09. júl. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og fjölskyldumál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Félags- og barnamálaráðherra ræðir um þátttöku barna í stefnumótun stjórnvalda á LÝSU – rokkhátíð samtalsins
Ásmundur Einar Daðason, félags – og barnamálaráðherra, tók þátt í LÝSU, rokkhátíð samtalsins, sem nú fram fer í Hofi á Akureyri. LÝSa er lýðræðishátíð sem ætlað er að skapa vettvang fyrir vandaða umræðu um öll möguleg málefni samfélagsins og virkja samtal milli almennings og stjórnmálamanna.