22. mar. 2019Neytendamál, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið
Skipað í samráðshóp um betri merkingar matvæla
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað í samráðshóp um betri merkingar matvæla. Í síðasta mánuði var undirritað samkomulag milli sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Bændasamtaka Íslands, Neytendasamtakanna, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka iðnaðarins um að gera gangskör í því að bæta merkingar á matvælum og tryggja þannig betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif þeirra.