04. ágú. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðismál, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið
Tímamót: Fyrsta formlega aðgerðaáætlunin í þjónustu við fólk með heilabilun
Heilbrigðisráðuneytið birtir hér með aðgerðaáætlun í þjónustu við fólk með heilabilun til ársins 2025. „Þetta er í fyrsta sinn sem sett er fram opinber stefna í þessum mikilvæga málaflokki hér á landi og löngu tímabært" segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.