17. apr. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Þrír nýir skrifstofustjórar í félagsmálaráðuneytinu
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur í samræmi við nýtt skipurit félagsmálaráðuneytisins, skipað þrjá nýja skrifstofustjóra til starfa í ráðuneytinu: Ernu Kristínu Blöndal yfir skrifstofu barna- og fjölskyldumála, Gunnhildi Gunnarsdóttur yfir skrifstofu húsnæðis- og lífeyrismála og Bjarnheiði Gautadóttur yfir skrifstofu vinnumarkaðar og starfsendurhæfingar. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við mat sérstakrar hæfnisnefndar sem skipuð var til að meta hæfi umsækjenda.