02. júl. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál
Félags- og barnamálaráðherra styrkir starfsemi Virkisins á Akureyri
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar, undirrituðu í dag samkomulag um styrk til Akureyrjarbæjar til starfsemi Virkisins. Styrkurinn hljóðar upp á þrjár milljónir króna.