04. nóv. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Formennska Íslands 2019, Norrænt samstarf, Vinnumál
Alþjóðavinnumálastofnunin 100 ára
Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) fagnar 100 ára afmæli í dag og er þess víða minnst, m.a. í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Grunnurinn var lagður að starfseminni 11. apríl árið 1919 með afgreiðslu skjals sem nokkru síðar varð XIII. kafli friðarsamningsins sem var undirritaður í Versölum 28. júní 1919. Stofnunin varð hluti af Þjóðabandalaginu en hefur verið ein af sérstofnunum Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1946.