17. maí 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál
Stærsti sigurinn að vera með
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, færði í dag Íþróttasambandi fatlaðra tvær milljónir að gjöf í tilefni af 40 ára afmæli sambandsins. Íþróttasamband fatlaðra hefur frá upphafi barist kröftuglega fyrir aukinni þátttöku fatlaðs fólks í íþróttum. Þannig hefur það stutt við aukinn þroska þess, sjálfstraust, sjálfsvitund og um leið aukið möguleika þess til að takast á við þær áskoranir sem lífið býður upp á.