Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Covid-19
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 551–600 af 892
    Raða eftir:
    30. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar birt í Stjórnartíðindum

    Birt hefur verið í Stjórnartíðindum auglýsing heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem tekur gildi á hádegi á morgun 31. júlí og gildir til og með 13. ágúst nk. Meginbreytingin felst í því að fjöldatakmörkun á samkomum lækkar úr 500 í 100 og 2 metra reglan tekur aftur gildi á milli þeirra einstaklinga sem ekki deila heimili. Þá hefur ný reglugerð heilbrigðisráðherra sem fellir úr gildi fyrri reglugerð um sóttkví, einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19 verið birt í Stjórnartíðindum.

    30. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Hertar aðgerðir innanlands og á landamærum vegna COVID-19 frá hádegi 31. júlí nk.

    Á hádegi þann 31. júlí næstkomandi taka gildi hertar aðgerðir innanlands og á landamærum vegna COVID-19 sem standa í tvær vikur, út 13. ágúst nk. Ákvörðunin er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis sem heilbrigðisráðherra hefur samþykkt.

    28. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Óbreyttar reglur um takmarkanir á samkomum vegna COVID-19 til 18. ágúst

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja núgildandi auglýsingu um takmörkun á samkomum til 18. ágúst.

    23. júl. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19

    Styrkja félagasamtök sem styðja við viðkvæma hópa og kortleggja fyrirkomulag matarúthlutana

    Samtals verður 25 milljónum króna úthlutað.

    21. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Óbreyttar reglur um takmarkanir á samkomum vegna COVID-19 til 4. ágúst

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja núgildandi auglýsingu um takmörkun á samkomum óbreytta til 4. ágúst. Fjöldatakmörk á samkomum miðast því áfram við 500 manns. Opnunartími spilasala og veitingastaða með vínveitingaleyfi verður einnig óbreyttur og heimilt að hafa opið til 23.00 á kvöldin.

    21. júl. 2020Rit og skýrslur, Utanríkismál, Covid-19, Utanríkisviðskipti, Utanríkisráðuneytið

    Saman á útivelli – Framkvæmd utanríkisstefnu Íslands í kjölfar COVID-19

    Starfshópur utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra um stuðning utanríkisþjónustunnar við útflutningsgreinar var falið að móta tillögur að því hvernig utanríkisþjónustan geti betur stutt við atvinnulífið vegna efnahagslega afleiðinga COVID-19 heimsfaraldursins.

    17. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Fyrirmæli landlæknis um mótefnamælingar vegna COVID-19

    Þann 15. júlí tóku gildi fagleg fyrirmæli landlæknis sem ráðherra hefur staðfest, um mótefnamælingar til greiningar og eftirfylgni á COVID-19 sjúkdómnum auk þess sem breyting á reglugerð um sóttvarnaráðstafanir tók gildi.

    17. júl. 2020Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ferðaábyrgðasjóður – endurgreiðslur til neytenda vegna pakkaferða

    Sjóðurinn var settur á fót þar sem ekki hafa allar ferðaskrifstofur getað staðið undir lögboðnum endurgreiðslum á pakkaferðum sem hefur verið aflýst eða þær verið afbókaðar vegna heimsfaraldursins. Honum er ætlað að veita þessum ferðaskrifstofum lán til að standa skil á endurgreiðslum til neytenda og tryggja þannig rétt þeirra auk þess að aðstoða ferðaskrifstofur í erfiðu rekstrarumhverfi um þessar mundir. Eftirlitsstofnun EFTA hefur yfirfarið og samþykkt þessa ráðstöfun með tilliti til ríkisstyrkjaregla.

    16. júl. 2020Utanríkisráðuneytið, Útlendingar, Covid-19, Landamæraeftirlit, Dómsmálaráðuneytið

    Uppfærður listi yfir ríki - íbúum tólf ríkja utan EES og Schengen heimilt að heimsækja Ísland

    Aðildarríki ESB hafa uppfært lista þar sem afnumdar eru ferðatakmarkanir gagnvart íbúum tiltekinna ríkja. Tvö lönd féllu út af fyrri lista sem eru Serbía og Svartfjallaland.

    15. júl. 2020Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Ferðaþjónusta, Covid-19

    Ferðamenn frá Danmörku, Noregi, Finnlandi og Þýskalandi verða undanþegnir kröfum um skimun og sóttkví

    Ferðamenn frá Danmörku, Noregi, Finnlandi og Þýskalandi bætast á lista með Færeyjum og Grænlandi og verða frá og með fimmtudeginum 16. júlí undanþegnir kröfum um skimun og sóttkví vegna Covid-19.

    15. júl. 2020Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Inspired by Iceland: Bjóða fólki um allan heim að losa um streitu á Íslandi

    „Það er spennandi að geta boðið fólki að upplifa Ísland með þessum hætti. Ég held að við þurfum öll að losa um streitu eftir undanfarna mánuði, og Ísland hefur allt til að bjóða fyrir fólk sem þarf á endurnærandi upplifun að halda. Hvort sem það er stafræn heimsókn til að losa um streitu eða raunveruleg heimsókn í afslappað frí,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

    14. júl. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Atvinnuvegir

    Umsóknir um stuðningslán komnar í 2,2 milljarða

    Umsókn um stuðningslán var virkjuð á ísland.is 9. júlí s.l. en síðan þá hafa 171 fyrirtæki sótt um grunnlán fyrir allt að 10 m.kr. með 100% ríkisábyrgð. Þar af hafa 56 fyrirtæki til viðbótar sótt um auka-stuðningslán, allt að 40 m.kr. með 85% ríkisábyrgð. Samtals gera þetta 227 lán fyrir tæpa 2,2 milljarða (2.176.000.000).

    12. júl. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Litaflokkað viðvörunarkerfi fyrir skólastarf

    Markmið nýs litaflokkunarkerfis fyrir skólastarf er að auka fyrirsjáanleika og einfalda skipulag sóttvarnaráðstafana í skóla- og frístundastarfi hér á landi

    10. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Um reglur og tilmæli

    Reglugerð heilbrigðisráðherra um takmarkörkun á samkomum og hertar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu tók gildi í gær. Reglugerðin byggist á minnisblaði sóttvarnalæknis og er þar farið að tillögum hans í öllum meginatriðum. Í minnisblaði hans koma einnig fram ákveðin tilmæli varðandi íþróttastarf og fleiri atriði sem mikilvægt er að fólk taki mið af, þótt tilmælin séu ekki liður í reglugerð ráðherra. Einnig má benda á að ríkislögreglustjóri hyggst birta almenn tilmæli sem ætlað er að styðja við markmið hertra sóttvarnaaðgerða á höfuðborgarsvæðinu.

    05. júl. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Greining á mögulegri stærðargráðu áfalls vegna heimsfaraldurs kórónuveiru

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur unnið greiningar sem miða að því að varpa ljósi á mögulega stærðargráðu áfallsins sem hagkerfið stendur frammi fyrir vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

    04. júl. 2020Covid-19, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Félagsmálaráðuneytið leggur til að aðalfundum húsfélaga verði frestað um allt að sex mánuði vegna samkomubanns

    Frestun aðalfunda húsfélaga samkvæmt fjöleignarhúsalögum, nr. 26/1994, vegna COVID-19.

    04. júl. 2020Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Sækja lækningavörur frá Kína

    Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa samið við Icelandair um að sækja pöntun af hlífðarbúnaði fyrir heilbrigðisstarfsmenn til Kína.

    04. júl. 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Sýslumenn, Lög og réttur

    Aukning í rafrænni þjónustu sýslumanna

    Dómsmálaráðuneytið vekur athygli á því að hjá sýslumönnum hefur undanfarið átt sér stað mikil vinna við að bæta þjónustu embættanna, m.a. með auknu framboði rafrænna eyðublaða.

    04. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19

    WHO: Skýrsla um stöðu hjúkrunar um víða veröld

    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO birti í dag viðamikla skýrslu um stöðu hjúkrunar á heimsvísu. Útgáfa skýrslunnar ber upp á alþjóðaheilbrigðisdaginn, 7. apríl, sem stofnunin tileinkar hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum. Samkvæmt ákvörðun WHO er raunar allt þetta ár helgað þessum mikilvægu heilbrigðisstéttum. Markmið Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar er að vekja athygli á störfum hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra og stuðla að því að störf þeirra séu metin að verðleikum.

    04. júl. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Vinnumál

    Ráðherra beinir tilmælum til Vinnumálastofnunar um að víkja frá aldursskilyrðum laga um atvinnuleysistryggingar

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur beint þeim tilmælum til Vinnumálastofnunar að hún víki frá aldursskilyrðum þegar sótt er um atvinnuleysibætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli.

    04. júl. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Atvinnuvegir, Covid-19

    Aukin fjárfesting á Suðurnesjum

    Í samræmi við heimildir í fjáraukalögum fyrir árið 2020 hefur fjármála- og efnahagsráðherra ákveðið að auka við hlutafé Isavia ohf. um 4 milljarða króna með því skilyrði að félagið ráðist í innviðaverkefni á Keflavíkurflugvelli strax á þessu ári.

    30. jún. 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Evrópusamvinna, Landamæraeftirlit, Schengen-samstarfið, Útlendingar

    Óbreyttar reglur á landamærum þar til ný reglugerð tekur gildi

    Í dag samþykktu aðildarríki ESB afnám tímabundinna ferðatakmarkana inn á Schengen-svæðið gagnvart ríkisborgurum 15 ríkja. Listi yfir þessi lönd verður endurskoðaður á vegum ESB á minnst 14 daga fresti.

    27. jún. 2020Dómsmálaráðuneytið, Kosningar, Covid-19

    Aðstaða fyrir fólk í sóttkví til að kjósa

    Ákveðið hefur verið að aðstaða fyrir þá sem eru í sóttkví vegna Covid 19 og vilja greiða atkvæði í forsetakosningunum í dag verði opnuð í Hlíðarsmára 1 í Kópavogi á bílaplani sunnan megin við húsið. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu mun sjá um kosninguna. Unnt verður að greiða atkvæði milli kl. 15 og 18:30.

    26. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Utanríkisráðuneytið

    Gjald vegna skimunar á landamærum verður lægra en áformað var

    Þann 1. júlí næstkomandi hefst gjaldtaka af komufarþegum vegna skimunar fyrir COVID-19 á landamærum. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að gjaldið verði 11.000 kr. ef greitt er á staðnum en 9.000 kr. ef greitt er fyrirfram. Þetta er nokkru lægra gjald en upphaflega var áætlað samkvæmt kostnaðarmati. Nýtt mat byggt á fenginni reynslu og breyttum forsendum leiðir í ljós að kostnaður við hvert sýni er að jafnaði lægra en ætlað var. Reglugerð heilbrigðisráðherra um gjaldtökuna hefur verið send til birtingar í Stjórnartíðindum.

    26. jún. 2020Dómsmálaráðuneytið, Lög og réttur, Vinnumál, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Heimildir til endurskipulagningar orðnar að lögum

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp dómsmálaráðherra um tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar. Um er að ræða lög sem auðvelda eiga fyrirtækjum að endurskipuleggja rekstur sinn og þar með komast hjá gjaldþroti vegna tímabuns tekjumissis vegna áhrifa Covid-19.

    26. jún. 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Norrænt samstarf, Almannaöryggi

    Dómsmálaráðherra stýrði norrænum ráðherrafundi vegna Covid-19

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, stýrði í morgun fundi norrænna ráðherra dóms- og innanríkismála. Efni fundarins voru aðgerðir og viðbrögð vegna Covid-19 faraldursins.

    26. jún. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Nær allar mótvægisaðgerðir vegna heimsfaraldurs komnar til framkvæmda

    Nær allar mótvægisaðgerðir sem gripið hefur verið til vegna heimsfaraldurs kórónuveiru eru komnar til framkvæmda. Eftir stendur greiðsla launa á uppsagnarfresti, en stefnt er að því að fyrsti hluti komi til greiðslu fyrir 20. júlí, og stuðningslán þar sem verið er að leggja lokahönd á umsóknargátt.

    25. jún. 2020Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Þrjátíu þúsund hafa sótt Ferðagjöfina: Komdu með!

    Nú hafa yfir þrjátíu þúsund einstaklingar sótt Ferðagjöfina sína. Allir einstaklingar 18 ára og eldri með lögheimili á Íslandi fá Ferðagjöf að andvirði 5.000 kr. Gjöfin er liður í því að styðja við bakið á íslenskri ferðaþjónustu í kjölfar kórónuveirufaraldurs og efla þannig íslenska ferðaþjónustu sem og hvetja landsmenn til að eiga góðar stundir á ferðalagi víðsvegar um landið. Hægt er að kynna sér Ferðagjöf á vefsíðunni www.ferdalag.is og sjá hvaða fyrirtæki taka þátt.

    25. jún. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti

    Samningur um lágmarksflug til Boston framlengdur

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur framlengt samning við Icelandair um lágmarksflug til Bandaríkjanna til og með 8. ágúst.

    25. jún. 2020Covid-19, Fiskeldi, Landbúnaður, Landgræðsla og skógrækt, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Almannaöryggi

    Norrænu ráðherrarnir vilja efla fæðuöryggi

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra og norrænir ráðherrar á sviði landbúnaðar, matvæla, fiskveiða, fiskeldis og skógræktar vilja efla og styrkja fæðuöryggi á Norðurlöndunum. Þetta er niðurstaða norræns ráðherrafundar sem fram fór í gær.

    24. jún. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Afgreiðsla lokunarstyrkja gengur vel - ánægja með úrræði stjórnvalda

    Um 170 umsóknir um lokunarstyrki hafa borist frá því opnað var fyrir umsóknir 12. júní. Af þeim hafa 75% verið afgreiddar og styrkfjárhæð að upphæð 137 m.kr. greidd út. Samkvæmt könnun sem gerð var fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið má búast við færri umsóknum en upphaflegt mat gerði ráð fyrir.

    24. jún. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Jöfnunarsjóður, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Nýjar og endurskoðaðar áætlanir um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga

    Framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hafa verið endurskoðuð í takt við nýja áætlun um tekjur sjóðsins. Endurmeta þurfti tekjur sjóðsins vegna efnahagslegra áhrifa af Covid-19 faraldrinum.

    24. jún. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Metaðsókn í sumarnám: 5.100 nemar í háskólum, 330 í framhaldsskólum

    Skráningum í sumarnám háskólanna hefur fjölgar ört og nú hafa 5.100 nemendur skráð sig í slíkt nám og rúmlega 330 í sumarnám framhaldsskólanna.

    23. jún. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19

    Breytt ferðaráð íslenskra stjórnvalda

    Nú þegar faraldurinn er í rénun í Evrópu og landamæri flestra ríkja Evrópska efnahagssvæðisins hafa opnast Íslendingum hafa þessar ráðleggingar verið endurskoðaðar og er nú ekki lengur varað við ónauðsynlegum ferðum til þeirra ríkja Evrópu sem Íslendingar geta ferðast til án sérstakra skilyrða.

    23. jún. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Norrænt samstarf, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Samstarfsráðherrar ræddu jafnréttismál og þátttöku ungmenna að framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, tók í dag þátt í fjarfundi samstarfsráðherra Norðurlandanna um framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar og áhrif Covid-19 faraldursins.

    23. jún. 2020Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Styrkir til æskulýðsstarfs vegna COVID-19

    Félagasamtök sem standa fyrir skipulögðu starfi fyrir börn og ungmenni geta nú sótt um styrki til átaksverkefna í æskulýðsstarfi eða vegna tekjutaps félaga vegna COVID-19.

    22. jún. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Fjármagn tryggt til framhalds- og háskóla til að mæta aukinni aðsókn

    Framhalds- og háskólum verður tryggt nægt fjármagn til að mæta metaðsókn í skólana, samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Áætlanir gera ráð fyrir að á komandi skólaári fjölgi nemendum á framhaldsskólastigi um allt að 2.000 og um 1.500 á háskólastigi.

    19. jún. 2020Ferðaþjónusta, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ferðagjöfin afhent Íslendingum

    „Það er mjög ánægjulegt að þessari ívilnun í þágu ferðalaga innanlands hafi nú verið hleypt af stokkunum. Einn og hálfur milljarður er töluverð fjárhæð og þó að hlutur hvers og eins skipti kannski ekki sköpum fyrir einstaklinginn felst í honum er þetta ótvíræð hvatning um að nýta þá fjölbreyttu og góðu þjónustu sem íslensk ferðaþjónusta hefur upp á að bjóða. Ég þakka öllum sem unnu hörðum höndum að tæknilegri útfærslu á verkefninu og ég vona að þetta íslenska ferðasumar verði okkur sem flestum bæði ánægjulegt og eftirminnilegt.“

    16. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Álagsgreiðslur heilbrigðisstofnana til starfsfólks vegna COVID-19

    Heilbrigðisráðuneytið hefur sent erindi til heilbrigðisstofnana vegna álagsgreiðslna til heilbrigðisstarfsfólks sem staðið hefur í framlínunni vegna COVID-19. Ráðgert er að álagið verði greitt út 1. júlí. Álagsgreiðslurnar nema samtals 1,0 milljarði króna með launatengdum gjöldum í samræmi við ákvörðun Alþingis sem birtist í fjáraukalögum nr. 36/2020.

    15. jún. 2020Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    223 verkefni hljóta styrki úr tónlistarsjóði

    Tilkynnt hefur verið um úthlutanir úr tónlistarsjóði, annars vegar síðari úthlutun ársins 2020 og aukaúthlutun átaksverkefnis stjórnvalda vegna COVID-19.

    11. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Um bætur til hjúkrunarheimila vegna COVID-19 kostnaðar

    Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu halda því ítrekað fram að stjórnvöld hyggist ekki ætla að bæta hjúkrunarheimilum aukinn kostnað sem rekja megi til COVID-19 faraldursins, síðast í Morgunblaðinu í dag. Þetta gera þau þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda um annað. Sjúkratryggingar Íslands hafa óskað eftir gögnum frá hjúkrunarheimilum þar sem sýnt er fram á hve hár þessi kostnaður er og í hverju hann er fólginn og stendur sú vinna enn yfir. Þá hefur heilbrigðisráðuneytið óskað eftir fjárveitingu á fjáraukalögum til að koma til móts við heimilin og er stefnt að slíku uppgjöri þegar rekstrarniðurstöður ársins liggja betur fyrir. Þegar fullnægjandi upplýsingar frá hjúkrunarheimilunum liggja fyrir munu Sjúkratryggingar Íslands meta gögnin og afgreiða.

    11. jún. 2020Innviðaráðuneytið, Utanríkismál, Covid-19, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið

    Vestnorrænu löndin skilgreini sameiginlegt grænt svæði

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, tók í dag þátt í ársfundi Vestnorræna ráðsins og flutti ræðu fyrir hönd samstarfsráðherra landanna þriggja, Íslands, Færeyja og Grænlands.

    11. jún. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Skýrsla um nýtingu úrræða í heimsfaraldri: Hátt í 40 milljarðar í beinan stuðning til heimila og fyrirtækja

    Heimili og fyrirtæki hafa til þessa fengið 38,2 ma.kr. í beinan stuðning vegna heimsfaraldurs kórónuveiru að því er fram kemur í skýrslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins um nýtingu efnahagsúrræða vegna faraldursins. Þá hafa 19,5 ma.kr. farið í frestun skattgreiðslna, 20 ma.kr. í frestun aðflutningsgjalda auk þess sem 6,6 ma.kr. hafa verið lánaðir með ríkisábyrgð. Heimilin munu auk þess hafa fengið fyrirframgreiddan um 21 ma.kr. úr séreignarsparnaði fyrir árslok.

    11. jún. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Tryggja þolendum ofbeldis aðstoð

    Markmiðið að tryggja þolendum, aðstandendum og gerendum ofbeldis fjölbreyttar leiðir til að leita aðstoðar.

    11. jún. 2020Dómsmálaráðuneytið, Sýslumenn, Covid-19

    Aukið framboð rafrænnar þjónustu hjá sýslumönnum

    Enn fjölgar kostum rafrænnar þjónustu við almenning hjá sýslumannsembættum. Nú er hægt að sækja ýmis málsgögn vegna fjölskyldumála gegnum island.is.

    11. jún. 2020Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Úrræði vegna faraldurs: Nýting heimila og fyrirtækja

    nóvember 2020 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Úrræði vegna faraldurs: Nýting heimila og fyrirtækja Heimili og fyrirtæki hafa til þessa fengið 38,2 ma. kr

    11. jún. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19, Rekstur og eignir ríkisins

    Meiri umsvif í hagkerfinu í þriðju bylgju faraldursins

    Umsvif í hagkerfinu eru mun meiri nú en í fyrstu bylgju heimsfaraldursins. Neysla Íslendinga innanlands er nú svipuð og á sama tíma í fyrra en í fyrstu bylgju faraldursins dróst hún saman um 20%. Umferð á höfuðborgarsvæðinu hefur minnkað töluvert sem líklega endurspeglar aukna fjarvinnu.

    10. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Hertar sóttvarnaaðgerðir á höfuðborgarsvæðinu

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis um hertar samkomutakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu og taka þær gildi á morgun, 7. október. Samkomutakmarkanir sem kynntar voru í gær gilda óbreyttar annars staðar á landinu. Gildistími þessara takmarkana er til og með 19. október.

    10. jún. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál, Jöfnunarsjóður

    Fimm milljarða innspýting til sveitarfélaga

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kynnti aðgerðir til að veita sveitarfélögum fjárhagslega viðspyrnu á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna.

    10. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Undanþágur frá samkomubanni fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki

    Heilbrigðisráðherra veitti síðastliðið vor undanþágur frá samkomubanni fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki, svo unnt væri að halda starfsemi þeirra órofinni. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að áður veittar undanþágur haldi gildi sínu, þannig að hertar sóttvarnaráðstafanir raski ekki umræddri starfsemi. Sömu skilyrði fyrir undanþágum gilda og áður, en þær voru veittar að undangengnu samráði við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Matvælastofnun.

    • First
    • Prev
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband