14. okt. 2020Dómsmálaráðuneytið, Lög og réttur, Lagasetning, Löggæsla, Almannaöryggi
Umsáturseinelti í almenn hegningarlög
Dómsmálaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi á Alþingi um breytingar á almennum hegningarlögum sem taka eiga á umsáturseinelti. Um er að ræða háttsemi sem felst í að sitja um aðra manneskju og valda þannig hræðslu eða kvíða.