17. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál, Covid-19, Innviðaráðuneytið
Víðtækt samstarf ríkis, sveitarfélaga, fagaðila og hagsmunaaðila í þágu viðkvæmra hópa vegna Covid 19
Félags- og barnamálaráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga rituðu í dag undir samstarfsyfirlýsingu til aðgerða sem miða að því að takast á við þær áskoranir sem stofnanir ríkisins, félagsþjónusta og aðrir aðilar sem sinna þjónustu við viðkvæma hópa í landinu standa frammi fyrir vegna Covid-19 veirunnar.