22. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir
Mál nr. 34/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 27. desember 2019 kærði Smith & Norland hf. útboð varnaraðila Reykjavíkurborgar nr. 14356 auðkennt „Rammasamningur um stýribúnað umferðarljósa“. Kærandi krefst þess að ákvörðun varnaraðila um að fella niður hið kærða útboð verði ógilt, „svo og að lagt verði fyrir varnaraðila að halda áfram því ferli útboðsins er fólst í tillögu hans til innkauparáðs borgarinnar 27. nóvember 2019.“ Kærandi krefst þess einnig að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila auk þess sem hann krefst málskostnaðar úr hendi varnaraðila.