekt með þeim áherslum og ábendingum sem fram komu á samráðsfundinum „Að lifa með veirunni“ sem haldinn var 20. ágúst síðastliðinn. Í samráðsgáttinni gefst almenningi kostur á að skoða samantektina og koma fleiri ábendingum á framfæri telji fólk ástæðu til. Tilgangurinn er að móta áherslur og leiðarljós sem geti nýst í áframhaldandi vinnu við mótun aðgerða vegna Covid-19 á næstu misserum.

    06. ágú. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Almannaöryggi, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Breytingar á reglum um komur ferðamanna til Íslands

    Breytingar verða á reglum um komur ferðamanna til Íslands frá og með 15. júní næstkomandi. Er það í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

    06. ágú. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Utanríkismál

    Covid-19 og fríverslunarviðræður í brennidepli á ráðherrafundi EFTA

    Áhrif Covid-19 heimsfaraldursins og staða fríverslunarviðræðna voru helstu umræðuefnin á óformlegum fjarfundi ráðherra Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) í dag. Samtarf EFTA-ríkjanna, samskiptin við Evrópusambandið og önnur ríki og horfur í alþjóðaviðskiptum voru einnig til umfjöllunar.

    05. ágú. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Norrænt samstarf, Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir

    Norrænir samgönguráðherrar vilja auka samvinnu á sviði samgöngumála

    Norrænir samgönguráðherrar vilja auka samvinnu og koma á fót starfshópi til að að greina möguleg samstarfsverkefni á sviði samgangna.

    05. ágú. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Umferð, Samgöngur og fjarskipti

    Öllum leigubifreiðastjórum gert kleift að leggja inn atvinnuleyfi sitt

    Frumvarp hefur verið lagt fram á Alþingi til að tryggja að allir eigubifreiðastjórar hafi heimild að leggja inn atvinnuleyfi sitt.

    05. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Fundur heilbrigðisyfirvalda og Evrópuskrifstofu WHO

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Alma D. Möller landlæknir áttu í gær tvíhliða fund með Dr. Hans Kluge, forstjóra Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og fleiri fulltrúum stofnunarinnar. Umfjöllunarefnið var kórónuveirufaraldurinn og COVID-19 þar sem ráðherra og landlæknir gerðu grein fyrir þróuninni og stöðu mála hér á landi. Á fundinum bauð Dr. Kluge Íslandi aðkomu að vettvangi á vegum WHO þar sem fjallað er um aðferðir og mismunandi próf sem þróuð hafa verið til mótefnamælinga vegna veirunnar.

    05. ágú. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19

    3.400 sumarstörf fyrir námsmenn auglýst á næstunni

    4,5 sinnum stærra átak en ráðist var í eftir hrunið árið 2008

    05. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Athygli heilbrigðisstofnana vakin á mikilvægri könnun

    Undanfarið hafa fjölmargar opinberar stofnanir brugðist við heimsfaraldri kórónuveiru með ýmsum breytingum á starfsemi sinni sem meðal annars hafa miðað að því að tryggja notendum mikilvæga opinbera þjónustu. Ýmsar nýjar lausnir hafa orðið til sem stuðlað geta að varanlegum umbótum. Fjármála- og efnahagsráðuneytið stendur nú fyrir könnun á slíkum lausnum hjá stofnunum hins opinbera. Heilbrigðisráðuneytið vekur athygli á þessari könnun og hvetur stjórnendur heilbrigðisstofnana um allt land til að taka þátt í henni.

    04. ágú. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Náin samvinna Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna vegna COVID-19 heldur áfram

    Á fjarfundi utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) sem fram fór í morgun kom fram skýr vilji til áframhaldandi náins samstarfs þessara ríkja við þær aðstæður sem nú eru uppi.

    04. ágú. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19

    Félagsmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg styðja við úrræði fyrir fólk í húsnæðisvanda vegna Covid-19

    Félagsmálaráðuneytið mun fjármagna tímabundnar lausnir fyrir þá sem ekki hafa í nein hús að venda vegna COVID-19 faraldursins í samstarfi við Reykjavíkurborg.

    04. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Vegna umræðu um launakjör þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins

    Vegna umræðu um launakjör þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins tekur fjármála- og efnahagsráðuneytið eftirfarandi fram: 27. mars sl. birtist á vef ráðuneytisins tilkynning um að Alþingi hefði samþykkt að hækkun sem samkvæmt lögum skyldi taka gildi 1. júlí 2020 yrði frestað til 1. janúar 2021. Um var að ræða breytingartillögu fjármála- og efnahagsráðherra, til efnahags- og viðskiptanefndar við bandorm um aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónaveiru.

    04. ágú. 2020Kosningar, Dómsmálaráðuneytið, Covid-19

    Unnið að rafrænni skráningu meðmælendalista vegna forsetakosninga 2020

    Í ljósi þess ástands sem nú ríkir í samfélaginu vegna COVID-19 farsóttarinnar, m.a. vegna samkomubanns sem framlengt hefur verið til og með 3. maí nk., vinnur dómsmálaráðuneytið að því að unnt verði að bjóða upp á rafræna skráningu á meðmælendalista vegna forsetakosninga sem fram fara þann 27. júní 2020.

    • First
    • Prev
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband